Fleiri fréttir Hætta við framboð Áhugahópur um málefni eldri borgara og öryrkja hefur ákveðið að hætta við framboð til Alþingis í vor. Niðurstaðan lá fyrir eftir tilraun til að sameina þau tvö framboð aldraðra og örykrja mistókst. Undirbúningshópur framboðsins telur að það geti spillt fyrir hagsmunum eldri borgara ef tveir hópar vinna að framboðum um sama mál. 8.3.2007 18:24 Formenn leggja fram sáttafrumvarp Formenn stjórnarflokkanna munu leggja fram þingmannafrumvarp um breytingu á stjórnarskránni, sem tryggja á að allar náttúruauðlindir Íslands skuli vera þjóðareign. Þar með er lokið einu mesta átakamáli stjórnarflokkanna á yfirstandandi kjörtímabili. 8.3.2007 18:24 Sagði lögreglu hafa fagnað eins og á fótboltaleik Helgi Sigurðsson, lögfræðingur hjá Kaupþingi, sagði lögreglu ekki hafa leynt ánægju sinni eftir að hann hefði greint henni frá að ekki hefðu fundist færslur í bókhaldi Kaupþings sem pössuðu við þrettán milljóna króna færslu í bókhaldi Baugs sem skráð var þar sem þóknun vegna hlutabréfakaupa. 8.3.2007 18:18 Varað við hálku á Suðurlandi og við Faxaflóa Vegagerðin varar við hríð og hálku víða á Suðurlandi og við Faxaflóa. Þá er mjög hvasst bæði á Steingrímsfjarðarheiði og Klettshálsi og hálka á köflum. Ferðalangar eru hvattir til að kynna sér færð á vef Vegagerðarinnar. 8.3.2007 18:06 Hyggjast skera útblástur niður um fimmtung Leiðtogar Evrópusambandsins munu að líkindum samþykkja á leiðtogafundi sínum að draga úr útblæstri gróðurhúsalofttegunda um að minnsta kosti fimmtung fyrir árið 2020. Forseti framkvæmdastjórnar sambandsins segir trúverðugleika þess í húfi. 8.3.2007 18:00 Menningarsamningur SPRON og Borgarleikhússins Forsvarsmenn SPRON og Borgarleikhússins skrifuðu í dag undir menningarsamning til fjögurra ára. Samningurinn felur í sér að SPRON verður bakhjarl sýninga í leikhúsinu og bókaútgáfu vegna afmælis Leikfélags Reykjavíkur og býður svo bæði viðskiptavinum sínum og öllum nemendum í 10. bekk á Reykjavíkursvæðinu í leikhús næsta vetur. 8.3.2007 17:42 Dæmdur í tveggja og hálfs árs fangelsi fyrir nauðgun Hæstiréttur dæmdi í dag hálffimmtugan karlmann í tveggja og hálfs árs fangelsi fyrir nauðgun og staðfesti þar með dóm Héraðsdóms. Auk þess var manninum gert að greiða fórnarlambi sínu 700 þúsund krónur í miskabætur. Nauðgunin var framin haustið 2005. 8.3.2007 17:33 Skulu veita upplýsingar um viðskipti með hlutabréf Hæstiréttur staðfesti í dag dóm Héraðsdóms um að bönkum beri að veita Ríkisskattstjóra sundurliðaðar upplýsingar um öll viðskipti með hlutabréf sem þeir hafa umsjá með í samræmi við það sem getið er um í lögum um tekjuskatt og eignaskatt. Það ákvæði er þar með sett rétthærra ákvæði um þagnarskyldu í lögum um fjármálafyrirtæki. Þá ber bönkunum að greiða málskostnað í ríkissjóð samkvæmt dómsorði. 8.3.2007 17:11 Deilt um hvort settur saksóknari hefði sakað stjórnarformann Kaupþings um lygar Deilt var um það fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur eftir hádegi í dag hvort settur saksóknari í Baugsmálinu hefði sakað Sigurð Einarsson, stjórnarformann Kaupþings, um að bera ljúgvitni fyrir dómnum í morgun. Sökuðu verjendur settan saksóknara um að reyna komast í fréttirnar og vera meira hreina hryðjuverkastarfsemi í málinu. 8.3.2007 17:10 Landspítali greiði 4,4 milljónir í bætur Landspítali háskólasjúkrahús var í dag dæmt í Hæstarétti til að greiða fyrrverandi starfsmanni sínum 4,4 milljónir króna í skaðabætur fyrir heilsutjón sem hún hlaut þegar hún starfaði á speglunardeild spítalans frá árinu 1988-1997. Þar var henni gert að nota efni sem inniheldur glútaraldehýð til að hreinsa áhöld en af efninu veiktist hún af astma. Landspítali háskólasjúkrahús var í dag dæmt í Hæstarétti til að greiða fyrrverandi starfsmanni sínum 4,4 milljónir króna í skaðabætur fyrir heilsutjón sem hún hlaut þegar hún starfaði á speglunardeild spítalans frá árinu 1988-1997. Þar var henni gert að nota efni sem inniheldur glútaraldehýð til að hreinsa áhöld en af efninu veiktist hún af astma. 