Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Fjórir stútar teknir Lögregla stöðvaði för fjögurra ökumanna í nótt sem grunaðir voru um akstur undir áhrifum fíkniefna. Tvo í Reykjavík og tvo á Ísafirði. Að öðru leyti virðist nóttin víðast hvar hafa verið róleg. Lögreglan í Vestmanneyjum, á Húsavík og á Akureyri hafði sérstaklega orð á því að nóttin hefði verið óvenju róleg. 15.8.2009 09:06
Svíður að stjórnvöld styðji ekki lögreglu „Kostirnir í stöðunni eru fáir, og enginn góður. Við teljum að við höfum valið þann besta, því að öðrum kosti hefðum við þurft að mæta niðurskurðarkröfu með beinum uppsögnum,“ segir Stefán Eiríksson, lögreglustjóri höfuðborgarsvæðisins. 15.8.2009 09:00
Forræðisdeila: Heldur til Bandaríkjanna í dag Borghildur Guðmundsdóttir, sem hefur verið gert að fara til Bandaríkjanna með syni sína tvo, heldur af stað með þá til Bandaríkjanna í dag. Hún mun eiga fund strax á mánudaginn með lögfræðingi sem hún hefur fengið þar í landi. 15.8.2009 07:30
Ríkisútgjöld aukast á sama tíma og tekjurnar minnka Ríkisútgjöld jukust um 31 prósent á tímabilinu janúar til júní á þessu ári miðað við árið í fyrra. Nema gjöldin 259 milljörðum og hækka um 61 milljarð. Tekjur ríkissjóðs drógust á sama tíma saman um tæp tíu prósent. Áætlun fjárlaga gerði ráð fyrir að innheimtar tekjur yrðu 219 milljarðar króna en þær voru 205 milljarðar þegar uppi var staðið. Þetta kemur fram í tilkynningu fjármálaráðuneytisins í fyrradag. 15.8.2009 07:00
Merkingar eðlilegar á litlum markaði Það er óraunhæft að leggja af forverðmerkingar á kjötvöru, segir Steinþór Skúlason, forstjóri Sláturfélags Suðurlands (SS). „Það er gríðarleg samkeppni á milli verslana eins og sjá má í auglýsingum alla daga." 15.8.2009 07:00
Samkomulag um Icesave Samkomulag náðist í fjárlaganefnd Alþingis um fyrirvara vegna Icesave samninganna á þriðja tímanum í nótt. Allir flokkar nema Framsóknarflokkurinn standa að samkomulaginu, eftir því sem fréttastofa RÚV fullyrðir. 15.8.2009 06:14
Spár um atvinnuleysi ganga eftir „Það jákvæða sem er að frétta af vinnumarkaði er að atvinnuleysi á meðal námsmanna varð minna en við óttuðumst,“ segir Gissur Pétursson, forstjóri Vinnumálastofnunar. Atvinnuleysi í júlí var átta prósent sem jafngildir því að 13.756 manns hafi að jafnaði verið án atvinnu. 15.8.2009 06:00
Drekasvæði í Öskjuhlíð Olíumengun í jarðvegi mun tefja setningu nýs grunnskóla Hjallastefnunnar í Öskjuhlíð, segir Margrét Pála Ólafsdóttir, framkvæmdastjóri Hjallastefnunnar. 15.8.2009 05:45
Jökla kemur veiðimönnum á óvart enn á ný Það kom leigutökum við Jöklu skemmtilega á óvart þegar lax veiddist langt upp í Jökuldal úr hliðará Jöklu. Hingað til hefur ríkt óvissa um hvort Jökla væri laxgeng upp dalinn vegna þess að um marga erfiða fossa og flúðir er að fara fyrir fiskinn á leið sinni upp ána. 15.8.2009 05:00
Lögreglan fékk 300 þúsund Lögreglumál Bankastjórn Seðlabanka Íslands styrkti í janúar starfsmannafélag lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu um 300 þúsund krónur. Með þessu vildu bankastjórar þakka lögreglumönnum sem tókust á við mótmælendur í anddyri bankans í mótmælum fyrr í vetur. 15.8.2009 04:00
Skora á Margréti Tryggvadóttur að kalla inn varamann á þingi Stjórn Borgarahreyfingarinnar beinir þeim tilmælum til Margrétar Tryggvadóttur að hún kalli til varamann sinn á þingi og íhugi stöðu sína sem þingmaður Borgarahreyfingarinnar. 14.8.2009 23:52
