Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Gervifæturnir frá Össuri of góðir? Óvíst er hvort fótalausi hlauparinn Oscar Pistorius fær að keppa á Ólympíuleikunum í Peking árið 2008. Ástæðan er sú að gervifætur hans frá Össuri eru taldir gefa honum óeðlilegt forskot á aðra hlaupara. Pistorius er tvítugur Suður-Afríkubúi sem fæddist með beinlausa kálfa. Hann var aðeins ellefu mánaða gamall þegar báðir fætur hans voru teknir af fyrir neðan hné. 15.5.2007 10:46
Landsbankinn opnar nýtt útibú Landsbankinn opnar nýtt útibú við Vínlandsleið í Grafarholti í dag en útibúið tekur við af Grafarvogsútibúi. Hið nýja húsnæði er mun stærra en það gamla og mun þjónusta einstaklinga jafnt sem fyrirtæki. 15.5.2007 10:45
Sakfelldur fyrir að smygla 13 tonnum af hassi til Danmerkur Dómstóll í Danmörku sakfelldi í morgun mann fyrir morð og fyrir að smygla þrettán tonnum af hassi til landsins, en það er mesta magn efnisins sem smyglað hefur verið til Danmörku. 15.5.2007 10:09
Sjálfstæðisráðherrar hafa lokið fundi sínum Ríkisstjórnarfundi lauk laust fyrir klukkan tíu en fundurinn stóð í 20 mínútur. Ráðherrar Framsóknarflokksins fóru þá úr húsi en sjálfstæðismenn funduðu áfram. 15.5.2007 10:01
24 létu lífið í sprengjuárás í Pakistan 24 létu lífið og 30 særðust í borginni Peshawar í Pakistan í dag en sprengju hafði verið komið fyrir í andyri hótels. Afganir eru reglulegir gestir á hótelinu og er það einnig nálgæt þekktri mosku á svæðinu. Peshawar er í norðvesturhluta Pakistan en róstursamt hefur verið þar undanfarna mánuði. 15.5.2007 09:54
DHL harmar misbrest í afgreiðslu utankjörfundaratkvæða Flutningafyrirtækið DHL hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem mistök við afgreiðslu utankjörfundaratkvæða sem send voru frá Boston eru hörmuð. Starfsmenn sem sinna öryggiseftirliti í borginni ákváðu að kanna innihald umslagsins nánar. Vanalega er það ekki gert hafi umslaginu verið lokað í viðurvist starfsmanna DHL. Fyrirtækið lítur málið mjög alvarlegum augum segir í tilkynningunni. 14.5.2007 23:41
Óeirðir halda áfram í Kristjaníu Óeirðir héldu áfram í Kristjaníu í Kaupmannahöfn nú í kvöld. Íslendingur sem leggur stund á ljósmyndanám í borginni var á staðnum og myndaði aðgerðir lögreglu. Ekkert lát virðist vera á óeirðunum sem standa vegna ákvörðunar borgaryfirvalda um að rífa timburhúsið Vindlakassann. 14.5.2007 23:15
Aðstoðardómsmálaráðherra Bandaríkjanna segir af sér Paul McNulty aðstoðardómsmálaráðherra Bandaríkjanna hefur ákveðið að segja af sér. Dómsmálaráðuneyti Bandaríkjanna skýrði frá því að hann hefði lagt inn afsagnarbeiðni sína. McNulty flæktist í umdeildar uppsagnir nokkurra ríkissaksóknara sem Bush stjórnin fyrirskipaði. Hann var lykilmaður í viðræðum og fundum vegna uppstokkunarinnar. 14.5.2007 22:42
Óvenju mörg umferðaróhöpp um helgina Óvenju mörg umferðaróhöpp voru tilkynnt lögreglu um nýliðna helgi, eða 69 talsins. Á vef lögreglunnar kemur fram að þetta sé meira en gengur og gerist. 14.5.2007 22:38
