Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Dýrt að flytja Landhelgisgæsluna Georg Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslunnar, gerir ráð fyrir því að það verði kostnaðarsamt að flytja starfsemi Landhelgisgæslunnar á Miðnesheiði. 10.11.2010 11:17
Da Vinci fléttan: Helga og Vickram funduðu með Obama Yfirvöld í Bandaríkjunum hafa fryst allar eigum Vicram Bedi, unnusta Helgu Ingvarsdóttir, en parið er í varðhaldi í Bandaríkjunum sakað um hafa svikið hundruðir milljóna út úr aukýfingnum Roger Davidson. 10.11.2010 10:59
Eldur kom upp í skemmtiferðaskipi Dráttarbátur dregur nú skemmtiferðaskipið Carnival Splendor til hafnar en eldur kom upp um borð á mánudagsmorgun þar sem það var statt undan ströndum Mexíkó. 10.11.2010 10:55
Friðarverðlaunum Nóbels stolið Óljóst er hvort hægt verður að afhenda friðarverðlaun Nóbels hinn 10. desember næstkomandi. Afhendingarhátíðin mun engu að síður fara fram í ráðhúsinu í Osló. 10.11.2010 10:17
Taka rútu frá Sauðárkróki til að mótmæla Hollvinasamtök Heilbrigðisstofnunarinnar á Sauðárkróki hvetja íbúa Skagafjarðar og Skagfirðinga, búsetta á höfuðborgarsvæðinu, til að fjölmenna á Austurvöll á morgun kl. 16 og vera viðstödd afhendingu undirskriftalista fólks af öllu landinu, gegn niðurskurði á heilbrigðisþjónustu á landsbyggðinni. Rúta fer frá Heilbrigðisstofnunni á Sauðárkróki á morgun kl. 11. Fréttavefurinn Feykir segir frá þessu. 10.11.2010 10:05
Kynningarkostnaður vegna Þjóðfundar um 8 milljónir Kynningar- og auglýsingakostnaður vegna Þjóðfundarins nam rúmum átta milljónum króna. Inni í þessu er kostnaður við vefsíðugerð og umsjón 10.11.2010 09:33
Rekinn eftir áratug á RÚV Fréttamanninum Þórhalli Jósepssyni hefur verið vikið úr starfi á Rúv. Þórhallur skrifaði ævisögu Árna M. Mathiesen, fyrrverandi fjármálaráðherra, og fékk uppsagnarbréf að launum. 10.11.2010 09:32
Vestfirðingar sendu bænaskrá til Alþingismanna Tæplega hundrað einstaklingar á Vestfjörðum, hafa sent Alþingismönnum bænaskrá um lækkun margra rekstrarliða hins opinbera á næsta fjárlagaári, svo ekki þurfi að skera jafn mikið niður til heilbrigðismála á landsbyggðinni, eins og fyrirhugað er. 10.11.2010 09:09
BHM gagnrýnir seinagang vegna yfirfærslu málefna fatlaðra Bandalag háskólamanna gagnrýnir seinagang samráðshóps á vegum félagsmálaráðuneytisins sem unnið hefur að um réttindum og kjörum starfsmanna vegna yfirfærslu á málefnum fatlaðra frá ríki til sveitarfélaga. Í samráðshópnum eiga sæti fulltrúar stéttarfélaga, Samtaka íslenskra sveitarfélaga og Reykjavíkurborgar. 10.11.2010 09:08
Ráðist á kristna í Bagdad Að minnsta kosti þrír eru látnir og tugir hafa slasast í Bagdad í Írak í morgun. Svo virðist vera sem skipulagðar árásir hafi verið gerðar á sex stöðum á sama tíma í kristnum hverfum borgarinnar. Tugir eru slasaðir, en árásir á kristna í borginni hafa farið vaxandi síðustu misserin að því er fram kemur á fréttavef BBC. Fyrir nokkrum dögum voru rúmlega fjörutíu manns myrtir þegar íslamskir skæruliðar tóku kaþólska kirkjugesti í gíslingu. 10.11.2010 09:07
Draugaflaug undan strönd Kalíforníu Yfirstjórnin í Pentagon, varnarmálaráðuneyti Bandaríkjanna, segist engar skýringar finna á eldflaugarskoti sem fjölmargir urðu vitni að undan ströndum Kalíforníuríkis á mánudag. 10.11.2010 09:01
