Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Nýju ári fangað með vatnsgusum Taílendingar fagna í dag nýju ári en hátíðarhöld eru víða um landið af því tilefni. Sá siður er við lýði að fagna tímamótunum með því að hella vatni á náungann. Þetta má rekja til gamals helgisiðar sem átti að tryggja að vatn myndi ekki skorta svo að uppskera ársins yrði sem best. 13.4.2007 13:00
Greiddu rúman milljarð til umhverfismála Orku- og veitufyrirtæki greiddu samtals um 2,3 milljarða króna til landeiganda og veiðirétthafa á árunum 2001 til 2006. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Samorku, samtökum orku- og veitufyrirtækja. Þá settu fyrirtækin á tímabilinu rúman milljarð í verkefni á sviði umhverfismála. 13.4.2007 12:56
Eiga bótakröfu á speglabeyglara ef hann verður sakfelldur Lögreglan handtók í nótt mann sem hafði gengið berserksgang um vesturbæ Reykjavíkur og barið og beyglað spegla á minnst 27 bílum. Ljóst er að ef verknaðurinn sannast á hinn handtekna eiga bíleigendur bótakröfu á hann. 13.4.2007 12:45
Nærri tveir þriðju vilja atkvæðagreiðslu um frekar stóriðju Ríflega sex af hverjum tíu landsmönnum vilja að ákvarðanir um frekari stóriðju verði settar í þjóðaratkvæðagreiðslu samkvæmt nýrri könnun Gallup. Fram kemur á vef Ríkisútvarpsins að 38 prósent svarenda sögðust mjög hlynnt því og 22,8 prósent frekar hlynnt. 13.4.2007 12:31
Eldur kom upp í línubát Eldur kom upp í vélarrúmi línubátsins Rúnars frá Bolungarvík í mynni Ísafjarðardjúps í gærkvöldi. Tveir voru um borð en þeim tókst að slökkva eldinn. Báturinn varð hins vegar aflvana og þurfti að draga hann til hafnar. 13.4.2007 12:30
Hjörleifur hvetur Ómar til að draga framboð til baka Hjörleifur Guttormsson, frambjóðandi Vinstri grænna og fyrrverandi ráðherra, hvetur Ómar Ragnarsson og félaga til að draga til baka framboð Íslandshreyfingarinnar. Ómar segist hins vegar halda ótrauður áfram og að Íslandshreyfingin sé valkostur fyrir umhverfissinna sem ekki vilja kjósa til vinstri. 13.4.2007 12:27
Þrír starfsmenn í íraska þinghúsinu yfirheyrðir Íraska þingið fordæmdi í morgun sjálfsmorðssprengjuárás sem gerð var í þinghúsinu í Bagdad í gær. Einn þingmaður lét lífið í árásinni og tuttugu og tveir særðust. Þrír starfsmenn mötuneytis þingsins hafa verið yfirheyrðir í morgun vegna árásarinnar. 13.4.2007 12:07
Þrettán hundruð skráðir á landsfund Samfylkingarinnar Landsfundur Samfylkingarinnar hófst í Egilshöll í morgun og höfðu þá um þrettán hundruð manns skráð sig til þátttöku. 13.4.2007 12:00
Pólverjar íhuga bann við fóstureyðingum Pólska þingið íhugar nú hvort herða eigi reglugerðir varðandi fóstureyðingar þar í landi. Reglur um fóstureyðingar eru nú þegar mjög strangar í Póllandi en útlit er fyrir að þær verði bannaðar með öllu. 13.4.2007 11:47
Maradona aftur á sjúkrahús Fyrrverandi knattsspynugoðið Diego Armando Maradona var fluttur aftur á sjúkrahús í dag, að því er argentínskir fjölmiðlar greina frá. Mun hann hafa þjáðst af kviðverkjum og var hann því sendur á sjúkrahús í Búenos Aíres. Hann mun þó ekki vera í lífshættu. 13.4.2007 11:41
Flug til Húsavíkur að hefjast á ný? Útlit er fyrir að flug til Húsavíkur sé að hefjast á ný. Eftir því sem segir á vef Norðurþings fjallaði Byggðarráð Norðurþings um málefni flugvallarins í Aðaldal og samþykkti drög að samkomulagi við Fjarðarflug ehf. um að taka að sér rekstur flugstöðvarinnar á Húsavíkurflugvelli og hefja flug til Húsavíkur. 13.4.2007 11:19
