Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Héldu karlmanni föngnum - Þrír í gæsluvarðhaldi Karlmanni á þrítugsaldri var haldið föngnum í fjölbýlishúsi á Akureyri og beittur líkamsmeiðingum. Lögreglan á Akureyri rannsakar málið og hefur handtekið þrjá karlmenn vegna þess. Þeir voru úrskurðaðir í gæsluvarðhald í dag. Rannsókn málsins er á frumstigi og ekki fást frekari upplýsingar frá lögreglunni um það að svo stöddu. 12.8.2009 14:04
Árni vísar á Seðlabankann vegna Rússaláns Árni Mathiesen, fyrrverandi fjármálaráðherra, kannast ekki við að ríkisstjórn Geirs H. Haarde hafi hafnað milljarða láni Rússa í upphafi október í fyrra. Hann vísar á Seðlabankann. 12.8.2009 13:47
Skólar geta starfað eðlilega þrátt fyrir svínaflensuna Allt skólastarf í landinu getur hafist með eðlilegum hætti næstu daga og vikur þrátt fyrir heimsfaraldur inflúensunnar H1N1, eða svokallaðrar svínaflensu. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Landlækni. 12.8.2009 13:47
Innbúi stolið - Tryggingafélagið neitar að borga tjónið Einstæð þriggja barna móðir tapaði innbúi að verðmæti 2 milljónum króna þegar brotist var inn til hennar í maí síðastliðnum. Konan, sem heitir Ellen Ásdís Erlingsdóttir, bjó í Svíþjóð þegar innbrotið var framið en hafði leigt íbúðina með öllu innbúinu. Tryggingafélagið Vörður, sem konan tryggir hjá, segir að ekki hafi verið brotist inn hjá konunni og neitar að bæta henni tjónið. 12.8.2009 13:00
Enn á gjörgæslu eftir slysið á Grundartanga Líðan mannsins sem brenndist illa á fótum við vinnu í álverinu á Grundartanga í gær er eftir atvikum góð. Hann er enn á gjörgæslu og fór í aðgerð í gær þar sem gert var að brunasárunum. Að sögn vakthafandi læknis tókst aðgerðin vel. 12.8.2009 12:50
Starfsmenn Rio Tinto ákærðir í Kína Kínversk lögregluyfirvöld hafa nú formlega handtekið og ákært fjóra starfsmenn alþjóðlega námu- og álrisans Rio Tinto í Kína. Fyrirtækið á og rekur álver og námur víða um heim, þar á meðal álverið í Straumsvík. 12.8.2009 12:38
Icesave úr fjárlaganefnd á morgun Flest bendir til að Icesave samningurinn verði afgreiddur úr fjárlaganefnd á morgun. Nefndin kemur saman að minnsta kosti þrisvar í dag vegna málsins. 12.8.2009 12:24
Ríkisstjórn Geirs hafnaði milljarða láni frá Rússum Ríkisstjórn Geirs H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, falaðist bæði eftir og hafnaði síðan milljarða láni frá Rússum vegna kreppunnar. Þetta segir sendiherra Rússa á Íslandi. 12.8.2009 11:57
Ríkur stuðningur við Steingrím á átakafundi Árni Þór Sigurðsson, þingmaður Vinstri grænna, segir ríkan stuðning hafa komið fram við Steingrím J. Sigfússon, formann flokksins, á átakafundi kjördæmisráðs flokksins í Suðvesturkjördæmi í gærkvöld. 12.8.2009 11:15
Kreppan fer illa með geðheilsu Íslendinga Íslendingar eru áberandi svartsýnni en aðrar þjóðir á efnahagsástandið á næstu mánuðum. Í júní síðastliðnum töldu 71% Íslendinga að efnahagsástandið myndi enn versna á næstu 3 mánuðum. Næst á eftir Íslendingum í svartsýni komu Þjóðverjar, en 46% þeirra töldu að efnahagsástandið færi versnandi. Þetta sýna niðurstöður stærstu alþjóðlegu könnunar um áhrif fjármálakreppunar á almenning sem WIN (alþjóðleg samtök óháðra markaðsrannsóknarfyrirtækja) stendur fyrir og gerir nú í þriðja sinn í 22 löndum. 12.8.2009 10:59
N1 leitar að hugmyndum N1 hefur hleypt af stokkunum hugmyndasamkeppninni Start09 með því markmiði að hvetja fólk og fyrirtæki til nýrrar sóknar og uppbyggingar. Upphaf hugmyndasamkeppninnar má rekja til hugmyndafundar sem var haldinn í Borgarleikhúsinu í júní. 12.8.2009 10:58
