Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Herjólfur fer til Þorlákshafnar á aðfangadag Herjólfur siglir á aðfangadag eina ferð til Þorlákshafnar þar sem veðurspá er slæm fyrir Landeyjahöfn. 23.12.2010 21:35
Missti stjórn á bílnum og valt Bíll valt á gatnamótum Reykjanesbrautar og Breiðholtsbrautar klukkan korter yfir níu í kvöld. Einn maður var í bílnum og komst hann sjálfur út úr honum. Ekki er talið að hann sé alvarlega slasaður en hann mun fara til læknisskoðunar til öryggis. 23.12.2010 21:31
Hvaða fólk er á þessari mynt? Sérstök mynt hefur verið slegin á Bretlandi til þess að minnast trúlofunar Vilhjálms bretaprins og Kate Middleton. Gagnrýnisraddir eru þegar teknar að heyrast vegna þess að parið á myntinni þykir ekki vitund líkt turtildúfunum. 23.12.2010 21:00
Spyr hvort hjásetan hafi verið þvingunaraðgerð Árni Þór Sigurðsson, starfandi formaður þingflokks Vinstri grænna, spyr hvort hjáseta þriggja stjórnarþingmanna við afgreiðslu fjárlaga sé þvingunaraðgerð til að knýja ríkisstjórn og meirihluta hennar til að breyta um stefnu, í nýrri greinargerð sem fréttastofa hefur undir höndum 23.12.2010 18:37
Kveiktu í jólageitinni fyrir utan Ikea Margra áratuga gömul sænsk jólahefð barst til íslands í nótt en þá kveiktu brennuvargar í jólageitinni sem staðið hefur fyrir utan Ikea í tvo mánuði. Brennuvargarnir náðust en framkvæmdastjóri Ikea segist í jólaskapi og ætlar ekki að kæra brennuvargana ef þeir hreinsa til eftir sig. 23.12.2010 19:19
Slegist um málverk Mikil ásókn er í olíumálverk eftir Eggert Pétursson en það er nú í eigu þrotabús VBS fjárfestingabanka, sem hefur auglýst það til sölu. Verkið er metið á margar milljónir. 23.12.2010 19:04
Einkavæðing áfram í skoðun Áfram verður unnið að því að vinda ofan af einkavæðingu í orkugeiranum, segir þingmaður VG. Enginn afsláttur verði gefinn af þeirri stefnu ríkisstjórnarinnar. Gengið hefur verið að fullu frá kaupum Magma Energy á HS Orku. 23.12.2010 18:38
NATÓ aðmíráli var synjað um skoðunarferð i Höfða Reykjavíkurborg hafnaði ósk yfirmanns hjá NATÓ sem hér var í opinberum erindagjörðum um að fá að skoða Höfða. Jón Gnarr, borgarstjóri, var aldrei látinn vita, segir skrifstofustjóri borgarstjóra. 23.12.2010 18:27
Færri fengu aðstoð en í fyrra Í ár sóttu 4043 um jólaaðstoð fyrir jólin og 95% þeirra náðu í jólaaðstoð sína, eða 3845. Það eru færri heldur en í fyrra en þá náðu 3946 í aðstoðina, sem er 2,5% fækkun. Um 170 sóttu um aðstoð á Akureyri. 23.12.2010 18:00
Stefán Haukur hættir sem sendiherra Utanríkisráðherra hefur tekið ákvörðun um breytingar á starfsstöðvum sendiherra í utanríkisþjónustunni. Stefán Haukur Jóhannesson, sem hefur verið sendiherra í Brussel frá árinu 2005, flyst heim til starfa í ráðuneytinu 15. janúar næstkomandi og heldur áfram að gegna starfi aðalsamningamanns Íslands í aðildarviðræðum við ESB. 23.12.2010 17:42
Vann 250 þúsund krónur í beinni útsendingu „Ég er svo aldeilis hissa, þakka þér kærlega fyrir,“ sagði Rósa Marta Guðnadóttir frá Eyrarbakka þegar Rúnar Róbertsson á Bylgjunni tilkynnti henni að hún hefði unnið 250 þúsund króna gjafabréf í Króuna. 23.12.2010 17:13
