Fleiri fréttir

Réttað að nýju yfir meintum fíkniefnasmyglurum

Hæstiréttur hefur úrskurðað að rétta þurfi að nýju yfir fimm mönnum sem ákærðir voru fyrir stórfellt fíkniefnasmygl. Ástæðan er sú að héraðsdómari tók sér of langan tíma í að dæma málið.

Þingmenn vilja öll gögn upp á borðið

Þingmenn Samfylkingarinnar og Sjálfstæðisflokks gera athugasemdir við að fá ekki að sjá öll þau gögn sem þingmannanefndin um ráðherraábyrgð hafði undir höndum. Þeir segjast ekki geta tekið ákvörðun um hvort ákæra skuli fyrrverandi ráðherra fyrr en trúnaði verði aflétt. Umræður um ákærur á hendur ráðherrunum hófust á Alþingi í morgun.

Þýskir óttast ólykt á Oktoberfest

Þýskir vísindamenn eru í kapphlaupi við tímann til þess að gera lífið á október-bjórhátíðinni bærilegt fyrir gesti á næsta ári. Októberfest í Þýskalandi er stærsta bjórhátíð í heimi og þar koma saman milljónir manna og drekka bjór og borða bratwurst í risastórum tjöldum.

Nýr bæjarstjóri tekinn við í Fjarðabyggð

Páll Björgvin Guðmundsson hefur tekið við embætti bæjarstjóra Fjarðabyggðar. Helga Jónsdóttir, sem áður gegndi embættinu, afhenti honum lyklavöldin í lok bæjarstjórnarfundar í gær.

Hátt settur Hamas maður felldur

Ísraelskir hermenn felldu í nótt háttsettann herforingja í Hamas hreyfingunni á Vesturbakkanum. Maðurinn er sagður hafa borið ábyrgð á árásum í lok ágúst á Vesturbakkanum þar sem fjórir ísraelskir landnemar voru felldir.

Skýrsla Magmanefndar fyrst kynnt þingflokkum

Skýrsla nefndarinnar sem falið var að meta lögmæti kaupa Magma Energy á HS Orku var kynnt á ríkisstjórnarfundi í morgun. Samkvæmt upplýsingum fréttastofu verður niðurstaðan kynnt þingflokkunum áður en hún verður gerð opinber, en ekki liggur fyrir hvort það verður í dag eða síðar.

Sólskinsdrengurinn tilnefndur til Voice-verðlaunanna

Sólskinsdrengurinn, heimildarmynd Friðriks Þórs Friðrikssonar um einhverfa drenginn Kela, hefur verið tilnefnd til Voice-verðlaunanna. Þau verða afhent í Paramount studios, Hollywood, þann 13. október, en margar stjörnur koma að þessari verðlaunahátíð. Má nefna að Richard Dreyfuss var kynnir hátíðarinnar í fyrra og Glenn Close kom fram.

Laus við kynþáttafordóma og reyndi að stilla til friðar

Jón Hilmar Hallgrímsson, sem var handtekinn og úrskurðaður í gæsluvarðhald vegna meints kynþáttahaturs og hótana gagnvart kúberskum feðgum var ekki viðstaddur þegar eignaspjöll voru framin á heimili feðganna og hann er blessunarlega laus við kynþáttafordóma. Þetta segir lögmaður Jóns, Sveinn Andri Sveinsson, í yfirlýsingu sem hann hefur sent fjölmiðlum.

Stúdentar mótmæla svæsnu klámi

Hópur háskólanemenda sem berst gegn klámvæðingu hefur hengt upp veggspjöld víða um Reykjavík þar sem vakin er athygli á því að klámefni með vísunum í barnaklám er fáanlegt í kynlífsverslunun í borginni. „Á sumum hulstrum er tekið fram að leikkonurnar séu orðnar 18 ára, en það er augljóslega viljandi verið að leika sér á gráa svæðinu eins og við sýnum vel á veggspjöldunum okkar. Eitt myndbandið gerir meira að segja út á sifjaspell!," segir einn meðlimur hópsins í samtali við Student.is

Presturinn játaði kynferðisbrot sín

Presturinn sem kallaður var fyrir fagráð um kynferðisbrot innan kirkjunnar játaði brot sín. Hann var sakaður um að hafa brotið kynferðislega gegn þremur einstaklingum en málin eru fyrnd. Þau rata því aldrei fyrir dómstóla.