8.3.2007 16:54 Skjaldborg um Tower of London Bretar ætla að setja verndarsvæði umhverfis nokkur helstu minnisvarða sína, eins og Tower of London og Stonehenge, til þess að ekki verði byggð mannvirki sem skyggi á menningarfjársjóðina. Þetta var ákveðið eftir að eftirlitsmenn Heimsminjaskrár Sameinuðu þjóðanna hótuðu að lýsa Tower of London í hættu staddan vegna skýjakljúfa sem á að reisa þar í grendinni. 8.3.2007 16:47 Hótaði burðardýri misnotkun sonarins Karlmaður á þrítugsaldri var dæmdur í þriggja ára og átta mánaða fangelsi í Héraðsdómi Reykjaness í dag fyrir innflutning á tæplega þremur kílóum af kókaíni. Manninum var hótað að færi hann ekki sem burðardýr frá Danmörku myndi barnaníðingur misnota son hans. Hann var tekinn á Keflavíkurflugvelli 21. nóvember 2006 þegar hann kom með efnin frá Kaupmannahöfn. 8.3.2007 16:43 Býst ekki við misskilningi Guðbjörg Sigurðardóttir, skrifstofustjóri í forsætisráðuneytinu, segir að hún búist ekki við miklum misskilningi vegna vefsíðunnar island.is. Hún segir að Íslenskir netnotendur séu vanir því að heiti vefslóða séu ekki með íslenskum stöfum. 8.3.2007 16:32 Félagsmálaráðherra frestaði framsöguræðu og fór heim Magnús Stefánsson félagsmálaráðherra, sem fékk aðsvif í miðri ræðu á Alþingi í morgun, hætti við að halda ræðunni áfram á Alþingi síðdegis og fór heim. Læknar hafa sagt honum að hvíla sig. Hann hafði ætlað að mæla fyrir jafnréttisáætlun til næstu fjögurra ára, og halda ræðuna sem hann þurfti að gera hlé á í morgun. 8.3.2007 16:24 Kínverskt flugmóðurskip Kínverjar segjast geta hleypt sínu fyrsta flugmóðurskipi af stokkunum árið 2010, sem veldur Bandaríkjamönnum miklum áhyggjum. Þeir óttast að Kínverjar hyggist keppa við þá um yfirráð á Kyrrahafi, og þá ekki síst í grennd við Tævan, sem Kínverjar segjast munu endurheimta með góðu eða illu. 8.3.2007 16:22 Ný lyfjastefna Siv Friðleifsdóttir heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra kynnti í dag nýja lyfjastefnu til ársins 2012. Í lyfjastefnunni eru dregin fram þau atriði sem betur mega fara í lyfjamálum á Íslandi og sett fram áætlun um úrbætur. Stefnan var samin af 18 manna nefnd sem ráðherra skipaði um málið í september 2004. 8.3.2007 15:35 Hamingjuóskum rignir yfir Varmársamtökin „Þetta er viðurkenning á því sem við höfum verið að berjast fyrir og áfangasigur fyrir skipulagsmál almennt á Íslandi,“ sagði Sigrún Pálsdóttir stjórnarmaður Varmársamtakanna. Bæjarráð Mosfellsbæjar ákvað í morgun að endurskoða deiliskipulagsgögn fyrir Helgafellsveg um Álafosskvos og auglýsa skipulagstillöguna ásamt umhverfisskýrslu að nýju. 8.3.2007 15:35 Respecting Cultural Heritage 8.3.2007 15:34 Sameignarákvæði í stjórnarskrá nái til allra náttúruauðlinda Íslands Samkomulag hefur tekist milli stjórnarflokkanna um auðlindamálið. Samkomulagið gerir ráð fyrir, að formenn flokkanna flytji frumvarp til stjórnarskipunarlaga í eigin nafni þar sem ákvæðið um þjóðareign í lögum um fiskveiðar verði sett inn í stjórnarskrá og látið gilda um allar náttúruauðlindir Íslands. 8.3.2007 15:28 Esja, a New Peak in the Musical Landscape 8.3.2007 15:12 Rafræn skilríki á Íslandi Árni M. Mathiesen fjármálaráðherra og Ingólfur Helgason, forstjóri Kaupþings á Íslandi, tóku í dag í notkun fyrsta rafræna skilríkið hér á landi. Opnaður hefur verið nýr upplýsingavefur um rafræn skilríki, skilriki.is. 8.3.2007 15:09 Chirac kveður á sunnudaginn Búist er við að Jacques Chirac, forseti Frakklands, tilkynni á sunnudaginn að hann muni ekki bjóða sig fram í komandi forsetakosningum. Tilkynnt hefur verið að forsetinn muni flytja ávarp í sjónvarpi klukkan 7 á sunnudagskvöld. 8.3.2007 15:08 Palestínsk þjóðstjórn kynnt í næstu viku Palestínsk þjóðstjórn er 99 prósent tilbúin, að sögn Mahmoud Abbas, forseta Palestínumanna. Abbas átti í dag fund með Ismail Haniyeh forsætisráðherra Hamas í núverandi heimastjórn. Ráðherralisti verður kynntur í næstu viku, en líklega ekki fyrr en eftir fund sem Abbas mun þá eiga með Ehud Olmert, forsætisráðherra Ísraels. 