Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Hætt við mosku í Tromsö Miðstöð múslima í Tromsö í Noregi hefur hætt við að reisa mosku í bænum með fjárframlögum frá Saudi-Arabíu. Talsmaður miðstöðvarinnar segir að norska utanríkisráðuneytið samþykki ekki þessa fjármögnun. 9.11.2010 10:00
Leggur til 400 tonna rækjukvóta í Arnarfirði Hafrannsóknarstofnun hefur lagt til að 400 tonna hámarksafli af rækju verði leyfður í Arnarfirði í vetur. Er þetta svipaður kvóti og gefinn hefur verið út á síðustu árum. 9.11.2010 09:48
„Fljúgandi furðuhlutur“ í Árbænum Lesandi Vísis sendi ritstjórninni þetta athyglisverða myndband þar sem sjá má blikkandi ljós á næturhimninum. Myndbandið var tekið klukkan 18:45 í Árbænum í gærkvöld þegar myndatökurmaðurinn var að koma heim úr vinnunni. 9.11.2010 09:30
Hitaveitan 80 ára í dag Áttatíu ár eru liðin í dag frá því heitu vatni var hleypt á Laugaveituna, fyrstu hitaveituna í Reykjavík. 9.11.2010 09:16
Bush sér ekki eftir neinu George Bush yngri, fyrrverandi Bandaríkjaforseti varði í gær sínar umdeildustu ákvarðanir í viðtali á bandarísku sjónvarpsstöðinni NBC. 9.11.2010 08:58
Herforingjar lýsa yfir sigri í Búrma - átök brjótast út Herforingjastjórnin í Búrma hefur lýst yfir sigri í kosningunum sem fram fóru í landinu um helgina, þeim fyrstu í tuttugu ár. Herforingjarnir segja að stærsti stjórnarflokkurinn hafi fengið yfir 80 prósent atkvæða en leiðtogar víða um heim hafa fordæmt kosningarnar og sagt þær ómarktækar. 9.11.2010 08:54
Castro boðar til aðalfundar Flokksins Forseti Kúbu, Raoul Castro hefur fyrirskipað að aðalfundur kommúnistaflokksins verði haldinn í apríl á næsta ári, til þess að ræða efnahagsvandræðin sem kúbverjar glíma við nú um stundir. Aðalfundinn á samkvæmt lögum að halda á fimm ára fresti en eldri bróðir Raous, Fidel Castro, frestaði honum ítrekað svo fundurinn hefur ekki verið haldinn í fjórtán ár. 9.11.2010 08:27
Ríkisstjórn í Reykjanesbæ: Bein útsending á Vísi Reglulegur ríkisstjórnarfundur verður haldinn fyrir hádegi, en að þessu sinni í Víkingaheimum í Reykjanesbæ. Víkingaheimar eru meðal annars skjólshús víkingaskips, sem smíðað var hér á landi samkvæmt fornri hefð, fyrir all nokkrum árum. Blaðamannafundur að fundinum loknum verður í beinni útsendingu á Vísi. 9.11.2010 08:20
Bílvelta á Akureyri Þrír sluppu nær ómeiddir þegar bíll valt á hvolf á Miðhúsabraut, rétt ofan við Skautahöllina á Akureyri í gærkvöldi. 9.11.2010 08:14
Arnaldur: Næstum sjö milljónir seldar Arnaldur Indriðason hefur nú selt næstum því sjö milljónir eintaka af bókum sínum á heimsvísu, samkvæmt upplýsingum frá útgáfufyrirtæki hans hér á landi, Vöku Helgafell. Það þýðir að hann hefur tekið fram úr strákunum í Sigur Rós; hefur selt fleiri eintök af bókum sínum en fjórmenningarnir hafa selt af plötum sínum. Arnaldur á þó langt í land með að ná Björk Guðmundsdóttur. 9.11.2010 08:00