Myrti móður sína á banabeði

Maður skaut sig til bana á hinum virta Johns Hopkins spítala í Baltimore í Bandaríkjunum í morgun. Áður en hann tók eigið líf hafði hann skotið sjúka móður sína til bana sem lá á spítalanum og sært lækni hennar alvarlega.

Fátækum fjölgar í Bandaríkjunum

Fátækum í Bandaríkjunum hefur fjölgað um fjórar milljónir á einu ári. Þetta kemur fram í nýjum tölum frá bandarísku Hagstofunni en þær sýna að einn af hverjum sjö bandaríkjunum eru við eða undir fátæktarmörkum.

Hrapaði til jarðar í hlíðum Mosfells

Svifdrekaflugmaður, sem var að svífa dreka sínum við vesturhlíðar Mosfells í gærkvöldi, missti stjórn á honum með þeim afleiðingum að hann hrapaði til jarðar. Hann kom hart niður og var kallað á sjúkrabíl.

Páfi hittir erkibiskupinn af Kantaraborg

Benedikt páfi, sem kom til Bretlandseyja í gær, verður í höfuðborginni Lundúnum í dag. Hann mun meðal annars standa fyrir bænastund með erkibiskupnum af Kantaraborg í Lambeth höll auk þess sem hann mun messa yfir fjögurþúsund ungmennum í St'Marys háskólanum.

Tillögur um málshöfðanir ræddar í dag

Þingsályktanir um málshöfðun gegn fjórum fyrrverandi ráðherrum verða ræddar á Alþingi í dag. Verði þær samþykktar verður landsdómur kallaður saman í fyrsta sinn. Niðurstaða þar um mun að líkindum fást í næstu viku.

Mikið hass fannst í skattsvikarannsókn

Á tólfta kíló af hassi fannst í einni þeirra húsleita sem gerðar voru í vikunni vegna umfangsmikils skattsvikamáls sem lögreglan í höfuðborginni hefur nú til rannsóknar.

Kaupin á HS Orku líklega lögleg

Kaup Magma Energy Sweden á HS Orku eru í samræmi við lög samkvæmt þremur af fjórum mögulegum lagatúlkunum sem fjallað er um í skýrslu nefndar um orku og auðlindamál sem fjalla átti um kaupin.

Allir skuldarar verði jafnsettir með lögum

Setja á lög til að tryggja það að niðurstaða Hæstaréttar í máli Lýsingar frá því í gær gildi um öll gengistryggð húsnæðis- og bílalán einstaklinga. Árni Páll Árnason efnahags- og viðskiptaráðherra kynnti þessa ákvörðun stjórnvalda á blaðamannafundi í gær, ásamt Má Guðmundssyni seðlabankastjóra og Gunnari Þ. Andersen, forstjóra Fjármálaeftirlitsins. Frumvarp að lögunum verður lagt fram í upphafi næsta þings í október.

Mikilvægt að eyða óvissunni um lánin

„Það er ánægjulegt að búið er að eyða þeirri óvissu sem verið hefur um þessi mál. Þetta hefur tafið mjög fyrir því að hægt væri að fara í eðlilega tiltekt á skuldastöðu heimilanna. Löggjöfin hefur verið þannig að fólk ber skuldir fram yfir gröf og dauða,“ segir Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ. Hann segir niðurstöðuna hins vegar hafa komið á óvart.

Óvissu létt en mörg flókin mál óútkljáð

„Ég mun fylgjast mjög vel með framhaldi þessa máls. Það má segja að nú hafi aðeins verið stigið eitt skref af mörgum þar sem mörgum spurningum er enn ósvarað,“ segir Ásta Sigrún Helgadóttir, umboðsmaður skuldara.

Ásakanir kalla á hreinsanir

Biskup kaþólsku kirkjunnar á Íslandi, Pétur Bürcher, segist ekki hafa vitað af ásökunum á hendur forvera hans í biskupsstóli, Jóhannesi Gijsen. Gijsen hefur verið ásakaður um kynferðislega misnotkun gegn börnum í hollenskum skóla á sjötta og sjöunda áratug síðustu aldar.

Þriðjungur hefur boðað sig

Rúmlega þrjú hundruð hafa boðað komu sína á Þjóðfund um stjórnarskrá sem fram fer í Laugardalshöll 6. nóvember.

