Ferjusigling setur Noreg á annan endann Kristján Már Unnarsson skrifar 19. júní 2011 14:02 Það þykir raunar umhugsunarefni að svona sjónvarpsefni skuli slá í gegn. NRK í Bergen sendi í fyrra út samfellda dagskrá á rauntíma frá lestarferð milli Bergen og Oslóar og svo mikið var áhorfið að ákveðið var í að senda ferjusiglinguna út beint.
Maraþonútsending norska ríkissjónvarpsins, NRK2, frá Hurtigruten, siglingu ferjunnar Nord Norge milli Bergen og Kirkenes, hefur slegið í gegn, ekki aðeins meðal Norðamanna, heldur um heim allan. Ferjan lagði upp á fimmtudag og strax fyrsta kvöldið fylgdust 1,3 milljónir manna með beinni útsendingu frá ferjunni. NRK2 er með fjölda kvikmyndatökuvéla um borð og utan á skipinu, útsendingarstjórn og gervihnattasendi og þannig er tryggt að áhorfendur geti séð siglinguna frá upphafi til enda, hverja einustu mínútu, þá fimm daga sem hún stendur yfir. Ferjan er á norðurleið og þegar þetta er skrifað er hún á leið til Lofoten og heldur síðan til Tromsö. Hérlendis er hægt að sjá útsendinga bæði í Fjölvarpi Stöðvar 2 og á netinu. Fegursta sjóferð heims Hurtigruten, sem Norðmenn kalla „fegurstu sjóferð heims“, rekur sögu sína aftur til ársins 1893, og er sambærileg íslensku strandsiglingunum. Langt fram eftir síðustu öld var þetta einhver mikilvægasti þáttur í samgöngukerfi Noregs og Hurtigruten er enn vinsæl meðal ferðamanna. Ellefu ferjur halda uppi áætlunarsiglingum þessa leið en þær koma við í 34 bæjum og borgum á leiðinni. Þessi mikla athygli síðustu daga hefur ekki farið framhjá íbúum viðkomandi staða. Hvarvetna sem ferjan kemur flykkjast menn nú á smábátum til að taka á móti á henni og er bátafjöldinn stundum svo mikill að til vandræða horfir. Þannig skapaðist hættuástand þegar ferjan var að sigla inn til Bodö í morgun þegar menn á hraðbátum og sæþotum þustu á fleygiferð allt í kringum ferjuna og sumir afar nærri stefni hennar.Keppast um að fanga athygli sjónvarpsmyndavélanna Allskyns skemmtikraftar á viðkomandi stöðum reyna einnig að nýta sér athyglina og eru mættir á bryggjurnar til að flytja atriði sín þegar ferjan leggst upp að. Þannig voru á sömu bryggjunni á einum staðnum tvær lúðrasveitir, kammerkór, barnakór og fimleikaflokkur, allir að keppa um að fanga augu sjónvarpsmyndavélanna. Á bryggjunum hafa einnig sést harmonikku- og jazzsveitir og dansflokkar og raunar voru allsherjarpartíi og drykkjusöngvar á þeim stöðum sem ferjan kom inn á í gærkvöldi og á föstudagskvöld. Það þykir raunar umhugsunarefni að svona sjónvarpsefni skuli slá í gegn. NRK í Bergen sendi í fyrra út samfellda dagskrá á rauntíma frá lestarferð milli Bergen og Oslóar og svo mikið var áhorfið að ákveðið var í að senda ferjusiglinguna út beint. Hægt er að fylgjast með útsendingu norska ríkisútvarpsins hér.
Mest lesið Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Innlent Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Innlent „Það er ótrúlega dýrt og lýjandi að hafa rétt fyrir sér“ Innlent Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Innlent Þyrlan lenti við Hörpu Innlent „Farið að minna mig á stöðuna í Bandaríkjunum“ Innlent Átján kíló af kókaíni undir fölskum botni Innlent Tortímir gervigreindin mannkyninu? Innlent Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Innlent Buxnalaus Lalli olli glundroða Innlent Fleiri fréttir Nýr sendiherra er Búi og kannast ekki við „þjóðarmorð á hvítum“ Allt ætlaði um koll að keyra þegar grímuskylda var afnumin Gríðarlegur fjöldi fagnaði páfanum Sex látnir eftir að íbúðarbygging hrundi Stofna „samskiptarás“ til að meðhöndla gervigreind Sex ára stúlka setti heimsmet Hafi hafnað tillögu Írana um opnum Hormússunds Baráttan harðnar í Texas: Dæla milljónum í baráttuna um öldungadeildina Sýnir Xi lýðræðisdjásn Bandaríkjanna Reyna að banna arabíska stjórnmálaflokka Þriggja turna þras í furstadæmunum Holmes flutt á áfangaheimili Banna búrkur og níkab Bygging nýs og stærra glæsihýsis Pútíns langt á veg komin Æðstu herforingjar halda skyndifund um árásir Húta Frægt fólk meðal handtekinna í New York „Höfum aldrei átt betra samband“ Tugir fulltrúa gengu út þegar Netanjahú tók til máls Aftur stríð í Eþíópíu Danir vara við aukinni ógn frá Rússum Skortir fólk til að ná tökum á stjórnlausri ebólu Telur kosningasvik ekki hafa áhrif á stjórnarmyndun Høiby skiptir um verjendur Veturinn verði Rússum erfiður Bannaði Trump að banna fjölmiðla Gervigreind hakkaði sig inn á vef stjórnvalda Hélt á myndum af skólabörnum og sakaði Bandaríkin um hryðjuverk Dreifðu óvart piparúða um þinghúsið fyrir leikmun í innflytjendaumræðu Íslensk lögregla hjálpaði við rannsókn á smygli á fólki til Bretlands Polo einn kröftugasti fellibylur sögunnar Sjá meira