Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Úrskurðir í safni Pósts og síma Samkvæmt skýrslu Kaldastríðsnefndar Alþingis eru dómsúrskurði um hleranir lögreglu á árunum 1945 til 1991 að finna í skjalasafni Pósts- og Síma sem enn á eftir að fara yfir. Gögnum lögreglu var eytt 1976. Nefndin leggur til að sérstöku safni yfir gögn um öryggismál verði komið á fót. 9.2.2007 19:29
Uggur í skipverjum Uggur er í skipverjum um borð í flutningaskipinu Castor Star, sem hefur verið í Grundartangahöfn síðan í fyrradag. Þeir segjast ekki hafa fengið greidd laun og rýran kost vera um borð. Fulltrúi útgerðarfélagsins kom um borð í morgun og hefur fram eftir degi ráðið ráðum sínum með íslenskum lögfræðingi. 9.2.2007 19:23
Húseignir skemmdar með veggjakroti í miðborginni Einhverjir virðast í nótt hafa fengið útrás fyrir skemmdarfísn sína með úðabrúsa. Skemmdarverk hafa verið unnin á húsum við Skólavörðustíg með veggjakroti og má áætla að tjón húseigenda skipti mörghundruð þúsundum króna. 9.2.2007 18:59
Utanríkisráðherra fyrir þingnefnd vegna forseta Íslands Utanríkisráðherra gerir ekki athugasemd við setu forseta Íslands í þróunarráði Indlands. Formaður utanríkismálanefndar Alþingis segir þetta mál hins vegar sýna að ekki ríki fullur trúnaður á milli forsetaembættisins og annarra stjórnvalda. 9.2.2007 18:55
Valgerður vill sömu ríkisstjórn áfram Valgerður Sverrisdóttir utanríkisráðherra segir best fyrir Ísland að ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks haldi áfram eftir kosningar. 9.2.2007 18:46
FL Group flytur hugsanlega frá Danmörku Forstjóri fjárfestingafyrirtækisins FL Group segir að til greina komi að flytja starfsemi fyrirtækisins í Kaupmannahöfn frá Danmörku, verði nýjar skattatillögur dönsku ríkisstjórnarinnar að veruleika. Þetta kom fram á ráðstefnu um íslenska viðskiptalífið í Kaupmannahöfn í dag, þar sem forseti Íslands hrósaði íslensku bönkunum fyrir góðan árangur. 9.2.2007 18:45
Máli olíuforstjóranna vísað frá dómi Héraðsdómur Reykjavíkur vísaði í dag frá máli ákæruvaldsins gegn olíuforstjórunum þremur í samráðsmálinu. Frávísun Héraðsdóms er óvanalega harðorð en samkvæmt henni er verknaðarlýsing óljós og því erfitt að verjast ákæru. 9.2.2007 18:45
Afar hæpið að löglegt hafi verið leyfa Straumi-Burðarás að taka upp evru Davíð Oddsson segir það mat Seðlabankans að afar hæpið sé að farið hafi verið að lögum þegar Straumur-Burðarás fékk heimild til að skrá bókhald sitt í evrum. Seðlabankinn gerði athugasemd við fjármálaráðuneytið en leyfið hafði þá þegar verið veitt. 9.2.2007 18:37
Beið bana í eldsvoða Íslenskur maður lét lífið í bruna í geymslu við veitingahús í Stokkhólmi í fyrrinótt. Orsakir slyssins eru óljósar en Stokkhólmslögreglan vinnur að rannsókn þess. 9.2.2007 18:30
Átök við al-Aqsa moskuna Viðbrögð við samkomulagi stríðandi fylkinga í Palestínu, um myndun þjóðstjórnar, hafa verið varfærin enda er tilveruréttur Ísraelsríkis ekki viðurkenndur þar sérstaklega. Til heiftarlegra átaka kom á milli ísraelskra lögreglusveita og íslamskra mótmælenda við al-Aqsa-moskuna í Jerúsalem í dag. 9.2.2007 18:30
Forsögulegt faðmlag Ótrúleg sjón blasti við ítölskum fornleifafræðingum í vikunni þegar þeir opnuðu gröf nærri borginni Mantúa, sem er skammt frá Veróna, sögusviði leikritisins um Rómeó og Júlíu. 9.2.2007 18:30
Branson vill bjarga heiminum Sir Richard Branson, auðkýfingur og ævintýramaður, tilkynnti í dag að hann myndi halda keppni um það hver gæti fundið bestu leiðina til þess að minnka og binda koltvísýring í andrúmsloftinu. Verðlaunin verða í kringum tíu milljón pund, sem eru um 1,3 milljarðar íslenskra króna. 9.2.2007 17:59