8.3.2007 14:45 Sjö milljarða tekjuauki af erlendum ferðamönnum Rúmlega sjö milljarða tekjuauki varð af erlendum ferðamönnum á síðasta ári miðað við árið 2005. Samkvæmt upplýsingum Seðlabanka Íslands voru heildargjaldeyristekjur af erlendum gestum tæpir 47 milljarðar króna á síðasta ári, en voru tæpir 40 milljarðar árið 2005. 8.3.2007 14:39 Skrifræði skrattans Serbneskur maður varð svo reiður yfir skrifræðinu sem kom í veg fyrir að hann gæti gefið konunni sinni gjöf á baráttudegi kvenna, að hann fór á tollstofuna með járnstöng og braut þar allt og bramlaði. Sasa Dunesijevits keypti á síðasta ári franska örbílinn Axiam 500, sem er svo nettur að það má keyra hann ef maður hefur próf á skellinöðru. 8.3.2007 14:11 Samningur við Eir stenst ekki lög Minnihluti borgarstjórnar gagnrýnir vinnubrögð meirihluta varðandi uppbyggingu menningarmiðstöðvar í Spöng. Málið var tekið fyrir í borgarráði í dag. Fyrirætlanir meirihlutans um að semja beint við Eir um byggingu menningarmiðstöðvarinnar án útboðs standast ekki sveitastjórnarlög. Þetta segir í bókun sem fulltrúar minnihluta í borgarstjórn lögðu fram í ráðinu í dag. 8.3.2007 14:01 Danir vilja eldflaugar Danska ríkisstjórnin vill verða þáttakandi í eldflaugavarnakerfinu sem Bandaríkjamenn hyggjast setja upp í Evrópu. Sören Gade, varnarmálaráðherra hefur margsinnis lýst þessu yfir og Per Stig Möller, utanríkisráðherra, er sammála. 8.3.2007 13:44 Netvistun á ísland.is Fyrirtækið Netvistun ehf. hefur sent frá sér fréttatilkynningu vegna vefsíðunnar island.is sem Forsætisráðuneytið hefur verið að kynna. Vefsíðan hefur verið kynnt sem ísland.is með íi en það lén er í eigu Netvistunnar. 8.3.2007 13:41 Fjármálafyrirtæki styðja meistaranám hjá Háskólanum á Akureyri Fjármálafyrirtækin Saga Capital, Sparisjóður Norðlendinga og fleiri sparisjóðir, Glitnir og Íslensk verðbréf ætla að styðja við uppbyggingu meistaranáms í viðskiptafræði við Háskólann á Akureyri. Skrifað var undir samstarfssamning um faglegan og fjárhagslegan stuðning fyrirtækjanna við verkefnið í morgun. 8.3.2007 13:29 Segir vinnubrögð utanríkisráðuneytisins forkastanleg Sighvatur Björgvinsson, forstjóri Þróunarsamvinnustofnunar Íslands, segir vinnubrögð utanríkisráðuneytisins forkastanleg og það beri vott um valdhroka að leggja stofnunina niður og sameina ráðuneytinu. Hann segir þetta svipað og að leggja Vegagerðina niður og sameina samgönguráðuneytinu. 8.3.2007 13:23 Ekki áhugamaður um báta Sigurður Einarsson stjórnarformaður Kaupþings sagðist í þrígang hafa verið í bátum á Miami, bátum sem teknir eru fyrir í Baugsmálinu. Hann sagði í Héraðsdómi Reykjavíkur rétt fyrir hádegið að hann væri þó ekki áhugamaður um báta og vissi ekki hvort um hefði verið að ræða Thee Viking sem tekist hefur verið á um. 8.3.2007 13:04 Kínverjar til tunglsins Kínverjar ætla að senda könnunargeimfar til tunglsins á þessu ári og senda mannað geimfar þangað innan fimmtán ára. Kínverjar hafa tvisvar sent mönnuð geimför á braut um jörðu, það fyrra árið 2003. Þeir eru því þriðja geimferðaþjóðin, á eftir Rússum og Bandaríkjamönnum. 8.3.2007 12:36 Semja verður við uppreisnarmenn David Petraeus, yfirmaður Bandaríkjahers í Írak, segir útilokað að koma á friði í Írak með hernaðaraðgerðum einum saman heldur verði að fá uppreisnarmenn að samningaborðinu. Á blaðamannafundi í morgun sagði hann teikn á lofti um að átök trúarhópa í landinu væru í rénun. 8.3.2007 12:30 Tillögur um jafnréttislög of róttækar Bjarni Benediktsson, fulltrúi Sjálfstæðismanna við endurskoðun jafnréttislaga, segir tillögur nefndarinnar of róttækar. Samfylkingin vill að jafnréttisfrumvarpið verði samþykkt fyrir kosningar. Þverpólitísk nefnd undir forystu Guðrúnar Erlendsdóttur hefur síðan í sumar setið við endurskoðun jafnréttislaga, sem fyrst voru sett fyrir 30 árum. 8.3.2007 12:21 Hvort er frétt; húsleit eða blaðamaður Magnús Guðmundsson framkvæmdastjóri Kaupthing bank í Luxemborg sagði í morgun að það hefði vakið grunsemdir hjá honum hvernig blaðamaður Morgunblaðsins gat vitað af húsleit í bankanum á undan honum. Þetta sagði hann í skýrslutöku vegna Baugsmálsins í Héraðsdómi Reykjavíkur. 