Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Frekari rannsóknir þarf fyrir nýjan Reykjavíkurflugvöll Reykjavíkurflugvöllur er á mjög góðum stað frá sjónarmiði flugsamgangna og flugrekenda. Flugvallarsvæðið er hins vegar mjög dýrmætt sem byggingarland. Þjóðhagslegir útreikningar sýna að flugvöllur á Hólmsheiði, Lönguskerjum eða flutningur innanlandsflugs til Keflavíkurflugvallar muni skila miklum ábata. Þetta er niðursstaða skýrslu um framtíð Reykjavíkurflugvallar sem var birt í dag. 4.5.2007 15:41
Vitna leitað af hátíðinni „Aldrei fór ég suður“ Lögreglan á Vestfjörðum leitar eftir vitnum að ofbeldisbroti sem framið var á tónlistarhátíðinni „Aldrei fór ég suður.“ Um klukkan tvö að nóttu þann 8. apríl síðastliðinn mun karlmaður hafa brotið gegn ungri stúlku á færanlegu salerni á tónleikasvæði hátíðarinnar. Karlmaðurinn er talinn vera 170 til 180 cm á hæð og var klæddur íslenskri lopapeysu með bekk. Stúlkan var gestur á hátíðinni. 4.5.2007 15:20
Sjakalinn aftur fyrir rétt Hryðjuverkamaðurinn Carlos öðru nafni Sjakalinn verður aftur dreginn fyrir dóm í Frakklandi á næstunni. Í þetta skipti lúta ákærurnar að hryðjuverkum sem hann framdi í landinu á níunda áratugnum. Sjakalinn afplánar þegar lífstíðardóm í fangelsi fyrir ódæðisverk sín. Nafnið fékk hann eftir bók Fredericks Forsythe, Dagur sjakalans. 4.5.2007 14:51
Þröstur byggir sér hjólhýsi Þegar Björg Erlingsdóttir á Höfn tók fram reiðhjólið í gærmorgun hafði þröstur gert sér hreiður í körfunni á hjólinu. Björg segist hafa séð mosatægjur í körfunni í fyrrakvöld og héld að þar hefðu börn átt í hlut. Raunin var sú að þröstur var byrjaður að leggja þar grunn að hreiðri. 4.5.2007 14:15
Amfetamín og skotvopn fundust við húsleitir Lögreglan lagði hald á töluvert magn af amfetamíni við húsleitir á tveimur stöðum á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöld og nótt. Í annarri íbúðinni fundust jafnframt skotvopn. Tveir karlmenn og ein kona voru handtekin vegna málanna. 4.5.2007 14:15
Hvaða George? Bæði páfinn, Borat, og Osama bin-Laden eru á lista bandaríska vikuritsins Time yfir 100 áhrifamestu menn heimsins. Það er hinsvegar ekki George Bush, forseti Bandaríkjanna. Meðal annarra sem taldir eru áhrifameiri en Bush eru poppsöngvarinn Justin Timberlake, fyrirsætan Kate Moss og fótboltakappinn Thierry Henry. 4.5.2007 14:13
Rauði dregillinn of stuttur fyrir Elísabet II Fyrsta opinbera heimsókn Elísabetar Bretadrottningar til Bandaríkjanna í 16 ár dróst um tæpan hálftíma þar sem rauði dregillinn var fimm metrum of stuttur. Flugvél drottningarinnar lenti í Virginíu ríki á áætluðum tíma í gær. Þá kom í ljós að fimm metra vantaði upp á að dregillinn næði að langanginum. Heiðursvörðurinn og annað starfsfólk var 25 mínútur að kippa því í liðinn, á meðan fimm þúsund manns biðu eftir að bera heiðursgestinn augum. 4.5.2007 13:38
Hátt í 20 hús rifin við Þverholt Hafist var handa við að rífa hátt í tuttugu hús við Þverholt í Reykjavík í morgun og er í ráði að reisa fjölmenna stúdentagarða á rústum þeirra. Ráðgert er að verkið taki tvo til þrjá mánuði og má segja að öll hús við Þverholtið, allt frá gamla DV húsinu og að Háteigsvegi, verði bortin niður. 4.5.2007 13:15
