Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
VG í Árborg væntir góðs samstarfs við Atla þrátt fyrir úrsögn Stjórn Vinstrihreyfingarinnar-græns framboðs í Árborg væntir góðs samstarfs við þingmann sinn, Atla Gíslason, samkvæmt ályktun sem stjórnin samþykkti á stjórnarfundi í gær. 23.3.2011 11:25
Draugaborgin Detroit Íbúum bílaborgarinnar Detroit hefur snarfækkað á síðustu tíu árum. Nýjar tölur um íbúafjölda í borginni, sem má muna sinn fífil fegurri þegar bílaiðnaðurinn var í blóma, sýna að íbúum í borginni hefur fækkað um 25 prósent á síðusta áratug. Nú búa rúmlega 700 þúsund manns í borginni og hafa íbúarnir ekki verið færri í heil hundrað ár. 23.3.2011 11:10
Valtýr svarar Jóhönnu og sakar hana um árásir Valtýr Sigurðsson, ríkissaksóknari hefur á vefsíðu embættisins svarað Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra sem sagði hann fara með rakalausar dylgjur í sinn garð og hvatti hann til að skýra mál sitt. Forsaga málsins er sú að Valtýr gaf í skyn á dögunum í ræðu að forsætisráðherra hefði skipt sér með óeðlilegum hætti af störfum ákæruvaldsins með ýmsum ummælum sem hann taldi óábyrg. Að hans mati réðst Jóhanna á hann með óviðeigandi og tilefnislausum hætti. 23.3.2011 10:54
Fjölskylduhjálp biður um fisk Fjölskylduhjálp Íslands biðlar til sjávarútvegs og fiskverkunarfyrirtækja í landinu um að gefa sér fisk. Í tilkynningu frá Fjölskylduhjálp kemur fram að stöðugt fjölgi þeim sem sækja sér mataraðstoð til Fjölskylduhjálpar Íslands í viku hverri. 23.3.2011 10:41
Innkalla hrásalat og kartöflusalat Bónus varar við hrásalati og kartöflusalati sem verslunin selur en í ljós hefur komið að hráefnalýsing á umbúðum var ekki fullnægjandi. Þannig innihalda vörurnar afurð úr eggjum. 23.3.2011 10:07
Lögmaður segir rökin afar veik Ásgerður Halldórsdóttir, bæjarstjóri Seltjarnarnesbæjar, lagði Ólaf Melsted, fyrrverandi framkvæmdastjóra tækni- og umhverfissviðs bæjarins, ítrekað í einelti á meðan hann starfaði hjá bænum. Er þetta niðurstaða dómskvaddrar matsnefndar sem birti bæjarstjórn Seltjarnarness skýrslu sína fyrir helgi. 23.3.2011 10:00
Katsav dæmdur í sjö ára fangelsi Moshe Katsav, fyrrverandi forseti Ísraels, var í gær dæmdur í sjö ára fangelsi fyrir nauðgun. Málaferlin hafa tekið fimm ár, en Katsav sagði af sér vegna málsins árið 2007, hálfum mánuði áður en kjörtímabil hans rann út. 23.3.2011 09:30
Ein leiksýning á mann Samanlagður fjöldi gesta á leiksýningar leikhúsa, atvinnuleikhópa og áhugaleikfélaga innanlands var 416 þúsund á síðasta leikári. Það jafngildir því að hver landsmaður hafi séð eina leiksýningu á leikárinu. 23.3.2011 09:25
Eyjafjarðarsveit hættir viðskiptum við Arion vegna ofurlauna Sveitastjórn Eyjafjarðarsveitar samþykkti í gær að hætta í bankaviðskiptum við Arion banka. Samkvæmt samþykkt bæjarstjórnarinnar þá hefur sveitin átt í bankaviðskiptum við Arion banka allt frá upphafi, en fregnir af launakjörum bankastjóra hafa orðið til þess að sveitastjórnin vill ekki skipta við bankann. 23.3.2011 09:11
Höfum ekki fengið að framleiða orkuna „Vissulega snýst þetta um að við náum að semja við Norðurál en samningur knýr ekki álver. Ef við fáum ekki að virkja þá skiptir engu máli hvort fyrir liggur samningur eða ekki.“ 23.3.2011 09:00
Þarf ekki að endurgreiða lóð Reykjavíkurborg var í gær sýknuð fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur af kröfum lóðarhafa í Úlfarsfelli sem vildu að borgin tæki við umræddri lóð og endurgreiddi allt að 22 milljónum króna. 23.3.2011 09:00