Da Vinci fléttan: Var „lífvörður“ erfingjans á tónleikum Hið ótrúlega fjárkúgunarmál sem upp er komið í Bandaríkunum og tengist Íslandi á þann hátt að annar hinna grunuðu fjárkúgara er íslensk kona, hefur vakið mikla athygli. Á Youtube má sjá myndband frá árinu 2006 þar sem fórnarlambið Roger Davidson, milljónamæringur og þekktur píanóleikari heldur tölu á tónleikum sem hann skipulagði. Á bakvið Davidson stendur Vickram Bedi ábúðarfullur en hann taldi Davidson meðal annars á að ráða sig sem lífvörð. 9.11.2010 07:57
Deilir ekki átjándu aldar sýn Hlutfall lögfræðinga frá Háskólanum í Reykjavík (HR) sem í fyrstu tilraun stóðust réttindapróf til að starfa sem héraðsdómslögmaður er í ár hærra en hlutfall útskrifaðra lögfræðinga frá lagadeild Háskóla Íslands (HÍ). Tæp 69 prósent útskrifaðra nemenda HR stóðust prófið í fyrstu tilraun á móti tæpum 65 prósentum frá HÍ. 9.11.2010 06:00
Leita nýrra nemenda í þrjá bekki Landakotsskóli leitar nýrra nemenda á miðjum vetri. Fjölmargir foreldrar hafa fengið bréf frá skólanum undanfarna daga þar sem börnum er boðið að skipta um skóla frá næstu mánaðamótum. Starfsmenn skólans hafa borið bréfið út í sjálfboðavinnu, segir Sölvi Sveinsson skólastjóri, og þeir séu ekki hálfnaðir við útburðinn. 9.11.2010 06:00
Íslensk kona ákærð fyrir milljóna dollara fjárkúgun Íslensk kona, Helga Ingvarsdóttir, var handtekin ásamt kærasta sínum, Vickram Bedi, í Bandaríkjunum á fimmtudag fyrir stórfellda fjárkúgun. 9.11.2010 06:00
Segist ekki spá í gang himintunglanna Það er forseta Íslands að ákveða hvort hann skjóti Icesave-málinu til þjóðarinnar öðru sinni, sagði Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra á Alþingi í gær. 9.11.2010 05:45
Réðust á mann á svölum húss Tveir karlmenn um tvítugt hafa verið ákærðir fyrir líkamsárás í síðasta mánuði. 9.11.2010 05:15
Ógnar öryggi fjölskyldna Fagráð ljósmæðra á Landspítala ályktar að yfirvofandi niðurskurður í heilbrigðisþjónustunni muni ógna öryggi barnshafandi kvenna og fjölskyldna þeirra. Kom það fram á fundi fagráðsins í síðustu viku. 9.11.2010 04:45
Starfsmenn sælir með styrk „Okkur finnst þetta öllum hið besta mál og skorum á fleiri að gera slíkt hið sama,“ segir Eiríkur Kristófersson, starfsmaður á D-vakt í steypuskálanum hjá Norðuráli á Grundartanga. D-vaktin gaf allan starfsmannasjóðinn til góðgerðamála. 9.11.2010 04:30
Um 14% drengja telja að konur eigi ekki að vinna úti Þrátt fyrir nýbirta skýrslu þar sem fram kemur að jafnrétti kynjanna sé meira hér á landi en annars staðar virðist viðhorf íslenskra ungmenna vera á skjön við það. Félagsfræðingur kallar eftir aðgerðum innan skólakerfisins. 9.11.2010 04:15
Konur í meirihluta þeirra sem missa vinnu Starfsfólki hjá heilbrigðisstofnunum á landsbyggðinni fækkar um samtals 456 nái niðurskurðartillögur ríkisstjórnarinnar fram að ganga. Átta af hverjum tíu sem missa vinnuna eru konur, alls 369 starfsmenn. 9.11.2010 04:15
Fátt um svör fyrr en kröfur Íslands verða lagðar fram Evrópusambandið getur litlu svarað um viðbrögð sín við samningskröfum Íslendinga fyrr en þær kröfur hafa formlega verið lagðar fram. 9.11.2010 04:00