Jón Gnarr hætti að hugsa um Bláfjallalokun Stjórn Skíðaráðs Reykjavíkur skorar á Jón Gnarr, borgarstjóra í Reykjavík að leggja til hliðar hugmyndir um að loka skíðasvæðinu í Bláfjöllum í sparnaðarskyni. 10.11.2010 08:40
Engar vísbendingar um að pyntingar hafi skilað árangri Breskir ráðamenn segja ekkert hæft í staðhæfingum George Bush fyrrverandi bandaríkjaforseta, að pyntingar í Guantanamo hafi komið í veg fyrir hryðjuverk. 10.11.2010 07:59
Beindu lasergeisla að Fokker- flugvél í aðflugi Lasergeisla var beint að stjórnklefa Fokker flugvél frá Flugfélagi Íslands þegar hún var í aðflugi að Akureyrarflugvelli, með marga farþega um borð, um klukkan hálf átta í gærkvöldi, en slíkt getur haft truflandi áhrif á flugmenn. 10.11.2010 07:50
Féll átta metra en slapp ótrúlega vel Karlmaður um tvítugt slapp ótrúlega vel, að sögn lögreglu, þegar hann féll í gærkvöldi átta metra niður af svölum húss við Vesturgötu í Reykjavík og hafnaði á gangstéttinni. 10.11.2010 07:27
Tveir á slysadeild eftir harðan árekstur Tveir slösuðust í hörðum árekstri tveggja bíla á mótum Borgartúns og Kringlumýrarbrautar um tíu leitið í gærkvöldi. Þeir voru fluttir á slysadeild, en munu ekki vera alvarlega slasaðir. Bílarnir voru báðir óökuhæfir eftir áreksturinn og voru fjarlægðir með kranabílum. Ekki er ljós hvað olli slysinu. 10.11.2010 07:11
Da Vinci fléttan: Málið er eins og sápuópera Lögreglan í New York-ríki rannsakar nú hvort hluti ágóðans af lygilegri svikamyllu Helgu Ingvarsdóttur og kærasta hennar, Vickram Bedi, hafi verið fluttur til Íslands. Þetta segir upplýsingafulltrúi saksóknaraembættisins í Westchester-sýslu, sem lýsir málinu sem sápuóperu. 10.11.2010 06:00
Banna gamla fólkinu að fóðra villikattaher „Í fyrra var þetta orðin alger plága svo við fengum meindýraeyði og hann tók tólf stykki. Þetta voru allt saman kolvitlausir villikettir,“ segir Björgvin Þórðarson, húsvörður hjá Hrafnistu í Hafnarfirði, um kattaplágu í hrauninu við hjúkrunarheimilið. 10.11.2010 06:00
Boða aukna samvinnu í atvinnumálum Fréttaskýring: Ríkisstjórn kynnti í gær verkefni til að örva atvinnulíf á Suðurnesjum. Til greina kemur að flytja Landhelgisgæsluna til Keflavíkur og Þróunarfélagið verður eflt. Ekkert er ákveðið um stóriðju eða einkasjúkrahús. Sveitarstjórnarfólk er ánægt með samstarfsvilja stjórnar. 10.11.2010 06:00
Vegagerð fyrir tugi milljarða í sjónmáli Mjög hefur dregið saman með kröfum ríkisins og lífeyrissjóðanna um vexti í viðræðum um fjármögnun sjóðanna á vegaframkvæmdum fyrir á fjórða tug milljarða króna. 10.11.2010 05:45
Lagst gegn friðlýsingu hluta Geysissvæðisins Áætlun um að friða þann hluta Geysissvæðisins sem er í eigu ríkisins hefur verið gerð hjá Umhverfisstofnun. Bláskógabyggð leggst gegn friðun á svæðinu þar til samkomulag næst milli allra sem eiga þar land. 10.11.2010 05:00
Með myndavélar og skartgripi Tveir menn, á þrítugsaldri, voru í gær úrskurðaðir í viku langt gæsluvarðhald á grundvelli rannsóknarhagsmuna. Þeir eru grunaðir um innbrot og þjófnaði úr heimahúsum í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum, sem handtók þá í fyrradag. 10.11.2010 04:00
