Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Stór hákarl við Frönsku Rivieruna Stór hákarl hefur sést á sveimi undan ströndum Frönsku Rivierunnar. Kafari í höfninni í Saint Tropez segir að hann hafi séð hákarlinn í tvígang og segir hann um 2ja metra langann. 3.8.2011 07:47
Átökin við Hama halda áfram Öryggis- og hersveitir sýrlenskra stjórnvalda halda áfram umsátri sínu um borgina Hama. Fréttamaður BBC á staðnum segir að margir íbúa í borginni og nærliggjandi þorpum séu að yfirgefa svæðið þar sem búist er við allsherjarárás stjórnarhersins á hverri stundu. 3.8.2011 07:45
Mikill eldsvoði á Suður-Jótlandi í nótt Slökkviliðið á Suður-Jótlandi í Danmörku hefur barist í fleiri tíma í nótt við mikinn eldsvoða í tveimur byggingum endurmenntunarskóla í bænum Haderslev. 3.8.2011 07:43
Mubarak fyrir dómara í dag Réttarhöld yfir Hosni Mubarak, fyrrverandi forseti Egyptalands, hefjast í Kaíró í dag. Mubarak er ákærður um spillingu og að hafa fyrirskipað árásir á mótmælendur en dauðarefsing liggur við þessum glæpum. 3.8.2011 07:41
Tveir snarpir jarðskjálftar í Krísuvík Tveir jarðskjálftar, annar upp á 2,8 á Richter og hinn upp á 2,6 urðu norðaustur af Krísuvík upp úr klukkan tvö í nótt og í kjölfarið fylgdu veikari skjálftar. 3.8.2011 07:37
Ástandið versnar enn í Sómalíu Sameinuðu þjóðirnar og hjálparstofnanir segja að enn sé þörf á frekari aðstoð til nauðstaddra á þurrkasvæðunum í Austur-Afríku. Tólf milljónir manna eru í lífshættu vegna fæðuskorts og ríkir hungursneyð í tveimur héruðum Sómalíu, sem hefur orðið verst úti í þurrkunum. 3.8.2011 07:30
Ók inn í nautgripahjörð, tveir gripir drápust Ungur ökumaður slapp lítið meiddur þegar hann ók inn í nautgripahjörð á Eyjafjarðarbraut Vestri um klukkan tvö í nótt. Einn nautgripur drapst og annar var svo mikið meiddur að dýralæknir aflífaði hann á staðnum. 3.8.2011 07:28
Umferðin minnkaði um 12% um síðustu helgi Umferðin um nýliðna verslunarmannahelgi var rúmlega tólf prósentum minni en um sömu helgi í fyrra, samkvæmt talningu á sex stöðum á hringveginum út frá höfuðborgarsvæðinu. 3.8.2011 07:26
Segjast hafa fundið gröf Filippus postula Ítalskir fornleifafræðingar eru fullvissir um að þeir hafi fundið gröf eins af postulunum 12 í rústum fornrar kirkju í borginni Hierapolis í Tyrklandi. 3.8.2011 07:20
Víðines til skoðunar undir nýtt fangelsi Ríkisstjórnin skoðar nú hvort gamalt húsnæði í ríkiseigu geti nýst undir nýtt fangelsi ef ákveðið verður að reisa ekki fangelsi í einkaframkvæmd eins og hefur verið til umræðu. 3.8.2011 07:00
Þrettán milljónir ber á milli Stjórn Kvikmyndaskóla Íslands hefur óskað eftir að árlegt framlag ríkisins verði aukið úr 38 milljónum króna í 70. Í mars fór stjórnin fram á 140 milljón króna árlegt framlag, en hefur nú lækkað þá ósk. Ráðuneytið hefur boðið 57 milljón krónur árlega. Því hafnaði skólinn í júní. 3.8.2011 06:30
Ákeyrslum á sauðfé fækkar til muna Ákeyrslum á sauðfé á Vestfjörðum hefur stórfækkað milli ára að sögn Önundar Jónssonar, yfirlögregluþjóns hjá lögreglunni á Vestfjörðum. Það sem af er þessu ári hafa komið upp 44 mál þessa eðlis, en þau voru 76 talsins á sama tímabili í fyrra. 3.8.2011 06:00
