Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Norska prinsessan segist vera skyggn Norska prinsessan Marta Lovísa tilkynnti í dag að hún sé skyggn og að hún ætli sér að hjálpa fólki að tala við engla. Marta Lovísa, sem er 35 ára, er menntaður sjúkraþjálfari. 24.7.2007 16:02
Bandaríkin og Íran stofna sameiginlega nefnd um stöðugleika í Írak Bandaríkin og Íran ákváðu í dag að setja á fót sérstaka nefnd sem á að taka á því verkefni að auka stöðugleika í Írak. Ákvörðunin var tekin á öðrum fundi þessara landa en sá fyrsti var haldinn í maí síðastliðnum. Fundurinn entist í nærri sjö klukkutíma. 24.7.2007 15:16
Íslenskir auðmenn skrá einkaþotur sínar á Caymaneyjum Engin íslenskur forstjóri eða stórfyrirtæki hafa látið skrá einkaþotur sínar á Íslandi, en þær eru orðnar að minnstakosti fimm og tvær hið minnsta munu vera væntanlegar. 24.7.2007 14:56
Þrettán mótmælendur handteknir við álverið í Straumsvík Um þrettán mótmælendur á vegum samtakanna Saving Iceland voru handteknir vegna mótmæla við álverið í Straumsvík laust eftir klukkan tvö í dag. Hluti hópsins hlekkjaði sig við hlið að vinnusvæði álversins og tókst þannig að loka tímabundið fyrir alla umferð að svæðinu. Þá fóru nokkrir mótmælendur inn á vinnusvæðið. 24.7.2007 14:31
Lýsa yfir áhyggjum vegna sífellt flóknari reglna Sífellt flóknari regluverk um vigtun sjávarafla og aukin ábyrgð á starfsmenn hafna án endurgjalds frá ríkinu er áhyggjuefni að mati stjórnar Hafnasambands Íslands. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá sambandinu. 24.7.2007 14:05
Lohan tekin fyrir ölvunarakstur og að hafa kókaín í fórum sínum Lögreglan í Santa Monica handtók nú um hádegisbil leikkonuna Lindsay Lohan vegna ölvunaraksturs. Þá kom í ljós að hún var einnig með eiturlyf á sér. Samkvæmt vefsíðunni TMZ.com var um kókaín að ræða sem fannst þegar leitað var á Lohan á lögreglustöðinni. 24.7.2007 13:34
Þrír mótmælendur handteknir við álverið í Straumsvík Um 20 mótmælendur á vegum samtakanna Saving Iceland hafa stöðvað alla umferð að álverinu í Straumsvík. Þá hafa nokkrir mótmælendur farið inn á vinnusvæðið. Lögreglan hefur nú þegar handtekið þrjá mótmælendur. 24.7.2007 13:26
Framdi sjálfsmorð með handsprengju Fyrrverandi fangi í Gvantanamó fangelsinu á Kúbu framdi sjálfsmorð með handsprengju í Pakistan í dag, frekar en komast undir manna hendur. Abdullah Mehsud var handtekinn í Afganistan þar sem hann barðist með Talibönum. 24.7.2007 13:13
Vegagerðin ætlar ekki að fjölga ferðum Herjólfs um Verslunarmannahelgina Vegagerðin mun ekki verða við beiðni Vestmannaeyjabæjar um að bæta við fleiri næturferðum með Herjólfi um Verslunarmannahelgina. Ástæðurnar eru aukinn kostnaður og það að ekki er uppselt í þær ferðir sem áður hafði verið bætt við. Bæjarstjóri Vestmannaeyja segir þetta mikil vonbrigði. 24.7.2007 13:09
