Fleiri fréttir

Eldur á Vatnsstíg slökktur

Búið er að slökkva allan yfirborðseld í húsi á Vatnsstíg, sem stóð í ljósum logum fyrr í kvöld.

Jarðskjálfti fannst út á Seltjarnarnes

Jarðskjálfti reið yfir um korter í ellefu rúma fjóra kílómetra austur af Keili. Skjálfinn var 3,1 að stærð samkvæmt sjálfvirkum skjálftamælingum Veðurstofunnar og fannst inn til Reykjavíkur, allt út á Seltjarnarnes.

Björn Bjarnason undirbýr þátt á ÍNN

Björn Bjarnason er þegar tekinn til við að undirbúa sjónvarpsþátt sinn á ÍNN. Í nýjustu dagbókarfærslunni á heimasíðu hans segist hann hafa farið inn á stöðina til að lesa inn stutta tilkynningu í tilefni af því að þáttur hans hefur göngu sína á ÍNN þann 19. ágúst.

Samstilltar sprengjur drápu 29

29 létust og fleiri er 130 slösuðust í samstilltri sprengjusyrpu utan við ýmsar moskur í Bagdad, höfuðborg Írak, í dag. Sprengjurnar sprungu þegar múslimar yfirgáfu moskurnar eftir bænagjörð, að því er fram kemur á fréttavef BBC.

Ætla ekki að hjálpa Kaupþingi að fela óhreint tau

Í svarbréfi sem forsvarsmaður heimasíðunnar WikiLeak sendi lögmannateymi Kaupþings þverneitar hann að taka upplýsingar um lántakendur bankans út af síðunni líkt og lögmennirnir höfðu beðið hann um.

Ástráður gefur tíu þúsund smokka í ágúst

Þeir sem stigu um borð í Herjólf í dag fengu óvæntan glaðning þegar læknanemar færðu þeim smokka að gjöf inn í helgina að sögn Júlíusar Kristjánssonar, formanns verkefnisins Ástráðs.

Bróðir meints fjársvikara vill fá hann heim til Íslands

Bróðir manns sem situr í bresku fangelsi fyrir fjármálamisferli biður þjóðina um að lána sér pening svo bróðir hans komist til konu sinnar og átta mánaða gamals barns. Til að ganga laus gegn tryggingu þarf fjölskyldan að reiða fram tuttugu milljónir króna.

Karlar gegn nauðgunum

Karlahópur Feministafélags Íslands verður með átak gegn nauðgun á útíhátíðum um helgina.

Fjársvik í nafni Blindrafélagsins

Blindrafélag Íslands íhugar að leggja fram kæru á hendur manni sem í heimildarleysi sendi innheimtuseðla á mörg hundruð styrktaraðila. Maðurinn ætlaði með þessu að nýta sér nafn Blindrafélagsins til að verða sér úti um pening.

Óþægilegt ef lánum seinkar, verra að hafna Icesave

Krónan hrynur og fer niður fyrir allt sem við höfum áður þekkt, lífskjör versna og atvinnuleysi eykst ef Íslendingar neita að borga Icesave. Þetta segir Þórólfur Matthíasson, hagfræðiprófessor. Hann segir að töf á lánum til Íslands sé óþægileg en sviðsmyndin verði hins vegar hrikaleg ef engin lán berast.

Birgitta fjarlægði bloggfærslu: Finnst athyglin viðbrigði

"Ég tók hana út því ég ætlaði aðeins að skoða þetta betur. Maður vill alls ekki vera að hvetja til þess að fólk sé að fá flensuna," segir Birgitta Jónsdóttir, þingmaður Borgarahreyfingarinnar í samtali við fréttastofu.

Umferð orðin mikil og þétt

Umferð út úr bænum er nú orðin mikil og þétt, en gengur vel, samkvæmt upplýsingum frá umferðardeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Engin óhöpp hafa komið upp á ef undan er skilin bílvelta sem varð rétt upp úr tvö á Álftanesvegi, samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni

Björgólfur Guðmundsson - frá upphafi til enda

Honum var eitt sinn lýst í Financial Times sem áhrifamesta viðskiptamanni landsins. Hann náði hæstu hæðum þar sem hann prýddi lista Forbes tímaritsins yfir auðugustu menn heimsins.

Hús á Vatnsstíg í ljósum logum

Hús á Vatnsstíg stendur í ljósum logum og leggur reykinn yfir miðbæinn, samkvæmt upplýsingum frá fréttamanni Vísis á staðnum. Eldurinn er á efri hæð hússins, en þetta mun vera sama hús og hústökufólk lagði undir sig fyrr á árinu.

Fjör á Reykjavíkurflugvelli

Það var líf og fjör á Reykjavíkurflugvelli í dag þar sem skemmtanaþyrstir Íslendingar biðu eftir flugi til Eyja.

Stærsta gjaldþrot Íslandssögunnar

Gjaldþrot Björgólfs Guðmundssonar er langstærsta gjaldþrot einstaklings hér á landi frá upphafi. Næst stærsta gjaldþrot einstaklings hér á landi var gjaldþrotaskipti bús Magnúsar Þorsteinssonar sem var náinn viðskiptafélagi Björgólfsfeðganna.

