Innlent

Ólafur harðneitar því að hann sé pólitískur forseti

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Ólafur Ragnar Grímsson þvertekur fyrir það að hann sé pólitískur forseti. Hann segir að það séu einungis þrjú pólitísk málefni sem hann hafi fjallað um. Það séu Icesavemálið, Evrópusambandið og stjórnarskrármálið. Allar hans gjörðir og ummæli hafi verið í samræmi við íslenska stjórnskipunarhefð.

„Sá fræðimaður sem mest hefur rannsakað forsetaembættið hélt því fram nýlega að ég væri sá forseti sem hefði hvað minnst látið stjórnmálin til sín taka," sagði Ólafur í umræðuþætti Stöðvar 2 og Vísis í Hörpu.


Tengdar fréttir

Hannes Bjarnason: "Kannski þarf forsetinn hirðfífl“

Hannes Bjarnason segist fullviss um að hann geti orðið góður leiðtogi landsins þegar hann var spurður út í viðbrögð ungs fólks sem rætt var við á dögunum og sýnt var frá í kappræðum Stöðvar 2 sem nú fara fram í Hörpu.

Ari Trausti: Ætlar að fara oftar til Akureyrar en Kína

Ari Trausti Guðmundsson myndi reyna að brúa bilið á milli höfuðborgarsvæðisins og landsbyggðarinnar næði hann kjöri sem forseti lýðveldisins, þetta kom fram í kappræðum forsetaframbjóðenda sem fram fara í beinni útsendingu í Hörpu. Hann bætti svo við:

Vill lækna vantraust almennings á Alþingi

"Þessi umræða endurspeglar nýtt og djúpstætt vandamál,“ sagði Ólafur Ragnar Grímsson í kappræðunum á Stöð 2 í Hörpunni, þegar rætt var um það hvort það væri eðlilegt að forseti legði fram frumvarp á Alþingi líkt og Andrea Ólafsdóttir lýsti sig reiðutilbúna að gera varðandi skuldamál heimilanna.

Eyddi tæplega tveimur milljónum í auglýsingar

Þóra Arnórsdóttir upplýsti í kappræðum forsetaframbjóðenda á Stöð 2 og Vísi í Hörpu í kvöld að hún hefði eytt 1746 þúsund krónum í auglýsingar sem hafa birst meðal annars í strætóskýlum víða á höfuðborgarsvæðinu.

Ólafur Ragnar: Fólkið vill öryggi

Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands og Andrea Ólafsdóttir eru sammála um það að fólk hugsi um öryggi þegar það lítur til framtíðar. Þá vilji það fá tækifæri til þess að nýta málskotsrétt forsetans áfram. "Þannig túlka ég niðurstöður skoðanakannana," sagði Andrea Ólafsdóttir.

Sjónvarpskappræður forsetaframbjóðendanna í beinni

Kappræður forsetaframbjóðenda í Hörpu eru í beinni útsendingu á Stöð 2 og hér á Vísi. Það eru þau Kristján Már Unnarsson, fréttastjóri Stöðvar 2, og Lóa Pind Aldísardóttir fréttamaður sem stjórna umræðunum. Smelltu hér til að horfa á þáttinn á Vísi.

Kappræðurnar hófust á átökum á milli Þóru og Ólafs

Kappræður forsetaframbjóðenda í Hörpu á Stöð 2 fór af stað með átökum á milli Ólafs Ragnars Grímssonar og Þóru Arnórsdóttur. Þannig var Andrea Ólafsdóttir spurð að því hvernig hún upplifði kosningabaráttuna. Hún sagðist hafa orðið vör við aukna hörk

Óraunhæft að forseti leggi fram frumvarp

Forsetaframbjóðendur eru ósammála um það hvort forseti geti lagt fram frumvarp. Andrea Ólafsdóttir telur að forseti geti lagt fram slíkt frumvarp, en það myndi hann gera í fullu samráði við forsætisráðherra. Ari Trausti líka. "Eins og ég les stjórnarskrána þá getur hann það," sagði Ari Trausti Guðmundsson. En hann sagði að forsetinn yrði algjörlega áhrifalaus um það hvað yrði um slíkt frumvarp. Forsetinn yrði að gera þetta í samráði við forsætisráðherra.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×