Iðnaðarráðuneytið endurskoðar virkjanaleyfi Múlavirkjunar Iðnaðarráðuneytið vinnur að endurskoðun virkjanaleyfis Múlavirkjunar á Snæfellsnesi, í ljósi þess að framkvæmdir á svæðinu eru ekki í samræmi við upphaflegar áætlanir. 24.7.2007 13:02
Lentu flugvél á þjóðvegi Kennsluflugvél úr síðari heimsstyrjöldinni var nauðlent á þjóðvegi í Wisconsin í Bandaríkjunum í gær vegna vélarbilunar. Vélin lenti innan um bíla sem voru þar á ferð, og varð að vonum uppi fótur og fit. 24.7.2007 13:00
Heilbrigðisstarfsfólk loksins frjálst Sex heilbrigðisstarfsmenn sem hafa setið í fangelsi í Líbýu í átta ár eru komnir heim til Búlgaríu. Fólkið var sakað um að hafa vísvitandi sýkt yfir 400 libysk börn af alnæmi. 24.7.2007 12:56
Þrír unglingar slösuðust í bílveltu í gærkvöldi Þrír sautján ára unglingar slösuðust, en enginn alvarlega, þegar bíll þeirra valt út af Reykjanesbraut norðan við Kúagerði um klukkan ellefu í gærkvöldi. 24.7.2007 12:53
Lögreglubílum fjölgað undanfarin ár Lögreglubílum hefur fjölgað, meðalaldur þeirra lækkað og akstur þeirra aukist verulega, frá því að Ríkislögreglustjóri tók við innkaupum og rekstri allra lögreglubíla í landinu fyrir nokkrum árum. 24.7.2007 12:49
Laxveiði að glæðast á ný Laxveiði er víða að glæðast eftir mjög lélega veiði að undanförnu, sem aðallega er rakin til vatnsleysis í ánum vegna þurrka. 24.7.2007 12:47
Legnámsaðgerðir algengar hér á landi Hlutfallslega flestar legnámsaðgerðir voru framkvæmdar hér á landi árið 2004 borið saman við hin Norðurlöndin samkvæmt samantekt Norræna heilbrigðistölfræðiráðsins. Alls voru 365 slíkar aðgerðir framkvæmdar á Íslandi á hverja 100 þúsund íbúa en næst flestar voru aðgerðirnar í Finnlandi eða 354 talsins. 24.7.2007 12:45
Sautján ára tekinn fyrir fjögur innbrot Lögreglan á Akureyri hefur haft hendur í hári unglings á sautjánda ári, sem framið hefur mörg innbrot í bænum að undanförnu og var að koma sér upp glæpaklíku. 24.7.2007 12:44
Skýfall í höfuðborginni í gærkvöldi Úrhellis rigningu eða skýfall gerði á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöldi og var slökkviliðið kallað í þrjú hús til að dæla út vatni, sem kom upp úr niðurföllum í þeim. 24.7.2007 12:42
Rúmlega fimmtíu styrkir veittir úr tónlistarsjóði Alls voru veittir 51 styrkur úr tónlistarsjóði fyrir seinni helming þessa árs samkvæmt tilkynningu frá menntamálaráðuneytinu. Hæsta styrkinn hlaut tónlistarhátíðin Ung Nordisk Musik eða 3 milljónir króna. Þá fékk Hamrahlíðarkórinn ferðastyrk upp á 800 þúsund krónur. 24.7.2007 12:06
Varnargarðar reistir meðfram Thames-ánni Breskar björgunarsveitir hamast nú við að byggja varnargarða neðarlega meðfram Thamesá þar sem búist er við miklum flóðum á næstu dögum. Hundruð þúsunda manna hafa enn ekki neitt hreint vatn til drykkjar, en verið er að koma rafmagni á á nýjan leik. 24.7.2007 11:43
Frambjóðendur demókrata tókust á með hjálp YouTube Í gærkvöldi sátu átta frambjóðendur demókrata til forsetakosninga í Bandaríkjunum fyrir svörum í fyrstu kappræðunum þar sem einungis er stuðst við spurningar sem áhorfendur senda inn á netinu. Kappræðurnar voru samstarfsverkefni CNN fréttastöðvarinnar og myndbandavefsins Youtube. Smellið á „Spila“ hnappinn til þess að sjá myndbrot frá kappræðunum. 24.7.2007 11:22