8.3.2007 11:57 Mannskæður bruni í Bronx Mannskæður eldsvoði varð í þriggja hæða íbúðablokk í Bronx-hverfinu í New York í nótt. Níu létust í brunanum, þar af átta börn. Þetta er einn mannskæðasti bruni í New York í seinni tíð segja borgaryfirvöld. Talsmaður slökkviliðs borgarinnar staðfesti tölu látinna í morgun. Minnst tíu að auki slösuðust í brunanum, þar af sex alvarlega. 8.3.2007 11:13 40 prósent telja ójöfnuð milli kynja Tæp 40 prósent telja konur ekki hafa jafnan rétt og karlar á Íslandi. Þetta kemur fram í nýrri könnun frá Gallup International í tilefni alþjóðlegs baráttudags kvenna. Í henni kemur fram að 56 prósent telja rétt kynjanna jafnan. Rúmlega 90 prósent telja menntun ekki mikilvægari fyrir drengi en stúlkur og 84 prósent telja að bæði konan og karlinn ættu að afla tekna fyrir heimilið. 8.3.2007 10:58 Vilja láta kjósa í lávarðadeildina Breskir þingmenn kusu um það í kvöld hvort að það ætti að kjósa í lávarðadeild breska þingsins. Tillagan var samþykkt með yfirgnæfandi meirihluta. Hingað til hafa sæti í deildinni erfst eða verið skipað í þau. Engu að síður er kosningin ekki bindandi en hún gefur til kynna hvað þingið mun leggja til þegar lávarðadeildin verður endurskipulögð síðar á árinu. 7.3.2007 23:21 Bush gagnrýnir Chavez George W. Bush, forseti Bandaríkjanna, sagði í viðtali sem birtist í dag að efnahagsstefna Hugo Chavez, forseta Venesúela, myndi leiða til enn meiri fátæktar í landinu. Viðtalið er birt rétt áður en Bush leggst í ferðalag um Suður-Ameríku sem á að vara við hentistefnu af því tagi sem Bush segir Chavez stunda. 7.3.2007 22:45 Gates vill slaka á innflytjendalögum Bill Gates, stjórnarformaður Microsoft, varaði við því í dag að höft sem sett eru á að hæfir erlendir starfsmenn megi starfa í Bandaríkjunum skerði samkeppnishæfi landsins. Ummæli Gates eru nýjasta árásin á innflytjendalög í tæknigeiranum í Bandaríkjunum en hann vantar sárlega starfsfólk. 7.3.2007 22:30 Samkynhneigðir vilja í bandaríska herinn Tólf fyrrum hermenn í bandaríska hernum, sem eru samkynhneigðir, fóru í dag í mál við ríkisstjórn Bandaríkjanna til þess að fá aftur inngöngu í herinn. Þeim hafði verið vísað úr hernum fyrir að vera samkynhneigð. Í dag er stefna hersins gagnvart samkynhneigðum sú að herinn má ekki spyrja við inngöngu hvort að viðkomandi sé samkynhneigður. Ef það kemst hins vegar upp er hernum heimilt að vísa viðkomandi úr hernum. 7.3.2007 22:00 Búa til reglur um umgengni við vélmenni Ríkisstjórn Suður-Kóreu hefur sett saman nefnd sem á að setja vinnureglur fyrir þá sem búa til vélmenni. Reglurnar eiga að skilgreina hvernig mannfólkið á að umgangast vélmenni og hvernig þau eiga að umgangast mannfólkið. Skýrslan verður tilbúin síðar á þessu ári. 7.3.2007 21:45 Nowak rekin frá NASA Lisa Nowak, geimfarinn sem reyndi að ræna keppinaut sínum um ástir annars geimfara, hefur verið rekin frá Geimferðastofnun Bandaríkjanna (NASA). Brottreksturinn kemur í kjölfar þess að lögregla kærði hana fyrir tilraun til mannráns. 7.3.2007 21:30 Tyrkir loka á YouTube Tyrkir hafa lokað fyrir aðgang að hinni vinsælu vefsíðu YouTube. Ástæðan fyrir þessu er að einhver setti myndskeið á síðuna þar sem gert var grín að stofnanda nútíma Tyrklands, Mustafa Kemal Ataturk, en í Tyrklandi er ólöglegt að gera grín að honum. 7.3.2007 21:00 Deila Rússa og Írana enn óleyst Deilan á milli Rússa og Írana varðandi afborganir af kjarnorkuverinu sem Rússar ætla að byggja í Íran er enn óleyst. Þjóðirnar áttu sáttafund í dag en eftir sex tíma setu var fundinum slitið. Viðræðurnar halda áfram á morgun. Bandaríkin hafa reynt að setja pressu á Rússa til þess að koma í veg fyrir að þeir byggi kjarnorkuverið en þeir halda því fram að Íranar ætli sér að auðga úran í því og nota til vopnaframleiðslu. 7.3.2007 20:36 Sjá næstu 50 fréttir