Missti af jarðarför föður síns vegna lagaflækja „Sigurinn er ekki í höfn. Jóel er enn þá vegabréfalaus,“ segir Einar Þór Færseth, sem er fastur ásamt konu sinni, Helgu Sveinsdóttur, úti í Indlandi, en fram kom í Fréttablaðinu síðustu helgi að þau hjónin eignuðust drenginn Jóel Færseth með aðstoð staðgöngumóður. 23.12.2010 16:28
Eftirlitsnefndin aðhefst ekki vegna fjármála Kópavogsbæjar Fram kemur í bréfi Eftirlitsnefndar með fjármálum sveitarfélaga til bæjarstjórnar Kópavogs, dagsettu 17. desember 2010, að hún muni ekki að svo stöddu aðhafast frekar vegna fjármála bæjarins. 23.12.2010 15:34
Harður árekstur við Bröttubrekku - þrennt á slysadeild Harður árekstur tveggja bifreiða varð við vegamót Vesturlandsvegar og Vestfjarðavegar við Bröttubrekku nú skömmu eftir hádegið. Þrennt slasaðist í árekstrinum og er þessa stundina á leið með sjúkrabíl á slysa- og bráðadeild Landspítalans. Ekki er vitað hvernig fólkið er slasað en það er ekki talið í lífshættu. Smávægilegar umferðartafir urðu við Bröttubrekku eftir að slysið varð en umferð gengur þar nú óhindrað. 23.12.2010 15:25
Bréfsprengjur springa í Róm Tveir eru sárir eftir að bréfasprengjur sprungu í sendiráðum Sviss og Chíle í Róm í dag. Starfsmaður svissneska sendiráðsins er með alvarlega höfuðáverka eftir sprenginguna en í Chíleska sendiráðinu slasaðist sá sem bréfið opnaði lítillega. Ítalska lögreglan leitar nú í öllum sendiráðum borgarinnar að svipuðum sprengjum í varúðarskyni. 23.12.2010 15:06
Flugferðir að mestu á áætlun fyrir jólin Flug véla Icelandair eru allt nokkurn veginn á áætlun þessa Þorláksmessuna. Einhverjum vélum hefur seinkað um hálftíma eða klukkustund en ekki er um neinar stórfelldar seinkanir að ræða. 23.12.2010 15:04
Vara við mikilli hálku á Hellisheiði og við Svínahraun Lögreglan á Selfossi varar við lúmskri og mikilli hálku á Hellsiheiðinni og Svínahrauni. 23.12.2010 14:21
Ruslakrækir og Sorpsníkir safna sorpi - láta þó heimilisrusl í friði Það hafa sennilega einhverjir rekið upp stór augu í dag þar sem tveir jólasveinar aka um á sorpbíl og hirða rusl fyrirtækja víðsvegar á höfuðborgarsvæðinu. 23.12.2010 13:48
Vefhetja ársins valin Almenningur getur nú tilnefnt fólk og fyrirtæki til nýrra vefverðlauna sem afhent verða á sýningunni Netið Expo í Smáralind í mars.Verðlaunaflokkar eru tíu og hægt er að senda inn ábendingar um tilnefningar til 12. janúar en þá mun dómnefnd sem skipuð er sérfræðingum tilnefna fimm í hverjum flokki. 23.12.2010 13:40
Myndir Ragnars á meðal þeirra bestu á árinu Ljósmynd Ragnars Th Sigurðssonar hjá ARCTIC-IMAGES af eldgosinu í Eyjafjallajökli hefur verið valin af vísindatímaritinu Nature sem ein af bestu ljósmyndum ársins. Myndin sýnir ótrúleg umbrot í jöklinum og eldingar sem lýsa upp gosmökkinn. Önnur mynd af eldgosinu eftir Ragnar er einnig á meðal bestu mynda ársins að mati bandaríska tímaritsins Time. 23.12.2010 13:38
Vinnumálastofnun auglýsir eftir stærra húsnæði „Ríkissjóður óskar eftir að taka á leigu skrifstofuhúsnæði fyrir Vinnumálastofnun Miðað er við að húsnæðið verði tekið á leigu til 10 ára." Þannig hljómar auglýsing sem birt er á útboðsvef Ríkiskaupa. 23.12.2010 13:25