Grásleppuveiði hafin Fyrstu bátarnir eru farnir frá Drangsnesi til grásleppuveiði og eru sjómenn bjartsýnir um að sumarið verði fengsælt. Veður hefur hins vegar ekki leikið við sjómenn síðustu mánuði. 13.4.2007 11:18
Tyrkneska herstjórnin vill ráðast inn í Írak Yfirmaður Tyrkneska herráðsins sagði í gær að frá hernaðarsjónarmiði væri nauðsynlegt að ráðast gegn kúrdiskum uppreisnarmönnum í Norður-Írak. Tyrkir hafa gert margar slíkar árásir á umliðnum árum, en ekki síðan bandamenn hernámu Írak árið 2003. Yfirmaður herráðsins tók fram að ekki hefði enn verið farið fram á það við stjórnvöld að þau leyfðu herför inn í Írak. 13.4.2007 11:06
Grafarholtshverfi framvegis tvö kjördæmi Landskjörstjórn hefur ákveðið að skipta Grafarholtshverfi milli Reykjavíkurkjördæmis suður- og norður. Áður tilheyrði hverfið allt Reykjavíkurkjördæmi norður. 13.4.2007 10:53
Fresta skipulagningu svæða fyrir hugsanlegar virkjanir Sveitarstjórn Skagafjarðar samþykkti í gær að fresta skipulagningu þeirra svæða sem ætluð hafa verið fyrir Skatastaða- og Villinganesvirkjun í þeirri tillögu að aðalskipulagi sem verið er að vinna að. 13.4.2007 10:45
Tuttugu grunaðir fjöldamorðingjar í Noregi Norska lögreglan er nú að rannsaka fortíð allt að tuttugu manna frá Rúanda sem búa í Noregi. Þeir eru grunaðir um að hafa tekið þátt í fjöldamorðunum í heimalandi sínu árið 1994. Norsk yfirvöld hafa fengið upplýsingar um fólkið frá yfirvöldum í Rúanda. 13.4.2007 10:34
Vill ekki HIV-smitaða innflytjendur til Ástralíu John Howard, forsætisráðherra Ástralíu, vill banna HIV-smituðum innflytjendum að koma til landsins, meðal annars í ljósi þess að HIV-smituðum hefur fjölgað mikið í landinu. 13.4.2007 10:24
Hjálp - hún er handjárnuð við rúmgaflinn Ástaleikurinn fékk vandræðanlegan endi hjá pari í Borås, í Svíþjóð í gær. Handjárnin fóru í baklás og konan var föst við rúmgaflinn. Eftir að hafa reynt allt sem þeim datt í hug, var ekki um annað að ræða en hringja í lögregluna, sem kom fljótlega á vettvang. 13.4.2007 10:15
Handleggurinn kominn á aftur Læknar á Tævan hafa grætt handlegginn aftur á dýralækninn Chang Po-yo, en 200 kílóa Nílar krókódíll reif hann af honum í gær. Krókódíllinn var eitthvað veikur og Chang skaut í hann pílu með deyfilyfjum til þess að geta gefið honum lyf. Þegar hann hélt að skepnan væri sofnuð stakk hann handleggnunum í gegnum netgirðingu til þess að ná í píluna. 13.4.2007 09:47
Þrír norskir sjómenn látnir Þrír norðmenn létust og fimm er enn saknað eftir að dráttarbáturinn Bourbon Dolphin hvolfdi rétt 75 sjómílum norðan við Hjaltland. Fyrr í kvöld var sjö manns bjargað. Tvær þyrlur, kafarar og þrjú skip eru á svæðinu að leita en standgæslan segir sjóinn vera orðin það kaldan og myrkrið orðið of mikið til þess halda áfram. Leit hefst aftur í fyrramálið. Ekki er vitað með vissu af hverju bátnum hvolfdi. 12.4.2007 23:57
