Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Grunaður um fleiri morð Peter Mangs, 38 ára Svíi sem handtekinn var um síðustu helgi grunaður um eitt morð og nokkrar skotárásir í Malmö undanfarið ár, er einnig talinn sekur um fleiri óupplýst morð frá fyrri árum. 12.11.2010 06:00
Ætla að draga úr mengun um tuttugu prósent á áratug Fréttaskýring: Ríkisstjórnin hefur samþykkt aðgerðaáætlun til næstu tíu ára sem draga á úr losun gróðurhúsalofttegunda. Áætlunin nær til allra samgangna á Íslandi og landgræðslu. Flýta á fyrir metanvæðingu bílaflotans. Vonir standa til að nota lífefnaeldsneyti á fiskiskipaflotann. 12.11.2010 05:45
Nýsköpun er leiðin úr kreppu Eiríkur Steingrímsson og Magnús Karl Magnússon segja að laustengdur hópur fræðafólks úr Háskóla Íslands, Háskóla Reykjavíkur og Landspítala vilji breyta vísindaumhverfinu hér á landi til hins betra, og hefur hann meðal annars kallað eftir því að opinberum fjárframlögum til rannsókna verði í auknum mæli beint í gegnum svokallaða samkeppnissjóði, enda sé það virk og öflug leið til að verja fjármunum á sem bestan hátt. 12.11.2010 05:15
Loftsteinn lagður sem hornsteinn HR Nýbygging Háskólans í Reykjavík (HR) við Nauthólsvík var vígð við hátíðlega athöfn í gær þar sem Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra og Magnús Júlíusson, formaður Stúdentafélags HR, lögðu hornstein að byggingunni. Steinn þessi er ansi merkilegur því um er að ræða fimm kílóa loftstein sem lenti á jörðinni fyrir um 4.000 árum. 12.11.2010 05:00
Þetta er bara kjaftæði „Þetta er bara kjaftæði. Það er búið að segja þetta svo oft.“ Þetta eru viðbrögð Hilmars Konráðssonar, forstjóra Magna verktaka, við tíðindum um að vegagerð fyrir tugi milljarða sé í sjónmáli. 12.11.2010 04:15
„Þetta eru auðvitað bara göngin okkar“ Þjóðvegurinn á milli Húsavíkur og Þórshafnar hefur nú styst um 53 kílómetra, eftir að Hófaskarðsleið var opnuð við hátíðlega athöfn í stórhríð síðastliðinn laugardag. Vegurinn leysir nú af Öxarfjarðarheiði, sem hefur aðeins verið fær að sumri til. 12.11.2010 04:00
Bush undirbjó árás á Íran og íhugaði að ráðast á Sýrland Gerhard Schröder og David Cameron bera brigður á fullyrðingar í nýútkominni ævisögu George W. Bush, fyrrverandi Bandaríkjaforseta. Bush viðurkennir stöku mistök en stendur samt við flest það umdeildasta. 12.11.2010 03:15
Landgræðsluverðlaunin afhent Landgræðsluverðlaunin voru veitt í dag við hátíðlega athöfn í Gunnarsholti. Verðlaunin að þessu sinni hlutu Ársæll Hannesson, Hermann Herbertsson, Ingólfur Helgason og Unnur Sveinbjörnsdóttir, Sandgerðisbær og Þjórsárskóli. 11.11.2010 21:25
Einar K: Beittu hótunum og kúgunum „Niðurstaðan var fengin með hótunum og kúgunum," segir Einar K. Guðfinsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, um atkvæðagreiðsluna á Alþingi í júlí 2009 þegar samþykkt var að sækja um aðild að Evrópusambandinu. Ásmundur Einar Daðason, þingmaður VG, sagði í umræðum á Alþingi í dag að Jóni Bjarnasyni, sjávarútvegs- og landbúnaðaráðherra, hefði verið hótað við atkvæðagreiðsluna. Ef hann myndi ekki styðja tillögu utanríkisráðherra yrði hann ekki lengi ráðherra. 11.11.2010 21:06
Frumvarp Árna Páls vegna gengislána lagt fram Frumvarp Árna Páls Árnasonar, efnahags- og viðskiptaráðherra, um gengisbundin lán hefur verið lagt fram á Alþingi. Markmið frumvarpsins er að tryggja öllum einstaklingum sem tóku gengisbundin fasteignaveðlán eða bílalán lægri eftirstöðvar, til samræmis við dóm Hæstaréttar frá 16. september. 11.11.2010 19:58
