Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Mannfall í sprengingum í Nígeríu Þrír létust og átta særðust í sprengingum í Maiduguri í norð-austur Nígeríu í gærkvöldi. Tvær sprengjur sprungu á hóteli og ein á umferðarmiðstöð, en hinir særðu hafa verið fluttir á spítala í nágrenninu. 25.4.2011 11:16
Grófu göng til þess að frelsa mörg hundruð fanga Rúmlega 470 fangar í Kandahar í Afganistan ganga nú lausir eftir að göng voru grafin inn í fangelsið til þeirra. Fjölmargir talíbanar eru á meðal fanganna. Lögregluyfirvöld segja að tekist hafi að handsama tólf fanga á ný og Hamid Karzai forseti landsins segir að um stórslys sé að ræða. Talibanar hafa lýst ábyrgðinni á hendur sér og segjast hafa grafið göngin á fimm mánaða tímabili en þau eru um 320 metrar á lengd. 25.4.2011 11:07
Flugskeytum skotið á höfuðstöðvar Gaddafís Herþotur NATO gerðu í nótt árásir á höfuðstöðvar Gaddafís einræðisherra Líbíu. Heimildir BBC herma að tvö öflug flugskeyti hið minnsta hafi hæft byggingarnar sem eru í miðborg höfuðborgarinnar Trípólí. Engar fregnir hafa borist af mannfalli en stuðningsmenn Gaddafís segja augljóst að árásirnar hafi miðað að því að ráða hann af dögum. 25.4.2011 09:52
Sýrlendingar herða sóknina gegn mótmælendum Sýrlenski herinn gerði í morgun árás á borgina Deera í suðurhluta landsins. Fram kemur á veg breska ríkisútvarpsins, BBC; að herinn notist meðal annars við skriðdreka en óstaðfestar heimildir herma að að minnsta kosti fimm hafi látið lífið. Víðtæk mótmæli gegn stjórn Assads forseta hafa staðið yfir í Sýrlandi frá því í síðasta mánuði. Mótmælendur krefjast lýðræðisumbót og að Assad láti af völdum. Að minnsta kosti 350 hafa látið lífið síðan mótmælin hófust í Sýrlandi. 25.4.2011 09:48
Varað við hálku víðast hvar Varað er við hálku á höfuðborgarsvæðinu en snjór huldi götur víða í borginni. Hið árlega páskahret hefur því látið sjá sig þrátt fyrir að páskarnir séu óvenju seint á ferðinni að þessu sinni. 25.4.2011 09:43
Rólegt á höfuðborgarsvæðinu - fjórir stútar teknir Fjórir voru teknir fyrir ölvunarakstur og einn fyrir akstur undir áhrifum fíkniefna á höfuðborgarsvæðinu í nótt. Þá gistu tveir karlmenn fangageymslur lögreglunnar en annar var tekinn fyrir vörslu fíkniefna. Sá hinn sami var eftirlýstur fyrir að hafa ekki greitt bunka af sektum og verður honum gert að greiða eina milljón króna eða afplána sextíu og sjö daga fangelsi. 25.4.2011 09:33
Erill á Ísafirði - fjórir í fangageymslum Talsverður erill var hjá lögreglunni á Ísafirði í nótt, en um fjögur þúsund gestir sóttu bæinn heim um páskahátíðina. Fjórir gistu fangageymslur, þar af einn fyrir skemmdarverk og tilraun til innbrots. 25.4.2011 09:31
Flugeldafikt orsakaði eldsvoða Eldur kom upp í ruslageymslu við leiksskólann á Stokkseyri í nótt. Tveir fjórtán ára drengir höfðu verið að leika sér með rakettu með þessum afleiðingum. Tvær rúður brotnuðu vegna hitans en skemmdir eru að öðru leyti ekki mjög miklar. Lögreglumenn sem mættu á svæðið röktu fótspor drengjanna í snjónum að dvalarstað þeirra og játuðu þeir verknaðinn þegar á þá var gengið. 25.4.2011 09:29