Lést þegar flutningabifreið fór út af þjóðveginum Farþegi í flutningabifreið lést þegar bifreiðin fór út af þjóðveginum í Langadal á áttunda tímanum í kvöld. Ökumaður bifreiðarinnar var fluttur með sjúkrabifreið til Akureyrar. Ekki er vitað um meiðsli hans að svo stöddu en þau eru ekki talin alvarleg. 14.8.2009 23:39
Sigmundur Davíð: Skjalið sem lak ekki það sama og ég sá Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, segir skjalið um fyrirvara við Icesave samninginn sem lekið var á heimasíðu Egils Helgasonar á Eyjunni í gærkvöldi og síðan birtist í Morgunblaðinu ekki vera skjalið sem hann sá í gærkvöldi. 14.8.2009 20:45
Blaðamenn mótmæla afskiptum stjórnvalda Um 200 írakskir blaðamenn, rithöfundar og útgefendur mótmæltu í dag vaxandi ríkisafskiptum af starfi þeirra. Sumir blaðamannanna segja að lögsóknum á hendur þeim sem rannsaka öryggismál og spillingu hafi fjölgað, að því er fréttastofa breska ríkisútvarpsins greinir frá. 14.8.2009 23:04
Þrettán látnir í skotbardögum á Gaza Að minnsta kosti þrettán hafa látist og um sextíu særst í hörðum skotbardögum á Gaza svæðinu. 14.8.2009 22:13
Agnes: Áfellisdómur yfir íslensku kerfi „Ég hefði haldið að rannsóknaraðilar að bankahruni hefðu öðrum og þýðingarmeiri hlutum að sinna heldur en að reyna að koma í veg fyrir það að upplýsingum sem varða allan almenning kæmust á framfæri almennings," segir Agnes Bragadóttir, blaðamaður á Morgunblaðinu. 14.8.2009 21:41
Yngsti þjálfarinn með versta landsliðið Tuttugu og fimm ára gamall breskur íþróttafréttaritari er nú yngsti landsliðsþjálfari í heimi eftir að hann tók við liði Kyrrahafseyjunnar Pohnpei. Slæmu fréttirnar eru hinsvegar að liðið er það versta í veröldinni. 14.8.2009 20:26
Fjármálaráðherra Noregs: Icesave fyrst, lánið svo Kristin Halvorsen, fjármálaráðherra Noregs, segir að norskir skattgreiðendur muni ekki borga reikninginn fyrir það sem hún kallar hægri tilraunir Íslendinga í samtali við fréttastofu RÚV. 14.8.2009 19:29
Heimsmetabræður í Reykjavíkurhöfn Bræður sem sett hafa heimsmet í siglingu á opnum mótorbáti yfir Atlantshafið komu til Reykjavíkurhafnar í morgun. 14.8.2009 19:03
FME sendir mál blaðamanna til sérstaks saksóknara Mál fimm fréttamanna sem fjallað hafa um bankahrunið hafa verið send frá Fjármálaeftirlitinu til frekari rannsóknar. Fólkið sem um ræðir starfar á Morgunblaðinu, Ríkisútvarpinu og DV. Fjármálaeftirlitið segir í fréttatilkynningu að fimm málum vegna meintra brota á þagnaskyldu hafi verið vísað til ríkissaksóknara. 14.8.2009 18:44
Mikil ólga og óánægja meðal lögreglumanna Andrúmsloftið hjá lögreglunni er þrungið og mikil ólga og óánægja meðal þeirra segir formaður Landssambands lögreglumanna. Hann segir að skert þjónusta muni einkum bitna á minniháttar útköllum. 14.8.2009 18:40
Fjármálaráðherra Hollands: Við gerðum Íslendingum greiða Fjármálaráðherra Hollands segir að framganga Hollendinga í Icesave málinu hafi verið vinargreiði við Íslendinga. Bretar segjast fagna því að nú megi leiða Icesave-málið til lykta. 14.8.2009 18:30
Verðlaunahundur lögfræðings týndur í Rockville Hætta er á að púðluhundurinn Larry, sem er bandarískur verðlaunahundur, missi af sinni fyrstu hundasýningu hér á landi, þar eð hann týndist við Rockville á suðurnesjum í gærkvöld. Til stóð að hann myndi fara á hundasýningu Hundaræktunarfélagsins um næstu helgi. 14.8.2009 17:58