Tók tvö ólögleg net með makríl Eftirlitsmaður frá Fiskistofu gerði síðastliðinn sunnudag upptæk tvö net sem lögð höfðu verið á Bíldudalsvogi. Bannað er að hafa net við strendur frá föstudagskvöldi til þriðjudagsmorguns en einnig er líklegt að þau hafi legið nær ármynni en lög gera ráð fyrir. 3.8.2011 05:30
Á skilorð fyrir myndatökur í sturtuklefum Ungt fyrrverandi par frá Húsavík hefur í Héraðsdómi Norðurlands eystra verið dæmt í þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að standa saman að nektarmyndatökum af unglingsstúlkum í upphafi ársins 2010. 3.8.2011 05:00
Lyfjuð pokadýr, ekki geimverur Akurhringir á ópíumræktarsvæðum á eyjunni Tasmaníu eru ekki af völdum gesta frá öðrum hnetti, eins og sumir gætu haldið, heldur dýra í óreglu. 3.8.2011 04:30
Óvissa um áfrýjun Sólheimadóms Tvær til þrjár vikur gætu enn liðið áður en ríkislögmaður tekur ákvörðun um hvort dómi Héraðsdóms Reykjavíkur frá síðustu viku, í máli Sólheima gegn ríkinu, verði áfrýjað til Hæstaréttar. 3.8.2011 04:00
Binladen group og sádí-arabískur prins byggja heimsins hæsta turn Turninn mun bera nafnið Kingdom Tower og verður einn kílómeter á hæð, eða 172 metrum hærri en hæsta bygging heims í dag, Burj Khalifa. Nýji turninn mun rísa fyrir norðan borgina Jeddah í Sádí-Arabíu. 2.8.2011 22:00
Fjarlægja ofbeldisfulla tölvuleiki úr hillum vegna fjöldamorðanna Norski verslunarrisinn Coop hefur tímabundið fjarlægt ofbeldisfulla tölvuleiki úr hillum vegna fjöldamorðanna í Útey en hryðjuverkamaðurinn Anders Breivik spilaði slíka leiki. Verslunarmaður í BT segir ekki standa til að hætta sölu á ofbeldisleikjum og hvetur foreldra til að virða aldurstakmörk. 2.8.2011 21:00
Gagnrýnir tregðu ríkisins til að styrkja Kvikmyndaskólann Kvikmyndaskóli Íslands fór fram á 360 prósenta hækkun á framlagi ríkisins í vetur - enda hafi skólinn fjórfaldast að stærð. Þráinn Bertelsson kvikmyndaleikstjóri og stjórnarþingmaður segir illa komið fyrir þjóðinni ef hún getur útskrifað 200 innheimtulögfræðinga árlega en ekki 50 kvikmyndagerðarmenn. 2.8.2011 20:30
RÚV mátti afhenda lista um umsækjendur Persónuvernd hefur úrskurðað að Ríkisútvarpinu hafi verið heimilt að miðla persónuupplýsingum um konu sem sótti um sumarstarf hjá fyrirtækinu í vor. Konan kvartaði að listi umsækjenda um sumarafleysingarstörf á fréttastofu RÚV hafi verið afhentur og birtur á helstu miðlum landsins. Það hafi ekki verið tekið fram þegar sótt var um starfið að listinn yrði gerður opinber. 2.8.2011 16:17
Froðukastari dæmdur í sex vikna fangelsi Jonathan May-Bowles, sem varð heimsþekktur þegar hann kastaði raksápuböku á fjölmiðlamógúlinn Rupert Murdoch þann 20 júlí síðastliðinn, hefur verið dæmdur í sex vikna fangelsi. Hann var í síðustu viku sakfelldur fyrir líkamsárás og áreiti. Hinn 26 ára gamli May-Bowles játaði sök í málinu, en hann veittist að Murdoch og fleygði á hann rakfroðubökunni þar sem fjölmiðlakóngurinn sat fyrir svörum hjá breskri þingnefnd vegna hlerunarmálsins sem varð vikublaðinu News of the World að falli. 2.8.2011 15:47
Næturferð Herjólfs fellur niður Mjög vel hefur gengið að flytja Þjóðhátíðargesti frá Eyjum og því verður næturferðin klukkan hálf þrjú aðfaranótt miðvikudags felld niður. Forsvarsmenn Herjólfs vilja koma því á framfæri að miðar í þessa ferð gilda í aðrar ferðir í dag og á morgun, en allir sem áttu bókað fyrir bíla í ferðinni þurfa að endurbóka. 2.8.2011 15:36