Hætta við framboð Áhugahópur um málefni eldri borgara og öryrkja hefur ákveðið að hætta við framboð til Alþingis í vor. Niðurstaðan lá fyrir eftir tilraun til að sameina þau tvö framboð aldraðra og örykrja mistókst. Undirbúningshópur framboðsins telur að það geti spillt fyrir hagsmunum eldri borgara ef tveir hópar vinna að framboðum um sama mál. 8.3.2007 18:24
Formenn leggja fram sáttafrumvarp Formenn stjórnarflokkanna munu leggja fram þingmannafrumvarp um breytingu á stjórnarskránni, sem tryggja á að allar náttúruauðlindir Íslands skuli vera þjóðareign. Þar með er lokið einu mesta átakamáli stjórnarflokkanna á yfirstandandi kjörtímabili. 8.3.2007 18:24
Sagði lögreglu hafa fagnað eins og á fótboltaleik Helgi Sigurðsson, lögfræðingur hjá Kaupþingi, sagði lögreglu ekki hafa leynt ánægju sinni eftir að hann hefði greint henni frá að ekki hefðu fundist færslur í bókhaldi Kaupþings sem pössuðu við þrettán milljóna króna færslu í bókhaldi Baugs sem skráð var þar sem þóknun vegna hlutabréfakaupa. 8.3.2007 18:18
Varað við hálku á Suðurlandi og við Faxaflóa Vegagerðin varar við hríð og hálku víða á Suðurlandi og við Faxaflóa. Þá er mjög hvasst bæði á Steingrímsfjarðarheiði og Klettshálsi og hálka á köflum. Ferðalangar eru hvattir til að kynna sér færð á vef Vegagerðarinnar. 8.3.2007 18:06
Hyggjast skera útblástur niður um fimmtung Leiðtogar Evrópusambandsins munu að líkindum samþykkja á leiðtogafundi sínum að draga úr útblæstri gróðurhúsalofttegunda um að minnsta kosti fimmtung fyrir árið 2020. Forseti framkvæmdastjórnar sambandsins segir trúverðugleika þess í húfi. 8.3.2007 18:00
Menningarsamningur SPRON og Borgarleikhússins Forsvarsmenn SPRON og Borgarleikhússins skrifuðu í dag undir menningarsamning til fjögurra ára. Samningurinn felur í sér að SPRON verður bakhjarl sýninga í leikhúsinu og bókaútgáfu vegna afmælis Leikfélags Reykjavíkur og býður svo bæði viðskiptavinum sínum og öllum nemendum í 10. bekk á Reykjavíkursvæðinu í leikhús næsta vetur. 8.3.2007 17:42
Dæmdur í tveggja og hálfs árs fangelsi fyrir nauðgun Hæstiréttur dæmdi í dag hálffimmtugan karlmann í tveggja og hálfs árs fangelsi fyrir nauðgun og staðfesti þar með dóm Héraðsdóms. Auk þess var manninum gert að greiða fórnarlambi sínu 700 þúsund krónur í miskabætur. Nauðgunin var framin haustið 2005. 8.3.2007 17:33
Skulu veita upplýsingar um viðskipti með hlutabréf Hæstiréttur staðfesti í dag dóm Héraðsdóms um að bönkum beri að veita Ríkisskattstjóra sundurliðaðar upplýsingar um öll viðskipti með hlutabréf sem þeir hafa umsjá með í samræmi við það sem getið er um í lögum um tekjuskatt og eignaskatt. Það ákvæði er þar með sett rétthærra ákvæði um þagnarskyldu í lögum um fjármálafyrirtæki. Þá ber bönkunum að greiða málskostnað í ríkissjóð samkvæmt dómsorði. 8.3.2007 17:11
Deilt um hvort settur saksóknari hefði sakað stjórnarformann Kaupþings um lygar Deilt var um það fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur eftir hádegi í dag hvort settur saksóknari í Baugsmálinu hefði sakað Sigurð Einarsson, stjórnarformann Kaupþings, um að bera ljúgvitni fyrir dómnum í morgun. Sökuðu verjendur settan saksóknara um að reyna komast í fréttirnar og vera meira hreina hryðjuverkastarfsemi í málinu. 8.3.2007 17:10
Landspítali greiði 4,4 milljónir í bætur Landspítali háskólasjúkrahús var í dag dæmt í Hæstarétti til að greiða fyrrverandi starfsmanni sínum 4,4 milljónir króna í skaðabætur fyrir heilsutjón sem hún hlaut þegar hún starfaði á speglunardeild spítalans frá árinu 1988-1997. Þar var henni gert að nota efni sem inniheldur glútaraldehýð til að hreinsa áhöld en af efninu veiktist hún af astma. Landspítali háskólasjúkrahús var í dag dæmt í Hæstarétti til að greiða fyrrverandi starfsmanni sínum 4,4 milljónir króna í skaðabætur fyrir heilsutjón sem hún hlaut þegar hún starfaði á speglunardeild spítalans frá árinu 1988-1997. Þar var henni gert að nota efni sem inniheldur glútaraldehýð til að hreinsa áhöld en af efninu veiktist hún af astma. 8.3.2007 16:54