Dönsk fermingarbörn fá áfengisfræðslu Dönsk fermingarbörn fá nú fræðslu um áfengismál í fermingarfræðslunni. Danskir vínframleiðendur og innflytjendur hafa tekið höndum saman við kirkjuna um málið og eru unglingar varaðir við að þótt þeir teljist í fullorðinna manna tölu eftir fermingu, sé heili þeirra ekki fullþroskaður fyrr en um tvítugt. Áfengisdrykkja á unglingsárum geti tafið og truflað þann þroska. 4.5.2007 12:53
Ræða atvinnuástandið í Bolungarvík Guðmundur Halldórsson, Bolvíkingur og fyrrum skipstjóri og útgerðarmaður, boðar til borgarafundar í Bolungarvík á sunnudag vegna atvinnuástandsins í bænum. Hann segir ráðamenn verða að koma með lausnir en hátt í 70 manns hafa misst vinnuna á síðustu misserum. 4.5.2007 12:46
Karlmaður fékk fimm ár fyrir ýmis brot Hæstiréttur staðfesti í gær fimm ára fangelsisdóm Héraðsdóms Reykjavíkur yfir rúmlega fertugum karlmanni fyrir margvísleg brot. Helstu brotin eru nytjastuldur, þjófnaður, skjalafals, fjársvik, umferðarlagabrot og brot á fíkniefnalöggjöfinni. Hann var einnig sviftur ökuréttindum ævilangt. 4.5.2007 12:43
Málefni Grímseyjarferju í uppnámi Meirihluti samgöngunefndar felldi í morgun tillögu minnihlutans um að Ríkisendurskoðandi verði látinn fara yfir fjárreiður er varða væntanlega Grímseyjarferju. Málefni ferjunnar eru því áfram í uppnámi. Asögn Kristjáns Möller alþingismanns og nefndarmanns, mættu fulltrúar Vegagerðarinnar á fundinn ásamt fulltrúum skipasmíðastöðvarinnar sem unnið hafa að viðgerð á ferjunni. 4.5.2007 12:31
Forskot Sarko eykst Samkvæmt skoðanakönnunum hefur Nicolas Sarkozy aukið forskot sitt á Segolene Royal fyrir síðari umferð frönsku forsetakosninganna sem fram fer á sunnudaginn. 4.5.2007 12:30
Jónína: Kastljós baðst ekki afsökunar Jónína Bjartmarz umhverfisráðherra vinnur nú að kæru til Siðanefndar Blaðamannafélagsins vegna umfjöllunar Kastljóss um ríkisborgararétt unnustu sonar síns. Hún segir eina af ástæðum kærunnar vera þá að Kastljósfólk hafi ekki séð sóma sinn í því að biðjast afsökunar. 4.5.2007 12:13
Íhaldsflokkurinn sigraði Verkamannaflokkurinn tapaði umtalsverðu fylgi þegar kosið var til sveitarstjórna í Bretlandi og til velska og skoska þingsins í gær en íhaldsmönnum vegnaði vel. Framkvæmd kosninganna í Skotlandi virðist hafa verið mjög ábótavant. 4.5.2007 12:00
Samfylkingin næst stærst í könnun Samfylkingin er aftur orðin næst stærsti stjórnmálaflokkurinn, samkvæmt könnun Gallups fyrir Morgunblaðið og Ríkisútvarpið. Hún hefur náð talsverðu forskoti á Vinstri græna. 4.5.2007 11:57
Bóluefni gegn heimsfaraldri inflúensu tryggt Íslendingar hafa tryggt sér þrjú hundruð þúsund skammta af bóluefni gegn heimsfaraldri inflúensu en samningur þess efnis var undirritaður í morgun. Sóttvarnarlæknir segir mikilvægt að Íslendingar hafi tryggt sér bóluefnið þar sem barist verði um hvern skammt ef til heimsfaraldurs kemur. 4.5.2007 11:57
