Fleiri fréttir

Rússar óttast stríðsátök í Íran

Sergei Lavrov utanríkisráðherra Rússa lét í dag hafa eftir sér að hann hræddist yfirvofandi hættu á stríði í Íran eftir samtal við franska utanríkisráðherrann, Bernard Kouchner. Á sunnudag ollu ummæli Kouchners um Íran mikilli spennu í Teheran, en hann sagði að heimurinn yrði að „undirbúa sig fyrir það versta, og það versta væri stríð.“

Þriðji maðurinn handtekinn í Simpson málinu

Karlmaður á sextugsaldri var handtekinn í Las Vegas í Bandaríkjunum í dag í tengslum við vopnað rán sem framið var á hótelherbergi í borginni á fimmtudag. O.J. Simpson var handtekinn í fyrrakvöld fyrir meinta aðild að ráninu á The Palace Station hótelinu.

Nágrannar ósáttir við flutning hússins að Bergstaðastræti

Verslunareigendur og íbúar við Klapparstíg eru ósáttir við það hversu illa flutningur hússins frá Hverfisgötu að Bergstaðastræti var undirbúinn. Ari Magnússon, eigandi verslunarinnar Antíkmunir, telur að fólk í nágrenninu hefði átt að vera aðvarað.

Laun hækka mest á Norðurlöndum

Kjarasamningar á öllum Norðurlöndum hafa verið endurnýjaðir á þessu ári að Íslandi undanskyldu, eftir því sem fram kemur i frétt á vef Samtaka atvinnulífsins.

Tólf tíma tók að flytja húsið

Um tólf tíma tók að flytja tæplega hundrað ára gamalt hús frá Hverfisgötu yfir á Bergastaðastræti í Reykjavík í nótt. Eigandi verktakafyrirtækis sem sá um flutninginn segir þrengsli í miðbænum hafa valdið töfunum.

Um 40 ólöglegir iPhone símar í notkun á Íslandi

Samkvæmt heimildum Vísis eru um fjörutíu óskráðir og ólöglegir iPhone símar í notkun hér á landi. Símarnir voru keyptir í Bandaríkjunum en vegna samnings sem Apple gerði við farsímafyrirtæki þar í landi eru símarnir læstir fyrir notkun erlendis. Tölvuhakkarar hafa fundið leið til að komast framhjá þessari læsingu og lekið þeim upplýsingum á netið. Svo virðirst sem allnokkrir óþreyjufullir aðilar hér á landi hafi nýtt sér þerssar upplýsingar, aflæst Iphone símanum og hafið notkun á honum hér á landi.

Abe áfram á sjúkrahúsi

Shinzo Abe forsætisráðherra Japans verður áfram á spítala og alls óvíst er hvenær hann kemur aftur til vinnu.

Biðraðir minnka við Northern Rock

Hlutabréfaverð í Northern Rock bankanum í Bretlandi hækkaði á ný í morgun eftir að bresk stjórnvöld hétu því að sparifjáreigendur myndu engu tapa á viðskiptum sínum við bankann.

Mikill vindsnúningur þegar vélin fórst

Háttsettur embættismaður í taílensku flugumferðarstjórninni segir að mikill vindsnúningur hafi orðið í þann mund sem vélin sem fórst á Phuket-flugvelli var að lenda. Áttatíu og níu manns fórust þegar vélin brotlenti, og brann. Embættismaðurinn segir að flugmenn vélarinnar hafi vitað af þessum vindsnúningi.

Portúgalska lögreglan á ystu nöf?

Portúgalskir fjölmiðlar velta því nú fyrir sér hvort þarlend lögregluyfirvöld hafi farið út á ystu nöf með því að bendla foreldra Madeleine við dauða hennar. Efi á sakleysi McCann hjónanna hefur dvínað og almenningsálitið snúist þeim aftur í vil eftir að portúgalskur dómari neitaði að fyrirskipa að Kate skyldi snúa aftur til yfirheyrslu.

Grænlensk börn fara svöng í rúmið

Níu prósent barna á Grænlandi lifa neðan við fátækramörk, samkvæmt nýrri rannsókn sem gerð hefur verið þar í landi. Stjórnandi rannsóknarinnar, Sissel Lea Nielsen, segir að fátækt grænlenskra barna eigi sér margar birtingarmyndir. Til dæmis hafi foreldrar ekki efni á að láta börn sín taka þátt í tómstundaiðkun og félagslífi.