Spyr hvort borgin stefni að aðskilnaði við landsbyggðina Þess var krafist á Alþingi í dag að smíði nýs Landspítala yrði frestað meðan framtíð Reykjavíkurflugvallar væri óljós. Þá var spurt hvort borgin stefndi að algjörum aðskilnaði við landsbyggðina. 11.11.2010 19:08
Bóndi ekur í fyrsta sinn á olíu af eigin akri Olíuframleiðsla er hafin á Þorvaldseyri og ók Ólafur Eggertsson bóndi í fyrsta sinn í dag traktor sem gekk fyrir olíu af hans eigin akri. Hjá Siglingastofnun vonast menn til að íslenski fiskiskipaflotinn verði í framtíðinni knúinn með íslenskri jurtaolíu. 11.11.2010 18:51
Davíð: Ekkert nýtt í skjölunum Davíð Oddsson, fyrrverandi forsætisráðherra, segir ekkert nýtt vera að finna í tugum skjala sem utanríkisráðuneytið birti í morgun, um aðdraganda þess að Ísland studdi innrás í Írak, vorið 2003. 11.11.2010 18:45
Mikið talað fyrir almennri lækkun vaxta Hagsmunaaðilar komu saman til samráðsfundar í Þjóðmenningarhúsinu í dag, þar sem skýrsla sérfræðingahóps forsætisráðuneytisins um skuldavanda heimilanna var rædd. 11.11.2010 18:43
Vegtollar lagðir á umferðaræðar til og frá Reykjavík Vegtollar 100 til 200 krónur verða lagðir á allar umferðaræðar til og frá höfuðborginni innan nokkurra ára. Fyrirhugað er að taka upp vegtolla í öllu vegakerfinu. 11.11.2010 18:41
Telur niðurskurðinn fela í sér gróf mannréttindabrot Hópur Sunnlendinga afhentu Guðbjarti Hannessyni heilbrigðisráðherra, í dag lista með mótmælum íbúa á Suðurlandi gegn áformuðum niðurskurði á fjárframlögum til heilbrigðisþjónustunnar á svæðinu. Við sama tækifæri voru ráðherra einnig afhentir undirskriftalistar úr fleiri heilbrigðisumdæmum. Alls skrifaði 10.071 íbúi nafn sitt á mótmælalistana á Suðurlandi. 11.11.2010 17:59
Opið í Bláfjöllum Skíðasvæðið í Bláfjöllum opnaði klukkan 15 og verður opið til klukkan 21 íkvöld. Skíðalyftan Kóngurinn er opinn og barnalyftur við skála, að því er fram kemur á heimasíður Reykjavíkurborgar. Diskalyftur á suðursvæðinu opnuðu klukkan 17. „Fólk er beðið um að klæða sig vel, það bítur aðeins í. Þar er NA 7-12m/sek og -6° frost,“ segir á heimasíðu borgarinnar. 11.11.2010 17:37
Almenn leiðrétting skynsamlegust Þingmenn Hreyfingarinnar telja að almenn leiðrétting lána sé sú aðgerð sem skynsamlegast sé að ráðast í samhliða sértækum úrræðum fyrir þá sem almenn leiðrétting dugar ekki til hjá. Þingmennirnir telja að með þeirri nálgun megi leggja grunn að þjóðarsátt um skuldavanda heimilanna. Þetta er meðal þess sem fram kemur í yfirlýsingu frá Hreyfingunni. 11.11.2010 17:15
Ætlaði að henda rusli og féll niður ramp - fær tvær milljónir í bætur Hæstiréttur Íslands staðfesti í dag úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur frá síðasta ári þar sem Sorpa bs. var dæmt til þess að greiða konu rúmar tvær milljónir í skaðabætur. 11.11.2010 16:42
Hæstiréttur þyngir dóm yfir Sophiu Hansen Sophia Hansen var dæmd í 12 mánaða fangelsi skilorðsbundið til þriggja ára fyrir að bera rangar sakir á Sigurð Pétur Harðarson. 11.11.2010 16:36
Fjöldi mótmælenda af Suðurlandi afhentu undirskriftir Fjöldi fólks af Suðurlandi mótmælti fyrir utan Alþingi í dag og afhenti meðal annars Guðbjarti Hannessyni, félagsmála- og tryggingamálaráðherra, blóm og undirskriftir í tilefni mótmælanna. 11.11.2010 16:26