Skjólstæðingar Byrgisins fái tafarlaust aðstoð Félagsmálanefnd Alþingis samþykkti einróma á fundi sínum í dag að skora á ríkisstjórnina að grípa til aðgerða vegna málefna Byrgisins sem voru til umræðu á fundi nefndarinnar í dag. Þar er farið fram á að fyrrverandi skjólstæðingum Byrgisins verði tafarlaust veitt aðstoð innan heilbrigðis- og félagslega kerfisins. 9.2.2007 17:34
Norðmenn byggja fræhvelfingu Norðmenn sögðu frá því í dag að þeir ætli sér að smíða geymslu fyrir öll fræ heimsins. Geymslan verður staðsett á svalbarða og á að sjá til þess að mannkynið geti lifað af ef til náttúruhörmunga kæmi. 9.2.2007 17:32
KEA hagnaðist um tæpar 290 milljónir í fyrra Hagnaður KEA á síðasta ári nam 287 milljónum króna og jókst um tæpar 25 milljónir frá fyrra ári. Þetta kemur fram í tilkynningu félagsins til Kauphallar Íslands. 9.2.2007 17:25
Komið verði á fót safni með kaldastríðsupplýsingum fyrir alla Nefnd, sem skipuð var til að fjalla um aðgang að opinberum gögnum um innra og ytra öryggi landins á árunum 1945-1991, leggur til að komið verði á fót sérstöku öryggismálasafni sem bæði fræðimenn og almenningur hafi aðgang að. 9.2.2007 17:00
Skefjalaus skelfing Bandarískur kaupsýslumaður er að kanna hvort hann geti farið í mál við rússneskt flugfélag sem hann segir að hafi valdið sér svo mikilli skelfingu að hann hafi þurft að leita til sálfræðings um áfallahjálp. Vélin var í innanlandsflugi í Rússlandi, og var að aka út á flugbrautina, þegar hún skyndilega stoppaði og ók aftur upp að flugstöðinni. 9.2.2007 16:46
Undirrituðu samning um samstarf á sviði menningarmála Valgerður Sverrisdóttir utanríkisráðherra og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra undirrituðu í dag samkomulag um samstarf ráðuneytanna á sviði menningarmála. 9.2.2007 16:45
Stöðvaður á 105 km með annan í togi Lögreglan á Akranesi stöðvaði bifreið í dag á Vesturlandsvegi á 105 km hraða. Ökumaðurinn dró aðra bifreið með taug og gildir 30 km hámarkshraði við þær aðstæður. Í reglugerð um tengingu og drátt ökutækja segir að sé bifreið dregin með viðurkenndum björgunarbúnaði megi ekki aka hraðar en 50km/klst, en ef dregið er með taug er hámarkshraði 30 km/klst. 9.2.2007 16:38
Bjuggust við þessari niðurstöðu Kristinn Björnsson fyrrverandi forstjóri Skeljungs segir að hann og lögmaður hans hafi átt von á þessari niðurstöðu frá Héraðsdómi Reykjavíkur. Frekari viðbrögð myndu þó bíða þar til niðurstaða Hæstaréttar væri ljós. 9.2.2007 16:27
Hamas söm við sig Hamas samtökin hvöttu í dag vesturlönd til þess að samþykkja nýja þjóðstjórn Palestínumanna, en sögðu um leið að þau muni aldrei viðurkenna Ísraelsríki, né hlíta friðarsamningum sem þegar hafi verið gerðir. Einn leiðtoga Hamas sagði að þeir gætu ekki viðurkennt Ísraelsríki vegna þess að það væri ekkert til sem héti Ísraelsríki. 9.2.2007 16:20
Máli á hendur olíuforstjórum vísað frá héraðsdómi Héraðsdómur Reykjavíkur vísaði í dag frá máli ákæruvaldsins á hendur þremur fyrrverandi og núverandi forstjórum stóru olíufélaganna þriggja vegna samráðs félaganna. 9.2.2007 16:09
Ýmis leyfi í veitinga- og gistigeira verða rekstrarleyfi Veitinga- og gistileyfi, áfengisveitingaleyfi og skemmtanaleyfi verða sameinuð í eitt leyfi undir nafninu rekstarleyfi samkvæmt frumvarpi sem Sturla Böðvarsson samgönguráðherra kynnti á ríkisstjórnarfundi á morgun. Jafnframt er lagt til að yfirstjórn mála sem lúta að veitinga- og gististöðum verði færð frá samgönguráðuneyti til dómsmálaráðuneytis. 9.2.2007 15:55
Flækjur á World Press Photo Ljósmynd af hópi Líbana akandi á sportbíl í gegnum sundursprengda Beirútborg vann verðlaun í aðalflokki World Press Photo í dag. Verðlaunin voru veitt í Amsterdam en það var Spencer Platt ljósmyndari Getty Images sem tók myndina. Dómnefnd taldi myndina fulla af flækjum og þversögnum. Hún sýnir fimm manns í sportbíl 9.2.2007 15:45