SBA - Norðurleið, Hagvagnar og Kynnisferðir fá ekki að sameinast

Samkeppniseftilitið hefur úrskurðað að hópferðafyrirtækin SBA - Norðurleið, Hagvagnar og Kynnisferðir fái ekki að sameinast. Í lok marsmánaðar síðastliðinn keypti eignarhaldsfélagið Reynimelur ehf., sem er í eigu SBA-Norðurleiðar og Hagvagna fyrirtækið Kynnisferðir ehf. af FL Group. Viðskiptin voru tilkynnt Samkeppniseftirlitinu sem samruni.

Óttast um móður lestarstöðvar-stúlkunnar

Lögregla í Ástralíu, Nýja Sjálandi og Bandaríkjunum leitar nú foreldra þriggja ára stúlku sem skilin var eftir á lestarstöð í Ástralíu á laugardag. Óttast er um móður stúlkunnar sem hefur ekki sést síðan 10. september. Bíll konunnar sem er kínversk fannst við flugvöllin í Auckland á Nýja Sjálandi í gær.

Vilja leyfa það aftanfrá

Þingið í Singapore vill afnema bann við munn- og endaþarmsmökum. Þó ekki fyrir samkynhneigða. Hingaðtil hefur verið blátt bann við slíkum leikjum jafnvel innan veggja heimilisins. Hvort sem gagnkynhneigð eða samkynhneigð pör hafa átt í hlut.

Afkoma ríkissjóðs versnar

Á öðrum ársfjórðungi 2007 nam tekjuafgangur hins opinbera 9,7 milljörðum króna en það er nokkuð óhagstæðari afkoma en á öðrum ársfjórðungi 2006 er hann mældist 15,7 milljarðar króna.

Spilltar löggur í Brasilíu handteknar

Lögreglan í Rio de Janeiro handtók 52 kollega sína í viðamikilli aðgerð í dag. Lögreglumennirnir sem handteknir voru eru sakaðir um að hafa þegið fé frá glæpagengjum og aðstoðað foringja klíkanna við að forðast handtöku í staðinn.

Enn eitt gin- og klaufaveikismit á Englandi

Nýtt gin- og klaufaveikismit greindist á sauðfjárbúi í suðurhluta Englands í dag. Búið er fyrir innan það varnarsvæði sem sett var upp í síðustu viku. Bresk yfirvöld hafa þegar fyrirskipað að allt sauðfé á búinu verði skorið niður.

Draga úr leit að Steve Fossett

Yfirvöld í Nevada fylki í Bandaríkjunum hafa ákveðið að draga verulega úr leit að ævintýramanninum og auðjöfrinum Steve Fossett. Aðeins tvær flugvélar voru við leitarstörf í dag en í síðustu viku voru þær tuttugu talsins. Steve Fosset hefur nú verið saknað í tvær vikur.

Reyndi að strjúka úr fangelsi með tannkremi

Enskur fangi beitti frekar óvenjulegri aðferð til að reyna strjúka úr fangelsi á eyjunni Wight á Ermasundi. Vopnaður matskeið gróf fanginn, Colin Warren, göng úr fangaklefa sínum og notaðist síðan við tannkrem til að hylja gatið á daginn.

Varar við vaxandi fordómum í garð múslima í Evrópu

Yfirmaður mannréttindarnefndar Sameinuðu þjóðanna, Louise Arbour, varar við vaxandi fordómum í garð múslima í Evrópu og telur mikilvægt að ríkisstjórnir í álfunni taki strax á vandanum. Ný skýrsla, sem kynnt var í síðustu viku, þykir benda til þess að umburðarlyndi meðal Evrópubúa gagnvart múslimum fari minnkandi.

Alvarlega slasaður eftir bílveltu

Þyrla Landhelgisgæslunnar flutti í kvöld mann til Reykjavíkur eftir bílslys í Reykhólasveit. Að sögn lögreglu er maðurinn alvarlega slasaður. Tildrög slyssins urðu með þeim hætti að maðurinn, sem var einn í bíl sínum, ók út af veginum við Klukkufell með þeim afleiðingum að bíllinn valt.

Grindvíkingar undrandi og óánægðir

Á aukabæjarstjórnarfundi í Grindavík sem haldinn var í dag lýsti bæjarstjórnin yfir undrun og óánægju sinni með mótvægisaðgerðir ríkisstjórnarinnar vegna aflaskerðingar á þorski. Bæjarfulltrúarnir segja að Grindavík verði verst úti vegna skerðingarinnar en þrátt fyrir það sé hvergi minnst á bæinn í boðuðum aðgerðum.

