Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Herinn fær aukinn völd í Tælandi Abhisit Vejjajiva, forsætisráðherra Tælands, hefur ákveðið að herinn fái meiri völd til að takast á við mótmælendur. Herinn mun stýra öllum aðgerðum sem varða öryggi landsins. 18.4.2010 08:00
Mannskæðar árásir í Pakistan Að minnsta kosti 40 eru látnir og 60 eru særðir eftir tvær sjálfsmorðsárásir í flóttamannabúðum í Pakistan í dag. Tvær sprengjur sprungu með stuttu millibili í búðunum sem eru í grennd við borgina Kohat í norðvesturhluta landsins. 17.4.2010 22:45
Fjölmenn minningarathöfn Meira en 100 þúsund manns tóku þátt í minningarathöfn í höfuðborginni Varsjá í dag um þá sem fórust í flugslysinu í Rússlandi fyrir viku. Pólverjar minntust forseta síns, eiginkonu hans og þeirra sem fórust með í slysinu sem varð nærri Smolensk í vesturhluta Rússlands. Þúsundir landsmanna stóðu kyrr á götum úti til að votta hinum látnu virðingu sína. 17.4.2010 21:15
Bjarni ætlar ekki að víkja „Ég tel að ekkert þeirra mála sem uppi hafa verið í umræðunni og mig snerta hafi ekki verið skýrð að fullu. Ég tel ekki að það sé ástæða fyrir mig að víkja til hliðar og ég mun ekki gera það,“ segir Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, aðspurður hvort hann hafi íhugað að hætta sem formaður flokksins. 17.4.2010 20:19
Dregið hefur úr flóðahættu Gosmökkurinn úr Eyjafjallajökli sést í allt að níu kílómetra hæð. Nokkuð rofaði til yfir gosstöðvunum í gærkvöldi. Jarðeðlisfræðingur býst við að draga taki úr gosinu á næstu dögum. 17.4.2010 19:08
Sala á rykgrímum hefur margfaldast Sala á rykgrímum hefur margfaldast í verslunum og apótekum á höfuðborgarsvæðinu og fyrir austan undanfarna tvo daga vegna öskufallsins í Eyjafjallajökli. Sóttvarnalæknir fullyrðir að engin hætta stafi af öskufallinu fari fólk eftir varúðarráðstöfunum landlæknis. 17.4.2010 19:15
Allt Evrópuflug Icelandair fellur niður á morgun Icelandair hefur tilkynnt að allt flug félagsins til Evrópuborga, þ.e. London, Kaupmannahafnar, Stokkhólms, Osló, Amsterdam, Frankfurt og Parísar á morgun, 18. apríl, verði fellt niður, líkt og raunin var um flugið til Evrópu í dag. Öskufallið frá eldgosinu í Eyjafjallajökli hefur lokað fyrir alla flugumferð í norðan- og vestanverðri Evrópu. 17.4.2010 17:30
„Ég hef ekki séð það svartara“ „Það er stafalogn og óloft sem hefur leitað inn í húsin til okkar," segir Sigurgeir L. Ingólfsson á bænum Hlíð undir Eyjafjöllum. Þar hefur líkt og víða annars staðar verið mikið öskufall vegna eldgossins í Eyjafjallajökli. „Ég hef ekki séð það svartara. Hér er mun meira myrkur en nokkurn tíma verður á venjulegri vetrarnóttu," segir Sigurgeir. 17.4.2010 17:01
Lottóvinningur gekk ekki út Lottópotturinn verður tvöfaldur í fyrsta útdrætti ársins því enginn var með allar tölurnar réttar að þessu sinni. Tveir voru með fjórar tölur réttar auk bónustölunnar. Vinningshafarnir fá tæplega 110 þúsund krónur hver. 17.4.2010 20:31