Víða hefur orðið vart við dekkjaskort Dekkjaskortur hefur gert vart við sig á sumum hjólbarðaverkstæðum höfuðborgarsvæðisins síðustu daga og vikur, enda tíðarfar þannig að langar biðraðir hafa myndast við mörg verkstæðanna. 9.11.2010 03:45
Skilur milli feigs og ófeigs Björgunartækjum sem ætluð eru til að bjarga fólki sem fellur í sjóinn á hafnarsvæði Sauðárkróks var stolið nýverið. Fram kemur á fréttavefnum Feyki að búnaðurinn geti skilið milli feigs og ófeigs detti fólk í sjóinn. 9.11.2010 03:30
Golfvöllur bara á teikniborðinu Sigurður Magnússon, fulltrúi Á-listans, sem situr einn í minnihluta í bæjarstjórn Álftaness, mótmælti á síðasta fundi samþykkt deiliskipulags sem felur í sér nýjan golfvöll í sveitarfélaginu. 9.11.2010 03:15
Afhenda lista til Alþingis Íbúar á Suðurlandi hafa nú hafið undirskriftasöfnun til að mótmæla fyrirhuguðum niðurskurði í heilbrigðisþjónustu á landsbyggðinni. 9.11.2010 03:00
Of fá tilvik til að teljast marktæk 25 manns létust á síðasta ári vegna háþrýstingshjartasjúkdóms, en það eru fimm sinnum fleiri en árið áður. 9.11.2010 02:30
Telja að gæði skólastarfs muni skerðast SAMFOK, samtök foreldra grunnskólabarna í Reykjavík, lýsa yfir áhyggjum af fyrirhuguðum niðurskurði á menntasviði Reykjavíkurborgar þriðja árið í röð. Guðrún Valdimarsdóttir, formaður SAMFOK, segir helsta áhyggjuefnið vera að fjárveitingar til skólanna muni vart duga til að fylgja ákvæðum grunnskólalaga að fullu. 9.11.2010 02:15
Ungur piltur með barnaklám Piltur á átjánda ári hefur verið dæmdur í Héraðsdómi Norðurlands eystra í þrjátíu daga skilorðsbundið fangelsi fyrir vörslu barnakláms. 9.11.2010 02:15
Hækka viðmið um 20 til 25% Tekjuviðmið vegna gjafsóknar verða hækkuð um 20 til 25 prósent í kjölfar fjölmargra ábendinga um að viðmiðið sé of lágt, sagði Ögmundur Jónasson, dómsmála- og mannréttindaráðherra, á Alþingi í gær. 9.11.2010 02:00
Fjárfesta fyrir 200 milljónir Samlagssjóðurinn Frumtak keypti hlut í fyrirtækinu Mentor fyrir tvö hundruð milljónir króna. 9.11.2010 02:00
Þúsundir manna flýja Þúsundir flúðu heimili sín undan rótum eldfjallsins Merapi í Indónesíu í gær. Opinber viðvörun var gefin út um að eldfjallið gæti gosið aftur hvenær sem væri og fjölmenntu íbúar inn í rútur, lestir og bíla til að flýja í kjölfarið. 9.11.2010 02:00
Þúsundir hafa flúið frá Búrma Að minnsta kosti tíu þúsund manns hafa flúið yfir landamærin til Taílands vegna bardaga milli stjórnarhers Búrma og uppreisnarhers karena. 9.11.2010 01:45
Vill betra flæði á upplýsingum Elliði Vignisson bæjarstjóri í Vestmannaeyjum hefur lýst yfir óánægju með upplýsingaflæði vegna ferða Herjólfs, en ferð til lands féll niður í gærmorgun sökum óhagstæðra veðurskilyrða. 9.11.2010 01:45
Mælir með því að gullfótur verði tekinn upp Robert Zoellick, forstjóri Alþjóðabankans, mælir með því að helstu iðnríki heims taki upp gullfót eða aðra viðmiðun fyrir gjaldmiðla landanna. 9.11.2010 01:30
Vill að NATO stefni á brottför Bandarísk hermálayfirvöld hvetja Atlantshafsbandalagið til að fallast á tímaáætlun Hamids Karzai Afganistansforseta. 9.11.2010 01:30
