Fleiri fréttir

Lést í Landmannalaugum

Erlendur karlmaður á þrítugsaldri lést í Landmannalaugum í nótt. Tilkynnt var um veikindi hans um klukkan fjögur. Lífgunartilraunir voru reyndar en þær báru ekki árangur. Sveinn Kristján Rúnarsson, yfirlögregluþjónn á Hvolsvelli, segir að kallað hafi verið á þyrlu Landhelgisgæslunnar en læknir sem kom með þyrlunni úrskurðaði manninn látinn á staðnum. Lík mannsins var síðan flutt til Reykjavíkur í nótt.

Tekinn tvisvar sömu helgina fyrir fíkniefnaakstur

Karl á fertugsaldri var tekinn í tvígang fyrir fíkniefnaakstur um helgina. Fyrst var hann stöðvaður í miðborginni á föstudagskvöld og svo aftur í Breiðholti á sunnudagskvöld. Í fyrra skiptið fannst jafnframt marijúana í fórum hans en maðurinn hefur alloft áður komið við sögu hjá lögreglu.

Segist hafa ekið á sjötíu kílómetra hraða - sérfræðingur ósammála

Átján ára piltur sem hefur verið ákærður fyrir manndráp af gáleysi segist hafa verið á sjötíu kílómetra hraða þegar hann missti stjórn á bíl sínum, með þeim afleiðingum að Eyþór Darri Róbertsson lést. Sérfræðivitni segir ómögulegt að ökumaðurinn hafi verið á undir hundrað kílómetra hraða.

Rannsókn á brunanum að hefjast

"Það eru allar líkur á því að það hafi verið kveikt í, segir Jóhannes Ólafsson yfirlögregluþjónn í Vestmannaeyjum. Lögreglan er nú að byrja að rannsaka hvernig eldur kom upp í tveimur bifreiðum í Skvísusundi í Vestmannaeyjum. Hann segir að búið sé að ræða við eiganda bílanna og það sé ekkert sem ætti að hafa kveikt eldinn.

Neituðu að ræsa varðskipin - Kalla þurfti út dráttarbát

Kalla þurfti út dráttarbát í morgun til þess að draga varðskipin Ægi og Tý frá bryggju svo varðskipið Þór gæti lagst að bryggjunni. Samkvæmt upplýsingum frá hafnsögumönnum Faxaflóahafnar í Reykjavík þá var ástæðan sú að enginn vélstjóri fékkst til þess að ræsa skipin, þurfti því að draga þau frá bryggju með dráttarbát.

Fíkniefnabrotum fjölgar á milli ára - innbrotum fækkar

Eignaspjöllum, fíkniefnabrotum og ölvunarakstri hefur farið fjölgandi á fyrstu fimm mánuðum ársins miðað við sama tímabil á síðasta ári. Fíkniefnabrotunum hefur hinsvegar fjölgað á síðustu tveimur árum. Þannig voru fíkniefnabrotin 577 árið 2010 en 649 árið eftir. Á fyrstu fimm mánuðunum í ár eru þau 851.

Prestastefna sett í Hallgrímskirkju

Prestastefna hefst klukkan tíu í Hallgrímskirkju og stendur til miðvikudags. Gert er ráð fyrir að um 150 prestar og djáknar sæki stefnuna, samkvæmt upplýsingum frá Biskupsstofu. Yfirskrift stefnunnar er Þjónandi kirkja og verður rætt um kærleiksþjónusta kirkjunnar, díakoníuna.

Minnstu munaði að stórtjón yrði af eldsvoða í Eyjum

Minnstu munaði að stórtjón yrði þegar hátt í tíu metra háar eldtungur úr tveimur logandi bílum sleiktu vegg trésmíðaverkstæðis við Skvísusund í Vestmannaeyjum í nótt, og rúður voru farnar að springa í húsinu.

Frambjóðendur opni bókhaldið

Andrea Ólafsdóttir og Herdís Þorgeirsdóttir forsetaframbjóðendur hafa báðar opnað bókhald sitt og skora á aðra frambjóðendur að gera slíkt hið sama. Hannes Bjarnason segist ætla að birta bókhald sitt um leið og tími gefst til. Andrea hefur safnað 26 þúsund krónum og Herdís 519 þúsund krónum. Þær hafa báðar birt yfirlit yfir það hverjir hafa styrkt þær.

