Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Castro farinn að borða á ný Fidel Castro, leiðtogi Kúbu, er byrjaður að borða á ný. Castro hefur átt í miklum heilsufarsvandræðum síðasta hálfa árið og hefur ekki verið við völd þann tíma. Læknir hans, Ali rodriguez, sagði þó í dag að heilsa hans væri að batna hratt. Hann bætti þó við að Kúbverjar vissu að Castro myndi ekki lifa að eilífu. 8.2.2007 22:41
Sex látnir eftir sprengingu í Ramallah Sprenging á bensínstöð í borginni Ramallah á Vesturbakkanum svokallaða í dag varð sex manns að bana og slasaði að minnsta kosti 20. Sprengingin varð vegna þess að neistar frá tækjum iðnaðarmanna sem voru við vinnu sína á stöðinni komust í bensín. 8.2.2007 22:25
KKK að stækka á ný Bandarísku kynþáttahöturunum í Kú Klúx Klan vex nú ásmegin vegna vandamála með ólöglega innflytjendur þar í landi. Meðlimafjöldi er í fyrsta sinn í langan tíma farinn að aukast á ný. KKK minnkaði mikið eftir upphaf sjöunda áratugarins en fyrir það gengu þeir um í hvítu sloppunum sínum, brenndu krossa og myrtu saklaust fólk. 8.2.2007 22:17
Enn logar í gamla skátaheimilinu Eldur kviknaði í gamla skátaheimilinu við Hraunberg í Breiðholti í kvöld. Allt tiltækt slökkvilið var kallað út vegna eldsins. Sex reykkafarar fóru inn í húsið að leita að eldsupptökum en eldurinn er enn sem komið er aðeins inni í húsinu. Slökkviliðið er sem stendur að rífa gat á þak hússins til þess að auðvelda slökkvistarf. 8.2.2007 21:44
Fagnað í Gaza Gríðarleg fagnaðarlæti brutust út í Gaza þegar ljóst var að Hamas og Fatah höfðu náð samkomulagi um þjóðstjórn í Palestínu. Þúsundir manna fóru út á götur borgarinnar og fögnuðu saman. Palestínumenn vonast til þess að samkomulagið sem var undirritað í Mekka í dag verði til þess að vestræn stjórnvöld dragi úr refsiaðgerðum gegn þarlendum stjórnvöldum. 8.2.2007 21:37
Anna Nicole Smith látin Fyrrum Playboy módelið Anna Nicole Smith, sem varð fræg þegar hún giftist háöldruðum auðkýfingi seint á tíunda áratug síðustu aldar, er látin. Hún var stödd á Hard Rock hótelinu og spilavítinu í Flórída þegar hún missti meðvitund. Sjúkraliðar á staðnum beittu hjartahnoði og þurftu að barkaþræða hana. Farið var með hana í miklum flýti á Memorial Regional sjúkrahúsið en þar lést hún. Lögfræðingur hennar staðfesti þetta rétt í þessu. 8.2.2007 21:09
Eldur í gamla skátaheimilinu í Breiðholti Eldur kviknaði í gamla skátaheimilinu bakvið Gerðuberg í Breiðholti í kvöld. Allt tiltækt slökkvilið var kallað út vegna eldsins. Sex reykkafarar eru þegar komnir inn í húsið. Slökkviliðið gat ekkert sagt um umfang eldsins eða upptök hans að svo stöddu. 8.2.2007 21:02
Bíll frumsýndur í tölvuleik Toyota frumsýndi í dag tvær útgáfur af Scion bifreið þeirra. Það merkilega er að fréttamannafundirnir og kynningarnar voru haldnar í tveimur heimum samtímis. Annars vegar í raunveruleikanum og hins vegar í tilbúnum veruleikaheimi sem kallast „Annað Líf“ eða „Second Life“ á frummálinu. 8.2.2007 20:53