Lekandi orðinn að vandamáli í Bandaríkjunum Læknar virðast hættir að geta læknað kynsjúkdóminn lekanda ef marka má nýjustu rannsóknir smitsjúkdómadeildar Bandaríkjanna. Tilfellum hefur fjölgað frá því að vera aðeins 1% smitaðir yfir í að verða 13% á aðeins síðustu fimm árum. Ástæðan er talin vera sú að læknar eru nú í auknum mæli farnir að láta fólk fá of sterkt pensillín við kvefi og öðrum slíkum kvillum. Af þeim sökum byggir líkaminn upp mótefni við pensillíninu og það hættir að virka. Yfirmaður smitsjúkdómadeildar Bandaríkjanna segir að nú þurfi að fara gefa enn sterkari lyf við kynsjúkdómum en áður til þess að lækna þá. Þess má geta að lekandi er ekki landlægur kynsjúkdómur hér á landi en nokkur tilvik koma alltaf upp á ári hverju. 12.4.2007 23:04
Sjúkraþyrlu á Akureyri- viðbragðstími of langur Verja þarf auknu fé til sjúkraflutninga á landsbyggðinni, segir sérfræðingur við Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri. Of langur viðbragðstími hefur skapað vandræði. Björn Gunnarsson læknir á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri segir að stjórnvöld þurfi að setja meiri peninga í sjúkraflutning. Þetta kemur fram í skýrslu um sjúkraflug sem hann vann í samstarfi við Helgu Magnúsdóttir lækni. 12.4.2007 21:24
Sveiflar sprotanum í Háskólabíó í síðasta sinn Vladimir Ashkenazy hefur sett svip sinn á íslensk menningarlíf um áratuga skeið. Frá árinu 2002 hefur hann verið heiðursstjórnandi Sinfóníuhljómsveitar Íslands en þessi frábæri píanisti steig einmitt sín fyrstu skref sem stjórnandi með hljómsveitinni árið 1971. Annað kvöld stýrir hann sveitinni í íþróttahúsinu á Torfnesi á Ísafirði en í kvöld sveiflar hann sprotanum í Háskólabíói, væntanlega í eitt af síðustu skiptunum, því nýtt tónlistarhús er handan við hornið. Á efnisskránni eru þrjú verk, þar á meðal hin dásamlega Fantastique-sinfónía Hectors Berlioz. Ashkenazy segist alltaf hafa jafn gaman af því að koma til Íslands og í hvert skipti sem hann kemur hefur sinfónían tekið enn meiri framförum. Nýlega fékk hann stjórnendastöðu við sinfóníuhljómsveitina í Sydney en þrátt fyrir það ætlar þessi fyrsti tengdasonur Íslands, eins og hann er stundum kallaður, ekki að gleyma okkur. 12.4.2007 20:36
Eldur kom upp í báti Eldur kom upp í báti suðvestur af Ryti við Ísafjarðardjúp rétt um kvöldmataleitið í kvöld. Tveir menn voru í bátnum. Að sögn varðstjóra á Ísafirði náðu mennirnir að slökkva eldinn, en báturinn varð vélvana og þurfti því að kalla á hjálp. Sædísin frá Bolungavík kom á staðin og er báturinn væntanlegur til hafnar í Bolungavík um klukkan hálf tíu. Upptök eldsins eru ókunn. 12.4.2007 20:28
Enn og aftur sannast skaðsemi reykinga Enginn sleppur við að verða fyrir skaða af sígarettureyk ef marka má nýja könnun sem framkvæmd var í Póllandi. Hefur nú komið í ljós að meira að segja þeir ungu og hraustu verða líka fyrir miklum skaða af sígarettureyk þar sem hjartað fær ekki að slaka á á milli slaga. En hingað til hefur því verið haldið fram að þeir ungu og hraustu þoli sígarettureyk einna best. Rannsóknin var gerð á 66 hraustum einstaklingum á aldrinum 20 til 40 ára. Helmingur þeirra hafði reykt 10-25 sígarettur á dag í 6-20 ár. Óreglulegir hjartslættir komu enn fram tveim tímum eftir að þeir luku við síðustu sígarettu. 12.4.2007 20:04
Kópavogsbær byggir að Elliðavatni Meirihluti bæjarstjórnar Kópavogs hefur samþykkt skipulagsbreytingar á lóðum að vatnsbakka Elliðavatns. Á bæjarstjórnarfundi 10. apríl samþykkti meirihlutinn þ.e. Framsóknar- og Sjálfstæðisflokkurinn, drög að nýrri byggð suðvestur af Elliðavatni. Samkvæmt nýju skipulagi mun vera um 15 metra bil á milli Elliðavatns og bygginga en um 50 metra helgunarsvæði liggur nú meðfram vatninu en það var samþykkt árið 2000. Með þessu móti mun byggðin teygja sig upp og í kringum Guðmundarlund og liggjað að landi Heiðmerkur. 12.4.2007 19:22
