Innlent

Sjö ökumenn teknir úr umferð

Sjö ökumenn voru teknir úr umferð á höfuðborgarsvæðinu fyrir að aka undir áhrifum fíkniefna frá klukkan fimm í gærkvöldi og til miðnættis, eða einn á klukkustund að meðaltali.

Einn þeirra var próflaus og hafði bíll hans ekki verið skoðaður í heil sex ár, og voru númerin klippt af honum.

Annar, sem ekki virti stöðvunarskyldu, reyndist líka próflaus, á ótryggðum bíl og með fíkniefni í fórum sínum.

Lögregla kann ekki skýringar á óvenju miklum fjölda síkra tilvika í gærkvöldi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×