Vetraríþróttir vinsælar fyrir norðan Sara McMahon skrifar 16. febrúar 2013 14:45 Þessi mynd var tekin af ungum snjóbrettakappa er atti kappi í Brettakeppninni á Ráðhústorgi í fyrra. Mynd/Þórir Tryggvason.
Vetrar- og útivistarhátíðin Éljagangur hófst á Akureyri í gær og lýkur á morgun. Þetta er í þriðja sinn sem hátíðin fer fram og að henni standa meðal annars Vetraríþróttamiðstöð Íslands, Hlíðarfjall, Skíðafélag Akureyrar, Akureyrarstofa auk fjölda annara. Ætlunin er að kynna ólíkar vetraríþróttir fyrir fólki. Stór og skemmtileg dagskrá er í boði um helgina fyrir hvern þann sem hefur unun af útiveru, snjó og hreyfingu. Meðal þess sem boðið er upp á er brettakeppni, sleðaspyrna, snjóflóðanámskeið, hundasleðakynning, vélsleðaferðir og þyrluskíðamennska í Hlíðarfjalli. „Þetta hófst með vélsleðamönnum sem héldu hér til margra ára vetrarsportsýningu, en hátíðin er nú haldin í þriðja sinn undir formerkjum Éljagangs," segir Birkir Sigurðsson, talsmaður Éljagangs. Miðbær Akureyrar er undirlagður fyrir hátíðina og hefur torginu meðal annars verið breytt í stærðarinnar stökkpall auk þess sem mótorkrosshjól munu þeysast um ísilagða tjörnina í dag. Birkir segir Norðanmenn vera mikið útivistarfólk og adrenalínfíkla enda blómstra vetraríþróttirnar þar í bæ. „Ég held það sé borðliggjandi. Það standa allir bæjarbúar að þessari hátíð." Dagskrá Éljagangs má finna á vefsíðunni eljagangur.is.
Mest lesið Sakamálið sem skekur Bandaríkin Innlent „Þeir báðu um of mikið og buðu of lítið“ Erlent Báðar þyrlur og flugvél gæslunnar á loft samtímis Innlent Límmiðar lifðu ekki af nóttina Innlent Skildi sjö ára son sinn eftir á Fuji-fjalli Erlent Bíllinn fannst skammt frá en þjófarnir eru ófundnir Innlent Handalögmál milli öryggisvarðar og þjófs Innlent Tveir hinna látnu lögreglumenn Erlent Allt gengið vel og „ekkert að fara að klikka“ Innlent Engin þjónusta: „Staðan er náttúrulega grafalvarleg á þessu svæði“ Innlent Fleiri fréttir Báðar þyrlur og flugvél gæslunnar á loft samtímis Sakamálið sem skekur Bandaríkin Allt gengið vel og „ekkert að fara að klikka“ Bíllinn fannst skammt frá en þjófarnir eru ófundnir Handalögmál milli öryggisvarðar og þjófs Límmiðar lifðu ekki af nóttina Segir augljóst að lögum hafi ekki verið framfylgt við kyrrsetninguna Segja Morgunblaðið leggja þeim orð í munn Björguðu veikum göngumanni í kílómetrahæð á Fimmvörðuhálsi Skipunartíminn lengdur án auglýsingar Engin þjónusta: „Staðan er náttúrulega grafalvarleg á þessu svæði“ Bændur órólegir vegna skorts á dýralæknum Aftur í skólastjórastólinn Veðrið „ekki eins slæmt og það lítur út fyrir að vera“ Rannsaka líkamsárás miðsvæðis Búist við þungri umferð á fjölförnum gatnamótum „Við lítum á land ykkar sem eðlilegan hluta af evrópsku fjölskyldunni“ Sveitarfélögin séu ekki sökudólgurinn Upphrópanir bæjarráðs séu ótímabærar Viðtal við stækkunarstjóra, umferðartafir og stafræn hvíld Rekstrarformið byggi á sniðgöngu kjarasamninga Réðst á móður sína og hótaði ítrekað: „Ég sting þig, ég ætla að stinga þig“ Gætum þurft að framvísa smáríkjakortinu Afnema byggingarréttargjöld í Reykjanesbæ Nýi Landspítalinn verði tilbúinn í árslok 2029 Baunað á Jónas Má þvert á flokka Hætta við skólaakstur úr Suðurhlíðum þremur dögum fyrir skólabyrjun Kristín fyrsti sýslumaðurinn fyrir allt landið Viðurkennir að opinber gjöld hefðu getað hækkað minna „Ég get ekki svarað því“ Sjá meira