Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Lést í bílslysi í Reykhólasveit Ökumaðurinn sem slasaðist alvarlega í umferðarslysinu sem átti sér stað á mánudaginn var við bæinn Klukkufell í Reykhólasveit er látinn. Hinn látni var tvítugur karlmaður af erlendu bergi brotinn. Lögreglan á Vestfjörðum rannsakar tildrög slyssins. 19.9.2007 13:46
Móðir yfirgefnu stúlkunnar var myrt Lík móður stúlkunnar sem var yfirgefin á lestarstöð í Ástralíu á laugardag fannst í dag. Lögreglan hafði leitað konunnar frá því á laugardag og fann lík hennar í skotti bíls við heimili fjölskyldunnar á Nýja Sjálandi. Bíllinn er skráður á föður stúlkunnar sem er þriggja ára. 19.9.2007 13:41
Ráðuneytin fara fram úr fjárhagsáætlun Á fundi fjárlaganefndar Alþingis í morgun var tekin fyrir framkvæmd fjárlaga fyrstu sex mánuði ársins. Þar kom fram að 134 liðir af 434 eru komnir fram úr áætlun. Gunnar Svavarsson, formaður nefndarinnar, segir þetta aukningu frá því í fyrra þegar 106 liðir voru komnir fram úr á sama tíma. 19.9.2007 13:37
Eyddu vitlausu fóstri Tveir ítalskir læknar sem eyddu heilbrigðu fóstri fyrir slysni eiga yfir höfði sér kæru vegna vanrækslu í starfi. Í aðgerðinni, sem fór fram í júní, ætluðu læknarnir sér að eyða tvíbura sem greinst hafði með Downs heilkenni. Eftir sónarskoðun skiptu læknarnir um stað og hófu aðgerðina, en eyddu hinum tvíburanum sem var heilbrigður. 19.9.2007 13:27
Síðasti eftirlifandi Rauði Khmerinn kærður Sérstakur dómstóll á vegum Sameinuðu þjóðanna sem rannsakar nú fjöldamorð Rauður Khmeranna í Kambódíu hefur kært fyrrverandi næstæðsta yfirmann þeirra fyrir glæpi gegn mannkyni. 19.9.2007 12:54
Fleiri láta fjarlægja tattoo Fjöldi þeirra sem láta fjarlægja húðflúr hér á landi hefur aukist töluvert síðustu ár og er búist við frekari aukningu á næstu árum. Yfirleitt er laser aðferðum beitt en þær geta verið bæði sársaukafullar, kostnaðarsamar og tímafrekar. Þetta er svipuð þróun og Í Bandaríkjunum þar sem aukningin hefur orðið gífurleg. 19.9.2007 12:49
Segir Kompás þátt ósmekklegan Einar Gautur Steingrímsson, lögmaður mannsins sem Kompás fjallaði um í þætti sínum í gær, segir að umbjóðandi sinn kannist ekki við tvær þeirra stúlkna sem fjallað var um í þættinum. 19.9.2007 12:31
Lífetanólstöðin ekki opin almenningi strax Lífetanólstöðin sem opnuð var fyrir tveimur dögum verður ekki opin almenningi fyrr en eftir nokkrar vikur. Forstjóri Brimborgar segir að um tilraunaverkefni sé að ræða og eftir eigi að að kanna, tollafyrirkomulag á tvíorkubílum og etanóli, áhuga almennings og ekki síður áhuga olíufélaganna. 19.9.2007 12:16
Ferðir sendifulltrúa takmarkaðar Bandarískum sendifulltrúum í Írak er nú bannað að ferðast utan Græna svæðisins svokallaða í Bagdad. Þetta var ákveðið eftir að írösk yfirvöld bönnuðu starfsemi verktakafyrirtækisins Blackwater í landinu. Fyrirtækið hefur annast gæslu sendifulltrúa. 19.9.2007 12:16
Töf á skráningu hlutafjár Straums í evrum Töf verður á fyrirhugaðri skráningu hlutafjár Straums í evrum vegna lögfræðilega athugasemda sem Seðlabankinn gerði um framkvæmdina. Forsvarsmenn Straums vísa því alfarið á bug að Seðlabankinn reyni að setja félaginu hömlur í þessum efnum. 19.9.2007 12:14
Mótvægisaðgerðirnar brandari Mótvægisaðgerðir ríkistjórnarinnar eru brandari, segir þingmaður Sjálfstæðisflokksins, Árni Johnsen. Hann segir ekki samræmi í aðgerðunum og óeðlilegt að taka Vestfirði fram yfir aðrar sjávarbyggðir. 19.9.2007 12:00