Kári Stefánsson í hópi 100 mestu áhrifamanna Time Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, er á lista yfir 100 áhrifamestu menn heimsins í lista bandaríska vikuritsins Time, sem birtur er í dag. Áhrifafólkinu er skipt í hópa yfir til dæmis listamenn, leiðtoga, hetjur og frumkvöðla og vísindamenn og hugsuði. Kári tilheyrir síðastnefnda hópnum. 4.5.2007 11:55
Lítill áhugi erlendis á Baugsmálinu Dómur héraðsdóms í Baugsmálinu í gær virðist hafa vakið litla athygli utan landsteinanna. Varla er minnst á dóminn í dönsku blöðunum í morgun, ekki einu sinni í Ekstra Bladet sem skrifaði mikinn greinaflokk um íslensku útrásina í fyrra. Bresku blöðin virðast sömuleiðis hafa lítinn áhuga á málinu, Financial Times rekur þó niðurstöðu dómsins og aðdraganda hans og í Guardian er stutt frétt um málið. 4.5.2007 11:50
Flugvallarskýrslan birt í dag Skýrsla um framtíð Reykjavíkurflugvallar sem beðið hefur verið með eftirvæntingu verður birt opinberlega í dag. Búist er við að niðurstöðurnar verði lagðar til grundvallar ákvörðun um framtíð Vatnsmýrar og innanlandsflugs. Samráðsnefnd um úttekt á flugvellinum kynnir skýrsluna á blaðamannafundi eftir hádegi. 4.5.2007 11:44
Gistinóttum fjölgaði um 19 prósent Gistinóttum á hótelum í marsmánuði fjölgaði um tæplega 19 prósent frá marsmánuði í fyrra. Þær fóru úr tæplega 74 þúsundum í tæp 88 þúsund. Samkvæmt nýjum tölum Hagstofunnar fjölgaði gistinóttum í öllum landshlutum nema á Suðurnesjum, Vesturlandi og Vestfjörðum þar sem þeim fækkaði um tvö prósent. 4.5.2007 11:30
Chavez hótar að þjóðnýta banka Forseti Venesúela, Hugo Chavez, hótaði því í gær að þjóðnýta banka landsins sem og stærsta stálframleiðanda þess. Hann sakaði þau um óeðlilega viðskiptahætti. 4.5.2007 11:25
Vilja að Núpsskóli verði meðferðarheimili fyrir börn og unglinga Bæjarstjórn Ísafjarðar samþykkti einróma í gær að bjóða Núpsskóla sem meðferðarheimili fyrir börn og ungmennni. Ákveðið var að ganga til viðræðna við stjórnvöld um þennan möguleika. 4.5.2007 11:02
Dönsk fermingarbörn fá fræðslu um áfengismál Dönsk fermingarbörn fá nú fræðslu um áfengismál í fermingarfræðslunni. Danskir vínframleiðendur og innflytjendur hafa tekið höndum saman við kirkjuna um málið og eru unglingar varaðir við að þótt þeir teljist í fullorðinna manna tölu eftir fermingu, sé heili þeirra ekki fullþroskaður fyrr en um tvítugt. Áfengisdrykkja á unglingsárum geti tafið og truflað þann þroska. 4.5.2007 10:45
Einn af fyrstu geimförum Bandaríkjanna látinn Bandaríski geimfarinn Walter Schirra er látinn, 84 ára að aldri. Hann var einn af hinum fyrstu sjö Mercury geimförum, sem fóru í fyrstu geimferðir Bandaríkjamanna. Schirra var eini geimfarinn sem flaug bæði Mercury, Gemini og Apollo geimförum. Hann var tilraunaflugmaður hjá Bandaríska flotanum áður en hann gekk til liðs við NASA árið 1959. 4.5.2007 10:36
Innritun í framhaldsskóla á netinu Opnað verður fyrir rafræna innritun í framhaldsskóla landsins á skólavef menntamálaráðuneytisins þann 14. maí næstkomandi. Þá verður hægt að innrita nemendur á vefnum menntagatt.is til 11. júní. Allar umsóknir í dagskóla verða með rafrænum hætti og berast beint til upplýsingakerfa framhaldsskólanna. 4.5.2007 10:27
