Jóhanna vill að ráðherrar víki af þingi 25. júní 2012 06:00
Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra vill skoða þá hugmynd að ráðherra víki af Alþingi þegar þeir hafa verið skipaðir. Hún telur að slík breyting mundi styrkja þingræðið. Forsætisráðherra kom inn á málið í hátíðarræðu sinni 17. júní. „Margir eru þeirrar skoðunar að ráðherrar eigi ekki að gegna þingmennsku þegar þeir hafa verið skipaðir í embætti. Þessi fækkun og stækkun ráðuneyta gefur svo sannarlega tækifæri til þess að raungera þá hugmynd. Sú róttæka breyting myndi að mínu mati styrkja þingræðið og hvet ég til þess að þetta mál verði skoðað af fullri alvöru." Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, segir galla á þessari hugmynd að stjórnarflokkar hverju sinni fái þá þingmenn í stað þeirra ráðherra sem víkja sæti um leið og ráðherrar hafi áfram málfrelsisrétt á Alþingi. Þannig halli verulega á stjórnarandstöðuna hverju sinni. „Það má velta því fyrir sér hvort hreinlega eigi ekki að fækka þingmönnum," segir Bjarni og vísar til þess að nýir þingmenn kæmu þá ekki inn fyrir þá ráðherra sem vikju. „Ég tel í það minnsta ekki tilefni til að gera breytingar sem myndu í raun fjölga kjörnum fulltrúum." Valgerður Bjarnadóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, lagði fram frumvarp um málið á síðasta þingi, en það féll niður.- kóp
Mest lesið Féll í Jökulsárlón Innlent Uppfylltu öll skilyrði nema aldurstakmarkið Innlent Maður stunginn í miðbæ Reykjavíkur Innlent Segja fórnarlamb í Bakkakotsmálinu skilið eftir Innlent Fara í aðgerðir fáist ekki svör Innlent Handtekinn vegna stunguárásarinnar Innlent Lyfjafræðingar afar ósáttir við fyrirhugaða lagabreytingu og boða aðgerðir ef ekki rætist úr Innlent Dæmi um leikskóla þar sem enginn starfsmaður talar íslensku Innlent Flugfólkið þurfti stöðugt að varast trúarlögregluna Innlent Nafn piltsins sem lést í slysi á Miklubraut Innlent Fleiri fréttir Þrír í haldi vegna stunguárásar í miðbænum Í kapphlaupi við tímann: Fær ekki lyf sem gæti breytt og lengt líf hennar Stærsti skjálftinn 3,4 Fara í aðgerðir fáist ekki svör Handtekinn vegna stunguárásarinnar Segja fórnarlamb í Bakkakotsmálinu skilið eftir Skjálftahrina við Eldey Uppfylltu öll skilyrði nema aldurstakmarkið Lyfjafræðingar afar ósáttir við fyrirhugaða lagabreytingu og boða aðgerðir ef ekki rætist úr Féll í Jökulsárlón Dæmi um leikskóla þar sem enginn starfsmaður talar íslensku Vill lægri skatta á matvöruverð og leitað að stungumanni Leita enn að geranda í stungumáli Epstein-skjölin, verðbólgan og bréf leikskólastjóra Flugfólkið þurfti stöðugt að varast trúarlögregluna Maður stunginn í miðbæ Reykjavíkur „Við þurfum að horfast í augu við þessa fortíð“ Orri oddviti Sjálfstæðismanna í Hafnarfirði Birgir Örn óviss en Ísak Leon handviss Þór leiðir aftur á Seltjarnarnesi María Ellen kjörin oddviti Viðreisnar í Kópavogi Orri áfram oddviti Framsóknar í Kópavogi Jónas Már kjörinn oddviti Samfylkingarinnar í Kópavogi Þorvaldur og Halldór með Einari og Magneu í Framsókn Einn handtekinn fyrir þjófnað í Skeifunni „Þetta er náttúrulega bara rotið og galið“ Nafn piltsins sem lést í slysi á Miklubraut Hjólar í borgina: Hafi engan áhuga á atkvæðum hjólreiðafólks Sigmundur í skotlínunni vegna ummæla um Svíþjóð Berglind rétt marði Þórhall Sjá meira
Lyfjafræðingar afar ósáttir við fyrirhugaða lagabreytingu og boða aðgerðir ef ekki rætist úr Innlent
Lyfjafræðingar afar ósáttir við fyrirhugaða lagabreytingu og boða aðgerðir ef ekki rætist úr Innlent