Lögreglan á Hvolsvelli ítrekar bann Lögreglan á Hvolsvelli vill ítreka að Fimmvörðuháls og Eyjafjallajökull eru skilgreind bannsvæði, einnig er öll umferð á Mýrdalsjökli bönnuð. Veður er að breytast á svæðinu og vindur að færast til vesturs. 17.4.2010 19:34
Eldgosið hefur verið stöðugt í dag Eldgosið hefur verið stöðugt í dag, mökkurinn rís í 6-9 km hæð og leggur til suðurs. Það gýs úr eins km langri sprungu sem liggur frá norðri til suðurs í suðvesturhluta toppgígsins. Þetta kemur fram í tilkynningu frá samhæfingarstöð almannavarna í Skógarhlíð. 17.4.2010 19:27
Flokksráð sjálfstæðismanna lýsir eindregnum stuðningi við Bjarna Flokksráð Sjálfstæðisflokksins lýsir eindregnum stuðningi við formann Sjálfstæðisflokksins Bjarna Benediktsson. Fjölmenni sótti flokksráðsfundinn eða á þriðjahundrað manns af öllu landinu en sveitarstjórnarmál voru í brennidepli á fundinum, að fram kemur í tilkynningu frá flokknum. 17.4.2010 18:32
Ræddu um erlenda fjölmiðlaumfjöllun um eldgosið Samráðshópur stjórnvalda og hagsmunaaðila í ferðaþjónustu hittist í dag í utanríkisráðuneytinu til að ræða samstarf og aðgerðir til að bregðast við erlendri fjölmiðlaumfjöllun um Ísland vegna eldgossins í Eyjafjallajökli. Markmið hópsins er að tryggja að frá Íslandi fari áfram réttar og yfirvegaðar upplýsingar um stöðu mála, að fram kemur í sameiginlegri fréttatilkynningu frá iðnaðar- og utanríkisráðuneytinu. 17.4.2010 17:47
Tveir hestamenn féllu af baki Tveir hestamann féllu af hestbaki á höfuðborgarsvæðinu á þriðja tímanum í dag og var annar þeirra fluttur á slysadeild. Fyrra atvikið átti sér stað í grennd við Elliðavatn og hið seinna hjá Heimsenda skammt frá Kórahverfi í Kópavogi, samkvæmt upplýsingum sem fengust hjá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins. 17.4.2010 16:13
Fjölmargir björgunarsveitarmenn að störfum Á svæðinu í grennd við Eyjafjallajökul eru meira en 160 björgunarsveitarmenn að störfum frá 12 björgunarsveitum, samkvæmt upplýsingum frá samhæfingarstöð almannavarna í Skógarhlíð. Meðal verkefna þeirra hefur meðal annars verið að til að athuga með fólk á bæjum. 17.4.2010 15:48
Sækja ökklabrotinn göngugarp Björgunarsveitarmenn voru kallaðir út á fjórða tímanum í dag eftir að tilkynning barst um að karlmaður væri að öllum líkindum ökklabrotinn í Esjuhlíðum. Sjúkrabíll var einnig sendur á vettvang. Þær upplýsingar fengust hjá slökkvili höfuðborgarsvæðisins að maðurinn hafi verið ofarlega í fjallinu þegar atvikið átti sér stað. Hann verður fluttur niður á börum. 17.4.2010 15:39
Íslendingar færa Bretum ekkert annað en tóm leiðindi Íslendingar hafa eiginlega fært Bretum ekkert annað en tóm leiðindi að mati bresks blaðamanns. Við fórum í stríð við þá vegna þorsks, stálum sparifé þeirra og núna eru allar samgöngur lamaðar vegna eldgossins í Eyjafjallajökli. 17.4.2010 15:29
Útlendingar vilja komast úr landi með leiguflugi Undanfarna daga hefur mikil eftirspurn verið eftir flugi frá Íslandi með leiguflugi, að sögn Sigurðar Bjarna Jónssonar, stjórnarformanns Mýflugs. Um er að ræða útlendinga sem eru fastir hér á landi og vilja komast til meginlands Evrópu. Mýflug íhugar að fljúga til norðurhluta Noregs. 17.4.2010 15:21