Spútnik fimmtíu ára Fyrir fimmtíu árum greip um sig mikil skelfing í Bandaríkjunum vegna áttatíu og þriggja kílóa málmbolta. Risastórar fyrirsagnir í blöðunum voru eins og heimsendir væri í nánd. Í herstöðvum Bandaríkjanna víða um heim fengu allir skammbyssur sem þeir áttu að bera á sér dag og nótt. Ástæðan fyrir þessari skelfingu var sú að málmboltinn var á braut um jörðu. Og Rússar höfðu sent hann þangað. 19.9.2007 11:26
Breyttu hóruhúsi í bænahús Í Ármúla 23 eru nú reglulega haldnar fjölmennar samkomur fólks sem hefur frelsast til guðstrúar. Flestir eiga safnaðarmeðlimirnir það sameiginlegt að hafa lent upp á kant við lögin fyrr á lífsleiðinni. Húsnæðið sem hýsir bænahúsið var mikið í fréttum fyrir nokkru þegar því var slegið upp að þar væri rekið vændishús. 19.9.2007 11:00
Danskir hermenn særast í Afganistan Tveir danskir hermenn særðust í morgun í bardaga við talíbana í Helmandsýslu í Afganistan. Annar hermannnanna var skotinn í brjóstið og aðra höndina, en hinn fékk skot í fótlegg. Mennirnir voru fluttir á hersjúkrahús en eru ekki í lífshættu. Danskar hersveitir berjast nú undir stjórn breska hersins í Halmandsýslu. 19.9.2007 10:53
Vilja reka Friðarstofnun Reykjavíkur Samtök hernaðarandstæðinga ætla að bjóða fulltrúum borgarstjórnar til formlegra viðræðna á næstu dögum, með það að markmiði að samtökin taki að sér að reka Friðarstofnun Reykjavíkur. 19.9.2007 10:53
25.000 fm miðborgarkjarni í bígerð Á morgunverðarfundi í morgun um fyrirhugaðann miðborgarkjarna á Barónsreit kom fram að gert er ráð fyrir um 25.000 fermetra rými undir verslanir og þjónustu þar sem m.a. verður stór matvöruverslun, alþjóðlegar verslanir með þekktum vörumerkjum, kvikmyndahús og veitingastaðir. Þá er gert ráð fyrir bílakjallara á fjórum hæðum. 19.9.2007 10:42
Móðir finnst látin á sama stað og dóttir hennar nokkrum vikum áður Móðir táningsstúlku sem fannst látin á lestarteinum í Bretlandi fyrir fimm vikum fannst í gær látin á sama stað. Hin sautján ára Natasha Coombs hvarf þegar hún var á leið heim eftir kvöldstund með vinkonum sínum á veitingastað í Ipswich þann 27. júlí. Tveimur vikum áður hafði hún hætt með kærastanum sínum, og var leið yfir því. Hún fannst svo 10. ágúst í kjarri nálægt lestarteinum í nágrenninu. Hún hafði orðið fyrir lest. 19.9.2007 10:38
Varað við íslensku leiðinni Framkvæmdastjóri samtaka veiðimanna á Grænlandi (KNAPK) varar í viðtali við grænlenska útvarpið sterklega við fyrirhuguðum breytingum á fiskveiðistjórnunarkerfi landsins. Það muni leiða til ástands eins og á Íslandi þar sem nokkrir barónar eigi allan kvótann. 19.9.2007 10:33
:-) 25 ára í dag Broskallinn góðlegi sem hóf líf sitt sem tölvutákn er 25 ára í dag. Glaðlega andlitið sem birtist yfirleitt á hlið er nú notaður í milljörðum tölvupósta á degi hverjum. Hann var skapaður af prófessor Scott Fahlman, tölvusérfræðingi í Pittsburg í Bandaríkjunum. 19.9.2007 10:28
GSM allan Hringveginn Stöðugt bætast við nýir sendar fyrir GSM-farsímaþjónustuna á Hringveginum. Samgönguráðuneytið áætlar að í árslok verði boðið uppá GSM-þjónustu á öllum Hringveginum. 19.9.2007 10:28
Ristu upp blaðaböggla Margir borgarbúar fengu ekki dagblöðin sín í morgun því einhverjir spellvirkjar tóku sig til í nótt, fóru víða um borgina og ristu upp blaðaböggla, sem biðu blaðburðarfólksins. 19.9.2007 08:44