Bílvelta á Álftanesvegi

Bíll valt á Álftanesvegi klukkan rétt upp úr tvö í dag. Einn var í bílnum en að sögn lögreglu þurfti að senda kranabíl til að sækja tvo bíla á vettvangi.

Hundrað milljarða gjaldþrot Björgólfs

Eignir Björgólfs Guðmundssonar, sem hefur verið úrskurðaður gjaldþrota í Héraðsdómi Reykjavíkur, rýrnuðu um 143 milljarði frá byrjun árs 2008.

Fimm ný svínaflensu tilfelli

Á síðastliðnum tveimur sólarhringum voru fimm ný H1N1, eða svokölluð svínaflensutilfelli, og heildarfjöldi staðfestra tilfella því 51 samtals, enginn er alvarlega veikur.

Fundu fíkniefni í Herjólfi

Umferð út úr bænum hefur verið róleg það sem af er degi, samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni. Lögreglumenn á Selfossi og í Borgarnesi eru með virkt umferðareftirlit á stofnbrautum í umdæmunum alla helgina. Þá hefur Selfosslögreglan jafnframt verið með fíkniefnaeftirlit í kringum Herjólf, sem siglir milli Þorlákshafnar og Vestmannaeyjar. Lítilræði af fíkniefnum fundust á farþegum í Herjólfi í gær, en ekki er búið að vigta það magn.

Líklegast seljast um 800 þúsund lítrar af áfengi fyrir helgina

Opnunartími Vínbúða verður með hefðbundnum hætti um verslunarmannahelgina, samkvæmt upplýsingum frá Sigrúnu Ósk Sigurðardóttur, aðstoðarforstjóra ÁTVR. Vínbúðirnar á Dalvegi, Skeifu og Skútuvogi verða opnar til átta í kvöld og á morgun frá 11 - 18. Aðrar vínbúðir á höfuðborgarsvæðinu verða opnar til klukkan sjö í kvöld og frá 11-18 á morgun.

Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn á ekki að birtast sem innheimtustofnun

Krafa hinna Norðurlandanna um að Icesave málinu ljúki áður en lán frá þeim berast kemur í veg fyrir að Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn gæti tekið endurskoðun efnahagsáætlunar Íslands fyrir í næstu viku. Þetta kom fram á blaðamannafundi með forsætisráðherra og fjármálaráðherra í morgun.

Róleg umferð enn sem komið er

Umferð út úr bænum hefur verið róleg það sem af er degi, samkvæmt upplýsingum frá umferðardeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.

Björgunarbát stolið af sjúklingum

Á sunnudaginn var björgunarbát Reykjalundar á Hafravatni stolið. Vitni segja að á sunnudeginum hafi komið tveir einstaklingar á gráum Yaris og leikið sér á björgunarbátnum. Þeir voru með eigin mótor.

Vilja nýja hraðaskynjara

Airbus-flugvélaverksmiðjurnar gáfu það út í gær að þær þrýstu nú á fjölda flugfélaga að skipta um hraðaskynjara á allt að 200 Airbus-farþegavélum og nota skynjara frá bandarískum framleiðanda en ekki frá franska framleiðandanum Thales sem fram að þessu hefur annast gerð skynjaranna.

Tónleikagestir gerast æ hagsýnni

Aðstandendur hvers kyns tónleika í Los Angeles segjast taka eftir því hve fólk leggur sig nú í líma við að næla sér í síðustu aðgöngumiða á tónleika en þeir eru oft seldir með verulegum afslætti frekar en að hafa auð sæti á tónleikunum.

STASI fylgdist með Michael Jackson

Fáa hefði víst fáa grunað að nafn Michaels Jackson heitins væri að finna í skjölum austur þýsku leyniþjónustunnar STASI. Svo er þó.

Ruddust vopnaðir inn á heimili

Lögregla í Sakskøbing á Lálandi leitar tveggja manna sem ruddust inn á heimili rúmlega sextugrar konu snemma í morgun, vopnaðir skammbyssu, og heimtuðu peninga ásamt bíllyklum konunnar.

Flutningaskip strand við Noreg

Norðmenn eru mjög uggandi um að umhverfisslys vofi yfir eftir að flutningaskip frá Panama strandaði við Langesund í Þelamörk í nótt.

Almættið í spilarann

Ekki ómerkari maður en Benedikt sextándi páfi gæti blandað sér í slaginn um vinsælustu jólatónlistina í ár, en plata með páfanum er væntanleg í verslanir fyrir jólin.

Gjald á starfsmannastæði 2012

Yfirvöld í Nottingham í Bretlandi munu í dag kynna nýja gjaldtöku sem tekur gildi árið 2012 og hefur þegar vakið úlfúð hjá vinnuveitendum og samtökum bíleigenda.

Öflugt umferðareftirlit um helgina

Lögreglan og Landhelgisgæslan verða með eftirlit úr þyrlu um helgina. Fylgst verður með umferðinni á helstu umferðaræðum þjóðvegakerfisins auk þess sem ástand ökumanna á hálendinu verður kannað.

Margmenni en rólegheit í Eyjum

Mikill fjöldi fóllks hefur verið á gangi um Vestmannaeyjabæ í alla nótt og var enn fjölmenni í bænum á sjöunda tímanum í morgun. Að sögn lögreglu var óvenjufjölmennt í bænum í nótt, miðað við sömu nætur undanfarin ár.

Sjá næstu 50 fréttir