Skorar á fólk að ljósmynda innbrotsþjófa Geir Jón Þórisson, yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, segir innbrotaöldu ríða yfir og biður almenning um aðstoð. 10.11.2010 03:00
Stofnunin lánaði ekki skúffufyrirtækjum Stjórnendur Byggðastofnunar telja að „nokkuð vel“ hafi tekist að gæta hagsmuna stofnunarinnar vegna lána til fyrirtækja í rækjuiðnaði. Þetta kemur fram í svari sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra við fyrirspurn Marðar Árnasonar Samfylkingunni. 10.11.2010 02:30
Stjórnvöld styrki stjórnsýslu Fyrstu mánuðirnir af aðildarviðræðum Íslands við Evrópusambandið hafa gengið vel, og ekkert óvænt komið upp, segir Timo Summa, sendiherra Evrópusambandsins á Íslandi. Hann kynnti fyrstu framvinduskýrslu framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins um Ísland í gær. 10.11.2010 02:00
Myndband Hjaltalín frumsýnt á Vísi Myndbandið við lagið Suitcase Man með Hjaltalín er komið í loftið á Vísi. Upptakan fór fram á tónleikum Hjaltalín með Sinfóníuhljómsveit Íslands undir stjórn Daníels Bjarnasonar í sumar. Myndbandið er hluti af Alpanon, DVD-disk og plötu með tónleikunum, sem kemur út á næstu dögum. 9.11.2010 22:09
Segja ríkisstjórnina gera grín að þjóðinni Sjálfstæðismenn á Alþingi sögðu ríkisstjórnina gera grín að þjóðinni með atvinnumálatillögum sínum á Suðurnesjum. Það eina væri hermangarasafn. 9.11.2010 18:53
Óvissustigi aflýst vegna Grímsvatna Almannavarnir hafa nú aflýst óvissustigi, sem sett var á 1. nóvember vegna atburða í Grímsvötnum en Grímsvatnahlaup, sem hófst í lok október, er nú lokið án þess að eldgos hafi fylgt hlaupinu. 9.11.2010 17:20
Setur reglur um transfitusýrur Jón Bjarnason sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hefur ákveðið að setja reglur um hámarksmagn transfitusýra í matvælum. Reglur á Íslandi verða að danskri fyrirmynd samkvæmt tilkynningu frá ráðuneytinu. 9.11.2010 17:12
Ók inn í DV húsið Kona ók bifreið sinni upp á stétt og inn í hús á gatnamótum Geirsgötu og Tryggvagötu. Dagblaðið DV er til húsa á efri hæðinni en þar var LÍÚ áður með skrifstofur. 9.11.2010 17:06
Ráðherra skipar samráðshóp um heildstæða húsnæðisstefnu Guðbjartur Hannesson, félags- og tryggingamálaráðherra, hefur skipað samráðshóp sem falið er að móta heildstæða húsnæðisstefnu til framtíðar. Markmiðið er að tryggja landsmönnum fjölbreytta og örugga valkosti í húsnæðismálum. Efla þarf varanlega leigu- og búseturéttarkosti og stuðla að jöfnuði milli búsetuforma. 9.11.2010 15:44
Ekki skvetta jógúrt ef hinn bílstjórinn er með skammbyssu Gerald Williams varð öskuvondur þegar Mark Flannery svínaði fyrir hann á Interstate 95 í Virginíu. Gerald keyrði Lexusinn alveg upp að Toyota Rav4 jeppa Marks og hékk þar. 9.11.2010 15:17
Blaðamannafundurinn í Víkingaheimum Nýtt safn um hersetu á Íslandi og flutningur Landhelgisgæslunnar á Miðnesheiði er á meðal þess sem rætt er um að gert verði til þess að byggja upp atvinnu á Reykjanesi. Ríkisstjórnin fundaði í Víkingaheimum í Reykjanesbæ í morgun. Þeir sem misstu af fundinum geta séð hann hér á Vísi. 9.11.2010 15:10
Úttekt: Jón Gnarr á mannamáli Margir áttu erfitt með að átta sig á öllu sem Jón Gnarr sagði í viðtali við Brynju Þorgeirsdóttir í Kastljósinu í gær. Hann virðist hafa ruglað saman kvikmyndunum Ghost og Sixth Sense, líkti Besta flokknum við svikahrapp, sjálfum sér við geimveru og viðurkenndi að hafa lagt samstarfsmenn sína í einelti. 9.11.2010 15:00