Framsóknarmenn funda á Hverfisgötu Framsóknarmenn sitja nú á fundi í höfuðstöðvum flokksins við Hverfisgötu. Á fundinum eru ráðherrarnir Jón Sigurðsson og Jónína Bjartmarz sem féllu út af þingi í Alþingiskosningunum um helgina. Auk þeirra sitja fundinn aðrir þingmenn flokksins. 14.5.2007 22:14
Ferðamaður slasaðist í Surtshelli Erlendur ferðamaður slasaðist lítilsháttar í Surtshelli í eftirmiðdaginn í dag og var fluttur með sjúkrabíl á Akranes. Þar var gert að sárum mannsins sem er frá Kanada. Hann datt í hellinum og fékk áverki á höfuð. Sauma þurfti skurð á enni mannsins en hann var útskrifaður af sjúkrahúsinu á Akranesi undir kvöld. 14.5.2007 21:53
Keyrt á dreng við KR völlinn Fólksbifreið ók á átta ára gamlan dreng á Kaplaskjólsvegi við KR áhorfendastúkuna um níu leitið í kvöld. Drengurinn var á reiðhjóli og með hjálm, og mun hafa slasast lítillega að sögn lögreglu á höfuðborgarsvæðinu. Sjúkralið kom á vettvang og hlúði að drengnum en hann er nú til skoðunar á slysadeild. 14.5.2007 21:29
Endurnýjun á samstarfi D og B nauðsynleg Geir H. Haarde sagði í dag að endurnýjun á sáttmála milli Sjálfstæðisflokks og Framsóknar væri nauðsynleg og hugsanlega breytt verkaskipting eftir fylgistap framsóknar í kosningunum. Ekki væri þó þörf á stjórnarmyndunarviðræðum nú þar sem stjórnin hefði haldið velli. Talsverðar efasemdir hafa heyrst meðal manna í röðum flokksins hvort endurnýja eigi samstarf við Framsókn. 14.5.2007 20:53
Athyglissjúkt andapar í tilhugalífinu Andarsteggur sem átti leið um Skaftahlíðina beitti afar óvenjulegri aðferð til að ganga í augun á kollu sem var þar skammt hjá. Hann vildi ekkert gefa upp um það hvort aðferðin væri algeng í tilhugalífi anda en svo virðist sem hún hafi borið árangur. 14.5.2007 20:41
Niðurstöður kosninga í samræmi við veður Niðurstöður kosninganna á laugardag eru í góðu samræmi við veðrið á kjördag. Eins og greint hefur verið frá virðast náin tengsl vera á milli veðurs á kjördag og úrslita kosninga. Sigurður Þ. Ragnarsson bar saman úrslit kosninganna við veðrið á kjördag og komst að ýmsu forvitnilegu eins og fréttin hér ber með sér. 14.5.2007 20:30
Kvótasvindl fyrirtækis á Norðurlandi til rannsóknar Fiskistofa hefur til rannsóknar stórfellt kvótasvindl hjá fiskvinnslufyrirtæki á Norðurlandi. Fyrir liggur vitnisburður um að þetta fyrirtæki hafi landað framhjá vigt að minnsta kosti þúsund tonnum af þorski á ári í sex ár. Með þessu hefur verið skotið undan verðmætum uppá vel yfir hálfan annan milljarð króna. 14.5.2007 20:21
Stjórnin hefði fallið ef vægi atkvæða væri jafnt Ef öll atkvæði í landinu hefju jafnmikið vægi hefðu stjórnarflokkarnir fengið 30 þingmenn og fallið en stjórnarandstaðan fengi 33 þingmenn. Mismörg atkvæði eru á bak við hvern þingmann samkvæmt núverandi kosningakerfi. Þetta gerir það að verkum að stjórnarflokkarnir halda meirihluta þingmanna - 32 - þrátt fyrir að stjórnarflokkarnir séu að fá samtals minnihluta atkvæða eða 48,3 prósent. 14.5.2007 20:14