Aflýsa flugi fram yfir helgi Flugfélagið British Airways hefur aflýst öllu flugi frá London að minnsta kosti fram á mánudag. Um er að ræða áætlað flug frá Heathrow og Gatwic, að fram kemur á vef Sky-fréttastofunnar. Vonast er til þess að hægt verði að fljúga eitthvað innanlands í Skotlandi og á Írlandi seinnipartinn í dag. 17.4.2010 14:36
„Ég brást“ Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, fyrrverandi formaður Samfylkingarinnar og utanríkisráðherra, tók óvænt til máls á flokksstjórnarfundi Samfylkingarinnar í dag. Hún sagði sagðist ekki horfa yfir sviðið af miklu stoltu. Margt hafi mistekist í stefnu Samfylkingarinnar. Eftir að hafa lokið máli sínu táraðist Ingibjörg. 17.4.2010 13:54
Jóhanna: Þetta var sameiginlegt strand Samkrull atvinnulífs, stjórnmála og stjórnsýslu reyndist vera höfuðmeinsemd í íslensku þjóðfélagi, að mati Jóhönnu Sigurðardóttur, forsætisráðherra og formanns Samfylkingarinnar. „Horfumst í augu við það. Þetta var sameiginlegt strand þar sem einn á meiri sök en annar en við flest létum það eigi að síður viðgangast eða fengum ekki við ráðið,“ sagði Jóhanna í ræðu á flokksstjórnarfundi Samfylkingarinnar í Garðabæ fyrr í dag. 17.4.2010 13:29
Á gjörgæslu eftir bílveltu Karlmaður sem slasaðist alvarlega í bílveltu á Heiðmerkurvegi í gærkvöldi er á gjörgæsludeild. Líðan hans er ágæt og hann er sennilega ekki í lífshættu, að sögn vakthafandi læknis. Maðurinn sem er á miðjum aldri er ekki í öndunarvél. 17.4.2010 13:10
Enn lýst eftir 13 ára stúlku Emilíana Andrésardóttir, þrettán ára gömul stúlka sem strauk frá meðferðarheimilinu Stuðlum á fimmtudag, er ekki enn komin í leitirnar. Síðast sást til hennar í Hafnarfirði á leið til Reykjavíkur. Emilíana er dökkhærð, um 160 sm á hæð og grannvaxin. 17.4.2010 12:55
Mæla svifryk á Kirkjubæjarklaustri Umhverfisstofnun hefur komið upp svifryksmæli við Kirkjubæjarklaustur í því skyni að fylgjast með áhrifum gjóskufalls á loftgæði austur af Eyjafjallajökli, í jaðri og utan við mesta áhrifasvæði gjóskufallsins. 17.4.2010 12:20
Þjóðvegi 1 lokað við Hvolsvöll Almannavarnir ítreka að Eyjafjallajökull og hlíðar hans utan jökuls eru bannsvæði. Vindátt þurfi lítið að breytast til að öskufall verði þar. Í öskufalli svo nálægt eldstöðinni og í hæð jökulsins sé, auk mikilla áhrifa af öskunni sjálfri, mikil hætta af eldingum. Almannavarnir vara sterklega við öllum ferðum á Mýrdalsjökul. Jafnframt er enn er í gildi bannsvæði um 1 km. í kringum eldri eldstöðina á Fimmvörðuhálsi. Öll umferð á þessu svæði er bönnuð bæði gangandi og akandi ferðamönnum. 17.4.2010 12:06
Óli Björn fyrsti varamaður Þorgerðar Fjölmiðlamaðurinn Óli Björn Kárason er fyrsti varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins í Suðvesturkjördæmi. Hann var vant við látinn þegar fréttastofa náði tali af honum og gat ekki gefið kost á viðtali. 17.4.2010 11:48
