Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Síbrotamaður í fimm ára fangelsi Hæstiréttur dæmdi í dag síbrotamann í fimm ára fangelsi fyrir mikinn fjölda brota. Maðurinn var sakfelldur fyrir var nytjastuld, þjófnað, skjalafals, fjársvik, umferðarlagabrot og fíkniefnalagabrot. 3.5.2007 16:38
Lögregluembættin á Vesturlandi í nánara samstarf Löggæsla á Vesturlandi verður efld verulega og viðbragðstími styttur samkvæmt nýju samkomulagi milli lögregluembættanna í landsfjórðungnum. Framvegis mun lögreglulið á svæðinu sjá sameiginlega um allt eftirlit án tillits til umdæmamarka. 3.5.2007 16:24
Myndin sem hneykslaði Íran Strangtrúaðir í Íran eru í uppnámi vegna þess að forseti landsins Mahmoud Ahmadinejad faðmaði að sér gamla kennslukonu sína og kyssti á hönd hennar. Dagblaðið Hizbolla segir að annað eins hafi ekki sést síðan á dögum keisaratímabilsins. 3.5.2007 16:15
Spyr hvort kosningaloforð standist Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, segir spá Seðlabankans benda til minnkandi hagvaxtar á þessu ári og því næsta. Það bendi til samdráttar á árinu 2009. Enginn stjórnmálaflokkanna byggi heildstæða stefnumörkun í skattamálum, velferðarmálum eða opinberum fjárfestingum á þeirri sýn. 3.5.2007 16:14
Stjórn Baugs lýsir yfir stuðningi við Jón Ásgeir Dómur í Baugsmálinu endurspeglar slælegan málatilbúnað ákæruvaldsins segir stjórn Baugs Group um hinn nýfallna dóm. Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem stjórnin sendi frá sér fyrir skömmu. Stjórnin lýsir áfram yfir eindregnum stuðningi við Jón Ásgeir Jóhannesson. 3.5.2007 15:50
Neydd til að fæða dauðvona barn Sautján ára gömul írsk stúlka berst nú fyrir því fyrir hæstarétti á Írlandi að fá að fara til Bretlands til þess að láta eyða fóstri sem á sér engar lífslíkur þótt hún fæði það. Fóstrið er svo vanþroskað á höfði að það vantar á það bæði stóran hluta af höfuðkúpunni og heilanum. Læknar telja það mest geta lifað í þrjá daga eftir fæðingu. 3.5.2007 15:37
Jón Ásgeir áfrýjar dómi til Hæstaréttar Jón Ásgeir Jóhannesson, forstjóri Baugs, hefur ákveðið að áfrýja dómi Héraðsdóms Reykjavíkur í Baugsmálinu sem féll í dag til Hæstaréttar. Jón Ásgeir var dæmdur í þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir bókhaldsbrot í tengslum við rekstur Baugs. 3.5.2007 15:34
Vaxandi ójöfnuður og auknar skuldir Þrátt fyrir almennt góðæri í þjóðfélaginu á undanförnum árum hefur ójöfnuðu vaxið og skuldir heimilanna aukist meira en góðu hófi gegnir. Þetta kemur meðal annars fram í niðurstöðum vorskýrslu Hagdeildar Alþýðusambands Íslands sem kynnt var í dag. Skýrsluhöfundar telja það forgangsatriði að tökum sé náð á hagstjórninni og að stjórnmálamenn láti af ódýrum innhaldslausum loforðum og horfist þess í stað í augu við raunveruleikann. 3.5.2007 15:32
Danir ætla að banna blæjur Danska ríkisstjórnin vill setja lög sem gera atvinnurekendum kleift að banna múslimakonum að ganga með slæður eða búrka í vinnunni. Kveikjan að þessu er að barnfóstra í Óðinsvéum neitaði að taka af sér slæðuna við gæslu barna. Bæjarstjórnin þar leitaði til stjórnvalda þar sem hún var ekki viss um að hún hefði heimild til þess að úrskurða í málinu. 3.5.2007 15:20