Vilja nýta virðisaukaskattkerfið

Verkefnisstjórn Grænu orkunnar skilar tillögum sínum um aðgerðir hins opinbera til að auka hlut innlendra orkugjafa í samgöngum í kringum mánaðamótin næstu, segir Hólmfríður Sveinsdóttir, formaður verkefnisstjórnarinnar.

Þörf fyrir nýjan hugsunarhátt

„Konur eru mikið að ræða málin,“ segir Þórhildur Þorleifsdóttir, formaður Jafnréttisráðs og fyrrum þingkona Kvennalistans, aðspurð hvort nýtt kvennaframboð sé í uppsiglingu.

Kallar á frekari málaferli lántaka

„Ég er mjög hissa á niðurstöðu Hæstaréttar og þeim rökum sem sett eru fram. Hæstiréttur fer aðeins í lagaleg rök og hunsar í raun málflutning beggja aðila fyrir dómnum. Hann viðurkennir að vextirnir séu óaðskiljanlegir frá gengistryggingunni. En eftir það hugsar hann ekki neitt um málflutning aðila,“ segir Marinó G. Njálsson hjá Hagsmunasamtökum heimilanna.

Var reiður vegna skopmyndanna

Téténski sprengjumaðurinn Lors Doukaiev, sem handtekinn var í Kaupmannahöfn á föstudag, hefur árum saman verið fullur reiði vegna skopmyndanna af Múhameð spámanni, sem danska dagblaðið Jyllandsposten birti haustið 2005.

Ætlast til að bankarnir sætti sig við sanngirnisfrumvarpið

„Við ætlumst til þess að lánveitendur sætti sig við þetta,“ sagði Árni Páll Árnason, efnahags- og viðskiptaráðherra í viðtali í Kastljósinu í kvöld um viðbrögð lánastofnanna, það er að segja bankanna, vegna fyrirhugaðs sanngirnisfrumvarps vegna gengisdóms sem ráðuneytið hyggst leggja fram strax á haustþingi.

Lagastofnun Háskóla Íslands fundar um gengisdóm

Í kjölfar nýfallins dóms Hæstaréttar um vexti af gengistryggðum lánum efnir Lagastofnun Háskóla Íslands og Orator, félag laganema við Háskóla Íslands efna til opins fundar um dóminn. Verður hann á mánudaginn nk, 20. september kl. 12:00 í Hátíðarsal Háskóla Íslands.

Máttu slátra lömbum í sendibíl

Hæstiréttur Íslands staðfesti sýknudóm yfir þremur einstaklingum sem voru ákærðir fyrir ólögmæta sauðfjárslátrun. Fólkinu var gefið að sök að hafa slátrað 19 lömbum í gám og í sendibíl á Vesturlandi í september á síðasta ári.

Þingflokksfundur með Ingibjörg Sólrúnu hafinn

Fundur þingflokks Samfylkingarinnar með Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur, fyrrverandi utanríkisráðherra, er hafinn. Fundurin er haldinn á skrifstofu Samfylkingarinnar á Hallveigarstígnum og hófst klukkan átta.

Níðþungur dómur yfir kannabisræktanda

Dómur yfir karlmanni var þyngdur verulega í Hæstarétti í dag en hann var sakfelldur fyrir vörslur á 322 kannabisplöntum ætluðum til söludreifingar og fyrir að hafa um nokkuð skeið staðið að ræktun þeirra.

Húsnæðislánum breytt með löggjöf

Efnahags- og viðskiptaráðherra mun setja lög sem tryggir að dómur Hæstaréttar í dag um vexti af lánum nái til allra lána vegna bíla- og húsnæðiskaupa sem tengd eru gengi erlendra gjaldmiðla. Mun lagasetningin taka til þeirra flokka lána sem talið er að hafi byggt á ólögmætri gengisbindingu. Samkvæmt útreikningum sérfræðinga Seðlabanka Íslands munu eftirstöðvar þessara lána lækka verulega við breytinguna, t.d. um 25% til 47% fyrir 25 ára lán.

Dæmdur fyrir kannabisræktun og lásboga

Karlmaður var dæmdur í átta mánaða óskilorðsbundið fangelsi í Hæstarétti í dag fyrir að hafa haft í vörslum sínum samtals 414,3 g af kannabislaufum, 204 kannabisplöntur og 53,03 g af kannabisstönglum og hafa um nokkurt skeið ræktað kannabisplöntur.

Sjá næstu 50 fréttir