Um 150 hafa setið saklausir í Guantanamo Um 150 saklausir menn hafa verið vistaðir í Guantanamo fangabúðunum á Kúbu, en tugir hryðjuverkamanna hafa jafnframt verið vistaðir þar. Þetta kemur fram í leyniskjölum sem Wikileaks hefur lekið. 25.4.2011 07:00
Líklegt að nýr þingflokkur verði stofnaður eftir helgi Einn þremenninganna sem sögðu sig úr þingflokki Vinstri grænna telur líklegra en ekki að þeir stofni nýjan þingflokk. Þingmaður VG útilokar að nýr þingflokkur starfi undir merkjum Vinstri grænna. 24.4.2011 18:49
10 ár í gær frá stofnun Fréttablaðsins Hinn 23. apríl 2001 kom fyrsta tölublað Fréttablaðsins út. Útgáfa blaðsins átti sér nokkurn aðdraganda, segir Eyjólfur Sveinsson stofnandi Fréttablaðsins. 24.4.2011 15:40
Rafmagnslaust við Úlfarsfell Rafmagnslaust var við Úlfarsfellið og í nágrenni um skeið í dag. Orkuveita Reykjavíkur brást snarlega við og lagfærði það sem aflaga fór. Rafmagn var komið aftur á fljótlega eftir klukkan tvö. 24.4.2011 14:12
Íslendingur varð Evrópumeistari í keilu Arnar Davíð Jónsson varð í dag Evrópumeistari unglinga í keilu sem fram fór í Þýskalandi. Hann sigraði Robin Menacher, fyrst 225 - 209 og síðan 224-175. Þetta er fyrsti verðlaunapeningurinn sem Ísland hlýtur á Evrópumóti í keilu. 24.4.2011 13:58
Efndi til fegurðarsamkeppni hesta Gurbanguly Berdymukhamedov, forseti Túrkmenistans, stóð í dag fyrir fegurðarsamkeppni hesta og ákvað í leiðinni að sýna eigin reiðfærni í heimalandi sínu. Tilgangurinn með keppninni var sá að vekja athygli á Túrkmenistan og rjúfa einangrun ríkisins. 24.4.2011 13:52
Ekki sitja föst í vantrausti og tortryggni Við megum ekki við því öllu lengur að sitja föst í vantrausti og tortryggni, sagði Karl Sigurbjörnsson, biskup Íslands, í páskapredikun sinni í Dómkirkjunni í morgun. Hann gerði málefni íslensk samfélags að umræðuefni sínu. 24.4.2011 13:00
Forseti Jemen samþykkir að láta af völdum Forseti Jemens, Ali Abdullah Saleh, hefur fallist á að láta af völdum eftir rúmlega þrjátíu ára valdasetu til að koma á friði í landinu. 24.4.2011 12:10
Svæðisfélög VG á Vesturlandi vilja að Ásmundur víki Svæðisfélög Vinstri grænna í Grundarfirði og Stykkishólmi samþykktu á sameiginlegum fundi sínum á skírdag ályktun þar sem þess er krafist að Ásmundur Einar Daðason segi af sér þingmennsku og hleypi á þing fulltrúa flokksins sem styður ríkisstjórnina. 24.4.2011 12:04
Tvær klukkustundur í að horfa á klám Ungir menn á aldrinum átján til tuttugu og fjögurra ára eyða að meðaltali tveimur klukkustundum á viku í að horfa á klámefni á internetinu, en jafnöldrur þeirra aðeins um korteri. Þetta kemur fram í könnun sem fréttaþátturinn Newsbeat í Breska ríkisútvarpinu framkvæmdi á dögunum, og tók til þúsund ungra manna og kvenna. 24.4.2011 11:19
Katrín skartaði sínu fegursta í brúðkaupinu Hún var troðfull Kópavogskirkjan klukkan sjö í gær þegar Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra og Bjarni Bjarnason rithöfundur voru gefin saman í heilagt hjónaband. Það er mál manna sem voru viðstaddir kirkjuna að andrúmsloftið hafi verið ákaflega kærleiksríkt í kirkjunni. 24.4.2011 11:06