Rice: Ekkert kalt stríð í uppsiglingu Condoleezza Rice utanríkisráðherra Bandaríkjanna hafnar því að nýtt kalt stríð sé í uppsiglingu en hún kom til Rússlands í dag. Rússar eru uggandi yfir uppsetningu bandarísks eldflaugavarnakerfis í Póllandi sem þeir telja að sé beint gegn sér. 14.5.2007 19:45
Túlkur í yfirheyrslu vegna hvarfs Madeleine Fréttastofa Sky greindi frá því nú rétt í þessu að maður hefði verið færður til yfirheyrslu á lögreglustöð í Portúgal vegna hvarfsins á Madeleine McCann. Verið er að leita í húsi sem er stutt þaðan sem hin þriggja ára gamla stúlka hvarf. Maðurinn mun vera túlkur og hafði sagt fólki að hann væri að aðstoða lögregluna við rannsóknina. 14.5.2007 19:35
Þrjú þúsund kengúrum verður lógað Dýraverndunarsinnar eru æfir yfir þeim áformum borgaryfirvalda í Canberra í Ástralíu að fella yfir þrjú þúsund kengúrur á næstunni. Kengúrum hefur fjölgað mikið í námunda við höfuðborgina og því óttast ráðamenn að þær verði í framtíðinni aðgangsharðari í matarleit sinni. 14.5.2007 19:30
Útstrikanir Björns enn í talningu Útlit er fyrir að útstrikanir á Birni Bjarnasyni og Árna Johnsen verði til þess að færa þá niður um eitt sæti á listum sínum. Enn er verið að telja atkvæði með útstrikunum. Á Suðurlandi strikaði ríflega fimmtungur kjósenda flokksins yfir nafn Árna Johnsen. Þetta veldur því að Kjartan Ólafsson færist upp fyrir Árna og verður annar kjördæmakjörinn þingmaður flokksins í Suðurkjördæmi en Árni verður þriðji. 14.5.2007 19:22
Josh Groban á Íslandi Bandaríski tónlistarmaðurinn Josh Groban treður upp í Laugardalshöllinni á morgun. Groban sem kom til landsins í gær er heillaður af landi og þjóð. 14.5.2007 19:14
Heilsast vel á afmælisdeginum Forseti Íslands hafði í nógu að snúast í dag þegar barnahópur heimsótti hann á afmælisdeginum. Heilsa forsetans er með besta móti en aðeins er rúm vika síðan hann var fluttur á spítala með hraði. Hann segir atvikið ekki hafa áhrif á ákvörðun sína um hvort hann bjóði sig aftur fram sem forseta. 14.5.2007 19:10
Sætar stelpur á glugga Geirs Guðni Ágústsson varaformaður Framsóknarflokksins segir bæði Samfylkingu og Vinstri græna komna á gluggann hjá Geir Haarde til að vera næstsætasta stelpan á ballinu. Hann segir alveg ljóst að Framsóknarflokkur gefi eftir ráðuneyti til Sjálfstæðisflokks, endurnýi flokkarnir samstarf sitt. 14.5.2007 19:07
Tilbúinn að aðstoða ef til þess kemur Því var velt upp í aðdraganda kosninganna hvert hlutverk Ólafs Ragnars Grímssonar, forseta Íslands, gæti orðið við myndun ríkisstjórnar eftir kosningar. Sjálfur segir hann eðlilegast að stjórnmálaflokkarnir leysi málið sín á milli en hann sé þó tilbúinn að aðstoða ef til þess kemur. 14.5.2007 19:06
Enn tekist á í Kaupmannahöfn Til harkalegra átaka kom á milli óeirðalögreglu og mótmælenda í Kristjaníu í Kaupmannahöfn í dag. Tólf voru handteknir í átökunum og nokkrir slösuðust enda var táragasi og kylfum óspart beitt. 14.5.2007 19:00