Ók yfir á rauðu

Harður árekstur varð á mótum Miklubrautar og Háaleitisbratuar laust fyrir klukkan hálf sex í kvöld. Þrennt lenti í árekstrinum og þurfti að flytja farþega annarar bifreiðarinnar á slysadeild. Slysið varð með þeim hætti að annar ökumaðurinn ók yfir á rauðu ljósi.

Pabbinn skildi dóttur sína eftir á lestarstöð

Ástralska lögreglan leitar nú að karlmanni sem talinn er hafa skilið dóttur sína eftir á lestarstöð í Melbourne. Á öryggismyndavél sést miðaldra karlmaður með ferðatösku leiða litla stúlku að lestarpalli í Melbourne í Ástralíu. Skömmu síðar sést hann aftur á öryggismyndavél, en þá án stúlkunnar.

Frakkar vígreifir gegn Íran

Frakkar hvöttu í dag til hertra viðskiptaþvingana gegn Íran en sögðu að leita yrði allra leiða til að koma í veg fyrir stríð.

Vill loka klukkan tvö

Stefán Eiríksson, lögreglustjóri Höfuðborgarsvæðisins, boðar stórhertar aðgerðir lögreglu í miðborginni. Hann vill láta takmarka opnunartíma skemmtistaða í miðbænum til klukkan tvö á nóttunni. Stefán segir að þeir staðir sem vilji hafa opið lengur verði að vera annarsstaðar í borginni. Þetta kom fram á Miðborgarþingi.

Kaþólska kirkjan greiðir þolendum kynferðisofbeldis bætur

Kaþólska kirkjan í Pittsburg í Bandaríkjunum hefur komið á fót styrktarsjóði til handa 32 einstaklingum sem urðu fyrir kynferðislegu ofbeldi af hálfu kaþólskra presta. Alls lagði kirkjan um 80 milljónir króna í sjóðinn en peningunum verður dreift til fórnarlambanna.

Leitin að Hörpunni heldur áfram

Jónas Garðarsson er á leið í fangelsi. Hann mun afplána þriggja ára dóm fyrir að bera ábyrgð á dauða þeirra Friðriks Hermannssonar og Matthildar Harðardóttur í sjóslysi í september 2005 þegar bátur hans Harpan steytti á skeri. Hér fyrir neðan er málið rakið frá nóttinni örlagaríku til dagsins í dag.

Treystir Svöfu fyrir milljarðinum

Róbert Wessman, forstjóri Actavis, hefur ákveðið að leggja fram 1 milljarð króna sem hlutafé og framlag í Þróunarsjóð Háskólans í Reykjavík, sem verið er að stofna. Róbert sagði í samtali við Vísi að hann teldi mikil tækifæri til þess að byggja upp samkeppnishæft alþjóðlegt háskólaumhverfi á Íslandi.

Stálhjálmur yfir Chernobyl

Yfirvöld í Úkraínu hafa samþykkt að byggð verði risastór stálbygging yfir geislavirkt svæði eftir versta kjarnorkuslys sögunnar í Chernobyl árið 1986. Franskt fyrirtæki hefur verið ráðið til að smíða stálbygginguna sem mun koma í stað molnandi steypubyggingar sem byggð var eftir slysið.

Saklaus maður sviptur frelsi

Liðlega tvítugur karlmaður hefur stefnt dómsmálaráðherra og fjármálaráðherra fyrir hönd íslenska ríkisins vegna ólögmætrar frelsissviptingar. Maðurinn var stöðvaður af lögreglu í Árnessýslu að morgni þriðjudagsins 22. mars 2005 vegna of hraðs aksturs. Hann var beðinn að koma í lögreglubifreið þar sem hann játaði brot sín. Hann var síðar sakaður um aðild að ólöglegri veru og vinnu útlendinga.

Slagsmál unglinga mynduð og sett á Netið

Slagsmál á meðal reykvískra unglinga voru tekin upp á myndband og sett á Netið. Samkvæmt heimildum Vísis eru unglingarnir á aldrinum 14-15 ára og nemendur í Réttarholtsskóla. Aðalbjörg Traustadóttir, framkvæmdastjóri hjá Þjónustumiðstöð Laugardals og Háaleitis, hafði ekki séð myndbandið þegar blaðamaður Vísis benti henni á það.