Bifhjólamaður á gjörgæslu Bifhjólamaður slasaðist á Fáskrúðsfirði í dag þegar hann féll af hjóli sínu á Skólavegi laust fyrir klukkan fimm í dag. Maðurinn, sem er um þrítugt, var fluttur með sjúkrabíl til Egilsstaða og þaðan með sjúkraflugi á Landspítalann í Fossvogi. Hann er nú á gjörgæslu en er ekki talinn alvarlega slasaður. 18.9.2007 21:11
Kristjana sigraði í Veðravon Um fimm þúsund Íslendingar tóku þátt Veðravon, veðurleik veðurstofu Stöðvar 2 og Vísis. Sigurvegarinn í leiknum var Kristjana Margrét Harðardóttir, Reykjavík, en hún reyndist ötulasti veðurathugunarmaðurinn enda gerði hún 93 veðurathuganir af 93 mögulegum. 18.9.2007 20:22
Elsti maður heims 112 ára í dag Japaninn Tomoji Tanabe, sem er talinn vera elsti núlifandi karlmaðurinn, hélt upp á 112 ára afmæli sitt í dag. Hann hefur aldrei snert áfengi og segir það vera leyndarmálið á bak við langlífi sitt. 18.9.2007 20:21
Fjöldi tungumála í útrýmingarhættu Málvísindamenn óttast að á komandi árum muni fjöldi tungumála í útrýmingarhættu aukast hratt. Mörg eru nú þegar nánast útdauð. Þeir hafa skilgreint fimm svæði í heiminum þar sem vandamálið er hvað verst. Tungumál frumbyggja í norðurhluta Ástralíu er talið vera í hvað mestri útrýmingarhættu. 18.9.2007 20:03
Kærðir fyrir að brjóta viðskiptabann á Íran Bandarísk yfirvöld kærðu í dag hollenskt fyrirtæki fyrir brjóta gegn viðskiptabanni Bandaríkjamanna á Íran. Hollenska fyrirtækið keypti flugvélaparta frá Bandaríkjunum og endurseldi þá til Írans. Eigandi fyrirtækisins á yfir höfði sér 50 ára fangelsi og sekt upp á allt að 65 milljónir króna verði hann fundinn sekur. 18.9.2007 19:08
Óttast um móður yfirgefnu stúlkunnar Óttast er um afdrif móður stúlkunnar sem var skilin eftir á brautarpalli í Melbourne í Ástralíu nýlega. Leitað er að föðurnum um allan heim. Pabbinn sem skildi fjögurra ára dóttur sína, Qian Xun Xue, eftir á brautarpalli í Melbourne er enn ekki kominn fram, þó leitað sé um allan heim. 18.9.2007 18:46
Ver barnaníðinga en sætir ákæru sjálfur um kynferðisafbrot Lögmaður sem er ákærður um kynferðisafbrot gegn fjórum unglingsstúlkum hefur tekið að sér að verja meinta barnaníðinga þótt hann sæti sjálfur rannsókn vegna meintra kynferðisafbrota. 18.9.2007 18:45
Breska stjórnin ver sparifjáreigendur Breska stjórnin hefur heitið sparifjáreigendum því að þeir muni ekki tapa innistæðum sínum hjá Northern Rock, bankanum sem hefur staðið tæpt undanfarna daga. 18.9.2007 18:44
Íslendingar sitja lengi á skólabekk Ástralir og Íslendingar sitja lengst allra á skólabekk og engin þjóð ver jafn miklu af þjóðartekjum í að koma börnunum í gegnum grunn- og framhaldsskóla en Íslendingar. 18.9.2007 18:42
Vilja hætta við smíði Grímseyjarferju Vaxandi stuðningur er innan samgöngunefndar alþingis við að smíði fyrirhugaðrar Grímseyjarferju verði hætt. Grímseyingar segja skipið ekki henta vegna veðurs og ónógrar burðargetu. 18.9.2007 18:39
Vanhæfur? Bæjarstjórn Kópavogs hefur falið bæjarlögmanni að kanna hvort eðlilega hafi verið staðið að ráðningu aðstoðarskólastjóra í bænum. 18.9.2007 18:32
Brú selur Nokia allt hlutafé í Enpocket Nokia er að kaupa allt hlutafé í Enpocket, en Brú, dótturfyrirtæki Straums-Burðaráss er einn stærsti hluthafinn þar. Um það bil fimmtíu Íslendingar eiga hlut í félaginu. 18.9.2007 18:30
Hlíðaskóli fyrirmynd á Norðurlöndum í kennslu fyrir heyrnarskerta Hlíðaskóli hefur unnið markvisst frumkvöðlastarf í skólamálum á Íslandi á þann veg að heyrnarskert, heyrnarlaus og daufblind börn taka þátt í kennslustundum með heyrandi og sjáandi nemendum skólans. 18.9.2007 18:30