Tíðir fundir fjárlaganefndar vegna Icesave Fjárlaganefnd kemur saman að minnsta kosti þrisvar sinnum í dag vegna Icesave málsins. Fyrsta fundinum er lokið en nefndin kemur næst saman klukkan ellefu. 12.8.2009 10:40
Bróðurpartur geislafræðinga hjá Krabbameinsfélaginu missir störf Sex geislafræðingar hjá Krabbameinsfélagi Íslands sem starfa við brjóstamyndatökur munu missa vinnuna í byrjun næsta mánaðar ef fer sem horfir. 12.8.2009 10:39
Gunnar stýrir nefnd um tekjustofna sveitarfélaga Gunnar Svavarsson, fyrrum þingmaður Samfylkingarinnar, er formaður nefndar sem ætlað er að vinna tillögur um að styrkja tekjustofna sveitarfélaga. Nefndin kom saman í fyrsta sinn í gær. 12.8.2009 10:09
Magn jarðhitaefna fjórfaldast í Markarfljóti Magn jarðhitaefna í Markarfljóti á Rangárvöllum og leiðni í fljótinu nálgast að verða fjórfalt yfir meðallagi, sem getur verið vísbending um jökulhlaup í Fremri Emstruá. 12.8.2009 09:51
Bíræfnir skartgripaþjófar í London Lögreglan á Bretlandseyjum leitar nú logandi ljósi að þjófum sem komust undan með gimsteina að andvirði um átta milljarða íslenskra króna en um er að ræða stærsta gimsteinarán í breskri sögu. 12.8.2009 09:21
Þýskum ferðamönnum komið til byggða Björgunarsveitarmenn Landsbjargar komu þýsku pari til hjálpar í nótt, eftir að konan hafði snúið sig illa á fæti og fólkið hafði villst af leið á Fimmvörðuhálsi á milli Skóga og Þórsmerkur. 12.8.2009 08:30
Costa Rica: Forsetinn með svínaflensu Forseti Costa Rica hefur greinst með Svínaflensu og er sennilegast fyrsti þjóðhöfðinginn til þess að greinast með sjúkdóminn sem nú fer eins og eldur í sinu um heimsbyggðina. Oscar Arias veiktist á sunnudag og í gær staðfestu læknar hans að hann væri smitaður af H1N1 veirunni. 12.8.2009 08:26
Þvinguðu þroskahefta til að slást Sjö fyrrverandi starfsmenn í skóla fyrir þroskahefta í Texas er nú fyrir rétti í ríkinu en þeir eru ákærðir fyrir að skipuleggja slagsmál á milli nemenda skólans. Málið komst upp þegar lögregla fann síma eins starfsmannsins með yfir tuttugu myndböndum sem sýndu nemendur að berja á hvorum öðrum. Málið hefur vakið mikla athygli í Texas en á myndunum sjást starfsmennirnir þvinga nemendurna til þess að slást. 12.8.2009 08:25
Eldur í Flóanum í gærkvöldi Eldur kviknaði í dæluskúr vatnsveitunnar í Hraungerðishreppi í Flóa undir kvöld í gær. Þar logaði glatt þegar slökkvilið kom á vettvang, en eldurinn var slökktur á skammri stundu. Vatnslaust varð um tíma á svæðinu, en viðgerðarmönnum tókst að koma því aftur á í gærkvöldi. Eldsupptök eru ókunn, en menn höfðu verið að vinna við dælustöðina í gær. 12.8.2009 08:23
Sjónvarpsstjarna fyrirskipaði morð til að auka áhorfið Lögreglan í Brasilíu sakar þekktan sjónvarsmann um að fyrirskipa morð til þess að auka áhorf á sjónvarpsþætti sínum. Wallace Souza, sem einnig situr á brasílíska þinginu fyrir Amazon fylkið, er með sjónvarpsþátt sem varpar kastljósinu á ýmis glæpamál í fylkinu. 12.8.2009 08:19
700 sluppu undan skriðum á Tævan Um 700 manns sem saknað hefur verið á Tævan frá því fellibylurinn Morakot gekk þar yfir hafa fundist á lífi að því er yfirmenn hersins á eyjunni segja. Á meðal þeirra sem fundist hafa á lífi eru 200 íbúar þorpsins Shiaolin sem fór bókstaflega á kaf í gríðarlegum aurskriðum sem féllu í kjölfar bylsins. Að minnsta kosti 60 eru látnir en óttast er að íbúar í um það bil hundrað húsum í Shiaolin hafi grafist undir skriðunum. Ekkert hefur enn til þeirra spurst. 12.8.2009 08:17