Landið fái sæti í öryggisráði SÞ Barack Obama Bandaríkjaforseti styður óskir Indlands um að fá varanlegt sæti í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna. Kom þetta fram í ræðu sem Obama flutti á indverska þinginu. 9.11.2010 01:00
Veltir fyrir sér að loka Bláfjöllum Ýmsar sparnaðarleiðir eru til skoðunar hjá Reykjavíkurborg en alls þarf að stoppa upp í 4,5 milljarða króna gat hjá borginni en fjárlagagerð stendur nú yfir og stendur til að ljúka henni fyrir jól. 8.11.2010 21:17
Kísilver undirbúin í Þorlákshöfn, Helguvík og Grindavík Tvær kísilmálmverksmiðjur eru nú í undirbúningi í landinu, í Þorlákshöfn og Helguvík, og jafnframt er verið að undirbúa kísilhreinsiverksmiðju við Grindavík. Þær gætu lent í samkeppni við álver í Helguvík um þá orku sem verður í boði á næstunni en jafnframt er líklegt að Landsvirkjun hugi að neðri Þjórsá til að mæta orkuþörfinni. 8.11.2010 19:07
„Íslandsvinur“ höfuðpaur í smyglmáli Hæstiréttur staðfesti framlengingu á gæsluvarðhaldi yfir austur-evrópskri konu sem kom hingað til lands, ásamt annarri konu, með um tuttugu lítra af amfetamínbasa falda í eldsneytistanki bílsins. Með réttri úrvinnslu efnisins var hægt að framleiða um 150 kíló af amfetamíni. 8.11.2010 17:46
Putin á 320 kílómetra hraða Vladimir Putin forsætisráðherra Rússlands gerir ýmislegt sér til gamans. Nýjasta uppátæki hans var að keyra Formúlu 1 kappakstursbíl í Sankti Pétursborg. 8.11.2010 16:47
Ráðinn aðstoðarforstjóri Landspítalans Benedikt Olgeirsson hefur verið ráðinn í nýtt starf aðstoðarforstjóra Landspítala. Eftir því sem fram kemur í tilkynningu frá Landspítalanum mun aðstoðarforstjóri mun hafa með höndum margþætt verkefni sem snúa meðal annars að innleiðingu á stefnu spítalans, framþróun starfseminnar til að 8.11.2010 16:25
Ríkislögreglustjóri kannar hvort njósnað er um Íslendinga Ögmundur Jónasson dómsmálaráðherra hefur fundað með ríkislögreglustjóra og farið þess á leit við hann að kannað verði hvort Bandaríkjamenn hafi fylgst með ferðum almennra borgara við sendiráðiið á Laufásvegi. Þetta sagði Ögmundur við upphaf þingfundar í dag. 8.11.2010 15:40
Slökkviliðið kallað að Hallakri Lögregla og slökkvilið voru kölluð að Hallakri í Garðabæ nú á fjórða tímanum vegna þess að pottur gleymdist á eldavél. Töluverður reykur myndaðist í íbúðinni og vinnur lögreglan nú að því að reykræsta. 8.11.2010 15:25
Varað við vafasömum humarsölumönnum Óprúttnir aðilar brutust inn á veitingastaðinn Humarhúsið í nótt og stálu þaðan nærri hundrað kílóum af humri og dýru áfengi. Ottó Magnússon, annar eigenda Humarhússins, sagði að um sex til átta kassar af humri hefðu verið teknir og vegur hver kassi um 12 kíló. 8.11.2010 14:54
Sakaði fréttakonu Rúv um heimsku og vanþekkingu Fréttakonan Linda Blöndal á Rúv lenti í orðaskaki við finnska verðlaunaskáldið Sofi Oksanen á afhendingu norrænu bókmenntaverðlaunana í síðustu viku. Rithöfundurinn Eiríkur Örn Norðdahl segir dónaskap Sofi Oksanen endurspegla það metnaðarleysi og skort á fagmennsku sem einkenni íslenska menningarumfjöllun. 8.11.2010 14:46