Harpan: Ólafur Elíasson neitar að upplýsa hvað hann fær greitt Listamaðurinn Ólafur Elíasson neitar að gefa upp hversu mikið hann fær greitt fyrir hönnun glerhjúps tónlistar- og ráðstefnuhússins Hörpu. Hann vísar til þess að algengt sé að greiðslur sem þessar séu trúnaðarmál. Í bréfi sem starfsmaður hans sendi fréttastofu segir að Ólafur hafi ekkert frekar um málið að segja. 23.3.2011 08:49
Gaddafí: Ég er skapari morgundagsins Múammar Gaddafí leiðtofi Líbíu segist handviss um að hann og hans menn beri sigur úr býtum í því stríði sem nú stendur yfir. Gaddafi kom út á meðal almennings þegar hann hélt ræðu sem sýnd var í sjónvarpi á stað sem nýlega varð fyrir sprengjum bandamanna sem hafa látið loftskeytum og sprengjum rigna á höfuðborginni Trípólí síðustu fjórar nætur. 23.3.2011 08:19
Mannfall á meðal mótmælenda í Sýrlandi Að minnsta kosti sex létust í gærkvöldi þegar slí í brýnu á milli mótmælenda og lögreglumanna í sýrlensku borginni Deraa. Fjöldi fólks hafði komið saman fyrir utan mosku í borginni til þess að koma í veg fyrir að lögreglan færi þangað inn en þar hafa mótmæli staðið yfir síðustu vikur. Að minnsta kosti tíu hafa nú látist í átökunum. Neyðarlög hafa verið í gildi í Sýrlandi frá árinu 1963 og er afnám þeirra á meðal helstu krafna mótmælenda. 23.3.2011 08:14
Geislavirkt kranavatn í Tókíó Heilbrigðisyfirvöld í Tókíó vara nú við því að geislamengun í kranavatni borgarinnar sé svo mikil að ungabörn megi alls ekki drekka það. Sumstaðar í borginni er mengunin tvöföld á við það sem eðlilegt getur talist. 23.3.2011 08:13
Leikskólakennarar til Ríkissáttasemjara Samninganefnd Félags leikskólakennara ákvað í gær að vísa kjaradeilu sinni við Samband íslenskra sveitarfélaga til Ríkissáttasemjara. Í tilkynningu frá félaginu segir að samningur félagsins hafi runnið út í ágústlok árið 2009. Samningsaðilar hafi ítrekað ræðst við án árangurs og nú sé þolinmæði leikskólakennara á þrotum. 23.3.2011 08:07
Enn lagt að Atla að hverfa af þingi Stjórn svæðisfélags Vinstri grænna á Mið-Suðurlandi telur rétt að Atli Gíslason, sem hefur sagt sig úr þingflokknum, víki sæti á Alþingi. Með úrsögn hans úr þingflokknum hafi kjósendur Suðurkjördæmis ekki lengur aðgang að stjórnarþingmanni úr röðum Vinstri grænna og slík staða veiki verulega málefnabaráttu flokksins í kjördæminu, en Atli er eini þingmaður flokksins í Suðurkjördæmi. 23.3.2011 08:05
Þingað um stjórnlagaráð fram á nótt Síðari umræða um tillögu um skipan stjórnlagaráðs stóð framundir miðnætti á Alþingi, en var þá frestað. Henni verður fram haldið í dag. Þingmenn Sjálfstæðisflokksins eru sem fyrr andvígir tillgöunni og stjórnarþingmaðurinn Skúli Helgason ítrekaði líka andstöðu sína við henni. 23.3.2011 08:03
Ræða um stöðu Þjóðkirkjunnar Staða og framtíð Þjóðkirkjunnar verður til umræðu á málþingi sem haldið verður í Neskirkju á föstudaginn. 23.3.2011 08:00
Hætt að kaupa upp netalagnir Stangaveiðifélag Reykjavíkur segist að óbreyttu ekki halda áfram að taka þátt í uppkaupum netalagna á vatnasvæði Hvítár og Ölfusár í Árnessýslu eftir árið 2011. 23.3.2011 08:00
Vilja breikka samstarfið Talsverðar líkur eru á að ríkisstjórnin taki breytingum innan ekki langs tíma. Vilji er innan beggja stjórnarflokka til að breikka stjórnarsamstarfið með því að taka þriðja flokkinn til samstarfs. Sá vilji er ríkari meðal þingmanna Samfylkingarinnar, en innan VG heyrast einnig raddir þess efnis. 23.3.2011 07:15