Klikkuðu DARPA- vísindamennirnir Ef það er klikkað og getur drepið fólk, varið hermenn eða njósnað um óvini þá geturðu verið viss að DARPA er að fjármagna þróun þess. DARPA stendur fyrir Defense Advanced Research Projects Agency eða Rannsóknarstofnun hátækni-varnarbúnaðar. 24.7.2007 11:00
Spánverjar handtaka rússneskan njósnara Spænska leyniþjónustan handtók í morgun grunaðan gagnnjósnara sem talið er að hafi sent ýmis ríkisleyndarmál til Rússlands. Alberto Saiz, yfirmaður leyniþjónustunnar skýrði frá þessu í morgun. Gagnnjósnarinn hafði unnið fyrir rússa síðastliðin þrjú ár. Ekki var gefið upp hversu lengi hann hafði unnið fyrir Spánverja. 24.7.2007 10:36
Mikil eftirspurn eftir íbúðum á gamla varnarsvæðinu Umsóknir bárust um allar þær 300 íbúðir sem leigja á út á gamla varnarsvæðinu í fyrsta áfanga. Fyrstu íbúarnir komu í morgun til að undirrita leigusamninga en áætlað er að um 700 manns muni búa á svæðinu frá ágústlokum. 24.7.2007 10:35
Líbýa og Evrópusambandið skrifuðu undir samstarfssamning Utanríkisráðherra Líbýu sagði í morgun að heilbrigðisstarfsfólkið sem hafði verið í haldi í landinu hefði verið sent til Búlgaríu eftir að Evrópusambandið og Líbýa skrifuðu undir samstarfssamning. 24.7.2007 10:27
Mannlaus bíll keyrði á hús Húsráðanda á Akranesi brá heldur betur í brún í gær þegar mannlaus bifreið kom niður götuna og keyrði beint á húsið hans. Ökumaður hafði skroppið út úr bílnum en hins vegar láðst að taka bifreiðina úr akstursgír. Bíllinn rann 150 metra áður en hann keyrði á húsið. 24.7.2007 10:21
80 þúsund heimili rafmagnslaus í Barcelona í dag Um 80 þúsund heimili í Barcelona, næststærstu borg Spánar, sjá í dag fram á annan daginn í röð án rafmagns. Rafmagnskapall slitnaði í gær og varð til þess að eldar kviknuðu á fjölmörgum rafstöðum. Í gær voru allt að 300 þúsund heimili rafmagnslaus vegna atviksins. 24.7.2007 10:03
Veiðifélag hafnar virkjunum í Þjórsá Hætta er á að lífríki í neðri hluta Þjórsár raskist komi til virkjunarframkvæmda þar að mati Veiðifélags Þjórsár. Félagið skorar á Landsvirkjun að falla frá virkjunarframkvæmdum á svæðinu og á sveitarstjórn Flóahrepps að hafna Urriðafossvirkjun í skipulagi sveitarinnar. Félagið lýsir þungum áhyggjum vegna virkjunarinnar. 24.7.2007 09:59
Berjast gegn siðleysi í klæðaburði Lögregla í Íran skar í gær upp herör gegn ósiðlega klæddu kvenfólki, og karlmönnum með vestrænar hárgreiðslur. Tugir lögreglumanna gengu um götur Teheran og stöðvuðu fólk sem ekki klæddi sig í samræmi við íslamskar siðsemisreglur. Hundruð manna hafa verið handtekin frá því í apríl, þegar lög voru sett sem um klæðaburð, en nú á að herða sóknina gegn siðleysinu. Viðurlög við brotunum geta verið hýðingar, sektir eða fangelsisvist. 24.7.2007 09:56