Fundu 20 milljóna ára gamla höfuðkúpu af apa Úganskir og franskir steingervingafræðingar tilkynntu í dag að þeir hefðu fundið 20 milljón ára gamla höfuðkúpu af apa af tegundinni Ugandapithecus. 2.8.2011 14:31
Umferðin dróst saman um 12% Umferðin um verslunarmannahelgina var að meðaltali rúmlega 12% minni en um sömu helgi í fyrra. Þessi niðurstaða fæst þegar skoðaðir eru sex talningastaðir út frá höfuðborgarsvæðinu. 2.8.2011 13:55
Helgi Magnús skipaður vararíkissaksóknari Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra hefur skipað Helga Magnús Gunnarsson í embætti vararíkissaksóknara við embætti ríkissaksóknara. Helgi Magnús er fæddur 4. desember 1964. Hann lauk embættisprófi í lögfræði frá Háskóla Íslands 1998 og stundaði framhaldsnám á háskólastigi í rannsókn og saksókn efnhagsbrota við Polithøgskolen 2004-2005. 2.8.2011 13:43
Rúmlega 660 þúsund lítrar af áfengi drukknir um helgina Sala áfengis í vikunni fyrir verslunarmannahelgina var tæplega 11 prósent minni í lítrum talið, en í sömu viku fyrir ári síðan. Samtals seldust 662 þúsund lítrar af áfengi í ár en 744 þúsund lítra í fyrra. 2.8.2011 13:17
Fékk hvítblæði og gerðist hlaupagarpur "Ég hef búið mér til einkunnarorðin: Ég hleyp því ég get það," segir Gunnar Ármannsson sem greindist með hvítblæði árið 2005 og lauk lyfjameðferð fyrir fimm árum. Af því tilefni ákvað hann í ársbyrjun að hlaupa fimm hlaup til styrktar Krabbameinsfélagi Íslands á þessu ári. Þeim þremur erfiðustu hefur hann þegar lokið. Á laugardag hleypur hann síðan Jökulárhlaupið sem er 32,7 kílómetra utanvegahlaup og loks tekur hann þátt í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka þann 20. ágúst. Allt stefnir í að hann leggi að baki um fimm þúsund kílómetra á árinu. Gunnar segist ekki hafa hlaupið neitt markvisst áður en hann greindist með hvítblæði. Hins vegar hafi hann eins og svo margir aðrir lengi ætlað að byrja að hlaupa. Árið 2004 reimaði hann á sig hlaupaskóna og byrjaði. Hlaupin gengu ágætlega en fljótt fór Gunnar að finna fyrir minnkandi þoli og máttleysi, ólíkt því sem ætti að gerast þegar fólk hefur þjálfun. "Ég skildi ekki hvað þetta var og leitaði til læknis. Það var síðan á þorláksmessu 2005 sem ég greindist með hvítblæði," segir Gunnar. Hann var staðráðinn í að byrja aftur að lyfjameðferð lokinni, árið 2006, en gat það ekki strax vegna meiðsla. "A afmælisdaginn minn 2008 ákvað ég síðan að byrja. Ég tók mér frí í vinnunni og hljóp þá hálfmaraþon í fyrsta skipti. Síðan þá hef ég hlaupið," segir Gunnar. Hann hefur bætt við sig ár frá ári, lagði að baki um þrjú þúsund kílómetra árið 2009, fjögurþúsund á síðasta ári og býst við að hlaupa um fimm þúsund kílómetra í ár. Hugmyndin að hlaupa til styrktar Krabbameinsfélaginu fæddist í ársbyrjun. "Ég ákvað þá að hlaupa fimm löng hlaup. Ég hef sett þetta þannig upp fyrir mér að ég hlaupi eitt hlaup fyrir hvert ár síðan lyfjameðferðinni lauk," segir hann. Fyrsta hlaupið var Parísarmaraþonið sem Gunnar hljóp þann 10. apríl. Hann hljóp 100 kílómetra í Meistaramóti Íslands þann 11. júlí. Þriðja hlaupið var Laugavegurinn sem Gunnar fór þann 16. júlí, en um er að ræða 55 kílómetra