Hræddur við konu í rauðum kjól Utanríkisráðherra Írans gekk í gær út úr kvöldverðarboði sem haldið var við lok ráðstefnu um málefni Íraks, í Egyptalandi. Íranar segja að ástæðan hafi verið sú að rússnesk kona sem lék á fiðlu fyrir gestina hafi verið í of flegnum rauðum kjól. Bandarískir embættismenn halda því fram að rauði kjóllinn hafi ekki verið ástæðan, heldur hafi Manouchehr Mottaki fyllst skelfingu þegar hann sá að hann átti að sitja andspænis Condoleezzu Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna. 4.5.2007 10:13
Sægarðar lokaðir til 26. maí Sægarðar verða lokaðir við gatnamót Sæbrautar og Vatnagarða frá morgundeginum til 26. maí. Framkvæmdir verða á svæðinu og munu umferðarljós á gatnamótunum blikka á gulu ljósi. Aðeins ein akbraut verður í notkun á 50 metra kafla á Sæbraut til norðvesturs. Aðkoma að fyrirtækjum á hafnarsvæðinu verður um Holtaveg og Sundagarða. 4.5.2007 10:03
Tímamót í fjarskiptamálum neyðarþjónustu Fyrsti áfangi af þremur á TETRA neyðar- og öryggisfjarskiptakerfinu verður tekinn í notkun í dag. Kerfið mun nánast ná til landsins. Helstu kostir þess eru að viðbragðsaðilar sem þurfa að starfa saman geta haft samvinnu í einu sameiginlegu öryggisfjarskiptakerfi. Öryggi landsmanna í hættu og neyðartilvikum mun aukast með tilkomu kerfisins. 4.5.2007 09:52
Íslandshreyfingin hvetur til að staðið verði við loforð um Vaðlaheiðargöng Íslandshreyfingin hefur sent frá sér tilkynningu vegna frétta þess efnis að ríkið hafi hætt stuðningi sínum við félagið Greið leið, sem vinnur að gerð ganga undir Vaðlaheiði. 3.5.2007 21:18
Undirbúningur Vaðlaheiðarganga hefur stöðvast vegna fjárskorts Mikill stuðningur er við gerð Vaðlaheiðarganga. Samkvæmt nýrri könnun Capacent telja 92% svarenda í Eyjafirði og Suður-Þingeyjarsýslu mikilvægt að göngin verði grafin. Undirbúningur verkefnisins hefur hins vegar stöðvast. 3.5.2007 19:43
Jón Ásgeir fékk þriggja mánaða dóm Jón Ásgeir Jóhannesson, forstjóri Baugs, var í dag dæmdur í þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að hafa útbúið tilhæfislausan kreditreikning í bókhaldi Baugs sumarið 2001. Tryggvi Jónsson, fyrrverandi aðstoðarforstjóri Baugs, fékk níu mánaða skilorðsbundinn dóm fyrir bókhaldsbrot. 3.5.2007 19:28
Vill fá skuldir Íraks felldar niður Nouri al-Maliki, forsætisráðherra Íraks, hefur farið þess á leit við þjóðir heims að þær felli niður skuldir íraska ríkisins. Þetta kom fram í ræðu hans við upphaf ráðstefnu um málefni Íraks sem hófst í Sharm el-Sheik í Egyptalandi í dag og lýkur á morgun. 3.5.2007 19:25
Sarkozy stóð sig betur að mati kjósenda Franskir kjósendur telja flestir að hægrimaðurinn Nicolas Sarkozy hafi haft betur í baráttu sinni við sósíalistann Segolene Royal í sjónvarpskappræðum í gærkvöldi. Royal missti stjórn á skapi sínu og sagði Sarkozy það til marks um að hún ætti ekkert erindi í forsetaembættið. Kosið verður á sunnudaginn. 3.5.2007 19:21