Flugi Iceland Express aflýst Iceland Express hefur aflýst flugi félagsins í dag til London, Kaupmannahafnar og Varsjár. Flugi til Alicante, sem fara átti eftir hádegi í dag, hefur verið frestað til morguns. 17.4.2010 11:30
Red Cross mass care centres in Heimaland, Vík and in Kirkjubæjarklaustur open Red Cross mass care centres in Heimaland, Vík and in Kirkjubæjarklaustur have been opened for those residents in the areas affected by the ash fall and who wish to temporarily evacuate their homes. The local emergency centre does not consider it necessary to order an evacuation of the area in response to the ash fall at this moment in time, but feels that these services may be useful to some families. 17.4.2010 11:24
Eldingar yfir Eyjafjallajökli - myndir Vilhelm Gunnarsson, ljósmyndari Fréttablaðsins og Vísis, var staddur í grennd við Eyjafjallajökul í gærkvöldi og í nótt og fylgist með sjónarspilinu þar. Í meðfylgjandi myndum má meðal annars sjá stórkostlegar myndir af eldingum í gosmökkinum. 17.4.2010 11:14
Opna fjöldahjálparstöðvar Mikill öskumökkur er til suðurs yfir byggð undir Eyjafjöllum frá Sauðhúsvöllum austur fyrir Skóga og eins á söndunum þar fyrir austan. Eldingar eru í mekkinum, að fram kemur frá yfirvöldum. 17.4.2010 11:06
Þorgerður hættir sem varaformaður - víkur tímabundið af þingi Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, varaformaður Sjálfstæðisflokksins, hefur ákveðið að hætta sem varaformaður flokksins og víkja tímabundið af þingi. Þetta kom fram í ræðu Þorgerðar á flokksráðsfundi í Reykjanesbæ í í dag. Hún sagði að trúverðugleiki sinn hefði skaðast. 17.4.2010 10:43
Bjarni vill að landsfundi verði flýtt Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, leggur til að næsta landsfundi flokksins verði flýtt. Þar gefist flokksmönnum tækifæri til að veita kjörnum forystumönnum flokksins endurnýjað umboð eða kjósa nýtt fólk til þeirra starfa. Þetta kom fram í ræðu Bjarna á flokksráðsfundi flokksins sem hófst í Reykjanesbæ í morgun. 17.4.2010 10:07
Mikið öskufall frá Núpi og að Vík í Mýrdal Mikið öskufall er frá Núpi undir Eyjafjöllum og að Vík. Líkur eru á að öskufall færist vestar og nái hugsanlega til Vestmannaeyja. 17.4.2010 09:28
Slasaðist alvarlega í bílveltu Karlmaður á miðjum aldri slasaðist alvarlega í bílveltu á Heiðmerkurvegi skammt frá Vífilsstöðum í Garðabæ á tíunda tímanum í gærkvöldi. Tveir menn voru í bifreiðinni og þurfi að beita klippum til að ná öðrum þeirra úr henni. Báðir mennirnir voru fluttir á sjúkrahús, að sögn lögreglu. 17.4.2010 09:25
Tillaga um að Kristján Þór taki við varaformannsembættinu Fréttastofa hefur heimildir fyrir því að tillaga verði að öllum líkindum lögð fram á flokksráðsfundi Sjálfstæðisflokksins nú á eftir um að Kristján Þór Júlíusson taki við varaformannsembætti flokksins af Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur. 17.4.2010 09:05
Gosið lamar enn samgöngur í Evrópu Nær allir stærstu flugvellir Evrópu verða áfram lokaðir í dag vegna eldgossins í Eyjafjallajökli. Milljónir flugfarþega er nú strandaglópar en samkvæmt breska ríkisútvarpinu þurfti að aflýsa um 16 þúsund áætlunarferðum vegna öskufallsins í gær. 17.4.2010 08:26