Mugabe ætlar að þjóðnýta fyrirtæki í Zimbabwe Robert Mugabe, forseti Zimbabwe, mun á næstunni kynna nýtt frumvarp um þjóðnýtingu og annað þess efnis að forseti landsins verði ekki kosinn af almenningi heldur þingmönnum. Zimbabwe, sem var áður eitt gjöfulasta land í suðurhluta Afríku, berst nú í bökkum vegna mikils matarskorts og gríðarlegrar verðbólgu. 24.7.2007 09:42
Laxveiði tekur við sér Laxveiði er víða að glæðast eftir mjög lélega veiði að undanförnu, sem aðallega er rakið til vatnsleysis í ánum vegna þurrka. Vatnið í þeim hefur líka hlýnað upp úr öllu valdi þannig að laxinn hefur legið og ekki viljað taka beitu. Víða hefur hann líka legið út af árósunum og ekki gengið upp, eða hafst við í jökulánum og ekki gengið upp i ferskar þverárnar vegna vatnsleysis. Dæmi voru um að veiðimenn reyndu ekki einu sinni að nýta veiðileyfi sín, en nú er dæmið hvarvetna að snúast við. 24.7.2007 08:36
Fleiri apótek á íbúa á Íslandi en hinum Norðurlöndunum Mun færri íbúar eru á hvert apótek hér á landi en á hinum Norðurlöndunum. Munurinn er mestur á Íslandi og Danmörku þar sem tæplega 17 þúsund manns eru á hvert apótek, er rösklega fimm þúsund hér á landi. Páll Pétursson formaður lyfjagreiðslunefndar segir í viðtali við Blaðið að ef apótekum fækkaði hér á landi myndi lyfjaverð lækka. Slíkt yrði þó ekki gert með lagasetningu.- 24.7.2007 08:35
Bandaríkin munu beita sér fyrir viðurkenningu sjálfstæði Kosovo Leiðtogar Kosovo sögðu á fundi með Condoleezzu Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, í Washington í morgun að þeir myndu ekki lýsa yfir sjálfstæði án samráðs við Bandaríkin. Rice fullvissaði þá um að Bandaríkin myndu beita sér fyrir alþjóðlegri viðurkenndingu á sjálfstæði Kosovo innan nokkurra mánaða, jafnvel án ályktun frá Öryggisráði Sameinuðu þjóðanna. Þrátt fyrir að Kosovo sé opinberlega hluti af Serbíu, hafa Sameinuðu þjóðirnar og NATO farið með stjórn þar frá árinu 1999. 24.7.2007 08:24
Bandaríkin og Íran funda Embættismenn frá Bandaríkjunum og Íran funda nú um öryggismál í Írak. Þetta er einungis annar fundur ríkjanna í 27 ár, en þau hittust einnig í lok maí á þessu ári. Bandaríkin saka Íran um að styða vígamenn sem ráðast á herlið Bandaríkjanna og Bretlands í Írak, en Íran kennir veru bandaríkjamanna hinsvegar um öryggisástandið þar. Þúsundir manns látast í átökum í Írak í hverjum mánuði. 24.7.2007 08:21
Fyrstu netkappræðurnar Frambjóðendur demókrata til forsetakosninganna í Bandaríkjunum á næsta ári hafa nýhafið kappræður á netinu, þær fyrstu sinnar tegundar. Í kappræðunum verður spurningum frá almenningi varpað til frambjóðendana í þrjátíu sekúndna löngum myndskilaboðum í gegnum myndbandsvefinn YouTube. 23.7.2007 23:37
Bílslys á Reykjanesbraut Bílslys varð á Reykjanesbraut norðanmegin við Kúagerði nú fyrir skömmu. Lögregla og sjúkraflutningamenn eru á staðnum og samkvæmt lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu er talið einhverjir séu fastir í bílum. Lögreglan hafði ekki frekari upplýsingar um slysið að svo stöddu. 23.7.2007 23:21