Skjaldborg um Tower of London Bretar ætla að setja verndarsvæði umhverfis nokkur helstu minnisvarða sína, eins og Tower of London og Stonehenge, til þess að ekki verði byggð mannvirki sem skyggi á menningarfjársjóðina. Þetta var ákveðið eftir að eftirlitsmenn Heimsminjaskrár Sameinuðu þjóðanna hótuðu að lýsa Tower of London í hættu staddan vegna skýjakljúfa sem á að reisa þar í grendinni. 8.3.2007 16:47
Hótaði burðardýri misnotkun sonarins Karlmaður á þrítugsaldri var dæmdur í þriggja ára og átta mánaða fangelsi í Héraðsdómi Reykjaness í dag fyrir innflutning á tæplega þremur kílóum af kókaíni. Manninum var hótað að færi hann ekki sem burðardýr frá Danmörku myndi barnaníðingur misnota son hans. Hann var tekinn á Keflavíkurflugvelli 21. nóvember 2006 þegar hann kom með efnin frá Kaupmannahöfn. 8.3.2007 16:43
Býst ekki við misskilningi Guðbjörg Sigurðardóttir, skrifstofustjóri í forsætisráðuneytinu, segir að hún búist ekki við miklum misskilningi vegna vefsíðunnar island.is. Hún segir að Íslenskir netnotendur séu vanir því að heiti vefslóða séu ekki með íslenskum stöfum. 8.3.2007 16:32
Félagsmálaráðherra frestaði framsöguræðu og fór heim Magnús Stefánsson félagsmálaráðherra, sem fékk aðsvif í miðri ræðu á Alþingi í morgun, hætti við að halda ræðunni áfram á Alþingi síðdegis og fór heim. Læknar hafa sagt honum að hvíla sig. Hann hafði ætlað að mæla fyrir jafnréttisáætlun til næstu fjögurra ára, og halda ræðuna sem hann þurfti að gera hlé á í morgun. 8.3.2007 16:24
Kínverskt flugmóðurskip Kínverjar segjast geta hleypt sínu fyrsta flugmóðurskipi af stokkunum árið 2010, sem veldur Bandaríkjamönnum miklum áhyggjum. Þeir óttast að Kínverjar hyggist keppa við þá um yfirráð á Kyrrahafi, og þá ekki síst í grennd við Tævan, sem Kínverjar segjast munu endurheimta með góðu eða illu. 8.3.2007 16:22
Ný lyfjastefna Siv Friðleifsdóttir heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra kynnti í dag nýja lyfjastefnu til ársins 2012. Í lyfjastefnunni eru dregin fram þau atriði sem betur mega fara í lyfjamálum á Íslandi og sett fram áætlun um úrbætur. Stefnan var samin af 18 manna nefnd sem ráðherra skipaði um málið í september 2004. 8.3.2007 15:35
Hamingjuóskum rignir yfir Varmársamtökin „Þetta er viðurkenning á því sem við höfum verið að berjast fyrir og áfangasigur fyrir skipulagsmál almennt á Íslandi,“ sagði Sigrún Pálsdóttir stjórnarmaður Varmársamtakanna. Bæjarráð Mosfellsbæjar ákvað í morgun að endurskoða deiliskipulagsgögn fyrir Helgafellsveg um Álafosskvos og auglýsa skipulagstillöguna ásamt umhverfisskýrslu að nýju. 8.3.2007 15:35
Sameignarákvæði í stjórnarskrá nái til allra náttúruauðlinda Íslands Samkomulag hefur tekist milli stjórnarflokkanna um auðlindamálið. Samkomulagið gerir ráð fyrir, að formenn flokkanna flytji frumvarp til stjórnarskipunarlaga í eigin nafni þar sem ákvæðið um þjóðareign í lögum um fiskveiðar verði sett inn í stjórnarskrá og látið gilda um allar náttúruauðlindir Íslands. 8.3.2007 15:28
Rafræn skilríki á Íslandi Árni M. Mathiesen fjármálaráðherra og Ingólfur Helgason, forstjóri Kaupþings á Íslandi, tóku í dag í notkun fyrsta rafræna skilríkið hér á landi. Opnaður hefur verið nýr upplýsingavefur um rafræn skilríki, skilriki.is. 8.3.2007 15:09
Chirac kveður á sunnudaginn Búist er við að Jacques Chirac, forseti Frakklands, tilkynni á sunnudaginn að hann muni ekki bjóða sig fram í komandi forsetakosningum. Tilkynnt hefur verið að forsetinn muni flytja ávarp í sjónvarpi klukkan 7 á sunnudagskvöld. 8.3.2007 15:08
Palestínsk þjóðstjórn kynnt í næstu viku Palestínsk þjóðstjórn er 99 prósent tilbúin, að sögn Mahmoud Abbas, forseta Palestínumanna. Abbas átti í dag fund með Ismail Haniyeh forsætisráðherra Hamas í núverandi heimastjórn. Ráðherralisti verður kynntur í næstu viku, en líklega ekki fyrr en eftir fund sem Abbas mun þá eiga með Ehud Olmert, forsætisráðherra Ísraels. 8.3.2007 14:45