Frá New York til Los Angeles í leigubíl Leigubílstjórinn Mohammed Alam fór á dögunum í einn gjöfulasta túr á starfsævi sinni. Hann ók frá New York til Los Angeles og fékk 5000 dali, eða tæpar 570 þúsund krónur, greiddar fyrir túrinn. 24.4.2011 10:05
Þriggja bíla árekstur Þriggja bíla árekstur varð við Þrengslavegamót rétt eftir klukkan sjö í gærkvöld. Sjúkrabíll var kallaður á staðinn og var hlúð að þeim sem voru í bílunum, en að sögn lögreglunnar á Selfossi slasaðist enginn alvarlega. 24.4.2011 09:20
Áfram verður hvasst Björgunarsveitir á Suðurnesjum voru kallaðar út eftir kvöldmatarleytið i gærkvöld vegna óveðurs. Meðal annars fuku þakplötur af verbúð í Vogum á Vatnsleysuströnd. Engin útköll bárust í nótt. 24.4.2011 09:10
Herra Bean mætir í konunglega brúðkaupið Rowan Atkinson, sem leikur Mr. Bean í samnefndum þáttum verður viðstaddur brúðkaup Vilhjálms prins og Katrínar unnustu hans í næstu viku. Gestalistinn í brúðkaupinu var opinberaður í dag. Efstur á listanum er náttúrlega Elton John, en hann söng sig inn í hjörtu prinsanna Vilhjálms og Harrys við útför móður þeirra árið 1997. Búist er við því að David Furnis, vinur Eltons, fylgi honum í brúðakaupið. 23.4.2011 16:04
Stormviðvörun fyrir morgundaginn Það mjög slæmt ferðaveður á vesturhelmingi landsins á morgun, en mun fara batnandi annað kvöld og aðra nótt. Veðrið batnar fyrst sunnantil. Þetta kemur fram í viðvörun frá Veðurstofunni vegna stormviðris á landinu. Fólki er bent á að fylgjast vel með fréttum af veðri og færð. 23.4.2011 15:24
Héðinn Íslandsmeistari í skák Héðinn Steingrímsson varð rétt í þessu Íslandsmeistari í skák. Hann sigraði Henrik Danielsen í fjörlegri skák í lokaumferð Íslandsmótsins sem fram fór á Eiðum þar sem Henrik teygði sig langt eftir vinningi en Héðinn varðist yfirvegað og komst aldrei í hættu. Héðinn hlaut 7,5 vinning og leiddi mótið allt frá byrjun. Bragi Þorfinnsson varð annar með 6,5 vinning og Henrik Danielsen þriðji með 6 vinninga. Með sigrinum tryggir Héðinn sér þátttökurétt í landsliðsi Íslands sem Íslandsmeistari og þátttökurétt í EM einstaklinga á næsta ári. 23.4.2011 15:02
Katrín Júlíusdóttir giftir sig í dag Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra gengur að eiga unnusta sinn, Bjarna Bjarnason, við hátíðlega athöfn í dag. Þau ætla að láta gefa sig saman í Kópavogskirkju. 23.4.2011 14:17
Björgunarsveitamenn aðstoða slasaðan snjósleðamann Björgunarsveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar á Austurlandi eru nú að sækja slasaðan snjósleðamann á Tröllafjall í Áreyjardal inn af Reyðarfirði. Á þessari stundu er ekki vitað um tildrög slyssins né hversu alvarleg meiðsli mannsins eru. 23.4.2011 14:09
Búið að loka í Bláfjöllum Búið að loka í fjöllunum í dag vegna hvassviðris. Reynt var að opna þar um stundu í morgun. Á höfuðborgarsvæðinu er vaxandi suðaustan átt. Gert er ráð fyrir 10-18 metrum á sekúndu í dag og rigningu seint í dag, en suðvestan 15-23 og rigningu eða slyddu í fyrramálið. Hiti verður 2 til 8 stig, en kólnar á morgun. 23.4.2011 13:51