utanvegahlaup. Jökulárhlaupið er síðan næsta laugardag. Gunnar hefur hlaupið það áður og hlakkar mikið til. "Ég hljóp það fyrst sumarið 2008. Þetta var mitt fyrsta langa keppnishlaup. Upplifunin var frábær. Umhverfið er svo fallegt og það er eins og þarna sé alltaf gott veður," segir hann. Síðasta hlaupið er síðan Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka en Gunnar er sá keppandi sem safnað hefur mestum áheitum, eða 322 þúsund krónum fyrir Krabbameinsfélagið. Þar ætlar hann að hlaupa heilt maraþon. "Ég ætla að sjá til hvort ég hleyp þetta á einhverjum hraða eða fer bara hægt yfir og skoða mig um," segir hann. Gunnar er afar þakklátur fyrir að hafa fengið heilsuna aftur og geta hlaupið enda tók það mikið á að veikjast af hvítblæði og fara í gegn um þunga lyfjameðferð. "Það var óvíst hvort ég myndi geta hlaupið aftur. Þegar ég loksins gat það þá vildi ég ekki hætta," segir Gunnar. Hann heldur úti bloggsíðu þar sem hann segir frá hugleiðingum sínum í tengslum við hlaupin. Hana má nálgast með því að smella hér. <http://garmur.blog.is/blog/garmur/> Hægt er að heita á Gunnar í Reykjavíkurmaraþoninu með því að smella hér <http://www.hlaupastyrkur.is/hlaupid/keppandi?cid=2136> 2.8.2011 13:00
Óvenjumikill fjöldi nauðgunarmála Fjöldi nauðgunarmála sem hefur komið upp eftir helgina er óvenjumikill segir talskona Stígamóta. 2.8.2011 12:07
Ökumaður sofandi á 130 kílómetra hraða Lögreglan á Vestfjörðum stöðvaði ökumann á 130 kílómetra hraða um helgina. Þegar maðurinn var stöðvaður mun hann hafa þakkað lögreglumanni fyrir að stöðva akstur sinn því hann hafi verið sofandi og ekki vaknað fyrr en farþegar hans bentu honum á að lögreglan væri að gefa honum merki um að stöðva. 2.8.2011 12:00
Þroskahjálp fékk styrk Nýtt útibú Íslandsbanka við Suðurlandsbraut hefur ákveðið að leggja Landssamtökunum Þroskahjálp lið. Þroskahjálp eru regnhlífarsamtök fyrir 22 félög sem eru ýmist foreldra-, styrktar- og fagfélög fólks sem hefur sérhæft sig í þjálfun og þjónustu við fatlaða. Samtökin eru í hagsmunabaráttu fyrir fjölskyldur fatlaðra barna og er þeim þröngur stakkur sniðinn. Styrkurinn nemur hálfri milljón króna. 2.8.2011 11:49
Fundu þrjár kannabisplöntur Lögreglan í Vestmannaeyjum lagði hald á þrjár kannabisplöntur við húsleit í íbúð í Vestmannaeyjum í gærkvöldi. 2.8.2011 11:48
Í gæsluvarðhaldi fram á föstudag Karlmaður á þrítugsaldri, sem grunaður er um nauðgun í Herjólfsdal aðfaranótt sunnudags, var úrskurðaður í gæsluvarðhald fram á föstudag í Héraðsdómi Suðurlands nú fyrir stundu. 2.8.2011 11:30
Safna saman eigum fólksins í Útey Norska lögreglan byrjar í dag á því þungbæra verkefni að taka saman eigur fólks sem var statt í Útey þegar hryðjuverkamaðurinn Breivik hóf skotárás þar. Ragnar Karlsen, yfirlögregluþjónn, segir í samtali við norska ríkisútvarpið að verkefninu gæti verið lokið á föstudaginn. Tugir manna taki þátt í verkefninu. 2.8.2011 11:20
Krafa um enn stærri reiðhöll Gusts seinkar framkvæmdum Hestamannafélagið Gustur vill að staðið verði við samkomulag um að Kópavogsbær reisi reiðhöll sem sé 80x36 metrar. Kópavogsbær hefur samþykkt að kanna kostnað við byggingu slíkrar reiðhallar, en einnig við höll sem verði 64 x 34 metrar. Guðríður Arnardóttir segir að í raun hafi yfirvöld hafnað stærra húsinu. 2.8.2011 11:00