Sjö milljarða tekjuauki af erlendum ferðamönnum Rúmlega sjö milljarða tekjuauki varð af erlendum ferðamönnum á síðasta ári miðað við árið 2005. Samkvæmt upplýsingum Seðlabanka Íslands voru heildargjaldeyristekjur af erlendum gestum tæpir 47 milljarðar króna á síðasta ári, en voru tæpir 40 milljarðar árið 2005. 8.3.2007 14:39
Skrifræði skrattans Serbneskur maður varð svo reiður yfir skrifræðinu sem kom í veg fyrir að hann gæti gefið konunni sinni gjöf á baráttudegi kvenna, að hann fór á tollstofuna með járnstöng og braut þar allt og bramlaði. Sasa Dunesijevits keypti á síðasta ári franska örbílinn Axiam 500, sem er svo nettur að það má keyra hann ef maður hefur próf á skellinöðru. 8.3.2007 14:11
Samningur við Eir stenst ekki lög Minnihluti borgarstjórnar gagnrýnir vinnubrögð meirihluta varðandi uppbyggingu menningarmiðstöðvar í Spöng. Málið var tekið fyrir í borgarráði í dag. Fyrirætlanir meirihlutans um að semja beint við Eir um byggingu menningarmiðstöðvarinnar án útboðs standast ekki sveitastjórnarlög. Þetta segir í bókun sem fulltrúar minnihluta í borgarstjórn lögðu fram í ráðinu í dag. 8.3.2007 14:01
Danir vilja eldflaugar Danska ríkisstjórnin vill verða þáttakandi í eldflaugavarnakerfinu sem Bandaríkjamenn hyggjast setja upp í Evrópu. Sören Gade, varnarmálaráðherra hefur margsinnis lýst þessu yfir og Per Stig Möller, utanríkisráðherra, er sammála. 8.3.2007 13:44
Netvistun á ísland.is Fyrirtækið Netvistun ehf. hefur sent frá sér fréttatilkynningu vegna vefsíðunnar island.is sem Forsætisráðuneytið hefur verið að kynna. Vefsíðan hefur verið kynnt sem ísland.is með íi en það lén er í eigu Netvistunnar. 8.3.2007 13:41
Fjármálafyrirtæki styðja meistaranám hjá Háskólanum á Akureyri Fjármálafyrirtækin Saga Capital, Sparisjóður Norðlendinga og fleiri sparisjóðir, Glitnir og Íslensk verðbréf ætla að styðja við uppbyggingu meistaranáms í viðskiptafræði við Háskólann á Akureyri. Skrifað var undir samstarfssamning um faglegan og fjárhagslegan stuðning fyrirtækjanna við verkefnið í morgun. 8.3.2007 13:29
Segir vinnubrögð utanríkisráðuneytisins forkastanleg Sighvatur Björgvinsson, forstjóri Þróunarsamvinnustofnunar Íslands, segir vinnubrögð utanríkisráðuneytisins forkastanleg og það beri vott um valdhroka að leggja stofnunina niður og sameina ráðuneytinu. Hann segir þetta svipað og að leggja Vegagerðina niður og sameina samgönguráðuneytinu. 8.3.2007 13:23
Ekki áhugamaður um báta Sigurður Einarsson stjórnarformaður Kaupþings sagðist í þrígang hafa verið í bátum á Miami, bátum sem teknir eru fyrir í Baugsmálinu. Hann sagði í Héraðsdómi Reykjavíkur rétt fyrir hádegið að hann væri þó ekki áhugamaður um báta og vissi ekki hvort um hefði verið að ræða Thee Viking sem tekist hefur verið á um. 8.3.2007 13:04
Kínverjar til tunglsins Kínverjar ætla að senda könnunargeimfar til tunglsins á þessu ári og senda mannað geimfar þangað innan fimmtán ára. Kínverjar hafa tvisvar sent mönnuð geimför á braut um jörðu, það fyrra árið 2003. Þeir eru því þriðja geimferðaþjóðin, á eftir Rússum og Bandaríkjamönnum. 8.3.2007 12:36
Semja verður við uppreisnarmenn David Petraeus, yfirmaður Bandaríkjahers í Írak, segir útilokað að koma á friði í Írak með hernaðaraðgerðum einum saman heldur verði að fá uppreisnarmenn að samningaborðinu. Á blaðamannafundi í morgun sagði hann teikn á lofti um að átök trúarhópa í landinu væru í rénun. 8.3.2007 12:30
Tillögur um jafnréttislög of róttækar Bjarni Benediktsson, fulltrúi Sjálfstæðismanna við endurskoðun jafnréttislaga, segir tillögur nefndarinnar of róttækar. Samfylkingin vill að jafnréttisfrumvarpið verði samþykkt fyrir kosningar. Þverpólitísk nefnd undir forystu Guðrúnar Erlendsdóttur hefur síðan í sumar setið við endurskoðun jafnréttislaga, sem fyrst voru sett fyrir 30 árum. 8.3.2007 12:21