Prófa nýtt bóluefni gegn alnæmi Suður-Afríka, sem glímir við einn stærsta alnæmisfaraldur í heimi, kynnti í dag áætlun um prófanir á nýju bóluefni gegn alnæmi. Verkefnið er það stærsta sem sem landið hefur tekið þátt í. Verkefnið er styrkt af stjórnvöldum í Suður-Afríku en þau héldu því lengi vel fram að bestu varnirnar gegn alnæmi væru hvítlaukur og rauðrófur. 8.2.2007 20:23
Snjór framleiddur á Dalvík Á meðan snjó kyngir niður víða um Evrópu þurfa Dalvíkingar að framleiða hann sjálfir. Það hafa þeir gert í vetur og hafa fyrir vikið getað haft skíðasvæði sitt að hluta opið í rúmlega 50 daga sem ella hefði verið lokað flesta daga. 8.2.2007 20:00
Rán framið í Samkaup í Sandgerði Rán var fram í versluninni Samkaup í Sandgerði nú rétt eftir sjöleytið í kvöld. Lögreglan á suðurnesjum er enn á vettvangi að rannsaka vegsummerki á staðnum. Einn aðili var að verki og leitar nú lögreglan í bílum á leið frá svæðinu. Ekkert er hægt að segja til um umfang ránsins að svo stöddu. 8.2.2007 19:53
Náttúruleg heimkynni órangútana í hættu Hætt er við því að órangútanar tapi náttúrulegum heimkynnum sínum endanlega á næstu fimmtán árum verði ekkert að gert mjög fljótlega. Skógar Súmötru og Borneó eru heimkynni órangútana en þar er stundað ólöglegt skógarhögg. 8.2.2007 19:52
Snjóþungt víða um Evrópu Vetur konungur hefur farið hamförum víða um Evrópu í dag. Snjóað hefur ótæpilega í Belgíu, Bretlandi og Hollandi og hefur það haft áhrif á samgöngur í löndunum, en ekki síður til þeirra og frá. 8.2.2007 19:45
Svangir og hræddir Þeir eru svangir og hræddir, sjómennirnir um borð í flutningaskipinu Castor Star. Eini kosturinn síðustu þrjár vikurnar hefur verið hveiti, kál, núðlur og örfá egg. 8.2.2007 19:30
Hamas og Fatah undirrita samkomulag um þjóðstjórn Leiðtogar Hamas og Fatah hreyfinganna skrifuðu rétt í þessu undir samkomulag um myndun þjóðstjórnar í Palestínu. Samkomulaginu er ætlað að binda enda á átökin í Palestínu en yfir 90 manns hafa látið lífið í átökunum síðan í desember. Hamas mun þó ekki viðurkenna tilverurétt Ísraels 8.2.2007 19:14
Stjórnvöld neita að taka ábyrgð á vímuefnasjúklingum Stjórnvöld stinga höfðinu í sandinn og neita að taka ábyrgð á hörmungarsögu Byrgisins, segir geðlæknir sem fyrstur reyndi að vekja athygli Landlæknis á kynferðismisnotkun ungra kvenna sem dvöldust í Byrginu. 8.2.2007 19:01
Hékk í poka yfir logandi kolavél Fyrrum vistmaður á Breiðavík segir starfsfólk á staðnum hafa beitt sig óhugnanlegum pyntingum. Hann er í dag heimilislaus drykkjumaður en segir hvorki þjóðfélagið né Breiðavík eiga sök á örlögum sínum. 8.2.2007 18:45
Gríðarlegur viðskiptahalli og óvissa Gríðarlegur viðskiptahalli og óvissa í launamálum veldur því að vaxtalækkunarferli er ekki hafið af hálfu Seðlabankans, sem þó ákvað í morgun að halda stýrivöxtum óbreyttum um sinn. Frekari stóriðjuframkvæmdir, eins og stækkun álversins í Straumsvík, eru ekki inn í forsendum bankans þegar hann metur horfur á jafnvægi í þjóðarbúskapnum. 8.2.2007 18:30