Um 6 milljarða viðskipti með skuldabréf Skuldabréfavísitalan GAMMA: GBI lækkaði um 0,1% í dag í 6 ma. viðskiptum. GAMMAi: Verðtryggt lækkaði um 0,1% í 1,7 ma. viðskiptum og GAMMAxi: Óverðtryggt lækkaði lítillega í 3 ma. viðskiptum. 11.11.2010 16:22
Meintur fíkniefnaframleiðandi áfram í gæsluvarðhaldi Karl á þrítugsaldri hefur verið úrskurðaður í áframhaldandi gæsluvarðhald til 25. nóvember að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. 11.11.2010 16:00
Fagráð kirkjunnar takmarkar upplýsingaflæði Fagráð um meðferð kynferðisbrota innan þjóðkirkjunnar gefur ekki upplýsingar um fjölda mála sem ráðinu hafa borist fyrr en á nýju ári. Eftir það verða þessar upplýsingar teknar saman með reglulegu millibili, líklega árlega eða á hálfs árs fresti. Þess utan gefur fagráðið ekki upplýsingar um störf sín. Þetta var ákveðið á fundi fagráðins í morgun. 11.11.2010 15:59
Sunnlendingar flykktust til Reykjavíkur til að mótmæla Tvær þétt setnar rútur fóru um hálfþrjúleytið í dag frá Selfossi áleiðis til Reykjavíkur. Fjöldi fólks fylgdi rútunum á einkabílum. 11.11.2010 15:33
Arnar Már borinn út í kyrrþey Arnar Már Þórisson, verktaki, var borinn út í gærmorgun en sjálfur segir hann í orðsendingu til fjölmiðla að hann hafi verið borinn út í kyrrþey. 11.11.2010 15:30
Manntjón og flótti frá Merapi Hátt á annaðhundrað manns hafa nú farist í eldgosinu í fjallinu Merapi í Indónesíu. Þúsundir hafa þurft að flýja heimili sín. Þótt Merapi sé eitt af virkustu eldfjöllum heims er þétt byggð bæði í hlíðum þess og við ræturnar. 11.11.2010 15:28
Nýtt húsnæði BUGL tekið formlega í notkun Húsnæði móttökudeildar unglinga og dagdeildar barna á barna- og unglingageðdeild Landspítala, BUGL, var tekið formlega í notkun með viðhöfn í dag eftir gagngerar endurbætur. 11.11.2010 15:14
Björgvin aftur yfir kynferðisafbrotadeildina Lögreglustjórinn í Reykjavík, Stefán Eiríksson, óskaði eftir því að Björgvin Björgvinsson, aðtoðaryfirlögregluþjónn, tæki aftur við sem yfirmaður kynferðisbrotadeildarinnar sem og hann hefur samþykkt. 11.11.2010 15:13
Hann eyðir víst frekar litlu Þetta er minnsti bíll í heimi sem leyfilegt er að nota í almennum akstri. Það segir að minnsta kosti heimsmetabók Guinness. 11.11.2010 15:00
Bubbi vill fría smokka í grunnskóla „Miðað við þær fréttir sem við fáum af gríðarlegri útbreiðslu kynsjúkdóma held ég að sú herferð hljóti að hafa mistekist hrapalega," segir Bubbi Morthens um 24 ára gamla auglýsingaherferð þar sem fólk var hvatt til að nota smokkinn. Bubbi tók sjálfur þátt í herferðinn en nú hefur verið ákveðið að endurgera hana og hafa um hundrað þekktir einstaklingar samþykkt að taka þátt. 11.11.2010 14:40
Með hreyflana fulla af mávum Boeing 757 þota frá Thomas Cook fór í gegnum mikið mávager í flugtaki frá Tyrklandi til Bretlands án þess að flugmennirnir gerðu sér grein fyrir hversu alvarlegt það var. 11.11.2010 14:26
Rannsaka hvort biskupsmálið hafi verið þaggað niður Nefnd sem mun rannsakað viðbrögð kirkjunnar við ásökunum á hendur Ólafi Skúlasyni um kynferðisbrot árið 1996 verður skipuð á Kirkjuþingi um helgina. 11.11.2010 14:22
Morðrannsókn formlega lokið - málið til ríkissaksóknara Rannsókn lögreglunnar á morðinu á Hannesi Þór Helgasyni í Hafnarfirði í ágúst síðastliðnum er lokið samkvæmt tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. 11.11.2010 14:19
