Fleiri fréttir

Þrjú kortasvikamál á skömmum tíma

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu ákveður síðar í dag hvort farið verður fram á áframhaldandi gæsluvarðhald yfir þremur Rúmenum sem grunaðir er um þjófnaði úr hraðbönkum hér á landi. Þrjú mál þessarar tegundar eru til rannsóknar á höfuðborgarsvæðinu og Suðurnesjum.

Uppboð á óskilamunum hjá lögreglunni

Hið árlega uppboð óskilamunadeildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu verður haldið laugardaginn 31. maí. Uppboðin eru gott tækifæri fyrir þá sem leita sér að tækjum og tólum og sérstaklega er úrvalið gott af reiðhjólum.

Guðni varaði við hvalveiðum þegar hann var ráðherra

Guðni Ágústsson hefur gagnrýnt afstöðu Samfylkingarinnar í hvalveiðimálinu harðlega. Hann sagði í fréttum RÚV í gær að Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra hafi gert Ísland að athlægi á alþjóðavettvangi með yfirlýsingu sinni á dögunum. Ingibjörg hefur sagt að allir ráðherrar flokks síns leggist gegn áframhaldandi hvalveiðum í atvinnuskyni þrátt fyrir að sjávarútvegsráðherra hafi heimilað veiðarnar.

Stærsta nagdýr sögunnar skreppur saman

Stærsta nagdýr sögunnar var ekki eins stórt og vísindamenn töldu áður. Er fyrstu fregnir bárust af fundi á steingerðri hauskúpu þess í Úrúgvæ var talið að það hefði verið á stærð við nautgrip og vegið eitt tonn. Nánari rannsóknir hafa leitt í ljós að þyngd þess og stærð var um þrefalt minni en það.

Undir áhrifum fíkniefna á stolnum bíl

Lögreglan á Suðurnesjum handtók í nótt ökumann vegna gruns um að hann væri undir áhrifum ólöglegra lyfja en hann er einnig grunaður um að hafa stolið ökutækinu.

Mikill meirihluti stórkaupmanna vill taka upp evru

Tæplega sjötíu prósent félagsmanna í Félagi íslenskra stórkaupmanna eru hlynntir því að Íslendingar taki upp evru sem gjaldmiðil í stað krónunnar, samkvæmt skoðanakönnun sem Gallup gerði fyrir félagið.

Bandarískir þingmenn vilja lögsækja OPEC samtökin

Fulltrúadeild Bandaríkjaþings hefur samþykkt frumvarp sem gerir bandaríska dómsmálaráðuneytinu kleyft að hefja lögsókn gegn OPEC ríkjunum fyrir að takmarka framleiðsluna á olíu og hafa samráð um verðlagningu á hráolíunni.

Obama er hársbreidd frá útnefningu sem forsetaefni

Barak Obama er nú hársbreidd frá því að geta lýst sig sigurvegarann og þar með forsetaefnið í forkosningum Demókrata í Bandaríkjunum. Hann vann í Oregon í nótt en Hillary Clinton sigraði í Kentucky.

Hillary sigurstrangleg í Kentucky

Hillary Clinton vinnur forkosningar demókrata í Kentucky, samkvæmt spám Fox fréttastofunnar. Hins vegar er talið að Barack Obama hafi betur í Oregon. Kosið var í báðum þessum ríkjum í dag.

Tveir hundar úr Dalsmynni drápust

Það er mjög alvarlegt mál ef hundaræktendur fá leyfi til að selja grunlausu fólki sýkta hunda ár eftir ár. Þetta segir ung kona sem fékk þrjá hunda frá hundaræktendum að Dalsmynni. Tveir þeirra drápust og sá þriðji er fárveikur.

Vilja yfirtaka Hvalfjarðagöngin

Vegfarendur munu ekki lengur greiða fyrir að aka um Hvalfjarðargöngin, verði frumvarp Frjálslynda flokksins til fjáraukalaga samþykkt fyrir þinghlé í vor. Frumvarpið gerir ráð fyrir að ríkisstjórnin muni nú þegar semja við Spöl hf. , sem á og rekur Hvalfjarðargöngin, um yfirtöku eigna og skulda félagsins strax á þessu ári og samhliða verði veggjaldið fellt niður.

Hæna laus á Suðurlandsvegi

Tilkynning um lausa hænu á Suðurlandsvegi var meðal þeirra tilkynninga sem bárust lögreglunni á Hvolsvelli í liðinni viku eftir því sem segir í dagbók hennar.

Fagna ákvörðun um að hefja hrefnuveiðar

Hagsmunaaðilar í sjávarútvegi fagna þeirri ákvörðun sjávarútvegsráðherra að hefja skuli hrefnuveiðar. Þeir segja þá ákvörðun vera í samræmi við stefnu stjórnvalda um sjálfbæra nýtingu lifandi auðlinda hafsins og ályktun Alþingis um hvalveiðar frá 10. mars 1999.