Mátti þola einelti kennara og nemenda Á sjötta hundrað manns sóttu í dag ráðstefnu um börn og unglinga með sérþarfir í íslenska skólakerfinu. Menntamálaráðherra segir óþolandi að heyra sögur af því þegar fjölskyldur með sérþarfir fá ekki þá þjónustu sem þær eiga rétt á, en á ráðstefnunni sagði fólk, sem lent hefur í erfiðleikum í skólakerfinu, frá reynslu sinni. 8.2.2007 18:30
Exista hf. hagnast um 37,4 milljarða Exista hf. birti í dag ársuppgjör sitt fyrir árið 2006. Hagnaður fyrirtækisins eftir skatta varð 37,4 milljarðar króna. Hagnaður á síðasta fjórðungi ársins var 13,1 milljarður króna. Stjórn félagsins mun því greiða út tæpa 11 milljarða í arð, eða um eina krónu á hlut. 8.2.2007 18:21
Latibær tilnefndur til Emmy verðlauna Magnús Scheving og Jonathan Judge voru í dag tilnefndir til Emmy verðlaunanna fyrir leikstjórn Latabæjarþáttanna. Þetta er í annað sinn sem Latibær er tilnefndur til Emmy verðlauna en í fyrra var Julianna Rose Mauriello, bandaríska stúlkan sem leikur Sollu Stirðu, tilnefnd sem fyrir leik sinn. 8.2.2007 17:49
Jóhanna undrast synjun ríkisstjórnar Jóhanna Sigurðardóttir segir frá því á bloggsíðu sinni í dag að forsætisráðuneytið hafi synjað beiðni hennar um að fá afhent öll þau gögn af ríkisstjórnarfundum þar sem málefni Byrgisins voru til umræðu. 8.2.2007 17:39
Sýknaður af ákæru um birtingu áfengisauglýsinga Karlmaður var í Hæstarétti í dag sýknaður af ákæru um áfengislagabrot með því að hafa sem framkvæmdastjóri tiltekins fyrirtækis látið birta auglýsingar á áfengum bjór í tveimur dagblöðum. 8.2.2007 17:35
Síminn tapaði 3,6 milljörðum í fyrra Síminn tapaði tæpum 3,6 milljöðrum króna á síðasta ári samkvæmt ársuppgjör sem birt er á heimasíðu Kauphallar Íslands. Fram kemur að hagnaður á síðari helmingi ársins hafi verið 2,8 milljarðar króna en að slök afkoma skýrist af gengisþróun krónunnar og nam gengistapið um 5,8 milljörðum króna. 8.2.2007 17:32
Didda syngur til að frelsa barnsföður úr fangelsi Finnsk-íslenska hljómsveitin Mina Rakastan Sinua, með skáldkonuna Diddu í fararbroddi, heldur tónleika á Dómó í kvöld til að safna peningum til að leysa barnsföður Diddu úr fangelsi á Jamaika. 8.2.2007 17:31
Sýknaður af ákæru um frelsissviptingu Hæstiréttur sýknaði í dag karlmann af ákæru um frelsissviptingu og sneri þannig við dómi héraðsdóms sem dæmt hafði manninn í eins mánaðar skilorðsbundið fangelsi. Maðurinn var ákærður fyrir að hafa haldið starfsmanni Orkuveitu Reykjavíkur nauðugum í um hálfa klukkustund á skrifstofu fyrirtækis hans í Kópavogi. 8.2.2007 17:09
Staðfesti gæsluvarðhald yfir karlmanni í tengslum við umfjöllun Kompáss Hæstiréttur staðfesti í dag gæsluvarðhaldsúrskurð yfir manni sem gaf sig fram við lögreglu eftir umfjöllun fréttaskýringarþáttarins Kompáss um barnaníðinga. Hann var í hópi fjögurra manna sem komu í íbúð sem þátturinn hafði leigt eftir að mennirnir höfðu sett sig í samband við þrettán ára stúlku í kynferðislegum tilgangi, en stúlkan sem reyndist tálbeita Kompáss. 8.2.2007 16:57