Byssumenn rændu pósthús í Osló Grímuklæddir byssumenn rændu pósthús í Osló í morgun. Norskir miðlar segja að mörgum skotum hafi verið hleypt af inni í pósthúsinu en sjö manns voru í afgreiðslunni þegar mennirnir tveir létu til skarar skríða. 23.12.2010 13:21
Ásmundur skráði á vef en ekki hagsmunaskrá og lét lagfæra Ásmundur Einar Daðason lét hjá líða að greina frá eign sinni í fyrirtæki sem rekur vefverslun með búvörur í hagsmunaskrá Alþingis, en minnist á fyrirtækið á ferilskrá sinni á vef þingsins. Hann kennir gleymsku um og segist hafa nú látið breyta hagsmunaskrá sinni og setja þar inn upplýsingar um fyrirtækið og starfsemi þess. 23.12.2010 13:02
Rúnar Róberts rausnarlegur á Bylgjunni Rúnar Róbertsson útvarpsmaður verður rausnarlegur á Bylgjunni í dag milli kl. 15 og 16 þegar hann hringir út í vinningshafa í jólaleik Atlantsolíu og Bylgjunnar. 23.12.2010 12:04
Segir Björn Val sendan á vettvang til að draga athygli frá lygum ráðherra Guðlaugur Þór Þórðarson, alþingismaður, neitar því ekki að hann sé að íhuga meiðyrðamál gegn Birni Vali Gíslasyni starfsbróður sínum vegna ummæla hins síðarnefnda um styrki til hans, en Björn Valur kallaði þá mútur. 23.12.2010 12:00
Húsgagnaverslun inn í Hörpu Epal og rekstrarfélagið Ago ehf. undirrituðu á þriðjudaginn rekstrarleyfissamning til sjö ára. Samningurinn felur í sér að Epal verði með verslun með innlendar og erlendar hönnunar og gjafavörur í Hörpu, tónlistar-og ráðstefnuhúsinu í Reykjavik samkvæmt tilkynningu frá versluninni. 23.12.2010 11:28
Svafar Gestsson: Sáttur við sjópokann „Jólagjafir ætla ég ekki að ræða hér en fagna því samt að á mínum tæplega 30 ára sjómannsferli að eignast loks góðan sjópoka,“ skrifar Svafar Gestsson, vélstjóri á Jónu Eðvalds og starfsmaður útgerðarinnar Skinneyjar-Þinganess. 23.12.2010 11:11
Mölvaði rúður með hafnaboltakylfu í Reykjanesbæ Íbúum Reykjanesbæjar var brugðið í morgun þegar ungur maður gekk berserksgang vopnaður hafnaboltakylfu í Njarðvík. Maðurinn var í annarlegu ástandi og tókst honum að brjóta rúður í fjórum bifreiðum og í íbúðarhúsi áður en lögreglumenn yfirbuguðu hann. 23.12.2010 11:08
Vonskuveður víða á Suðurlandi Vonskuveður brast á undir Eyjafjöllum, í Vetmannaeyjum og í Mýrdal í morgun og hefur vindhraðinn farði upp í 50 metra á sekúndu að bænum Steinum undir Eyjafjöllum. 23.12.2010 11:00
Brenndu sænska jólageit við Ikea Óprúttnir aðilar kveiktu í fimm metra hárri jólageit sem stóð fyrir utan Ikea í Garðabæ í nótt. Slökkviliðið var kallað á vettvang og réði niðurlögum eldsins án nokkurra vandkvæða. Geitin stóð á lóð Ikea en nærliggjandi mannvirki voru ekki í hættu vegna eldsins. 23.12.2010 10:46
Bæjarstjórn: Vegtollur hrein og klár svik Bæjarstjórn Reykjanesbæjar mótmælir alfarið öllum hugmyndum um vegtoll á Reykjanesbraut en í skoðun er að setja vegtolla á stofnbrautir út frá Reykjavíkurborg. „Í aðdraganda framkvæmda við tvöföldun Reykjanesbrautar var margoft rætt um mögulega vegatolla en slíkum hugmyndum var ávallt mótmælt af íbúum Suðurnesja,“ benda bæjarfulltrúarnir á en þeir eru einróma í þessari skoðunn sinni. 23.12.2010 10:27