Risasamningur um markaðssetningu á diski Silvíu Nætur Íslenska útgáfufyrirtækið Reykjavik Records hyggst á morgun undirrita stærsta hljómplötusamning sem gerður hefur verið hér á landi um markaðssetnignu á nýjum geisladiski Silvíu Nætur á alþjóðavettvangi. 9.2.2007 15:38
Verk Kjarvals og Ólafs Elíassonar sýnd í Kaupmannahöfn Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, opnaði dag listsýningu í í Gallery Gl. Strand í Kaupmannahöfn þar sem sýnd eru verk eftir tvo íslenska meistara, þá Jóhannes S. Kjarval og hinn heimsþekkta dansk-íslenska listamann Ólaf Elíasson. Sýningin ber nafnið Hraunland. 9.2.2007 15:16
Óskað eftir áframhaldandi gæsluvarðhaldi vegna meintra kynferðisbrota Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskaði eftir því í dag að gæsluvarðhald yfir 26 ára gömlum karlmanni, sem grunaður er um að hafa áreitt fjórar stúlkur á aldrinum 5-12 ára í Vogahverfi um miðjan síðasta mánuð, yrði framlengt um einn og hálfan mánuð. 9.2.2007 15:05
Útilokar ekkert í rannsókn á dauða Íslendings Rannsókn á dauða Íslendings sem fórst í bruna á veitingastaðnum Engelen í Gamla stan hverfinu í Stokkhólmi í fyrrinótt stendur enn yfir að sögn lögreglunnar í Stokkhólmi og útilokar hún ekkert í þeim efnum. Eins og greint var frá fyrr í dag fannst maðurinn í ruslageymslu inn af veitingastaðnum. 9.2.2007 14:48
Barðist í hálftíma við kyrkislöngu um dóttursoninn Sextíu og sex ára gamall brasiliskur maður barðist í rúma hálfa klukkustund við fimm metra langa kyrkislöngu sem hafði vafið sig utan um átta ára gamlan dótturson hans. Drengurinn var að leika sér í gili, rétt hjá búgarði afans, sem er í Cosorama héraði um 500 kílómetra vestan við Sao Paulo. Joaquim Pereira var að aka heim að búgarðinum, þegar hann heyrði ópin í barnabarninu. 9.2.2007 14:37
Lögreglan á Akureyri leitar tveggja vélsleða Lögreglan á Akureyri leitar tveggja vélsleða og tveggja sleða kerru sem var stolið frá Frostagötu á Akureyri á tímabilinu 29. - 31. janúar 2007. Í tilkynningu frá lögreglunni kemur fram að sleðarnir séu báðir af Yamaha-gerð, annar þeirra blár að lit en hinn rauður og svartur. 9.2.2007 14:30
Boða til fundar gegn virkjunum í Þjórsá Samtökin Sól á Suðurlandi sem berjast gegn áformum Landsvirkjunar um þrjár virkjanir með tilheyrandi lónum í neðri hluta Þjórsár hyggjast halda fund á sunnudaginn kemur í félagsheimilinu Árnesi í Skeiða- og Gnúpverjahreppi. 9.2.2007 14:23
Skipar nýjan stjórnarformann TR Siv Friðleifsdóttir, heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra, hefur skipað Inga Má Aðalsteinsson viðskiptafræðing, formann stjórnar Tryggingastofnunar ríkisins. Hann tekur við af Kristni H. Gunnarssyni. 9.2.2007 14:17
Taka ekki íslensk greiðslukort gild „Vi godtar alla nordiska betal- och kreditkort (förutom isländska kort)", stendur á heimasíðu Sænsku járnbrautanna sj.se. Með öðrum orðum geta Íslendingar ekki treyst á greiðslukortin sín ætli þeir að kaupa sér lestarmiða í Svíþjóð. Samkvæmt heimildum hafa einhverjir Íslendingar lent í vandræðum vegna þessa. 9.2.2007 14:15
Tilnefnd til Norrænu barnabókaverðlaunanna Félag skólasafnskennara hefur tilnefnt Brynhildi Þórarinsdóttur til Norrænu barnabókaverðlaunanna 2007 af Íslands hálfu. Brynhildur er tilnefnd fyrir bækurnar Njálu, Eglu og Laxdælu. Í þeim segir hún á afar skemmtilegan og aðgengilegan hátt frá þessum þekktu og vinsælu Íslendingasögum. 9.2.2007 14:08