Dæmdur til dauða fyrir morð á fóstri Kviðdómur í Texas ríki í Bandaríkjunum dæmdi í gær fyrrum æskulýðsprest til dauða fyrir hafa myrt táningsstúlku og ófætt barn hennar. Þetta er í fyrsta sinn í Texas sem einhver er dæmdur til dauða fyrir að myrða fóstur. 8.2.2007 16:56
Nyhedsavisen kaupir út danska póstinn Danski pósturinn er hættur þáttöku í dreifingu fríblaðsins Nyhedsavisen, og aðstandendur blaðsins fagna því. Sérstakt fyrirtæki, "Morgundreifingin" var stofnuð um dreifingu blaðsins og átti danski pósturinn þar 49 prósent. Restina átti fyrirtækið 365 Media Skandinavia. Danska Samkeppniseftirlitið hafði ýmislegt við þetta að athuga og lagði hömlur á starfsemina. 8.2.2007 16:49
Sex ára fangelsi fyrir stórfellt fíkniefnasmygl Hæstiréttur staðfesti í dag sex ára dóm héraðsdóms yfir karlmanni á þrítugsaldri, Tryggva Lárussyni, sem ákærður var fyrir stórfelldan innflutning á amfetamíni. 8.2.2007 16:41
Björgólfur Thor kaupir Fríkirkjuveg 11 Samþykkt var á fundi borgarráðs Reykjavíkur í dag að ganga að tilboði fjárfestingarfélagsins Novator, sem er í eigu Björgólfs Thors Björgólfssonar, í Fríkirkjuveg 11. Kaupverðið er 600 milljónir. 8.2.2007 16:38
Norður-Kórea gæti brátt afvopnast Condoleezza Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, sagði í dag að hún vonist til þess að farið verði að vinna eftir samkomulagi sem náðist árið 2005 um að binda endi á kjarnorkuáætlun Norður-Kóreu. Rice skýrði frá þessu sinni á fundi með utanríkisnefnd öldungadeildar bandaríska þingsins. 8.2.2007 16:33
Suðurlandsvegur verði tvöfaldaður í áföngum Samkvæmt nýjustu drögum að vegaáætlun verður Suðurlandsvegur breikkaður og gerður að 2+2 vegi í áföngum. Frá þessu greinir Sunnlenska fréttablaðið og vitnar í heimildarmenn sína. Drögin hafa að undanförnu verið til umfjöllunar í þingflokkum stjórnarflokkanna og hefur verið hart tekist á um þau. 8.2.2007 16:27
Brixtofte dæmdur í tveggja ára fangelsi fyrir umboðssvik Peter Brixtofte, fyrrverandi bæjarstóri í Farum í útjaðri Kaupmannahafnar, var í dag dæmdur í tveggja ára fangelsi fyrir umboðssvik í opinberu starfi. Dómnum er ekki hægt að áfrýja eftir því sem fram kemur á vef Jótlandspóstsins. 8.2.2007 16:06
Útskrifaðar af gjörgæsludeild eftir slys á Breiðholtsbrautinni Búið er að útskrifa konurnar tvær sem slösuðust í bílslysi á Breiðholtsbrautinni í gær af gjörgæsludeild. Þær eru báðar á batavegi eftir að hafa gengist undir skurðaðgerðir í gær. Konurnar voru einar í bílum sínum en beita þurfti klippum til að ná þeim út. 8.2.2007 15:53
Hamas og Fatah nálgast samkomulag Hamas og Fatah hreyfingarnar hafa náð samkomulagi um hverjir munu skipa flestar stöður í væntanlegri þjóðstjórn Palestínu. Sagt var frá þessu í dag. Aðeins á eftir að velja innanríkisráðherra Palestínu. 8.2.2007 15:43