Sex aðkomumenn drepnir í Sómalíu Sex í það minnsta voru drepnir í árás á mosku í Sómalíu í morgun. Árásin var gerð í sjálfstjórnarhéraðinu Puntland en hinir látnu voru aðkomumenn sem talið er að hafi komið frá Pakistan í gær klæddir eins og íslamskir klerkar. Grímuklæddir menn réðust hins vegar á þá í morgun og skutu til bana. 12.8.2009 08:04
Lögregla opnaði hliðið í Helguvík Lögreglan á Suðurnesjum hefur opnað starfsmönnum við álversbygginguna í Helguvík leilð inn á vinnusvæðið, eftir að 20 manna hópur á vegum Saving Iceland hlekkjaði sig þar við hliðin og byggingakrana á svæðinu. 12.8.2009 07:58
Hlegið ef Íslendingar hótuðu að ganga úr NATO Samningsstaða Íslendinga í þorskastríðunum var yfirleitt betri en nú um stundir, segir Guðni Th. Jóhannesson sagnfræðingur í grein um Icesave sem birtist í Fréttablaðinu í dag. 12.8.2009 07:00
Samstöðufundur: Íslenska þjóðin rísi úr pólitísku hjólförunum „Við lítum svo á að það sé kominn tími til að við Íslendingar, sem erum sérfræðingar í að rífast innbyrðis, rísi upp úr pólitískum hjólförum og sýni að við erum ein þjóð sem stendur saman þegar skórinn kreppir,“ segir Jóhannes Þ. Skúlason, meðlimur í hinum svokallaða InDefence-hópi. 12.8.2009 06:00
Þokast í átt til sáttar innan stjórnarliðsins Ögmundur Jónasson heilbrigðisráðherra hefur góða von um að viðunandi lausn finnist á Icesave-málinu og að það hljóti samþykki. „Ég er vongóður um að við náum sameiginlegri lausn ef menn sýna allir góðan samstarfsvilja,“ sagði hann í samtali við Fréttablaðið í gærkvöldi. Kvaðst hann hafa af því spurnir að innan fjárlaganefndar væru menn á réttri leið, að hans mati. 12.8.2009 06:00
Forræðismál úr höndum utanríkisráðuneytis Utanríkisráðuneytið getur ekkert aðhafst í máli Borghildar Guðmundsdóttur, sem hefur verið gert að halda til Bandaríkjanna með syni sína tvo. Þetta segir Kristín Árnadóttir, sviðsstjóri í ráðuneytinu. 12.8.2009 05:45
Dómari vill að brennumálið á Kleppsvegi verði flutt að nýju Hætt var við það á mánudag að kveða upp dóm í máli þriggja meintra brennumanna í vikunni. Til stóð að dómur yrði felldur í málinu í gær, en því var hins vegar frestað með eins dags fyrirvara. 12.8.2009 05:45
Skiptar skoðanir í þingvallanefnd um Valhöll Sjö þingmenn voru í gær kjörnir í Þingvallanefnd. Þeir þingmenn sem Fréttablaðið ræddi við í gær voru fráleitt á einu máli um fyrsta stóra málið sem bíður nefndarinnar, framtíð reitsins þar sem Hótel Valhöll stóð. 12.8.2009 05:00
Sorpmagnið dregst saman Ásókn borgarbúa í umhverfisvænar ruslatunnur hefur síður en svo dregist saman í kreppunni. Við það bætist að sorpmagnið frá borgarbúum hefur dregist saman í kreppunni, segir Pétur Elínarson, rekstrarfulltrúi á umhverfissviði Reykjavíkurborgar. 12.8.2009 04:00
Bretar hafa ekki áhyggjur vegna Icesave Icesave-málið er breskum almenningi ekki sérstaklega hugleikið og Bretar hafa ekki af því miklar áhyggjur. Þetta er meðal þess sem fram kom í máli Sverris Hauks Gunnlaugssonar, sendiherra Íslands í London, á fundi fjárlaganefndar Alþingis í gærmorgun, samkvæmt heimildum Fréttablaðsins. 12.8.2009 04:00
Níræður í lífstíðarfangelsi: Lét sprengja fólk í loft upp Dómstóll í München í Þýskalandi dæmdi í gær Josef Schöngraber, níræðan fyrrverandi foringja í þýska hernum, í lífstíðarfangelsi fyrir stríðsglæpi. 12.8.2009 04:00