Óttast frekari hryðjuverk á Norður-Írlandi Lögreglan á Norður-Írlandi hefur beðið fólk þar um að fara að með gát um páskanna vegna aðsteðjandi hættu á hryðjuverkum. Yfirvöld hafa einnig aukið öryggisgæslu mjög af sömu sökum. Lögreglumenn fundu í gær töluvert magn af skotfærum í suðurhluta Armagh. Þrír menn voru handteknir í tengslum við málið, eftir því sem fram kemur á fréttavef BBC. Fyrir þremur vikum lét 25 ára gamall lögreglumaður frá Norður - Írlandi lífið í bílasprengjuárás og nú er talið að aftur verði látið til skarar skríða. 23.4.2011 13:27
Allt fór vel fram á Ísafirði Talið er að minnsta kosti þrjú þúsund utanbæjargestir séu samankomnir á Rokkhátíð Alþýðunnar, Aldrei fór ég suður, sem stendur yfir á Ísafirði um helgina. Íbúafjöldi bæjarins hefur því nær tvöfaldast. Að sögn lögreglu fór allt vel fram í gær. 23.4.2011 12:00
Kraftaverk á fæðingardeild Það má segja að lítið kraftaverk hafi gerst í Þýskalandi í vetur þegar lítil stelpa fæddist eftir aðeins 22 vikna meðgöngu. Hún vóg aðeins 460 grömm. Nú, fimm mánuðum seinna, er litla stelpan farin að spjara sig. 23.4.2011 11:32
Opið í Kóngsgili Stefnt er að því að skíðasvæðið í Bláfjöllum verði opið til klukkan fimm í dag, en eingöngu verður opið í Kóngsgili. Ekki verður starfsmannarúta né fyrir almenning. Ástæðan fyrir þessu er að spáin er slæm seinnipartinn. 23.4.2011 11:09
Alþjóðadagur bókarinnar í dag Í dag er alþjóðlegur dagur bókarinnar. Það er Menningarmálastofnun Sameinuðu þjóðanna, UNESCO, sem á upptökin af því að halda daginn hátíðlegan og er hann helgaður bókum og höfundarrétti. 23.4.2011 10:39
Framkvæmdastjóri SÞ gagnrýnir ofbeldisverk í Sýrlandi Ban Ki-Moon framkvæmdarstjóri Sameinuðu þjóðanna og Barack Obama eru meðal þeirra sem fordæmt hafa ofbeldisverk í Sýrlandi en öryggissveitir á vegum Bashars al-Assads forseta urðu yfir 80 mótmælendum að bana í gær. Skotið var á mannfjölda í borgum landsins en fólkið var að mótmæla stjórnarháttum Assads og vildi hann burt af valdastóli. 23.4.2011 09:44
Lohan dæmd fyrir skartgripaþjófnað Lindsay Lohan hefur verið dæmd í 120 daga fangelsi fyrir að rjúfa skilorð sem hún var dæmd til að sæta árið 2007. Hún var fundin sek um að hafa stolið hálsmeni úr skartgripabúð í janúar. Til viðbótar við fangelsisdóminn, sem er sá fjórði sem hún fær, var Lohan dæmd til að gegna samfélagsþjónustu í 480 klukkustundir. 23.4.2011 09:41
Skíðafæri í Hlíðafjalli Skíðasvæðið í Hlíðafjalli á Akureyri verður opið í dag frá klukkan níu til fjögur. Þá verður einnig opið í Tindastóli á Sauðárkróki til klukkan fjögur. Á báðum stöðum er hæglætisveður og hiti rétt undir frostmarki. 23.4.2011 09:29
Björgunarsveitir aðstoðuðu jeppamenn Björgunarsveitir í uppsveitum Suðurlands, meðal annars frá Flúðum, Laugavatni og úr Biskpstungum, voru kallaðar út um miðjan daginn í gær vegna ferðalanga á jeppum sem voru í vandræðum. Björgunarsveitamennirnir fóru á Kjalveg, nánar tiltekið Bláfellsháls og norður af honum, þar sem jepparnir voru. Slysavarnafélagið Landsbjörg beinir þeim tilmælum til manna að vera ekki að ferðast á hálendinu þegar vont veður er og ekkert ferðafæri, eins og í gær. 23.4.2011 09:16