Kristinn H. Gunnarsson gerist frjálslyndur Þingmaðurinn Kristinn H. Gunnarsson hefur sagt sig úr Framsóknarflokknum og ætlar hann að ganga til liðs við Frjálslynda flokkinn. 8.2.2007 15:29
Hnepptu mæðgur í þrældóm og pyntuðu Fimmtíu og fimm ára gömul ungversk kona er látin eftir að nágrannar hennar pyntuðu hana og þrítuga dóttur hennar svo mánuðum skipti. Einn karlmaður og tvær konur hafa verið handteknar vegna málsins. Þetta gerðist í litlu þorpi í miðju Ungverjalandi. 8.2.2007 15:21
Vilja stofna Loftlagsráð Reykjavíkurborgar Borgarfulltrúar Vinstri - grænna lögðu til á fundi borgarráðs í dag að stofnaður yrði þverpólitískur starfshópur stjórnmálamanna og embættismanna, svokallað Loftlagsráð Reykjavíkurborgar, til þess að bregðast við upplýsingum í nýrri skýrslu um loftlagsmál. 8.2.2007 15:16
Áttavilltur flugmaður lenti á vegi Eftirlaunaþegi lenti flugvél á nýjum vegi í Bretlandi í þeirri trú að hann hefði fundið lendingarbraut flugvallar skammt frá. Flugmaðurinn áttaði sig á mistökunum þegar flugvélin fór yfir hraðahindrun á veginum. Engin umferð var á veginum í Leominster í Herefordshire, en maðurinn lenti þrátt fyrir að taka eftir gangstétt og ljósastaurum samkvæmt fréttavef Sky. 8.2.2007 15:04
Skutu hunda sér til gamans Verðir í búlgörskum almenningsgarði hafa valdið deilum meðal embættismanna eftir að þeir skutu hund rússnesks ræðismanns - af því að þeim leiddist. Rússneski konsúllinn í borginni Russe í Búlgaríu krefst aðgerða eftir að labrador hundurinn hans, Mecho, var skotinn til bana af vörðunum, en þeir notuðu hann sem skotmark í hæfniskeppni. 8.2.2007 15:00
Spyr hvort Bandaríkjamenn hafi leitað stuðnings vegna Íransmáls Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri - grænna, hefur lagt fram fyrirspurn til forsætisráðherra um það hvort Bandaríkjamenn hafi leitað hófanna hjá ríkisstjórn Íslands um svipaðan stuðning við hugsanlegan hernað gegn Íran og aflað var í aðdraganda innrásarinnar í Írak. 8.2.2007 14:55
Setti bát á brennu án leyfis eiganda Karlmaður, sem gefið var að sök að hafa tekið bát í leyfisleysi og sett hann á brennu, var í Héraðsdómi Vestfjarða í dag sýknaður. Maðurinn var ábyrgðamaður áramótabrennu sem haldin var á Vestfjörðum í árslok 2003. 8.2.2007 14:36
„Beygðu STRAX í norður“ Bandaríski flotinn hefur opinberlega sagt að þessi frásögn eigi ekki við rök að styðjast, en hún er sögð vera til í skjalasafni yfirmanns bandaríska flotans, og þetta á að hafa gerst árið 1995. Um er að ræða talstöðvar-viðskipti bandarísks herskips sem var á siglingu undan strönd Kanada, skammt frá Halifax. Bandaríska herskipið kallar upp í talstöð sinni: 8.2.2007 14:30
Sex leikvangar opnir fyrir áhorfendum á Ítalíu um helgina Ítalska ríkisstjórnin tilkynnti í dag að opna mætti sex knattspyrnuleikvanga fyrir áhorfendum um helgina en aðrir yrðu lokaðir þar til viðeigandi ráðstafanir hefðu verið gerðar sem tryggðu öryggi áhorfenda. Vellirnir sem um ræðir eru í Róm, Genúa, Siena, Cagliari, Tórínó og Palermo. 8.2.2007 14:18