Fagnar útrás á sviði vistvænnar orku Aðalfundur Samorku, sem eru samtök orku- og veitufyrirtækja, fagnar útrás íslenskra fyrirtækja á sviði vistvænnar orku og segir að með frumkvöðlastarfsemi muni Íslendingar leggja sitt af mörkum í einu mikilvægasta verkefni samtímans sem sé baráttan við hlýnun lofthjúps jarðar. 9.2.2007 13:15
Varfærin viðbrögð við samkomulagi í Palestínu Viðbrögðin við samkomulagi stríðandi fylkinga í Palestínu um myndun þjóðstjórnar hafa víðast hvar verið varfærin. Hamas fær samkvæmt því flest ráðuneyti í stjórninni í sinn hlut en ekkert er þar kveðið á um stöðu Ísraels. Til átaka kom í Jerúsalem í morgun á milli ísraelskra lögreglumanna og Palestínumanna. 9.2.2007 13:00
Grunur um íkveikju í Breiðholti Stórt hús við Hraunberg í Breiðholti í Reykjavík sem til skamms tíma hýsti starfsemi skátafélags stórskemmdist í eldi í gærkvöldi. Grunur leikur á að kveikt hafi verið í húsinu. 9.2.2007 12:45
Táningur í fangelsi fyrir skólaskróp Fimmtán ára gömul skólastúlka hefur verið send í fangelsi í Þýskalandi fyrir að skrópa í skólann. Maggie Haineder frá Goerlitz í Saxony fékk tveggja vikna fangelsisdóm eftir að skrópa í skólann meira en þrjár vikur. Dómarinn Andreas Pech neitaði að breyta dómnum þrátt fyrir gagnrýni. 9.2.2007 12:32
Útgerðarmaður flutningaskips kominn um borð Heitt var í kolunum um borð í flutningaskipinu Castor Star í Grundartangahöfn í morgun þegar grískur útgerðarmaður skipsins kom um borð. Nær öll áhöfnin hefur ekki fengið laun í um 5 mánuði og kostur um borð mun vera af skornum skammti. Siglingastofnun kannar nú skráningarpappíra skipsins. 9.2.2007 12:30
Kraftur og hugvit grunnur að útrás til Danmerkur Forseti Íslands segir kraft og hugvit íslensku þjóðarinnar grunninn að miklum fjárfestingum Íslendinga í Danmörku. Þetta sagði hann á ráðstefnu í Kaupmannahöfn í morgun um nýsköpun íslenskra fyrirtækja. 9.2.2007 12:15
Valgerður á fundi utanríkismálanefndar í morgun Valgerður Sverrisdóttir utanríkisráðherra var kölluð fyrir utanríkismálanefnd Alþingis í morgun til að ræða um setu forseta Íslands í þróunarráði Indlands. 9.2.2007 12:05
Hreyfing fyrir alla Tilraunaverkefni um aukna hreyfingu landsmanna hefur verið hleypt af stokkunum. Tilgangur verkefnisins Hreyfing fyrir alla er að fjölga tilboðum og skipulagðri hreyfingu, sér í lagi fyrir fullorðna og eldra fólk, og er ætlað að höfða til ólíkra hópa með mismunandi þarfir sem stunda ekki reglulega hreyfingu. Vonir standa til að verkefnið geti náð til allt að 2/3 hluta landsmanna en um er að ræða samvinnu við ýmis bæjarfélög, stéttarfélög auk heilsugæslu og íþróttafélaga í við komandi sveitarfélögum, auk fleiri aðila. 9.2.2007 11:53
Átök í Jerúsalem Átök brutust út við Al Aqsa-moskuna í Jerúsalem nú áðan. Ísraelska herlögreglan réðist inn í moskuna þar sem fyrir voru palestínskir verkamenn sem hentu grjóti í lögregluna. Verkamennirnir mótmæla framkvæmdum Ísraelsmanna við moskuna og segja þá vanhelga hana. Lögreglumennirnir mættu mótmælendunum með gúmmíkúlum og handsprengjum. 9.2.2007 11:33
Íslendingur lést í bruna í Stokkhólmi Íslenskur karlmaður lést í bruna á veitingastað í Stokkhólmi aðfaranótt fimmtudagsins. Eftir því sem sænska dagblaðið Aftonbladet segir var um að ræða veitingastaðinn Engelen í hverfinu Gamla stan, sem er gamli bærinn í Stokkhólmi. 9.2.2007 11:28
Árangur íslenskra fyrirtækja í brennidepli Forseti Íslands Ólafur Ragnar Grímsson fjallaði um árangur íslenskra fyrirtækja á alþjóðavettvangi í ræðu á málþingi í Kaupmannahöfn sem ber heitið Hvorfor er islandske firmaer saa innovative – giver det anledning til forundring? Forsetinn vakti athygli á því að önnur smærri ríki Evrópu hefðu náð góðum árangri og að 21. öldin gæti orðið smáum og meðalstórum ríkjum hagstæð. 9.2.2007 11:20