Bílstjórar sjá ekki til jarðar vegna öskufalls Stöðugur kraftur var í gosinu í nótt til kl. 04:30 en fór þá heldur að draga úr því. Gossúlan fór í 8,5 km hæð. Stöðugur mökkur var uppúr gosstöðvunum og öskufall töluvert undir Eyjafjöllum. Mjög dimmt var sunnan undir jökli. Öskufallið er mjög þétt frá Núpi í vestri austur í Vík en er heldur minna á Mýrdalssandi. 17.4.2010 07:34
Icelandair fellir niður allt flug til Evrópu í dag Icelandair hefur tilkynnt að allt flug félagsins til London, Manchester/Glasgow, Kaupmannahafnar, Stokkhólms, Osló, og Amsterdam í dag,17. apríl, verður fellt niður. Öskufallið frá eldgosinu í Eyjafjallajökli hefur lokað fyrir alla flugumferð í norðan- og vestanverðri Evrópu. 17.4.2010 07:23
Talið að draga verði úr ráðherraræðinu Í siðferðihluta skýrslu rannsóknarnefndar segir að þjálfa þurfi þjóðina í málefnalegri rökræðu og menntamálaráðherra tekur undir það. Vilhjálmur Árnason vill ekki ræða gagnrýni forsetans, sem gerir lítið úr kafla um sig. Styrkja þarf siðferðisvitund stjórnmálamanna og auka virðingu þeirra fyrir góðum stjórnarháttum. Þeir eiga að setja sér siðareglur. Þá þarf að draga úr ráðherraræði og auka eftirlitshlutverk Alþingis. 17.4.2010 06:00
Askan skemmdi þotuhreyfla Tvær finnskar herþotur urðu fyrir skemmdum eftir að hafa flogið í gegnum öskuna frá Eyjafjallajökli á fimmtudag. 17.4.2010 06:00
Íhugar að hætta sem varaformaður Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, varaformaður Sjálfstæðisflokksins, tilkynnir í dag um hvort hún bregst sérstaklega við vegna lántöku eiginmanns hennar, Kristjáns Arasonar. Það mun hún gera á flokksráðsfundi sem hefst klukkan 9.30 í Reykjanesbæ. 17.4.2010 06:00
Vonar að gosmyndin borgi varnargarðinn Fjölskyldan á Þorvaldseyri má hafa sig alla við að svara fyrirpurnum erlendra fjölmiðla vegna heimsfrægrar ljósmyndar bóndans Ólafs Eggertssonar. Hann kveðst vona að greiðslur fyrir myndina dugi til að byggja nýjan flóðvarnargarð. 17.4.2010 06:00
Tugmilljarða tap á dag Annan daginn í röð var nánast ekkert flogið í Norður-Evrópu. Mat samtaka áætlunarflugfélaga er að tap flugfélaga sé 200 milljónir dollara á dag. Meira en helmingur fluga í evrópskri lofthelgi var felldur niður. 17.4.2010 05:30
Borgin hreinsar til í kringum lóð Hrafns Reykjavíkurborg mun fjarlægja allar óleyfisframkvæmdir utan lóðamarka Hrafns Gunnlaugssonar á Laugarnestanga á mánudag. Hann hefur frest til klukkan 9 á mánudagsmorgun til að fjarlægja muni sem hann telur sig eiga, að öðrum kosti mun borgin láta fjarlægja án frekari fyrirvara „þaðan grjót og annað, sem ekki á þar heima“. 17.4.2010 05:00
Slógu upp veislu eftir rýmingu Hópur fjörutíu breskra skólakrakka þurfti að rjúka frá heitu lambalærinu á kvöldverðarborðinu á Hellishólum í Fljótshlíð á fimmtudagskvöld þegar kallið kom um rýmingu. Maturinn fór þó ekki til spillis heldur var slegið upp veislu í fjöldahjálparmiðstöðinni á Hellu. 17.4.2010 04:45