Háhyrningar í selaveislu í Búðardal

Þau undur og stórmerki gerðust að háhyrningar eltu seli alveg uppundir Búðardal á föstudaginn var, og héldu þar mikla veislu með tilheyrandi fuglageri sem sveimaði fyrir ofan og beið eftir leifunum.

Tekjuskattar óbreyttir 2013

Tekjuskattur á einstaklinga og skattar á fyrirtæki verða ekki hækkaðir á næsta ári. Krafa verður gerð um eins prósents niðurskurð í ríkisrekstri. Oddný G. Harðardóttir fjármálaráðherra segir það eðlilega aðhaldsaðgerð.

Rólegt á strandveiðunum

Rólegra var í nótt og morgun hjá stjórnstöð Gæslunnar og Vaktstöð siglinga, en undanfarna mánudaga, því nú er strandveiðikvótinn búinn bæði á vestur- og norðursvæðinu.

Sjö ökumenn teknir úr umferð

Sjö ökumenn voru teknir úr umferð á höfuðborgarsvæðinu fyrir að aka undir áhrifum fíkniefna frá klukkan fimm í gærkvöldi og til miðnættis, eða einn á klukkustund að meðaltali.

Þyrla sótti veikan mann í Veiðivötn

Maður veiktist hastarlega upp við Veiðivötn í nótt og þar sem talið var að hann þyrfti að komast sem allra fyrst undir læknishendur, var óskað eftir að þyrla Gæslunnar sækti hann

Tvær háar brýr yfir Elliðaár

Tvær brýr fyrir gangandi vegfarendur og hjólreiðamenn munu rísa við Elliðaárósa á næstunni. Burðarrammar þeirra munu ná átján metra upp í loftið og vera 40 metra langir. Borgin og Vegagerðin standa að framkvæmdinni og hafa veitt 160 milljónir króna í verkið.

Jóhanna vill að ráðherrar víki af þingi

Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra vill skoða þá hugmynd að ráðherra víki af Alþingi þegar þeir hafa verið skipaðir. Hún telur að slík breyting mundi styrkja þingræðið. Forsætisráðherra kom inn á málið í hátíðarræðu sinni 17. júní.

Tímabilið hefst fyrr en áður

Ferðamannastraumurinn í ár um Snæfellsnes byrjar óvenju snemma. Þetta segir Ingi Hans Jónsson sem rekur kaffihúsið og minjasafnið Kaffi Emil á Grundarfirði.

Bræður björguðu kafara úr lífsháska

„Við heyrðum hrópað á hjálp en vissum ekki hvaðan kallið kom," segja Valdimar og Óskar Axelssynir sem björguðu kafara úr lífsháska við Hjalteyri í Eyjafirði í fyrradag.

Búist við 10 til 15 þúsund gestum í Víðidal

Landsmót hestamanna hefst í dag en í ár fer mótið fram í Víðidal í Reykjavík. Mikill viðbúnaður hefur verið í dalnum í aðdraganda mótsins en búist er við 10 til 15 þúsund gestum.

300 milljarðar tapast daglega

Hátt í 700 starfsmenn á norskum olíuborpalli í Norðursjó lögðu niður störf á laugardagskvöldið og hófu verkfall. Talið er að með verkfallinu tapist 300 milljarðar íslenskra króna á sólarhring. Þetta kemur fram á vefnum Vg.no.

78% Þjóðverja vilja Grikkland af evrusvæðinu

Wolfang Schäuble, fjármálaráðherra Þýskalands, tjáði sig um stöðu Grikklands innan Evrópusambandsins í samtali við dagblaðið Bild am Sonntag í gær. Í viðtalinu ráðlagði Schäuble Grikkjum og sagði að þeir þyrftu að hætta að biðja um meiri aðstoð og snúa sér frekar að því að framkvæma gefin loforð.

Vísindamenn brjótast inn í heila Hawkings

Eðlisfræðingurinn Stephen Hawking leitar nú nýrra leiða til tjá hugsanir sínar. Heilsu hans heldur áfram að hraka og senn líður að þeim degi að hann muni ekki lengur geta tjáð sig.

Ólafur Ragnar og Þóra töluðu mest

Ólafur Ragnar Grímsson var ræðukóngurinn í sjónvarpskappræðum Stöðvar 2 og Vísis sem fram fór í Hörpu í kvöld. Ólafur Ragnar talaði í 16 mínútur og 55 sekúndur en Þóra í 14 mínútur og 35 sekúndur. Frambjóðendurnir töluðu allir í meira en 10 mínútur. Andrea Ólafsdóttir og Herdís Þorgeirsdóttir töluðu báðar í 11 mínútur, Ari í 10 mínútur og 55 sekúndur og Hannes í 10 mínútur og 15 sekúndur.