Óvirk umferðarljós á tvennum gatnamótum Umferðarljósin á Breiðhotsbraut, á gatnamótum Breiðholtsbrautar, Nýbýlavegar og Reykjanesbrautar, eru óvirk. Umferðarljósin á gatnamótum Sæbrautar og Súðavogar eru sömuleiðis óvirk. Unnið er að viðgerð. 2.8.2011 10:50
Skelfilegt að hafa veitt fjöldamorðingja innblástur Hinn umdeildi danski kvikmyndaleikstjóri, Lars von Trier, undirbýr nú gerð nýrrar erótískrar kvikmyndar sem mun heita Nymphomaniac. Í myndinni verður rakin erótísk saga konu frá því að hún er ungabarn og þar til hún er fimmtug. 2.8.2011 10:30
Landlæknir fluttur á Barónsstíg Landlæknisembættið hefur starfsemi í gömlu Heilsuverndarstöðinni í Reykjavík í dag, eftir að hafa starfað um árabil að Austurströnd á Seltjarnarnesi. Geir Gunnlaugsson landlæknir segir að starfsfólk hafi unnið að flutningum yfir helgina. Nú þegar starfsemi hefst í Heilsuverndarstöðinni lýkur sameiningaferli Landlæknisembættisins og Lýðheilsustöðvar sem hófst 1. maí síðastliðinn. 2.8.2011 10:01
Bensínbílar fari úr borgum árið 2050 Evrópusambandið hefur gefið út hvítbók í samgöngumálum og vinna EFTA-ríkin nú sameiginlega að umsögn um hana. Í hvítbókinni er að finna tíu leiðir sem unnið verður að til að ná markmiðinu um samkeppnishæft samgöngukerfi, sem nýtir endurnýjanlega orkugjafa. Markmiðið er að ná takmarkinu um sextíu prósenta samdrátt útblásturs. 2.8.2011 10:00
Sævar Ciesielski jarðsunginn í dag Sævar Marinó Ciesielski verður jarðsunginn í dag. Athöfnin fer fram í Dómkirkjunni klukkan 13.00. Séra Örn Bárður Jónsson, sóknarprestur í Neskirskju, annast úrförina. Sævar lést af slysförum í Kaupmannahöfn þann 12. júlí Hann var einn sakborninga í Guðmundar- og Geirfinnsmálinu, og fékk þar þyngsta dóminn. Sævar játaði eftir að hafa verið í gæsluvarðhaldi í um tvö ár. Sævar barðist lengi fyrir endurupptöku málsins en varð ekki að ósk sinni. Hann lætur eftir sig fimm börn á aldrinum 12-36 ára. 2.8.2011 09:02
Tæpir 700 milljarðar segjum við já Samkvæmt rökstuddu áliti ESA þurfa Íslendingar að greiða 670 milljarða króna fyrir 10. september vegna Icesave-skuldbindinga, fallist þeir á álitið. Nú er unnið að rökstuðningi gegn því í efnahags- og viðskiptaráðuneytinu. 2.8.2011 09:00
Nýr hitabeltisstormur í Karabíska hafinu Hitabeltisstormurinn Emily er nú að sækja í sig veðrið í Karabíska hafinu. Sem stendur er vindhraði Emily rúmlega 60 kílómetrar á klukkustund og fer vaxandi. 2.8.2011 07:23
Talið að 130 hafi fallið í Hama í Sýrlandi Stjórnarherinn í Sýrlandi heldur áfram að ráðast á almenning í borginni Hama og nágrenni með skriðdrekum og leyniskyttum. 2.8.2011 07:18
Smöluðu saman 3.000 minkum á Fjóni Um 30 íbúar í grennd við Assens á Fjóni í Danmörku eyddu frídegi verslunarmanna við að hafa upp á og smala saman um 3.000 minkum sem sluppu úr búrum sínum á minkabúi sem þarna er staðsett. 2.8.2011 07:13
Engar tilkynningar um innbrot Engar tilkynningar um innbrot höfðu borist til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu snemma í morgun og engin tilkynning barst í gær. 2.8.2011 07:10
Þyrlan í þremur verkefnum í fyrrinótt Þyrla Landhelgisgæslunnar fór í sjö klukkustunda flug og sinnti þremur verkefnum í fyrrinótt. 2.8.2011 07:00