Áhöfnin á Goðafossi heiðruð fyrir hetjulega framgöngu Áhöfnin á Goðafossi skipi Eimskipafélagsins var í gær heiðruð fyrir fyrir hetjulega framgöngu við slökkvistörf þegar eldur kom upp í skipinu 30. október síðastliðinn. Í tilkynningu frá Eimskipi segir að öguð vinnubrögð og snarræði áhafnarinnar hafi skipt sköpum um að hvorki urðu slys á mönnum né alvarlegt tjón á skipinu. 23.12.2010 09:50
Íhugar að stefna þingmanni vegna bloggfærslu Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, íhugar að höfða meiðyrðamál á hendur þingmanni VG, Birni Vali Gíslasyni vegna bloggfærslu sem hann birti í gær. 23.12.2010 09:13
Herjólfi snúið frá Landeyjahöfn vegna storms Herjólfur varð að snúa frá Landeyjahöfn rétt í þessu þar sem stormur var skollinn á þar og er því á leið til Þorlákshafnar. 23.12.2010 08:16
Fimbulkuldi á Norðausturlandi i nótt Fimbulkuldi var á Norðausturlandi i nótt og fór forstið þar niður í rúmar 26 gráður á Hólasandi í grennd við Mývatn, í rúm 25 stig á Mývatnsöræfum og í tæp 24 stig á Brú á Jökuldal. 23.12.2010 08:13
Nýsjálendingar greina frá fljúgandi furðuhlutum Stjórnvöld á Nýja Sjálandi hafa gert opinberar allar upplýsingar sem þau hafa um fljúgandi furðuhluti sem sést hafa yfir eða við landið á árunum 1954 til 2009. 23.12.2010 07:43
Ekki talin frekari þörf fyrir neyðarlög Átta mánaða neyðarástandi á Taílandi verður aflétt í dag. Var það sett eftir að mikil mótmæli brutust út í Bangkok, höfuðborg landsins, þar sem yfir níutíu manns létust. 23.12.2010 07:30
Suður Kórea að hefja umfangsmestu heræfingu sína Suður Kórea er nú að hefja umfangsmestu heræfingu sína í sögunni aðeins 20 kílómetra frá landamærunum að Norður Kóreu. 23.12.2010 07:28
Fyrrum forseti Argentínu dæmdur í lífstíðarfangelsi Jorge Rafael Videla fyrrum forseti Argentínu hefur verið dæmdur í lífstíðarfangelsis í borginni Cordoba pyntingar, mannrán og önnur mannréttindabrot. 23.12.2010 07:26
Beðið eftir heimsendi við franska smábæinn Bugarach Allt er á öðrum endanum í franska smábænum Bugarach í suðurhluta landsins sem fyllst hefur af nýaldarsinnum undanfarna daga. 23.12.2010 07:23
Benedikt páfi flytur sérstakt ávarp til bresku þjóðarinnar Benedikt páfi hefur hljóðritað sérstakt ávarp til bresku þjóðarinnar og verður það flutt í þættinum Hugsun dagsins, eða Thought For The Day, á BBC í dag. 23.12.2010 07:19
Fólskuleg líkamsárás í Aðalstræti Fólskuleg líkamsárás var gerð á mann, þegar hann var staddur á móts við Hótel Plasa við Aðalstræti í Reykjavík rétt fyrir klukkan tvö í nótt. 23.12.2010 07:12
Breyting á háloftavindum veldur vetrarhörkum Vetrarhörkurnar sem hrjáð hafa íbúa í norðanverðri Evrópu með miklum samgöngutruflunum og valdið snjókomu á miðju sumri í Ástralíu eru tilkomnar vegna breytinga á streymi háloftavinda. 23.12.2010 07:04
Mikið tjón vega vatnsleka í fjölbýlishúsi á Akureyri Mikið tjón varð í nokkrum íbúðum og í sameign í fjölbýlishúsi á Akureyri í nótt, þegar krani undir eldhúsvaski gaf sig og kalt vatn tók að flæða um allt. 23.12.2010 07:00
Þúsundir missa afslátt í sund Afsláttur sundlauga Reykjavíkur fyrir eldri borgara verður frá áramótum miðaður við 70 ár í stað 67 ára áður. 23.12.2010 07:00