Aðgerðarleysi tefur byggingu

Allt bendir til þess að framkvæmdir vegna byggingu hjúkrunarheimilis við Eiðisgranda tefjist um eitt til tvö ár vegna aðgerðarleysis heilbrigðisráðuneytisins. Bæjarstjóri Seltjarnarness segir brýnt að framkvæmdirnar hefjist sem fyrst. Hann sendi heilbrigðismálaráðherra bréf fyrir þremur vikum þar sem óskað var eftir afstöðu hans til málsins. Ekkert svar hefur borist.

Ótti um öryggi lággjaldaflugfélaga

Flugslysið í Phuket í Taílandi í gær sem kostaði 88 manns lífið hefur vakið spurningar um hvort kostnaður lággjaldaflugfélaga gæti verið of mikill fyrir þau. Hlutabréf í Malasíska lággjaldafélaginu AirAsia, sem var hið fyrsta sinnar tegundar í Asíu, féllu í dag um rúmlega tvö og hálft prósent vegna ótta um öryggi lággjaldaflugfélaga.

McCann hjónin ekki aftur til Portúgals

Portúgalskur dómari hefur synjað beiðni lögreglunnar um að kalla McCann hjónin aftur til Portúgals, til frekari yfirheyrslu. Dómarinn ætlar þess í stað að senda bresku lögreglunni lista með spurningum og biðja hana um að leggja þau fyrir hjónin.

Sýndi löggunni beran afturendann

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði í mörg horn að líta um helgina og hafði alls afskipti af 46 einstaklingum sem brutu gegn lögreglusamþykktum Reykjavíkurborgar. Meðal annars var einn borgari tekinn fyrir að girða niður um sig buxurnar og bera á sér afturendann.

Frávísunarkrafa olíufélaganna samþykkt

Máli útgerðarfélagsins Dala-Rafns frá Vestmannaeyjum á hendur Keri og Olíuverslun Íslands var vísað frá í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Lögmaður útgerðarfélagsins segir úrskurðinn koma mjög á óvart og býst við að hann verði kærður til Hæstaréttar. Skeljungur fór ekki fram á frávísun í málinu, heldur sýknu, en óljóst er hvort málið heldur áfram gegn félaginu.

Hafðu stelpu með þegar þú ferð á séns

Nýtt fyrirtæki í Bandaríkjunum tekur að sér að koma karlmönnum á séns með því að senda stúlkur með þeim í samkvæmi eða öldurhús. Þetta hefur gengið svo vel að það er strax farið að opna útibú í öðrum löndum, meðal annars í Danmörku. Viðskiptavinirnir eru í skýjunum og segjast aldrei hafa kynntst jafn mörgum konum.

Rangar fullyrðingar um lyfjaverð á Íslandi

Allar fullyrðingar um að lyfjaverð á Íslandi sé hærra en í nágrannalöndum okkar eru úr lausu lofti gripnar. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá Samtökum framleiðenda frumlyfja. Þau benda á að frumlyf á íslenskum markaði séu ódýrari en í Danmörku. Samtökin vilja að stjórnvöld felli niður eða lækki virðisaukaskatt á lyfjum.

Slökkviliðið kallað að trésmíðaverkstæði

Betur fór en á horfðist þegar glóð kviknaði í loftræstikerfi á trésmíðaverkstæði vð Hvaleyrabraut í Hafnarfirði um hálftíuleytið í morgun. Enginn meiriháttar eldur varð en glóð logaði í sagi í loftræstikerfinu. Að sögn slökkviliðsins gerist slíkt nokkuð oft á smíðaverkstæðum og hafa stundum kviknað miklir eldar. Í þetta skiptið hafi farið vel og engar stórskemmdir orðið.

O.J. - Frá betrunarheimili til frægðar

O.J. Simpson var handtekinn í gærkvöldi fyrir vopnað rán á hótelherbergi í Las Vegas í Bandaríkjunum. Hann gæti átt von á allt að 30 ára fangelsisdómi verði hann fundinn sekur um rán með hættulegu vopni. Simpson var lengi holdgervingur ameríska draumsins og ímynd hans þótti brúa bil kynþátta. Eftir morð fyrrverandi eiginkonu hans snarbreyttist það og gæfan brosir ekki við hetjunni lengur.

Sjá næstu 50 fréttir