Indefence segir væga fyrirvara um Icesave stórhættulega Indefence hópurinn segir væga fyrirvara í Icesavesamningunum vera stórhættulega. Þeir gagnrýna orð Jóhönnu Sigurðardóttur sem hefur lýst yfir að fyrirvarar við ríkisábyrgð skuli rúmast innan samninganna. Veikir fyrirvarar gætu verið skildir sem ítrustu kröfur Íslendinga. 14.8.2009 17:10
Rússneska flutningaskipið fundið Flutningaskipið Arctic Sea, sem hvarf í Ermasundi fyrir um hálfum mánuði er fundið, eftir því sem fram kemur á fréttavef Sky. Skipið hefur verið staðsett um 400 mílum frá Grænhöfðaeyjum 14.8.2009 16:09
Eigendur smurstöðva ósáttir við vinnubrögð N1 Eftir að hafa rekið smurstöð í Stórahjalla í þrjátíu ár var feðgunum Inga Hannessyni og Snjólfi Fanndal Kristbergssyni, sagt upp leigusamningi sínum við N1 með sex mánaða fyrirvara. N1 ætlaði þess í stað að reka smurstöð áfram á staðnum, án þess að borga nokkuð fyrir það orðspor sem fyrirtækið var búið að koma sér upp á þrjátíu árum. Fleiri hafa sömu sögu að segja. 14.8.2009 15:52
Þórður biðst afsökunar á agabrotunum Þórður Þorgeirsson, sem rekinn var úr íslenska landsliðinu í hestaíþróttum, hefur sent frá sér opinbera afsökunarbeiðni. Þórður var rekinn úr íslenska landsliðinu vegna agabrota. 14.8.2009 16:24
Lögreglan stöðvaði kannabisræktun í miðborginni Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði í dag ræktun á 65 kannabisplöntum í heimahúsi í miðborginni. Í tilkynningu frá lögreglunni kemur fram að larlmaður á þrítugsaldri hafi verið handtekinn og verði hann yfirheyrður vegna málsins. 14.8.2009 16:21
Stórtækir innbrotsþjófar handteknir Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók í fyrrakvöld þrjá menn af erlendum uppruna grunaða um að hafa brotist inn í hús í miðborg Reykjavíkur. Í framhaldi af handtöku mannanna voru gerðar húsleitir og fannst í þeim töluvert magn skartgripa, tölvubúnaðar, myndavéla og fleira. 14.8.2009 15:28
Þór Saari og Birgitta taka upp hanskann fyrir Margréti Þór Saari og Birgitta Jónsdóttir, þingmenn Borgarahreyfingarinnar, koma Margréti Tryggvadóttur samflokkskonu sinni til varnar í fréttatilkynningu sem þau sendu fjölmiðlum í dag. 14.8.2009 15:15
Endurfjármögnun Glitnis og Kaupþings á að ljúka í dag Ríkisstjórnin kynnir hugsanlega niðurstöður um endurfjármögnun Kaupþings og Glitnis í dag. 14.8.2009 14:54
Seðlabankastjóri lýsti aðdáun á störfum lögreglumanna Ingimundur Friðriksson seðlabankastjóri setti sig í samband við Stefán Eiríksson í lok janúarmánaðar síðastliðins til þess að skila þakklæti til lögreglumanna og annarra starfsmanna lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu frá bankastjórn og starfsmönnum bankans. 14.8.2009 14:39
Innbrotið hjá Íslandspósti í lögreglurannsókn Lögreglan rannsakar ennþá innbrot á aðalskrifstofur Íslandspósts á Stórhöfða í nótt. Ágústa Hrund Steinarsdóttir segir að málið sé allt óljóst ennþá. ekki sé víst hvort þjófarnir hafi komist inn í skúffur og skápa á skrifstofunum eins og fullyrt hafði verið í fréttum Bylgjunnar og Vísis. Hún segir þó ljóst að ekki hafi verið komist í neinar póstsendingar því að þær séu ekki geymdar á aðalskrifstofum. 14.8.2009 14:27
SFR samþykkti kjarasamninga við ríkið Kjarasamningur SFR- stéttarfélags í almannaþjónustu og ríkisins sem undirritaður var 3. júlí síðastliðinn var samþykktur í dag, en atkvæðagreiðslu lauk á hádegi. Á kjörskrá voru 6391 og var svarhlutfall 17.94%. Alls sögðu 54,06% þeirra sem greiddu atkvæði já, nei sögðu 39,04% en 6,90% skiluðu auðu. 14.8.2009 13:56