Geislavirkni mælist á Íslandi Geislavirkni frá kjarnorkuverinu í Fukushima hefur nú mælst í andrúmsloftinu hér á landi. Er Ísland fyrsta Evrópuríkið þar sem geislavirknin hefur mælst eftir jarðskjálftann í Japan. 23.3.2011 07:00
Ráðuneytið skilar umsögn síðar í vikunni Menntamálaráðuneytið mun skila umsögn um sameiningaraðgerðir í skólum Reykjavíkurborgar síðar í þessari viku. „Þar leggjum við faglegt mat á tillögurnar,“ sagði Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra á Alþingi í gær. 23.3.2011 07:00
Samþykkt öryggisráðs misnotuð "Friði verður ekki komið á eða viðhaldið með loftárásum,“ segir Stefán Pálsson, formaður Samtaka hernaðarandstæðinga. Samtökin vara íslensk stjórnvöld við að styðja loftárásir vestrænna ríkja í Líbíu. 23.3.2011 07:00
AdAge lofar auglýsingu VÍB Íslandsbanka hefur tekist að framleiða afar áhrifamikla auglýsingaherferð sem á að uppfylla það sem bandarískum bönkum hefur aldrei tekist: Að upplýsa neytendur um áhættur skyndilausna í fjármálum. Þetta er mat Rance Crain, ritstjóra AdvertisingAge (AdAge). 23.3.2011 07:00
Reyndi rán með sprautunál en sætti sig við pylsu og sígarettur Kona á þrítugsaldri, sem greinilega var undir áhrifum fíkniefna, gerði tilraun til ráns í nótt, með því að hóta starfsfólki N-1 við Lækjargötu í Hafnarfirði með blóðugri sprautunál, og krefjast peninga. 23.3.2011 06:59
Ummæli í frétt RÚV sett fram í góðri trú Mikil fagnaðarlæti brutust út hjá starfsmönnum Ríkisútvarpsins þegar tveir fréttamenn og útvarpsstjóri voru sýknaðir af meiðyrðakröfu í Héraðsdómi Reykjaness í gær. 23.3.2011 06:00
Óvíst hvað póstarnir eru margir "Hvort þetta eru tíu þúsund tölvupóstar eða hundrað veit ég ekki,“ segir Sigríður Friðjónsdóttir, saksóknari Alþingis. 23.3.2011 06:00
Steingrímur: Þrotlaust strit og púl Ríkisstjórnin stendur traustum fótum, sagði Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra í gær, spurður um stöðu stjórnarsamstarfsins eftir brotthvarf tveggja liðsmanna úr þingflokki VG. Tilefnið var ummæli, höfð eftir Össuri Skarphéðinssyni utanríkisráðherra, um að stjórnarsamstarfið stæði sterkara eftir. Steingrímur sagði ómaklegt að halda því fram að Össur hefði þar fagnað úrsögn Lilju og Atla. 23.3.2011 06:00
Bæjarfulltrúar verða að geta tjáð sig Guðríður Arnardóttir, formaður bæjarráðs í Kópavogi, gerir enga athugasemd við að fólk leiti álits innanríkisráðuneytisins á því að Kópavogsbær greiði kostnað hennar og tveggja annara bæjarfulltrúa vegna meiðyrðamáls sem Frjáls miðlun höfðaði gegn þeim. 23.3.2011 06:00
Gögnum verður eytt í Guam Landspítalinn hyggst eyða tíu til tólf tonnum af röntgenfilmum hjá Film Tech Corporation í Tamuning, sem er landsvæði Bandaríkjanna í Guam. 23.3.2011 05:30
Hýrir vilja heitbindast á Íslandi Samkynhneigðir ferðamenn eru áfjáðir í að ganga í hjónaband hérlendis. Þetta segja forsvarsmenn fyrstu sérhæfðu ferðaskrifstofunnar fyrir samkynhneigða á Íslandi. 23.3.2011 05:00
Danmörk dýrasti áfangastaðurinn Danmörk er dýrasti áfangastaður ferðamanna í Evrópu, að því er fram kemur í nýjum tölum Eurostat. Miðað við verð á hótelgistingu, veitingastöðum, menningaruppákomum og í verslunum og skáka Danir grönnum sínum Norðmönnum naumlega. 23.3.2011 04:00
Gera sér óraunhæfar væntingar Færri fyrirtæki hafa farið í gegnum Beinu brautina svokölluðu en vonir stóðu til. Árni Páll Árnason, efnahags- og viðskiptaráðherra, fjallaði um framganginn á fundi í gær. Beina brautin er samkomulag opinberra aðila og hagsmunaaðila í atvinnulífinu sem kynnt var um miðjan desember um úrvinnslu skuldamála lítilla og meðalstórra fyrirtækja. 23.3.2011 03:00