Litli bróðir er pínulítill Eineggja fyrirburatvíburar, þar sem annar er aðeins þriðjungur af stærð bróður síns, eiga báðir góðar lífslíkur. 3.5.2007 15:08
Skoðað verður vel hvort málinu verður áfrýjað Sigurður Tómas Magnússon, settur saksóknari í Baugsmálinu, sagði skömmu eftir að dómur var kveðinn upp í hádeginu í dag að skoða yrði mjög vel hvort málinu yrði áfrýjað til Hæstaréttar. 3.5.2007 15:01
Kaupþing neitar tilraun til að kaupa Jón Gerald Jón Gerald Sullenberger segist feginn að hafa sloppið við ákæru í Baugsmálinu. Hann segir forstjóra Kaupþings hafa reynt að kaupa sig til að falla frá málinu árið 2002 með boði um tvær milljónir bandaríkjadala. Þessu neitar Kaupþing. „Hvorki forstjóri Kaupþings banka né aðrir starfsmenn hans hafa nokkurn tímann boðið Jóni Gerald Sullenberger greiðslur fyrir að draga mál sitt gagnvart Baug til baka." 3.5.2007 14:49
Fagna hugmyndum um enduruppbyggingu eftir bruna Húsafriðunarnefnd ríkisins fagnar frumkvæði borgarstjóra Reykjavíkur um enduruppbyggingu húsanna á horni Austurstrætis og Lækjargötu sem skemmdust í eldsvoða þann 18. apríl. Þetta kemur fram í tilkynningu frá nefndinni. 3.5.2007 14:40
Fræðimannsíbúðinni í Kaupmannahöfn úthlutað Sjö fræðimenn munu fá afnot af íbúð Jóns Sigurðssonar í Kaupmannahöfn næsta vetur en úthlutun fór fram í dag. Úthlutunin gildir frá septembermánuði á þessu ári til ágústloka á því næsta. 3.5.2007 14:02
Kostaði ríkissjóð rúmlega 105 milljónir Heildarkostnaður ríkissjóðs vegna meðferðar endurákæru í Baugsmálinu fyrir dómi eru rúmlega 105 milljónir króna. Þetta kom fram í dómsskjölum en í þeim ákvörðuðu dómarar laun verjenda. Við ákvörðun málsvarnarlauna var tekið mið af vinnuskýrslum verjenda og viðmiðunarreglum dómstólaráðs. Virðisaukaskattur er innifalinn í málsvarnarlaununum. 3.5.2007 13:59
Ráðuneyti útskýrir skjóta afgreiðslu ríkisborgararéttar Dóms- og kirkjumálaráðuneytið segir ekkert athugavert við skjóta afgreiðslu á umsókn stúlku frá Gvatemala um íslenskan ríkisborgararétt en stúlkan tengist Jónínu Bjartmarz umhverfisráðherra. 3.5.2007 13:56
Rúmlega 400 hjól boðin upp hjá lögreglunni Rúmlega 400 reiðhjól verða boðin upp hjá óskilamunadeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á laugardaginn. Að sögn lögreglu eru hjólin sem boðin verða upp bæði ný og gömul. 3.5.2007 13:44
Kastljós stendur við umfjöllun sína Þórhallur Gunnarsson ritstjóri Kastljóssins hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem hann segir Kastljósið standa við umfjöllun sína um veitingu ríkisborgararéttar til tilvonandi tengdadóttur Jónínu Bjartmarz umhverfisráðherra. Spurningu ráðherrans um hvort þátturinn láti misnota sig í pólitískum tilgangi er er jafnframt hafnað. Jónína sendi frá sér yfirlýsingu í gær þar sem hafnaði því sem hún kallar ásökunum Kastljóss og spurði hvort Kastljósið léti misnota sig með því að koma höggi á hana og Framsóknarflokkinn í aðdraganda kosninga. Þórhallur hafnar því að Kastljós er hafi verið misnotað af neinum. Hann segir meðal annars í yfirlýsingunni, að aldrei hafi verið sagt að Jónína hefði beitt sér í málinu, heldur vakin athygli á óvenjulegri afgreiðslu málsins. Þegar við bætist að stúlkan búi á heimili umhverfisráðherra sé full ástæða fyrir fjölmiðla að spyrja spurninga. 3.5.2007 13:33