Hvort er frétt; húsleit eða blaðamaður Magnús Guðmundsson framkvæmdastjóri Kaupthing bank í Luxemborg sagði í morgun að það hefði vakið grunsemdir hjá honum hvernig blaðamaður Morgunblaðsins gat vitað af húsleit í bankanum á undan honum. Þetta sagði hann í skýrslutöku vegna Baugsmálsins í Héraðsdómi Reykjavíkur. 8.3.2007 11:57
Mannskæður bruni í Bronx Mannskæður eldsvoði varð í þriggja hæða íbúðablokk í Bronx-hverfinu í New York í nótt. Níu létust í brunanum, þar af átta börn. Þetta er einn mannskæðasti bruni í New York í seinni tíð segja borgaryfirvöld. Talsmaður slökkviliðs borgarinnar staðfesti tölu látinna í morgun. Minnst tíu að auki slösuðust í brunanum, þar af sex alvarlega. 8.3.2007 11:13
40 prósent telja ójöfnuð milli kynja Tæp 40 prósent telja konur ekki hafa jafnan rétt og karlar á Íslandi. Þetta kemur fram í nýrri könnun frá Gallup International í tilefni alþjóðlegs baráttudags kvenna. Í henni kemur fram að 56 prósent telja rétt kynjanna jafnan. Rúmlega 90 prósent telja menntun ekki mikilvægari fyrir drengi en stúlkur og 84 prósent telja að bæði konan og karlinn ættu að afla tekna fyrir heimilið. 8.3.2007 10:58
Vilja láta kjósa í lávarðadeildina Breskir þingmenn kusu um það í kvöld hvort að það ætti að kjósa í lávarðadeild breska þingsins. Tillagan var samþykkt með yfirgnæfandi meirihluta. Hingað til hafa sæti í deildinni erfst eða verið skipað í þau. Engu að síður er kosningin ekki bindandi en hún gefur til kynna hvað þingið mun leggja til þegar lávarðadeildin verður endurskipulögð síðar á árinu. 7.3.2007 23:21
Bush gagnrýnir Chavez George W. Bush, forseti Bandaríkjanna, sagði í viðtali sem birtist í dag að efnahagsstefna Hugo Chavez, forseta Venesúela, myndi leiða til enn meiri fátæktar í landinu. Viðtalið er birt rétt áður en Bush leggst í ferðalag um Suður-Ameríku sem á að vara við hentistefnu af því tagi sem Bush segir Chavez stunda. 7.3.2007 22:45
Gates vill slaka á innflytjendalögum Bill Gates, stjórnarformaður Microsoft, varaði við því í dag að höft sem sett eru á að hæfir erlendir starfsmenn megi starfa í Bandaríkjunum skerði samkeppnishæfi landsins. Ummæli Gates eru nýjasta árásin á innflytjendalög í tæknigeiranum í Bandaríkjunum en hann vantar sárlega starfsfólk. 7.3.2007 22:30
Samkynhneigðir vilja í bandaríska herinn Tólf fyrrum hermenn í bandaríska hernum, sem eru samkynhneigðir, fóru í dag í mál við ríkisstjórn Bandaríkjanna til þess að fá aftur inngöngu í herinn. Þeim hafði verið vísað úr hernum fyrir að vera samkynhneigð. Í dag er stefna hersins gagnvart samkynhneigðum sú að herinn má ekki spyrja við inngöngu hvort að viðkomandi sé samkynhneigður. Ef það kemst hins vegar upp er hernum heimilt að vísa viðkomandi úr hernum. 7.3.2007 22:00
Búa til reglur um umgengni við vélmenni Ríkisstjórn Suður-Kóreu hefur sett saman nefnd sem á að setja vinnureglur fyrir þá sem búa til vélmenni. Reglurnar eiga að skilgreina hvernig mannfólkið á að umgangast vélmenni og hvernig þau eiga að umgangast mannfólkið. Skýrslan verður tilbúin síðar á þessu ári. 7.3.2007 21:45
Nowak rekin frá NASA Lisa Nowak, geimfarinn sem reyndi að ræna keppinaut sínum um ástir annars geimfara, hefur verið rekin frá Geimferðastofnun Bandaríkjanna (NASA). Brottreksturinn kemur í kjölfar þess að lögregla kærði hana fyrir tilraun til mannráns. 7.3.2007 21:30
Tyrkir loka á YouTube Tyrkir hafa lokað fyrir aðgang að hinni vinsælu vefsíðu YouTube. Ástæðan fyrir þessu er að einhver setti myndskeið á síðuna þar sem gert var grín að stofnanda nútíma Tyrklands, Mustafa Kemal Ataturk, en í Tyrklandi er ólöglegt að gera grín að honum. 7.3.2007 21:00
Deila Rússa og Írana enn óleyst Deilan á milli Rússa og Írana varðandi afborganir af kjarnorkuverinu sem Rússar ætla að byggja í Íran er enn óleyst. Þjóðirnar áttu sáttafund í dag en eftir sex tíma setu var fundinum slitið. Viðræðurnar halda áfram á morgun. Bandaríkin hafa reynt að setja pressu á Rússa til þess að koma í veg fyrir að þeir byggi kjarnorkuverið en þeir halda því fram að Íranar ætli sér að auðga úran í því og nota til vopnaframleiðslu. 7.3.2007 20:36