Ólafur harðneitar því að hann sé pólitískur forseti

Ólafur Ragnar Grímsson þvertekur fyrir það að hann sé pólitískur forseti. Hann segir að það séu einungis þrjú pólitísk málefni sem hann hafi fjallað um. Það séu Icesavemálið, Evrópusambandið og stjórnarskrármálið. Allar hans gjörðir og ummæli hafi verið í samræmi við íslenska stjórnskipunarhefð.

Eyddi tæplega tveimur milljónum í auglýsingar

Þóra Arnórsdóttir upplýsti í kappræðum forsetaframbjóðenda á Stöð 2 og Vísi í Hörpu í kvöld að hún hefði eytt 1746 þúsund krónum í auglýsingar sem hafa birst meðal annars í strætóskýlum víða á höfuðborgarsvæðinu.

Ari Trausti: Ætlar að fara oftar til Akureyrar en Kína

Ari Trausti Guðmundsson myndi reyna að brúa bilið á milli höfuðborgarsvæðisins og landsbyggðarinnar næði hann kjöri sem forseti lýðveldisins, þetta kom fram í kappræðum forsetaframbjóðenda sem fram fara í beinni útsendingu í Hörpu. Hann bætti svo við:

Óraunhæft að forseti leggi fram frumvarp

Forsetaframbjóðendur eru ósammála um það hvort forseti geti lagt fram frumvarp. Andrea Ólafsdóttir telur að forseti geti lagt fram slíkt frumvarp, en það myndi hann gera í fullu samráði við forsætisráðherra. Ari Trausti líka. "Eins og ég les stjórnarskrána þá getur hann það," sagði Ari Trausti Guðmundsson. En hann sagði að forsetinn yrði algjörlega áhrifalaus um það hvað yrði um slíkt frumvarp. Forsetinn yrði að gera þetta í samráði við forsætisráðherra.

Vill lækna vantraust almennings á Alþingi

"Þessi umræða endurspeglar nýtt og djúpstætt vandamál,“ sagði Ólafur Ragnar Grímsson í kappræðunum á Stöð 2 í Hörpunni, þegar rætt var um það hvort það væri eðlilegt að forseti legði fram frumvarp á Alþingi líkt og Andrea Ólafsdóttir lýsti sig reiðutilbúna að gera varðandi skuldamál heimilanna.

Hannes Bjarnason: "Kannski þarf forsetinn hirðfífl“

Hannes Bjarnason segist fullviss um að hann geti orðið góður leiðtogi landsins þegar hann var spurður út í viðbrögð ungs fólks sem rætt var við á dögunum og sýnt var frá í kappræðum Stöðvar 2 sem nú fara fram í Hörpu.

Ólafur Ragnar: Fólkið vill öryggi

Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands og Andrea Ólafsdóttir eru sammála um það að fólk hugsi um öryggi þegar það lítur til framtíðar. Þá vilji það fá tækifæri til þess að nýta málskotsrétt forsetans áfram. "Þannig túlka ég niðurstöður skoðanakannana," sagði Andrea Ólafsdóttir.

Kappræðurnar hófust á átökum á milli Þóru og Ólafs

Kappræður forsetaframbjóðenda í Hörpu á Stöð 2 fór af stað með átökum á milli Ólafs Ragnars Grímssonar og Þóru Arnórsdóttur. Þannig var Andrea Ólafsdóttir spurð að því hvernig hún upplifði kosningabaráttuna. Hún sagðist hafa orðið vör við aukna hörk

Sjónvarpskappræður forsetaframbjóðendanna í beinni

Kappræður forsetaframbjóðenda í Hörpu eru í beinni útsendingu á Stöð 2 og hér á Vísi. Það eru þau Kristján Már Unnarsson, fréttastjóri Stöðvar 2, og Lóa Pind Aldísardóttir fréttamaður sem stjórna umræðunum. Smelltu hér til að horfa á þáttinn á Vísi.

Hversu langt kemst maður á fimm þúsund krónum?

Ferðalangar koma til með að finna fyrir lækkun olíuverðs í sumar þar sem tankurinn dugar lengur nú en fyrir fjórum mánuðum. Fréttastofa kannaði hversu langt hægt er að komast ef tekið er bensín fyrir fimm þúsund krónur.

Sjá næstu 50 fréttir