Nítján þúsund sigldu með ferjunni Baldri Metaðsókn var í Breiðafjarðarferjuna Baldur í júlí en um nítján þúsund farþegar og um fjögur þúsund bílar fóru með ferjunni. Á sama tíma í fyrra sigldu rúmlega fimmtán þúsund manns með ferjunni og um 3.500 bílar. 12.8.2009 04:00
Makríllinn dreifður um alla lögsöguna Umfangsmestu rannsóknir á makrílgöngum á hafsvæðinu við Ísland og á Norður-Atlantshafi eru langt komnar. Rannsóknirnar eru tilkomnar vegna deilna um útbreiðslu makríls hér við land og rétt Íslendinga til veiða úr stofninum. Niðurstaða þeirra mun liggja fyrir í september en ljóst er að mikið er af makríl víða í íslensku lögsögunni. 12.8.2009 03:30
Áfram verður hlýtt á landinu Mikið blíðskaparveður var víða á landinu í gær, og sólin skein skært í miðborg Reykjavíkur. Ljósmyndari Fréttablaðsins átti leið hjá Bæjarins bestu í Tryggvagötu og var ekki að sjá að gestir sem biðu þar létu það nokkuð á sig fá í góða veðrinu. 12.8.2009 03:15
Vilja dreifa umferð um Esjuna Unnið hefur verið að því í að búa til nýja göngustíga um hlíðar Esjunnar í sumar til að dreifa umferð um fjallið en ágangur þar hefur verið óvenju mikill. Að sögn Bergþóru Einarsdóttur, flokksstjóra hjá Skógræktarfélagi Reykjavíkur, sem hefur umsjón með Esjuhlíðum, hefur verið stöðugt streymi upp að Þverfellshorni, sem er vinsælasta gönguleiðin. 12.8.2009 03:15
Fundur VG: Félagshyggjustjórnin megi ekki stranda á Icesave Það var þétt setinn bekkurinn á félagsfundi Vinstri grænna í Kraganum, en aðstandendur fundarins telja að yfir hundrað manns hafi setið fundinn. Meðal gesta var stór hluti þingflokks Vinstri grænna og jafnvel flokksmeðlimir úr öðrum kjördæmum. 11.8.2009 23:52
Fleiri en hundrað á félagsfundi VG í Kraganum Yfir hundrað manns eru mættir á félagsfund Vinstri grænna í Kraganum í félagsheimili VG að Hamraborg 1-3. Meðal þeirra sem sitja fundinn eru Guðfríður Lilja Grétarsdóttir og Ögmundur Jónasson, þingmenn flokksins, sem svara spurningum félaga eftir bestu getu. 11.8.2009 22:11
Er tilbúinn að skoða skattaafslátt gegn upplýsingum „Ég er alveg tilbúinn að taka þetta til skoðunar," segir Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, aðspurður um þá hugmynd að veita fjármagnseigendum skattaafslátt í skiptum fyrir upplýsingar um innistæður þeirra á aflandsreikningum. 11.8.2009 20:52
Káfaði á brjóstunum á Mínu Mús Sextugur maður hefur verið sakfelldur fyrir að káfa á konu í Mínu Músar búningi í Disney skemmtigarðinum á Flórída. 11.8.2009 21:44
Þrisvar dópaður undir stýri á einni viku Lögreglan á Akureyri greip tvítugan pilt í dag grunaðan um akstur undir áhrifum fíkniefna. Þetta er í annað skiptið á jafnmörgum dögum sem lögregla hefur afskipti af drengnum, því um hádegisbilið í gær var sami drengur stöðvaður fyrir sama brot. Þá tók lögregla hann einnig um síðustu helgi fyrir fíkniefnaakstur. 11.8.2009 21:17
Ísland tilbúið að taka þátt í refsiaðgerðum gegn Burma Utanríkisráðherra segir að ríkisstjórnin sé meira en tilbúin til þess að taka þátt í alþjóðlegum refsiaðgerðum gegn Burma. Aung San Suu Kyi hefur enn einu sinni verið dæmd til fangelsisvistar. 11.8.2009 20:23
Viðurkenna að hafa handtekið 4000 manns Yfirvöld í Íran segja allt að fjögurþúsund manns hafa verið tekin höndum í kjölfar mótmæla vegna forsetakosninga þar í landi í júní. Það er mun meiri fjöldi en áður hafði verið gefinn til kynna. 11.8.2009 20:20
Hvalfjarðargöngin opnuð eftir slys Verið er að opna Hvalfjarðargöngin, en þeim var lokað eftir að þriggja bíla árekstur varð þar á fimmta tímanum. 11.8.2009 19:50