Ljósin stjórnast af viðburðum Umferðarljósin við Hörpuna stýrast af því hvort viðburðir standa yfir í tónlistarhúsinu. Vinna við nýjan stýribúnað umferðarljósanna hefst í dag. 23.3.2011 02:00
Selur sögufræga taflmenn til að borga erlent lán "Þetta eru taflmennirnir sem þeir Boris Spasskí og Bobby Fischer tefldu með í þriðju skákinni í einvíginu mikla árið 1972 ásamt skákplötu, áritaðri af þeim báðum,“ segir Guðmundur G. Þórarinsson, verkfræðingur og fyrrum forseti Skáksambands Íslands. 23.3.2011 00:01
Vilja að Atli víki sæti á Alþingi Stjórn svæðisfélags Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs á Mið- Suðurlandi vill að Atli Gíslason, þingmaður Vinstri Grænna, víki sæti á Alþingi og lýsi jafnframt yfir vonbrigðum með úrsögn hans úr þingflokki VG. 22.3.2011 21:49
Segja leyniskjöl DV úr blárri möppu sem hvarf Lögmaður fjárfestingafélagsins Horns, segir að trúnaðarskjölin sem DV hefur undir höndum hafi mikla þýðingu fyrir félagið. Í þeim kemur meðal annars fram tilboð í ákveðin félög, nöfn tilboðsgjafa, samningatækni Horns, verðmyndandi upplýsingar um skráð félög hérlendis og erlendis ofl. Upplýsingar sem DV hefur undir höndum hafi verið í blárri möppu sem var tekin saman fyrir stjórnarfund félagsins og sé nú horfin. 22.3.2011 20:59
Ritlist í HÍ kennd á meistarastigi Frá og með haustinu 2011 verður ritlist kennd á meistarastigi við Íslensku- og menningardeild Háskóla Íslands. Um er að ræða tveggja ára nám sem lýkur með MA-gráðu. Öllum sem hafa lokið einhvers konar grunnnámi frá háskóla gefst kostur á að sækja um inngöngu, líka þeim sem ekki hafa próf af Hugvísindasviði. 22.3.2011 22:03
Knútur var veikur í heila Dánarorsök ísbjarnarins Knúts er nú kunn. Upplýst hefur verið um hana í krufningaskýrslu. Margar kenningar hafa verið settar fram um það hvers vegna björnin drapst en nú er búið að taka af öll tvímæli með krufningaskýrslunni. Björninn drapst vegna sjúkdóms í heila, segir í blaðinu News aus Berlin sem greinir frá krufningaskýrslunni. . 22.3.2011 20:36
Stjórnvöld í Líbíu: Fjöldi óbreyttra borgara hafa fallið Bandarísk herþota brotlenti nærri Benghazi í Líbíu í gærkvöldi en loftárásir héldu áfram í höfuðborg landsins í nótt. Líbísk stjórnvöld fullyrða að fjöldi óbreyttra borgara hafi fallið í árásunum. Deilur hafa risið í röðum bandamanna. 22.3.2011 19:54
Forystusauðir á stall í Þistilfirði Sveitungar Steingríms J. Sigfússonar í Þisilfirði undirbúa nú sérstakt fræðasetur um forystusauði. Þeir segja að þaðan séu ættaðir allir þeir sauðir á landinu sem gæddir séu forystuhæfileikum. 22.3.2011 19:14
Ásmundur Einar: Ætla að vera áfram í VG Ásmundur Einar Daðason, þingmaður Vinstri grænna, segist ekki hafa íhugað að segja sig úr þingflokknum. Hann tekur þó að sumu leyti undir gagnrýni Atla og Lilju. 22.3.2011 19:06
Segist gríðarlega bjartsýn um Bakka Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra kvaðst á Alþingi í dag gríðarlega bjartsýn á að senn drægi til góðra tíðinda í atvinnumálum Þingeyinga. Undirbúa þyrfti samfélagið þar fyrir stórfellda atvinnuuppbyggingu. 22.3.2011 19:02
Hvarf Atla og Lilju hefur ekki skaðað ríkisstjórnina Þingmenn og ráðherrar Samfylkingarinnar telja að ríkisstjórnin hafi ekki skaðast við brotthvarf Lilju og Atla úr þingflokki VG. Össur Skarphéðinsson telur að þvert á móti að þetta hafi styrkt ríkisstjórnina. 22.3.2011 18:46