Högnuðust um rúma 60 milljarða Íslenskir fjárfestar högnðust um rúma sextíu milljarða króna þegar þeir seldu 85 prósenta hlut sinn í búlgörsku símafélagi í gærkvöldi. 3.5.2007 13:09
Frakkar búsettir á Íslandi mjög vinstrisinnaðir Frakkar búsettir á Íslandi eru mun vinstrisinnaðri en landar þeirra í heimalandinu sé miðað við hvernig þeir kusu í utankjörstaðakosningu í fyrri umferð frönsku forsetakosninganna. Rúmlega helmingur þeirra kaus Segolene Royal, frambjóðanda vinstrimanna, en aðeins einn af hverjum tíu hægrimanninn Nicolas Sarkozy. 3.5.2007 12:53
Mikil vonbrigði með sakfellingu Jóns Ásgeirs Gestur Jónsson lögmaður segir sakfellingu yfir Jóni Ásgeiri Jóhannessyni í Baugsmálinu mikil vonbrigði. Hann sagði við fréttamenn eftir dómsuppkvaðningu í hádeginu að afstaða dómara til málatilbúnaðarins endurspeglaðist í því að ríkið væri látið bera mestan hluta málskostnaðar. Hann segir að dómurinn verði skoðaður, en ekki sé búið að ákveða hvort málinu verði áfrýjað. 3.5.2007 12:37
Hæðarslá féll á bíla Umferðarslys varð á Miklubraut í dag þegar að bíll með krana rakst á hæðarslá yfir götunni. Hún féll við það á tvo bíla og skemmdust þeir töluvert. Engin slys urðu á fólki. Loka þurfti öllum akreinum í vestur á meðan verið var að fjarlægja slánna af götunni. 3.5.2007 12:11
Jón Ásgeir og Tryggvi fá skilorðsbundna dóma Jón Ásgeir Jóhannesson, forstjóri Baugs, var í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag dæmdur í þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir aðild sína að Baugsmálinu. Þá var Tryggvi Jónsson, fyrrverandi forstjóri félagsins, dæmdur í níu mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir aðild sína að málinu. 3.5.2007 12:02
Niðurrif Pravda stöðvað að kröfu lögmanns Niðurrif á rústunum af skemmtistaðnum Pravda í Austurstræti sem hófst á laugardag, var stöðvað seinnipartinn í gær að kröfu lögmanns. Rekstraraðilar í húsinu telja að nú þegar hafi verið unnið ómetanlegt tjón á því sem þeir telja að hafi verið heill hluti af húsinu. Þeir eru óhressir með að borgin hyggist taka af þeim reksturinn án þess að tala við þá. 3.5.2007 12:00
Felldu upplýsingafulltrúa al-Kaída í Írak Bandaríski herinn í Írak skýrði frá því í dag að þeir hefðu fellt upplýsingafulltrúa al-Kaída í Írak. Talsmaður hersins sagði að hann hefði verið viðriðinn mannránið á bandarísku blaðakonunni Jill Carroll og fleiri útlendingum. 3.5.2007 11:44
Rafræn kjörskrá opnuð á vefnum Opnað hefur verið fyrir rafrænan aðgang að kjörskrá í Reykjavíkurkjördæmunum tveimur fyrir komandi alþingiskosningar. Þar geta kjósendur aflað sér upplýsinga um hvar þeiri eigi að kjósa og í hvaða kjördeild. 3.5.2007 11:28
Brjóst í pósti Eins og margar danskar vændiskonur er Kirsten með heimasíðu. Þar er meðal annars að finna myndir af henni. Nýlega fékk Kirsten bréf frá fyrirtæki sem heitir "Helth Care Danmark." Þar segir meðal annars: "Með tilliti til líkamsbyggingar og hæðar yrðir þú gríðarlega flott með stærri barm, C 75, viljum við gera þér tilboð og ráðleggingar. Hringdu til okkar til að fá tíma." 3.5.2007 11:10
Bein útsending - Dómur í Baugsmálinu Bein útsending verður í hádegisfréttatíma Stöðvar 2 og á Vísir.is frá Héraðsdómi Reykjavíkur klukkan tólf en þá verður dómur kveðinn upp í Baugsmálinu. Um er að ræða 18 ákæruliði í endurákæru sem Sigurður Tómas Magnússon gaf út eftir að 32 ákæruliðum í Baugsmálinu hinu fyrra var vísað frá dómi. 3.5.2007 11:01