Útsvar Hannesar ekki í samræmi við tekjur Hannes Hólmsteinn Gissurarson segir að upplýsingar Skattstjórans í Reykjavík um útsvar hans, gefi ekki rétta mynd af þeim tekjum sem hann vann sér inn í fyrra. 14.8.2009 13:19
Dapurlegt að vinnugögn leki til fjölmiðla Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra segir ákaflega dapurlegt að viðkvæm vinnugögn sem búið var að samþykkja að trúnaður ríkti um, skuli lekið í fjölmiðla. Ekki sé búið að kynna breytingartillögur fjárlaganefndar fyrir Bretum og Hollendingum. Hann segir grátlega lítið vanta upp á breiða samstöðu um málið á Alþingi. 14.8.2009 12:52
Trúnaðarbrestur milli flokksformanna á Alþingi Trúnaðarbrestur er milli forystumanna stjórnmálaflokkanna á Alþingi vegna ítrekaðs leka á trúnaðarupplýsingum, nú síðast vegna Icesave. Stefnt er að því að afgreiða Icesave-frumvarpið úr fjárlaganefnd í dag. Tvísýnt er um hvort Sjálfstæðismenn og Borgarahreyfing standi að málinu með stjórnarflokkunum en fullvíst talið að Framsóknarflokkurinn verði á móti. 14.8.2009 12:26
Þráinn segir sig úr þingflokknum Þráinn Bertelsson hyggst hætta í þingflokki Borgarahreyfingarinnar. Þetta kom fram í hádegisfréttum Ríkisútvarpsins og sagt að von sé á yfirlýsingu frá Þráni vegna málsins. 14.8.2009 12:20
Samþykktu 48 milljóna króna aukafjárveitingu til framhaldsskóla Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í morgun að leggja til við Alþingi 48 milljóna króna aukafjárveitingu á fjáraukalögum til að ljúka við innritun nemenda yngri en 18 ára í framhaldsskóla. 14.8.2009 12:14
Brasilíski stórglæpamaðurinn var að koma frá Ósló Brasilíski stórglæpamaðurinn sem handtekinn var á Keflavíkurflugvelli þann 9. ágúst, var að koma frá Ósló og ætlaði því næst til Kanada. 14.8.2009 11:52
Þjónusta lögreglunnar mun skerðast Boðaður niðurskurður í lögreglunni í ár og á næsta ári, nái hann fram að ganga óbreyttur, mun augljóslega koma niður á þjónustustigi lögreglunnar um allt land, segir í ályktun stjórnar Landssambands lögreglumanna . Lögreglan mun þurfa, enn frekar, að forgangsraða verkefnum sínum og ljóst að einhverjum þeim verkefnum, sem lögreglan er að sinna í dag mun ekki verða sinnt á næsta ári. 14.8.2009 11:17
Margrét hefur enn áhyggjur af Þráni „Mér gekk gott eitt til. Ég hef áhyggjur af Þráni og hef þær enn. Viðbrögð hans við þessu hafa ekki slegið á þessar áhyggjur," segir Margrét Tryggvadóttir þingmaður Borgarahreyfingarinnar. 14.8.2009 11:00
Formaður Borgarahreyfingarinnar hættur Herbert Sveinbjörnsson hefur látið af embætti sem formaður Borgarahreyfingarinnar. Herbert gerir málinu skil á vefsíðu sinni. Þar segist hann eiga erfitt með að horfa á barnið sitt verða að athlægi og gera sig að fífli, horfa á það breytast í það sem hann fyrirlíti. 14.8.2009 10:39
Frægasti glæpamaður Brasilíu handtekinn á Íslandi Einn þekktasti glæpamaður Brasilíu, lýtalæknirinn Hosmany Ramos, situr nú í gæsluvarðhaldi á Íslandi en hann var tekinn með falskt vegabréf á Keflavíkurflugvelli þann 9. ágúst. Hann er eftirlýstur í Brasilíu eftir að hafa fengið heimfararleyfi yfir jólahátíðina síðustu og ekki snúið aftur. 14.8.2009 10:07
Lýsir áhyggjum af heilsu Þráins í tölvupósti Margrét Tryggvadóttir þingmaður Borgarahreyfingarinnar óttast að Þráinn Bertelsson þingmaður í sama flokki sé með alzheimer á byrjunarstigi og að hann hafi snemma í sumar verið að síga inn í þunglyndi. Þetta kemur fram í tölvupósti sem Margrét sendi fyrir mistök á nokkra félagsmenn í Borgarahreyfingunni. Hún ætlaði að senda póstinn á varamann Þráins inni á þingi. 14.8.2009 09:58