Ráðist á sjálft þinghúsið Átta biðu bana og fjölmargir slösuðust þegar öflug sprengja var sprengd í þinghúsinu í Bagdad í dag. Árásin er reiðarslag fyrir íröksku stjórnina og þau ríki sem hernámu landið því hún er táknræn fyrir hversu ástandið þar er slæmt og hve máttlítil yfirvöld eru í baráttu sinni við uppreisnarmenn. 12.4.2007 19:06
Boðar nýja löggjöf um greiðsluaðlögun Félagsmálaráðherra hefur boðað nýja löggjöf um úrræði vegna greiðsluerfiðleika fólks og hefur skipað nefnd til undirbúa frumvarp. Jóhanna Sigurðardóttir þingmaður Samfylkingar segir sérkennilegt að boða til nýrrar löggjafar nú rétt fyrir kosningar, þar sem frumvarp sama efnis hefur legið fyrir á Alþingi í 10 ár og aldrei komist í gegn. 12.4.2007 18:57
Rangar dagsetningar á matvörur Dæmi eru um að íslensk matvælafyrirtæki hafi stundað það að dagsetja pökkunardag vöru degi á eftir raunverulegum pökkunardegi. Umhverfisstofnun segir það bannað og brjóta gegn öllum reglum um merkingu matvæla. 12.4.2007 18:55
Þjóðkirkjan er í allra þágu Biskup hefur óskað eftir því við prestana í Digranessókn að þjóna þeim fermingarbörnum sem til þeirra leita. Prestur þar neitaði að ferma stúlku úr Fríkirkjusöfnuðinum nema móðir hennar gengi til liðs við Þjóðkirkjuna. Séra Jóna Hrönn Bolladóttir segir alla velkomna í sína kirkju. 12.4.2007 18:45
Kjúklingar komnir af risaeðlum Vísindamenn hafa fundið fyrstu merki þess að risaeðlan Tyrannosaurus rex sé fjarskyldur frændi hænunnar. Eru þetta fyrstu handbæru merkin sem tengja risaeðlur og fugla saman, segir vísindamaður við Harvard háskóla í Bandaríkjunum. Upplýsingar þessar fengust með því að rannsaka prótein úr beinmerg úr 68 milljón ára gömlu beini. Vísindamenn hafa löngum haldið því fram að fuglarnir eins og við þekkjum þá í dag séu komnir af risaeðlum og er þetta því mikið gleði efni en hingað til hefur ekki verið hægt að finna nýtanlegan beinmerg til þess að vinna úr. 12.4.2007 18:41
Bein útsending frá landsfundi Sjálfstæðisflokksins Landsfundur Sjálfstæðisflokksins var settur rétt í þessu. Geir H. Haarde, formaður flokksins, flytur ræðu sína og má nálgast beina útsendingu frá fundinum hér. 12.4.2007 17:37
Á tvöföldum hámarkshraða undir áhrifum áfengis Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði tvo ökumenn fyrir hraðakstur í gær. Annar þeirra var kona sem mældist á 109 kílómetra hraða í Kópavogi þar sem hámarkshraði er 50 og var hún þar að auki búin að neyta áfengis. 12.4.2007 17:06
Karlmaður í Ohio ákærður fyrir tengsl við al-QaIda Bandaríska alríkisrlögreglan hefur ákært mann á fimmtugsaldri frá Ohio fyrir að vera félagi í al-Qaida hryðjuverkasamtökunum og leggja á ráðin um sprengjuárásir í bæði Bandaríkjunum og Evrópu. Maðurinn, Christopher Paul, var handtekinn í gær eftir að lögregla hafði fylgst með honum í fjögur ár. 12.4.2007 16:56
Nýjar reglur um takmarkanir á reykingum Tóbaksreykingar um borð í skipum sem notuð eru í atvinnurekstri verða framvegis takmarkaðar samkvæmt nýrri reglugerð um takmarkanir á tóbaksreykingum. Þá verður aðeins leyfilegt að reykja á útisvæðum við veitingastaði frá og með 1. júní næstkomandi. Siv Friðleifsdóttir, heilbrigðismálaráðherra, undirritaði reglugerðina í dag. 12.4.2007 16:39