Hæstu salerni í Evrópu Tveimur salernum hefur verið komið fyrir nálægt toppi Mont Blanc, að því er fram kemur á fréttavef Ananova, og eru þau hæstu salerni í Evrópu. Meira en þrjátíu þúsund manns klífa Mont Blanc á hverju ári og að sögn Jean-Marc Peillex, bæjarstjóra í Chamonix í Frakklandi, var löngu orðið tímabært að koma salernunum fyrir. 23.7.2007 22:19
Sprenging í bókaútgáfu í Saudí-Arabíu Sprenging hefur orðið í bókaútgáfu í Saudí-Arabíu síðastliðin tvö ár og um helmingur höfunda árið 2006 voru konur. 26 skáldsögur voru gefnar út árið 2005 en þær voru um 50 árið 2006. Aukningin er að miklu leyti rakin til bókarinnar sem ber enska titilinn "Girls of Riyadh" eftir Raja Alsanea. 23.7.2007 21:50
Verðlag enska boltans Eftir rétt um þrjár vikur hefst útsending á enska boltanum á sjónvarpsstöðinni SÝN 2. Deilt hefur verið á verðlagið á stöðinni sem sumir telja alltof dýra. 23.7.2007 21:15
Á skaki frá Rifi Það er bölvað basl að standa í trilluútgerð segir Sigurður Páll Jónsson trillukarl. Hann segir kvótaverð orðið svo hátt að menn séu hættir að geta veitt upp í kostnað. 23.7.2007 21:03
Læknanýlenda í Ungverjalandi Milli fimmtíu og sextíu Íslendingar stunda nú nám í læknisfræði í Ungverjalandi. Stærstur hluti þeirra reyndi að komast í læknisfræði við Háskóla Íslands en hafði ekki erindi sem erfiði. Læknanámið ytra er fullgilt á Íslandi, sem og í öðrum löndum innan ESB. 23.7.2007 20:58
Kosovo mun ekki lýsa yfir sjálfstæði Leiðtogar Kosovo fullvissuðu Condoleezzu Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, á fundi í Washington í dag um þeir hefðu ekki í hyggju að lýsa yfir sjálfstæði. Skender Hyseni, talsmaður leiðtoga Kosovo, sagði fundinn staðfesta að Kosovo muni áfram vera í nánu samstarfi við bæði Bandaríkin og Sameinuðu þjóðirnar 23.7.2007 20:21
Sveitarstjórn hundsar eftirlitsskyldu vegna virkjunar Skipulagsstofnun telur Eyja- og Miklaholtshrepp hafa hundsað eftirlitsskyldu sína gagnvart Múlavirkjun á Snæfellsnesi. Framkvæmdir eru ekki í samræmi við þau gögn sem stuðst var við þegar stofnunin mat að virkjunin skyldi undanskilin mati á umhverfisáhrifum. Oddviti sveitarstjórnarinnar er jafnframt er forsvarsmaður virkjunarinnar. 23.7.2007 19:33
Þjófóttur mávur Nokkuð útsjónasamur mávur hefur undanfarið verið iðinn við að ræna pökkum af kartöfluflögum úr lítilli verslun í Skotlandi. Mávurinn virðist vita alveg upp á hár hvað hann vill og tekur alltaf sömu tegundina af flögum. 23.7.2007 19:26
Danir gefast upp á Tetra-kerfinu Danskir slökkviliðsmenn hafa gefist uppá Tetra fjarskiptakerfi sem hefur verið til reynslu í Kaupmannahöfn í nokkurn tíma. Í Bretlandi hafa líka orðið vart um vandræði með samskonar kerfi. Framkvæmdastjóri Neyðarlínunnar segir kerfin ekki sambærileg við það íslenska, sem sé nýjustu gerðar. 23.7.2007 19:17