Um tuttugu mótmælendur berja tunnur Um tuttugu mótmælendur berja tunnur fyrir utan Þjóðmenningarhúsið þar sem samráðsfundur ríkisstjórnar með hagsmunaaðilum er haldinn vegna skýrslu sérfræðingahóps ríkisstjórnarinnar um skuldavanda heimilanna. 11.11.2010 14:15
Buðu staðföstum í mat tæpum mánuði eftir innrás Fulltrúum ríkjanna, sem voru á stuðningslista Bandaríkjanna vegna innrásarinnar í Írak, var boðið í mat heima hjá varnamálaráðherra Bandaríkjanna, Donald Rumsfield, um tæpum mánuði eftir innrásina. 11.11.2010 13:44
Kýldi lögreglumann og neitaði að yfirgefa lögreglubíl Kona á fertugsaldri var dæmd í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag fyrir það að neita að yfirgefa lögreglubíl sem hún fór inn í án heimildar í mars síðastliðnum og fyrir að kýla lögreglumann í bringuna. Konan játaði að hafa hundsað fyrirmæli lögreglunnar um að yfirgefa bifreiðina en neitaði að hafa kýlt lögreglumanninn. Dómurinn segir hins vegar að framburður þeirra lögreglumanna sem voru á staðnum hafi hins vegar verið á einn veg um það. Hún var því sakfelld. 11.11.2010 13:31
Leyniskjal segir innrásina í Írak lagalega vafasama Þjóðréttarfræðingur, sem vann álit fyrir forsætisráðherra og ráðuneytisstjóra, um lagalegan grundvöll til beitingar vopnavalds gagnvart Írak, komst að þeirri niðurstöðu þann 20. mars 2003, að það væri ekki ótvíræður lagalegur grundvöllur fyrir innrás í Írak. 11.11.2010 12:28
Kom Íslendingum í opna skjöldu þegar CNN birti listann Það virðist hafa komið utanríkisráðuneytinu í opna skjöldu þegar listi hinna staðföstu þjóða var birtur á fréttastöðinni CNN þann 18. mars 2003. Þá höfðu engin svör borist frá Bandaríkjastjórn um hvernig listinn yrði notaður. 11.11.2010 12:23
Listi hinna staðföstu var algjört trúnaðarmál Íslensk stjórnvöld voru á lista „hinna staðföstu þjóða" sem studdu innrás í Írak, tveimur dögum áður en innrásin hófst. Þá var litið á listann sem „algjört trúnaðarmál". 11.11.2010 12:11
Breskur ráðherra biður Íslendinga afsökunar Varnarmálaráðherra Breta biður Íslendinga afsökunar á að fyrri ríkisstjórn hafi beitt Íslendinga hryðjuverkalögum í bankahruninu. 11.11.2010 12:00
Skuldugasta kynslóðin á fertugsaldri Rúmlega 80% þeirra heimila sem eru í vanda, samkvæmt skýrslu reiknimeistarahóps stjórnvalda, keypti fasteign eftir að bankarnir fóru að veita fasteignalán árið 2004. Skuldugusta kynslóðin er fólk á fertugsaldri. 11.11.2010 12:00
Dorrit með sýnikennslu í kvöld Dorrit Moussaieff forsetafrú og Solla Eiríks hráfæðisgúrú þjófstarta alþjóðlegu athafnavikunni með léttri sýnikennslu í matargerð með nýsköpunarívafi á veitingastaðnum Gló í Laugardal kl 18. í kvöld. 11.11.2010 11:10
Helmingur vill stjórnarflokkana áfram við ríkisstjórnarborðið Rúmur helmingur þjóðarinnar telur æskilegt að núverandi stjórnarflokkar komi áfram að ríkisstjórn. Um þriðjungur þjóðarinnar vill að skipuð verði utanþingsstjórn. Þetta eru niðurstöður MMR sem kannaði afstöðu almennings til nokkurra kosta við samsetningu ríkisstjórnar sem hafa verið í umræðunni að undanförnu. 11.11.2010 11:06
Smokkurinn má ekki vera feimnismál Til stendur að endurgera þekkta smokkaauglýsingu sem vakti mikla athygli fyrir 24 árum síðan. Það eru félagasamtökin Smokkur -sjálfsögð skynsemi og Ástráður félag læknanema sem standa að auglýsingunni ásamt Íslensku auglýsingastofunni. Smokkaherferðin sem gekk undir yfirskriftinni „Smokkur má ekki vera feimnismál" árið 1986 verður þannig endurvakin. 11.11.2010 11:04