Telja Sarkozy hafa staðið sig betur Franskir kjósendur telja að Nicolas Sarkozy hafi haft betur í baráttu sinni við Sególene Royal í kappræðum þeirra í frönsku sjónvarpi í gær. Þetta kemur fram í könnun sem birt var í dag. Hún var gerð eftir kappræðurnar sem voru líflegar og spennandi. Í henni sögðu 53% aðspurðra Sarkozy hafa staðið sig betur en aðeins 31% völdu Sególene. 3.5.2007 10:57
Nýskráðum bílum fækkar um 35 prósent Samdráttur upp á tæplega 35 prósent varð í nýskráningum bíla á fyrstu fjórum mánuðum þessa árs miðað við sama tíma í fyrra. Alls voru tæplega 5.800 nýir bílar skráðir á fyrstu fjórum mánuðum þessa árs samkvæmt Hagstofu Íslands 3.5.2007 10:45
Færast nær friðarsamkomulagi Stjórnvöld í Úganda og Uppreisnarher drottins (Lord's Resistance Army) færðust í gærkvöldi einu skrefi nær því að binda endi á tveggja áratuga borgarastyrjöld í landinu. Báðir aðilar skrifuðu þá undir annan hluta friðarsamkomulags en þeir sættust á vopnahlé á síðasta ári. 3.5.2007 10:38
Heigullinn af Titanic fær uppreist æru Hinn illræmdi skúrkur frá Titanic slysinu hefur nú fengið uppreist æru með bréfi sem einkaritari hans skrifaði skömmu eftir slysið. Sir Cosmo Duff Gordon var hataður og fyrirlitinn í Bretlandi eftir að Titanic sökk. Því var haldið fram að hann hefði borgað fyrir að komast um borð í björgunarbát, og mútað áhöfn hans til að snúa ekki aftur að skipinu til þess að bjarga fleiri farþegum. 3.5.2007 10:28
Traktor keyrði tvisvar yfir ungling Traktor keyrði í tvígang yfir austurrískan ungling – fyrst eftir að hann datt af og svo aftur þegar ökumaðurinn bakkaði til að athuga hvar pilturinn væri. Hinn 17 ára Hubert Hochstetter datt af traktornum þegar Josef Mittringer 22 ára félagi hans keyrði hann eftir vegi við þorpið Kainisch í Austurríki. Hann hafnaði undir afturhjólum traktorsins sem vegur um þrjú tonn. 3.5.2007 10:20
20 milljónir horfi á kappræður Búist er við að 20 milljón Frakkar fylgist í kvöld með sjónvarpskappræðum frambjóðendanna tveggja sem berjast um forsetaembættið í Frakklandi. Þetta er síðasta tækifæri sósíalistans Segolene Royal til að saxa á naumt forskot hægrimannsins Nicolas Sarkozy. Kosið er á sunnudaginn. 2.5.2007 19:45
Vill að Olmert víki Tzipi Livni, utanríkisráðherra Ísraels hefur hvatt Ehud Olmert til þess að segja af sér sem forsætisráðherra. Hún segir jafnframt að hún muni sækjast eftir forystu í Kadima-flokki hans. Livni skýrði frá þessu eftir fund sinn með Olmert í dag. 2.5.2007 19:30
Ráðist að sendiherra Eista Eistnesku ræðismannsskrifstofunni í Moskvu var lokað í dag um óákveðinn tíma eftir að hópur rússneskra ungmenna gerði aðsúg að eistneska sendiherranum í Rússlandi í dag. Eistar og Rússar hafa deilt hart á opinberum vettvangi síðan í síðustu viku eða frá því eistneskir ráðamenn létu færa til minnismerki um fallna hermenn sem var í miðborg Tallinn. 2.5.2007 19:15
Óttast meira mannfall Bush Bandaríkjaforseti óttast að mannfall verði áfram mikið í Írak og segir bandaríska hermenn ekki á heimleið á næstunni. Hann hvetur Íraka til að sameinast í að uppræta ofbeldi í landinu og biður um stuðning Bandaríkjamanna við herliðið í Írak. 2.5.2007 19:00