Breiðþota lenti með veikan farþega Breiðþota Air France flugélagsins af Boeing 777-300 gerð millilenti á Keflavíkurflugvelli síðdegis í dag með veikan farþega. Sjúkrabifreið ók með manninn á sjúkrahús í Reykjavík. Vélin var á leið frá París til Los Angeles í Kaliforníu þegar ákveðið var að lenda hér á landi. 14.5.2007 18:17
Fara ekki heim fyrr en Maddie er fundin Foreldrar Madeleine McCann, litlu telpunnar sem rænt var í Portúgal fyrir tæpum tveimur vikum, eru viss um að dóttir þeirra sé heil á húfi og ætla ekki að snúa aftur til Bretlands fyrr en hún er komin í leitirnar. Eggert Magnússon, stjórnarformaður West Ham, er á meðal þeirra sem lofað hafa þeim fé sem varpað geta ljósi á hvarf Madeleine. 14.5.2007 18:00
Sautján ára sviptur á 171 km Sautján ára piltur var sviptur ökuréttindum um helgina þegar hann mældist á 171 km hraða á Vesturlandsvegi. Einungis þrjár vikur eru síðan pilturinn fékk bílpróf. Að sögn lögreglu voru alls 69 umferðaróhöpp tilkynnt til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu um helgina og er það yfir meðallagi. Í sjö tilfellanna var grunur um ölvun, eða áhrif lyfja. 14.5.2007 17:53
Helgi Tómasson sæmdur stórkrossi fálkaorðunnar Helgi Tómasson var sæmdur stórkrossi hinnar íslensku fálkaorðu við tilfinningaþrungna athöfn á Bessastöðum í dag. Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands afhenti Helga verðlaunin sem eru æðsta viðurkenning lýðveldisins til einstaklinga. Halldór Laxness hlaut viðurkenninguna á sínum tíma. 14.5.2007 17:35
Fangelsi og miskabætur vegna líkamsárásar Karlmaður var í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag dæmdur í fjögurra mánaða fangelsi, þar af tvo mánuði skilorðsbundna, fyrir að hafa ráðist á annan mann, kýlt hann í jörðina og svo sparkað í hann. 14.5.2007 16:56
Eins mánaðar fangelsi fyrir að vera með falsað vegabréf Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í dag rúmenskan ríkisborgara í eins mánaðar fangelsi fyrir að framvísa fölsuðu vegabréfi. Upp komst um brotið þegar maðurinn hugðist kaupa sér flugmiða á Reykjavíkurflugvelli til Færeyja í desember síðastliðnum en hann var þá í farbanni. 14.5.2007 16:45
Dæmdur í fangelsi fyrir ofsakstur Karlmaður var í dag í Héraðsdómi Reykjavíkur dæmdur í 12 mánaða fangelsi, þar af þrjá óskilorðsbundna, fyrir ofsakstur. Þá var manninum einnig gert að greiða 300 þúsund krónur í sekt til ríkissjóð. 14.5.2007 16:35
Stolni sendibíllinn fannst Hvítur sendibíll sem var stolið fyrir utan Nóatún í porti JL hússins í hádeginu í dag fannst síðdegis í Yrsufelli, óskemmdur. Sendibíllinn er frá heildsölunni Bugt og var að koma með vörur í verslunina. Lyklarnir voru í bílnum. Þjófurinn beið færis eftir því að ökumaðurinn færi inn í verslunina og keyrði svo á brott. 14.5.2007 16:33
Reykjavík styrkir björgunarsveitir um 18 milljónir Reykjavíkurborg mun styrkja fjórar björgunarsveitar á höfuðborgarsvæðinu um 18 milljónir króna á næstu þremur árum. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, borgarstjóri, undirritaði samkomulag þessa efnis í dag. 14.5.2007 16:25