Kuldakast í miðvesturríkjum Bandaríkjanna Kuldakast sem gengur yfir miðvesturríki Bandaríkjanna hefur valdið töluverðum usla ríkjunum bæði í dag og í gær. Segir á vef USA Today að rekja megi sex dauðsföll í umferðinni til mikillar hálku á vegum úti og þá hefur hundruðum flugferða verða verið frestað vegna ofankomu. 12.4.2007 16:25
Verðhrun á sumarhúsum í Danmörku Verð á sumarhúsum í Danmörku hefur farið hríðlækkandi að undanförnu og þá mest á vinsælustu svæðunum. Verðlækkunin er að mestu rakin til spákaupmennsku en margir hafa viljað græða á kaupum og sölum á sumarhúsum. 12.4.2007 15:58
Einkaflugvél nauðlenti í Stokkhólmi Einn maður slasaðist alvarlega og þrír lítillega þegar einkaflugvél nauðlenti í Stokkhólmi um miðjan dag í dag. Eftir því sem sænskir miðlar greina frá var um að ræða fjögurra sæta Piper PA 28 flugvél en flugmaður hennar tilkynnti um vélarvandræði skömmu eftir að hún hafði tekið á loft frá Bromma-flugvelli. 12.4.2007 15:55
Vill löggjöf um samningsrétt skuldara Magnús Stefánsson félagsmálaráðherra vill skoða kosti þess að setja sérstaka löggjöf um úrræði fyrir fólk sem á í greiðsluerfiðleikum líkt og gert hefði verið annars staðar á Norðurlöndum. 12.4.2007 15:30
Jötunn kominn norður í land til rannsóknarborana Borinn Jötunn er kominn til Húsavíkur en hann verður á næstunni notaður til að bora fjórar rannsóknarholur á háhitasvæðum í Þingeyjarsýslu vegna hugsanlegst álvers við Bakka. 12.4.2007 15:15
Kafbátur fyrir almenning Bandaríska fyrirtækið US Submarine framleiðir kafbáta af ýmsum stærðum og gerðum fyrir almenning. Nýjasta faratækið er sannkaðaður lúxusdallur. Báturinn er 65 metra langur og með þrjú þilför. Hann er því aðeins átta metrum styttri en risaflugvélin Airbus 380. Báturinn ber tegundarnafnið Phoenix 1000. 12.4.2007 15:13
Vilja meiri umræðu um menntamál Of lítið hefur borið á umræðu um menntamál í aðdraganda kosninga að mati Stúdentaráðs Háskóla Íslands. Þetta kemur fram í stefnuskrá sem ráðið sendi frá sér í dag. Að mati ráðsins hafa menntamál fallið í skuggann af umræðunni um umhverfis- og efnhagsmál. 12.4.2007 15:11
Árás í þingi glæpaverk hugleysingja Nouri al-Maliki, forsætisráðherra Íraks, lýsti árásinni í írakska þinginu í Bagdad í morgun sem glæpaverki hugleysingja og sagði að hún myndi ekki draga kjarkinn úr írökskum þingmönnum. Að minnsta kosti tveir írakskir þingmenn eru nú sagðir látnir og vel á annan tug manna særður eftir árásina sem var í kaffiteríu í írakska þinginu. 12.4.2007 14:57
Karlmaður dæmdur fyrir fíkniefnabrot Karlmaður á þrítugsaldri var í dag dæmdur í Héraðsdómi Suðurlands til að greiða 60 þúsund krónur í sekt fyrir vörslu á ólöglegu fíkniefni. Maðurinn hefur fimm sinnum áður fengið dóm vegna brota á lögum um ávana- og fíkniefni. 12.4.2007 14:49
Ekki gefa konum langt nef Tvær Saudi-Arabiskar eiginkonur reiddust eiginmanni sínum svo mjög, þegar hann sagðist ætla að kvænast þriðju konunni, að þær réðust á hann og bitu hann í nefið. Judaie Ibn Salem hélt að hann gæti leyst deilu um skiptingu á heimilisplássinu, með hótun um þriðju eiginkonuna. Það varð þó aðeins til þess að magna deiluna. 12.4.2007 14:45
Hafi flestir verið að gera félögum greiða þegar þeir tóku við efnum í sófa og morgunkornskössum Innlent