Þjóðfundur kostaði 92 milljónir Þjóðfundurinn sem haldinn var á laugardag kostaði 91,7 milljónir króna. Þetta var upplýst á fundi allsherjarnefndar Alþingis í gær. Sigurður Kári Kristjánsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, vakti máls á þessu í byrjun þingfundar í dag. 9.11.2010 14:50
Vill láta hætta að leita í túrbönum Indverskur þingmaður bað Barack Obama að sjá til þess að hætt væri að leita í túrbönum sikka sem ferðast með flugi til og frá Bandaríkjunum. 9.11.2010 14:44
Gullfiskar í fremstu víglínu Þúsundir þungvopnaðra lögreglu- og hermanna munu leggja lífið að veði til þess að vernda leiðtoga iðnveldanna tuttugu á fundi þeirra í Seoul í Suður-Kóreu í þessari viku. 9.11.2010 14:27
Góð tilfinning að vera alveg sammála Ögmundi Einar K. Guðfinnsson, fyrrverandi sjávarútvegsráðherra, segir það óskaplega góða tilfinningu og kærkomna tilbreytingu að geta sagt að hann væri alveg sammála Ögmundi Jónassyni samgönguráðherra. Það gerðist ekki á hverjum degi og þess vegna væri um að gera að njóta þess andartaks. 9.11.2010 14:19
Týndist við leit að Örkinni hans Nóa Skoskur landkönnuður sem fór að leita að Örkinni hans Nóa á Ararat fjalli í Tyrklandi er týndur. Donald McKenzie hefur farið í allmarga aðra leiðangra í leit að Örkinni, en að þessu sinni var hann einn síns liðs. 9.11.2010 13:49
Vill flugvöllinn áfram í Reykjavík Miðstöð innanlandsflugs á áfram að vera á Reykjavíkurflugvelli um langa framtíð. Þetta er skoðun nýs samgönguráðherra, Ögmundar Jónassonar, sem kvaðst á Alþingi í gær vonast til að fá niðurstöðu um smíði samgöngumiðstöðvar á fundi með borgarstjóranum í Reykjavík á fimmtudag. 9.11.2010 12:30
Ríkisstjórnin vill hersetusafn og flutning Gæslunnar Nýtt safn um hersetu á Íslandi og flutningur Landhelgisgæslunnar á Miðnesheiði er á meðal þess sem rætt er um að gert verði til þess að byggja upp atvinnu á Reykjanesi. Ríkisstjórnin fundaði í Víkingaheimum í Reykjanesbæ í morgun. 9.11.2010 12:09
Tuttugu prósent pilta skoða klám á hverjum degi Einn af hverjum fimm íslenskum unglingspiltum skoðar klám á internetinu á hverjum degi. Yfir helmingur íslenskra pilta viðurkennir að skoða klám á netinu að minnsta kosti í hverri viku. 9.11.2010 12:06
Ríkisstjórnin mætir til fundar í Víkingaheimum Ríkisstjórnin heldur í dag vikulegan fund sinn en að þessu sinni er hann haldinn í Víkingaheimum í Reykjanesbæ. Á meðfylgjandi myndskeiði má sjá ráðherrana koma til fundar en á eftir hefst bein útsending frá blaðamannafundi ríkisstjórnarinnar á Vísi. 9.11.2010 11:23
Starfsmenn Securitas leituðu að sprengjum á Laufásvegi Óeinkennisklæddir starfsmenn Securitas sáu um öryggisgæslu og sprengjuleit við sendiráð Bandaríkjanna allt til ársins 2005. Þetta staðfestir Guðmundur Arason, forstjóri Securitas, í samtali við Vísi. 9.11.2010 11:09
Böndin berast að hinum handtekna í Malmö Sænska blaðið Expressen segir í dag að tæknideild lögreglunnar hafi þegar komist að þeirri niðurstöðu að skammbyssa sem lagt var hald á hjá 38 ára gömlum manni hafi verið notuð við skotárásir á innflytjendur í Malmö. 9.11.2010 11:04