Ekki byrjað að mæla skyggni á Hólmsheiði Röskum átján mánuðum eftir að flugvöllur á Hólmsheiði þótti álitlegur kostur - hafa enn engin tæki verið keypt til að mæla skyggni og skýjahæð á heiðinni. Samgönguráðuneytið hefur enn ekki farið fram á það við Flugstoðir ohf. að hefja mælingar sem nauðsynlegar eru til að taka afstöðu til flugvallar á heiðinni. Haraldur Ólafsson veðurfræðingur segir að hægt hefði verið að ná nægilegum upplýsingum á einu til tveimur árum. 2.5.2007 18:57
Ágreiningur um kostnað vegna viðgerða Ágreiningur er milli Vegagerðarinnar og Vélsmiðju Orms og Víglundar um viðgerðarkostnað á Grímseyjarferjunni, sem lengi hefur verið í slipp. Hægt hefur verið á viðgerðum vegna ágreiningsins. Viðgerðarkostnaður hefur farið langt fram úr áætlunum vegna lélégs ástands ferjunnar. 2.5.2007 18:47
Metfjöldi á fundi í Grímsey Fjölmennasti fundur sem sögur fara af í Grímsey var haldinn þar í gær. Þótt íbúarnir séu aðeins eitthundrað talsins mættu samt 140 manns á fundinn, sem sjálfstæðismenn í Norðausturkjördæmi stóðu fyrir. Þar voru forystumenn flokksins gagnrýndir fyrir að vilja ekki ræða Evrópusambandsaðild. Reykjavíkurflugvöllur virtist brenna einna heitast á fundarmönnum. 2.5.2007 18:45
Flestir tilgreina persónulegar ástæður þegar sótt er um ríkisborgararétt Þeir sem fengið hafa ríkisborgararétt hér á landi að undangenginni afgreiðslu allsherjarnefndar Alþingis hafa flestir búið hér á landi í tvö ár eða lengur, eru eldri en 18 ára og uppfylla ekki búsetuskilyrði. Í langflestum tilvikum tilgreina þeir persónulegar ástæður eða ástæður fjölskyldulegs eðlis fyrir því að sótt er um undanþágu. 2.5.2007 18:05
Óvissan slæm fyrir skjólstæðinga SÁÁ Æskilegra hefði verið að nýundirritaður þjónustusamningur SÁÁ við ríkið næði til lengri tíma en næstu áramóta að sögn framkvæmdastjóra hjá SÁÁ. Hann segir óvissuna mjög slæma fyrir skjólstæðinga samtakanna. Samtökin undirrituðu í dag samkomulag við annars vegar heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið og hins vegar fjármálaráðuneytið um framlengingu þjónustusamnings við ríkið fram að næstu áramótum. Upphaflegur þjónustusamningur var frá ársbyrjun 2002 til árloka 2005. 2.5.2007 17:10
Fimm sóttu um embætti ríkissaksóknara Fimm umsækjendur sóttu um starf ríkissaksóknara, en umsóknarfrestur rann út síðastliðinn föstudag. Umsækjendur eru hæstaréttarlögmennirnir Brynjar Níelsson og Jóhannes Rúnar Jóhannsson, saksóknararnir Egill Stephensen og Sigríður Friðjónsdóttir og Jón H.B. Snorrason aðstoðarlögreglustjóri og saksóknari. 2.5.2007 16:47
Hræðileg vonbrigði Arndís Björnsdóttir, talsmaður Baráttusamtaka eldri borgara og öryrkja, segir oddvita listans í Norðausturkjördæmi ekki hafa haft samráð við sig áður en hætt var við framboð í kjördæminu. Arndís segir þetta vera hræðileg vonbrigði. 2.5.2007 16:22
Hlutur ríkisins mun renna til Suðurnesja Suðurnesin munu með einhverjum hætti njóta sölu ríkisins á hlut þess í Hitaveitu Suðurnesja. Þetta sagði Árni Mathiesen fjármálaráðherra í samtali við Vísi í dag. Grétar Mar Jónsson frambjóðandi frjálslyndra í Suðurkjördæmi hefur lagt til að fjármagnið verði látið renna til atvinnuuppbyggingar á Suðurnesjum. 2.5.2007 16:18