Edward Kennedy með heilaæxli

Edward Kennedy, sem situr í öldungadeild Bandaríkjaþings, er með heilaæxli, eftir því sem læknar á Massachusettes General Hospital segja. Kennedy var flogið á spítala í Boston um síðustu helgi eftir að hafa fengið einhverskonar flog.

Segir Háskólann í Reykjavík græða á orðspori HÍ

„Orðstír háskóla verður ekki keyptur, það þarf að vinna fyrir honum,“ segir Runólfur Smári Steinþórsson, formaður viðskiptaskorar Háskóla Íslands í bréfi sem hann sendi nemendum í viðskiptafræði.

Plank í varðhaldi til 3. júní

Héraðsdómur Reykjavíkur framlengdi í dag gæsluvarðhald yfir Premyzlaw Plank, pólskum karlmanni sem grunaður er um ýmsa glæpi í heimalandi sínu.

Ólöf Ósk: „Eins og stanslaus jarðskjálftahrina“

„Það var ekki fyrr en mér var bent á það að ég fann að dómurinn var uppreisn æru fyrir mig", segir Ólöf Ósk Erlendsdóttir sem fyrst steig fram í kjölfar Kompásþáttarins um Byrgið og vitnaði um eigin reynslu af kynferðisbrotum Guðmundar forstöðumanns gegn sér.

Þörf á tilmælum til hagsmunasamtaka á matvörumarkaði

Samkeppniseftirlitið hefur ekki lokið athugun sinni á því hvort samtök fyrirtækja á matvörumarkaði hafi gengið of langt í hagsmunagæslu sinni en segir ljóst að beina þurfi tilmælum til slíkra samtaka til þess að gæta þess að aðildarfyrirtækin raski ekki samkeppni.

Sérsveitarmaður sendir þingmönnum bréf

Runólfur Þórhallsson, lögregluvarðstjóri í sérsveit Ríkislögreglustjóra, hefur sent öllum þingmönnum opið bréf þar sem hann talar fyrir hönd hins almenna lögreglumanns í sérsveitinni. Bréfið skrifar hann í tilefni af orðum Lúðvíks Bergvinssonar, alþingismanns, sem sagði á dögunum tímabært að leggja embætti Ríkislögreglustjóra niður í núverandi mynd. Þá segir hann tilefni bréfsins einnig vera hugmyndir Stefáns Eiríkssonar lögreglustjóra um að færa sérsveitina undir hans stjórn í Reykjavík.

Forlagið styrkir Réttindastofu sína

Töluverðar skipulagsbreytingar eru fyrirhugaðar á útgáfusviði Forlagsins á næstunni. Í fréttatilkynningu kemur fram að markmið breytinganna sé að styrkja starfsemi Réttindastofu Forlagsins

Rennibrautin í Laugardal opnuð innan viku

Sundlaugargestir af yngri kynslóðinni hafa margir hverjir verið ósáttir með rennibrautarleysið í Laugardalnum. Rennibrautin sem orðin er tuttugu ára gömul hefur verið lokuð í rúman mánuð en sá tími er senn á enda. Logi Sigurfinnsson forstöðumaður Laugardalslaugarinnar vonast til þess að brautin opni í næstu viku. Von er á nýrri braut innan þriggja ára.

Fílharmonían í Berlín brennur

Þýskir slökkviliðsmenn berjast nú við eldsvoða í Berlínar fílharmóníunni. Eldurinn kom upp í þessu fræga húsi á tónleikum í dag en að sögn talsmanns slökkviliðsins tókst vel að koma tónleikagestum út. 170 slökkviliðsmenn eru á staðnum og 30 brunabílar.

Ölfusingar bitrir vegna Bitru

Ólafur Áki Ragnarsson, bæjarstjóri í Ölfusi, segist vera mjög hugsi yfir því hvernig mál jarðgufuvirkjana séu að þróast eftir að stjórn Orkuveitu Reykjavíkur samþykkti í morgun einróma að hætta undirbúningi Bitruvirkjunar.

Ræddi um áhrif loftlagsbreytinga á heilbrigðisþingi

Áhrif loftlagsbreytinga í heiminum var meðal þess sem Guðlaugur Þór Þórðarson heilbrigðisráðherra ræddi um í ávarpi sínu á 61. alþjóðaheilbrigðisþinginu í morgun, en þingið stendur yfir í Genf þessa dagana.

Hvetja stjórnvöld til að stöðva hvalveiðar

Samtök ferðaþjónustunnar mótmæla harðlega fyrirhuguðum hrefnuveiðum sem sjávarútvegsráðherra hefur nú heimilað og hvetja stjórnvöld til að stöðva þær áður en þær valdi öðrum atvinnugreinum skaða.

Sjá næstu 50 fréttir