Frakkar spara vatnið Gripið hefur verið til vatnsskömmtunar í sjö af 96 sýslum Frakklands og þar í landi óttast menn sumarþurrka. Landbúnaðarráðuneytið segir að nú þegar sé neikvæð staða á vatnsbirgðum í nokkrum sýslum. 3.5.2007 18:31
Japanskur ferðamaður fékk sér sundsprett í Tjörninni Tilkynnt var um karlmann á miðjum aldri í Tjörninni í gærkvöld. Þegar lögreglumenn komu á vettvang var maðurinn, „sem er að öllum líkindum japanskur ferðamaður“, eins og segir í tilkynningu frá lögreglunni, kominn á þurrt. 3.5.2007 17:43
Framsókn tapar fylgi til VG í Kraganum Sjálfstæðisflokkurinn og Samfylkingin halda sínu fylgi í Suðvesturkjördæmi en Framsókn tapar miklu fylgi yfir til vinstri grænna samkvæmt nýrri skoðanakönnun Gallup fyrir Ríkisútvarpið. 3.5.2007 17:21
Sparisjóður Mýrarsýslu dæmdur til 26 milljóna greiðslu Hæstiréttur dæmdi í dag Sparisjóð Mýrarsýslu til að greiða Kaupfélagi Árnesinga rúmar 26 milljónir króna auk vaxta. Sparisjóðurinn hafði tekið upphæð sem þriðji aðili greiddi inn á innlánsreikning Kaupfélagsins upp í skuld þess vegna víxla sem Sparisjóðurinn keypti af Kaupfélaginu. 3.5.2007 17:04
Komu í veg fyrir atkvæðagreiðslu um vantraust á Olmert Benjamin Netanyahu, leiðtogi stjórnarandstöðunnar á ísraelska þinginu, fór í dag fram á það að Ehud Olmert segið af sér vegna nýbirtrar skýrslu um stríð Ísraela og Hizbollah í Líbanon. 3.5.2007 17:01
Átta mánaða fangelsi fyrir tvær líkamsárásir Hæstiréttur staðfesti í dag átta mánaða fangelsisdóm héraðsdóms yfir karlmanni vegna tveggja líkamsárása í og við hótel á Akranesi í fyrrasumar. 3.5.2007 16:49
100 tonna risaeðla í Ástralíu Steingervingar af tveim risastórum risaeðlum hafa fundist í Ástralíu. Eðlurnar eru af tegundinni Titanosaurus og langstærsta tegund sem fundist hefur í landinu til þessa. Þær hafa verið um 100 tonn að þyngd og milli 26 og 35 metra langar. Þær reikuðu um sléttur Ástralíu fyrir 98 milljónum ára. 3.5.2007 16:45
Missti sígarettuna og ók á girðingu Ungur ökumaður varð fyrir því óláni í nótt að keyra á girðingu eftir að hann missti logandi sígarettu í miðjum akstri. Flytja þurfti piltinn á slysadeild. Tilkynnt var um 28 umferðaróhöpp í höfuðborginni síðasta sólarhring. 3.5.2007 16:43
Síbrotamaður í fimm ára fangelsi Hæstiréttur dæmdi í dag síbrotamann í fimm ára fangelsi fyrir mikinn fjölda brota. Maðurinn var sakfelldur fyrir var nytjastuld, þjófnað, skjalafals, fjársvik, umferðarlagabrot og fíkniefnalagabrot. 3.5.2007 16:38
Lögregluembættin á Vesturlandi í nánara samstarf Löggæsla á Vesturlandi verður efld verulega og viðbragðstími styttur samkvæmt nýju samkomulagi milli lögregluembættanna í landsfjórðungnum. Framvegis mun lögreglulið á svæðinu sjá sameiginlega um allt eftirlit án tillits til umdæmamarka. 3.5.2007 16:24
Myndin sem hneykslaði Íran Strangtrúaðir í Íran eru í uppnámi vegna þess að forseti landsins Mahmoud Ahmadinejad faðmaði að sér gamla kennslukonu sína og kyssti á hönd hennar. Dagblaðið Hizbolla segir að annað eins hafi ekki sést síðan á dögum keisaratímabilsins. 3.5.2007 16:15
13,3 milljarðar frá Íslandi til Úkraínu: Danska leiðin „ein sú besta“ til að styrkja varnir Evrópu Innlent