Fjögurra mánaða fangelsi fyrir heimilisofbeldi Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt karlmann í fjögurra mánaða fangelsi fyrir líkamsárás gagnvart sambýliskonu sinni. Var honum gefið að sök að hafa kýlt hana í andlit og höfuð þannig að hún hlaut skurð á höfði, fyrir ofan efri vör og missti fjórar tennur. 14.5.2007 16:16
Skemmtiferðaskip strandar við Alaska Flytja varð vel á þriðja hundrað manns frá borði skemmtiferðaskips þegar það strandaði við suðausturhluta Alaska snemma í morgun. 14.5.2007 15:55
Réttarhöld vegna árekstrar í lofti Réttarhöld hefjast í Sviss á morgun yfir átta starfsmönnum flugumferðarstjórnar-fyrirtækisins Skyguide vegna árekstrar í lofti árið 2002, sem kostaði 71 mann lífið. Flest fórnarlambanna voru börn. Rússneskur fjölskyldufaðir myrti yfirflugumverðarstjórann síðar með hnífi, en hann missti eiginkonu sína og dóttur í slysinu. 14.5.2007 15:43
Kanna verður sein viðbrögð vegna veikinda við Kárahnjúka Kanna verður betur afhverju ekki var brugðist fyrr við þegar hópur vinnumanna veiktist við Kárahnjúkavirkjun í síðasta mánuði. Þetta kemur fram í nýútkomnum Farsóttafréttum sóttvarnarlæknis. 14.5.2007 15:26
Haraldur tekur við af Ragnheiði Ákveðið hefur verið að Haraldur Sverrisson taki við af Ragnheiði Ríkharðsdóttur sem bæjarstjóri í Mosfellsbæ í sumar þegar Ragnheiður heldur til starfa á Alþingi. 14.5.2007 15:08
Kosningakerfið andsnúið Frjálslynda flokknum Kosningakerfið er andsnúið Frjálslynda flokknum að mati Guðjóns Arnars Kristjánssonar, formanns Frjálslynda flokksins. Hann segir atkvæði greidd flokknum nýtast illa enda séu þingmenn frjálslyndra með flest atkvæði á bak við sig. Þetta kemur fram á fréttavef Bæjarins Besta. 14.5.2007 14:49
Danskur hermaður féll - fimm særðust Einn danskur hermaður féll og fimm félagar hans særðust í fyrirsát í Írak, í dag. Danirnir voru á eftirlitsferð í brynvörðum bíl sem varð fyrir vegsprengju. Henni var fylgt eftir með skothríð úr öllum áttum. Danirnir svöruðu skothríðinni og kölluðu eftir liðsauka. 14.5.2007 14:33
Þingflokkur sjálfstæðismanna fundar í kvöld Þingflokkur Sjálfstæðisflokksins kemur saman til fundar í þinghúsinu í kvöld klukkan sex en þar stendur ekki til að ræða sérstaklega hugsanlegt áframahaldandi stjórnarsamstarf við Framsóknarflokkinn, að sögn Arnbjargar Sveinsdóttur þingflokksformanns. 14.5.2007 14:26
Máttur auglýsinganna Fimm hæða íbúðarhús valt framyfir sig í indverska bænum Surat, í gær. Ástæðan var risastór auglýsingaskilti sem höfðu verið sett upp á þaki hússins. Íbúunum tókst að forða sér þegar sást í hvað stefndi. Húsið er gjörónýtt. 14.5.2007 14:19
Áttaði sig ekki á því að hún var ölvuð Betur fór en á horfðist þegar kona á þrítugsaldri missti stjórn á bifreið sinni í gærmorgun með þeim afleiðingum að hún keyrði á vegrið við Grettisgötu í Reykjavík. Bæði bíll og vegrið skemmdust töluvert en konan slapp ómeidd. Konan hafði setið við drykkju um nóttina og ekki áttað sig á því að hún var enn undir áhrifum. 14.5.2007 14:16