Bað kærustunnar á bólakafi í Silfru Sænskur maður, John Kullvik, bað kærustu sinnar, Elinar Hedlund, í köfun í Silfru á Þingvöllum í gær. Parið er í fríi hér á landi og dvelur nú í Reykjavík. 23.4.2011 09:00
Opnuðu fyrir brunahana víðsvegar um borgina Óprúttnir aðilar gerðu það að leik sínum að opna fyrir brunahana á um það bil átta stöðum víðsvegar á höfuðborgarsvæðinu í nótt. Þurfti slökkviliðið að sinna verkefnum í um tvo klukkutíma vegna þessa. 23.4.2011 08:59
Gagnrýna aðbúnað og slátrun loðdýra Félagasamtökin Velbú telja að dýr í íslenskum loðdýrabúum séu haldin í allt of litlum búrum og gagnrýna jafnframt að dýrin séu aflífuð með útblæstri frá vélum, sem er viðtekin venja. Forsvarsmaður loðdýrabænda vísar gagnrýninni á bug og telur hana lýsa þekkingarleysi á iðnaðinum. 23.4.2011 08:00
Evrópusambandið vantar íslenska túlka Túlkaþjónusta framkvæmdastjórnar ESB gerir ráð fyrir að þurfa allt að fjörutíu íslenskumælandi túlka til starfa í Brussel, fast- og lausráðna. Framkvæmdastjórnin aðstoðar því Háskóla Íslands við að bjóða upp á nám í ráðstefnutúlkuní vetur. Nemargeta einnig sótt um námsstyrki. Yfirmaður skipulags- og ráðningasviðs þjónustunnar, David Baker, hefur verið í Háskólanum að hæfnisprófa fólk vegna þessa. 23.4.2011 08:00
Hellti sér reglulega yfir lögregluna Karlmaður á sextugsaldri hefur verið dæmdur í Héraðsdómi Vesturlands til að greiða 75 þúsund krónur í sekt í ríkissjóð fyrir að ærast í ölvunarástandi á almannafæri, meðal annars með því að liggja á dyrabjöllu lögreglustöðvarinnar á Akranesi. 23.4.2011 06:00
Kalkþörungaverksmiðjan á Bíldudal áminnt Umhverfisstofnun hefur ákveðið að áminna kalkþörungaverksmiðju Íslenska Kalkþörungafélagsins á Bíldudal til að ýta enn frekar á um umbætur í mengunarmálum hjá fyrirtækinu. Umhverfisstofnun hefur í allnokkurn tíma gert kröfur um úrbætur sem fyrirtækið hefur orðið við, til dæmis með bættum og breyttum mengunarvarnabúnaði. Þrátt fyrir það hefur ekki náðst stjórn á styrk ryks í útblæstri en í síðustu mælingu reyndist ryk vera rúmlega sjöfalt meira en starfsleyfi segir til um. Mörk fyrir styrk ryks í útblæstri eru 20 mg á normalrúmmetra en við síðustu mælingu mældist styrkur ryks 150 mg. 23.4.2011 05:00
Teknar verði upp húsnæðisbætur Samráðshópur velferðarráðuneytisins um húsnæðisstefnu hefur skilað tillögum um aðgerðir á sviði húsnæðismála. Meðal annars er lagt til að teknar verði upp húsnæðisbætur í stað vaxta- og húsaleigubóta til að stuðla að jafnari húsnæðisstuðningi hins opinbera óháð búsetuformi. Samráðshópurinn var skipaður í nóvember 2011. Sigríður Ingibjörg Ingadóttir er formaður hópsins. 23.4.2011 04:00
Enginn ógnar Obama ennþá Þrátt fyrir þverrandi vinsældir er Barack Obama Bandaríkjaforseti enn sigurstranglegastur meðal líklegra frambjóðenda í forsetakosningum næsta árs. Helgast það fyrst og fremst af óánægju repúblikana með þá valkosti sem nú eru í boði. 23.4.2011 03:30