Ákært í fjórum líkamsárásarmálum í Reykjanesbæ Fjórar ákærur vegna líkamsárása voru þingfestar í Héraðsdómi Reykjaness í dag. Allar árásirnar áttu sér stað í Reykjanesbæ. Nokkra athygli vekur að rúm þrjú ár eru liðin frá einni árásinni. 18.9.2007 17:47
Evrópusambandið endurskoðar innflutningsbann Sérfræðingar hjá Evrópusambandinu munu endurskoða innflutningsbann á breskar landbúnaðarvörur um næstu mánaðamót. Evrópusambandið lokaði á allan innflutning á fersku kjöti, búfénaði og mjólkurafurðum frá Bretlandseyjum í síðustu viku eftir að gin-og klaufaveikismit greindist á nautgripabúi í suðurhluta Englands. 18.9.2007 17:40
Tímamótabreyting á stjórnarskrá Zimbabwe Stærsti stjórnarandstöðuflokkur Zimbabwe segir að náðst hafi samkomulag við ríkisstjórnina um lagabreytingu á stjórnarskránni. Um er að ræða tímamótabreytingu sem kemur flestum mjög á óvart. Breytingarnar munu gera sameiginlegt framboð til þing- og forsetakosninga mögulegar árið 2008. Þær munu meðal annars leiða af sér fjölgun þingmanna. 18.9.2007 17:07
Ekið á barn við Lönguhlíð Ekið var á barn á mótum Lönguhlíðar og Mávahlíðar laust fyrir klukkan fimm í dag. Í fyrstu var óttast að barnið hefði slasast alvarlega. 18.9.2007 17:07
Fáfnisfauti týndur Jón Trausti Lúthersson, sem kenndur er við bifhjólasamtökin Fáfni, átti að mæta fyrir Héraðsdómi Reykjaness í dag. Samkvæmt heimildum Vísis er hann ákærður fyrir tvær líkamsárásir sem áttu sér stað í Keflavík. 18.9.2007 17:00
Opna Schengen fyrir ríki Austur-Evrópu Stefnt er að því að aðildarríki Evrópusambandsins í Austur-Evrópu fái fullan aðgang að Schengen-samstarfinu á næsta ári. Þetta var meðal annars sem kom fram á ráðherrafundi um Schengen málefni í Brussel í dag. Björn Bjarnason, dómsmálaráðherra, sat fundinn fyrir hönd Íslands. 18.9.2007 16:59
Jónas: Borga ekki fyrr en ég hef lokið afplánun Jónas Garðarsson, sem Hæstiréttur hefur dæmt í þriggja ára fangelsi og til að greiða 10 milljónir í skaðabætur fyrir að vera valdur að dauða Matthildar Viktoríu Harðardóttur og Friðriks Hermannsonar þegar skemmtibáturinn Harpa sökk í Viðeyjarsundi, segist ekki ætla að greiða krónu í skaðabætur fyrr en hann hafi lokið afplánun sinni. 18.9.2007 16:40
Írakar endurskoða öryggisfyrirtæki Yfirvöld í Írak segja að þau muni endurskoða stöðu allra öryggisfyrirtækja í einkaeigu sem stunda rekstur í landinu. Yfirlýsingin kemur eftir að byssubardagi öryggisvarða í Baghdad kostaði átta óbreytta borgara lífið. Ríkisstjórnin sagði að hún vildi komast að því hvort fyrirtækin færu eftir lögum í landinu. 18.9.2007 16:29
Tölvupóstar frá svikahröppum sífellt grófari Mörg þúsund tilkynningar hafa borist ríkislögreglustjóra það sem af er þessu ári vegna tölvupósta þar sem reynt er að hafa af fólki fé. Bréfin verða sífellt grófari að sögn aðstoðarríkislögreglustjóra og í þeim nýjustu er fólki hótað lífláti. 18.9.2007 16:22
Löggur reknar í kippum Héraðsstjórinn í Uttar Pradesh héraði í Indlandi hefur rekið um 10.500 lögregluþjóna úr starfi á einni viku. Héraðsstjórinn segir að þeir hafi keypt sér embættin til þess að geta hagnast á mútum og öðru ólöglegu athæfi. Yfir 22000 lögregluþjónar eru enn til rannsóknar og viðbúið að einhverjir þeirra verði einnig reknir. 18.9.2007 15:43
Reyna að forðast reynslulausn barnaníðings Brynjar Níelsson, skipaður verjandi Ágústs Magnússonar, segir að lögreglan á höfuðborgarsvæðinu dragi að gefa út kæru á hendur Ágústi, dæmdum barnaníðingi, til að koma í veg fyrir að hann fái reynslulausn úr fangelsi. 18.9.2007 15:34