Fleiri
Ljósmyndara sleppt á Gaza 7.1.2007 20:03 Sjá næstu 50 fréttir
Sjö á bráðamóttöku vegna gaseitrunnar Gasið sem angraði íbúa New York borgar í dag varð til þess að sjö manns voru flutt á bráðadeild með einkenni sem hlutust af gasinu. Ekki er vitað um uppruna gassins en það hefur verið talið harmlaust hingað til. 8.1.2007 20:30
Gullæði í Brasilíu Þúsundir fátækra Brasilíumanna streyma nú, vopnaðir skóflum og vélsögum, á nýfundið gullsvæði djúpt í Amazon frumskóginum og óttast yfirvöld umhverfisslys. Einnig eru áhyggjur af því að heilsu fólks verði stefnt í hættu þar sem aðbúnaður á svæðinu er nær enginn. Fyrir aðeins nokkrum vikum fundust gullæðar á yfirborðinu á svæðinu og þegar fréttir fóru að berast af gullfundinum streymdu vongóðir á staðinn. 8.1.2007 20:15
Sprengjusveit í Miami kölluð út Sprengjusveit lögreglunnar í Miami í Bandaríkjunum var kölluð út í dag til þess að rannsaka grunsamlegan hlut sem fannst á hafnarsvæði borgarinnar. Verið var að afferma hlutinn úr vörubíl á svæðinu þegar leitartæki hafnarvarða fundu eitthvað óeðlilegt. 8.1.2007 20:11
SÞ ætla að auka þátt friðargæslu Sameinuðu þjóðirnar (SÞ) verða að styrkja sig til þess að geta tekist á við þær fjölmörgu ógnir sem steðja að friði á komandi ári en þetta sagði Ban Ki-moon á fundi öryggisráðsins í dag. 8.1.2007 19:45
David Bowie sextugur í dag Hann kom til jarðar sem Ziggy Stardust, fór í ýmis gervi eftir það og söng meðal annars um Starman og Major Tom. Söngferillinn spannar rúma fjóra áratugi. Hann heitir David Bowie og er sextugur í dag. 8.1.2007 19:30
Tveir dvergkafbátar seldir Íslenska hátæknifyrirtækið Hafmynd hefur samið við tvo kaupendur um sölu á dvergkafbát sem fyrirtækið hefur framleitt. Samanlagt kaupverð er tæpar hundrað milljónir. Annar báturinn fer til Ástralíu en ekki fæst gefið upp að sinni hvert hinn fer. Vonast er til að fimm til átta kafbátar til viðbótar verði seldir síðar á árinu. 8.1.2007 19:15
Icelandair tilnefnt til alþjóðlegra vefverðlauna Icelandair hefur verið útnefnt til alþjóðlegu „Technology For Marketing“ verðlaunanna fyrir best hannaða vefsvæði ársins, eða „Best Website Design of the Year“ eins og það heitir á frummálinu. Verðlaunin verða afhent við hátíðlega athöfn í London þann 6. febrúar næstkomandi. Icelandair er eina íslenska fyrirtækið sem hlotið hefur útnefningu til verðlaunanna en keppt er í 12 flokkum. Icelandair keppir í sínum flokki við fyrirtækin Orange, Dabs, Odeon og Xchange Wales. 8.1.2007 19:11
Dæmdur í 15 ára fangelsi fyrir aðild að árásunum á New York Þýskir dómstólar hafa dæmt vin flugræningjanna, sem tóku þátt í árásunum á New York þann 11. september árið 2001, í 15 ára fangelsi fyrir aðild að fjöldamorði. 8.1.2007 18:49
Telja ekkert styðja sögu landgönguliða Bandarískir rannsóknarmenn telja ekkert styðja frásögn bandarískra landgönguliða af aðdraganda fjöldamorða í bænum Haditha í Írak fyrir rúmu ári. Ákærur í málinu voru birtar skömmu fyrir jól og er óttast að málið muni auka enn á ófriðinn í Írak eftir því sem meira kemur fram í dagsljósið. 8.1.2007 18:45
Bætur skertar eða felldar niður að óbreyttu Lífeyrisbætur ríflega 2000 öryrkja eiga að falla niður eða lækka, að óbreyttu, um mánaðarmótin. Lífeyrissjóðir frestuðu þessum aðgerðum í október en sá frestur rennur út fyrsta febrúar. Í desember var því beint til fulltrúa fjórtán lífeyrissjóða, í stjórn Greiðslustofu lífeyrissjóðanna, að fresta skerðingum fram til sumarsins en niðurstaða liggur enn ekki fyrir. Öryrkjabandalagið telur hins vegar að félagsmenn þess þurfi ekkert að óttast. 8.1.2007 18:39
Jólatrén hirt fram á föstudag Hátt í áttatíu tonn af jólatrjám fara upp á pallbíla framkvæmdasviðs borgarinnar þessa vikuna. Starfsmenn borgarinnar verða að fram á föstudag við að fjarlægja jólatrén. 8.1.2007 18:32
Áhætta í evrulaunum Launþegar taka mikla áhættu með því að þiggja laun í evrum, segir aðalhagfræðingur Seðlabanka Íslands. Hann telur hverfandi líkur á að evran laumi sér bakdyramegin inn í íslenskt efnahagslíf. Hún verði aldrei tekin upp nema um það ríki pólitísk sátt. 8.1.2007 18:30
Kínverska lögreglan í átökum við hryðjuverkamenn Kínverska lögreglan varð 18 manns að bana í dag þegar hún gerði árásir á búðir hryðjuverkamanna í Xinjiang, sem er sjálfstjórnarhérað í vesturhluta Kína. Árásin átti sér stað á föstudaginn og var fyrst sagt frá henni í dag. Hryðjuverkamennirnir eru af tyrkneskum uppruna og kínversk yfirvöld segja vera aðskilnaðarsinna. 8.1.2007 17:47
Ekið á gangandi vegfaranda Ekið var á gangandi vegfaranda á mótum Laugavegar og Nóatúns um klukkan fimm í dag. Lögregla og sjúkralið eru enn á vettvangi og ekki fást upplýsingar um líðan vegfarandans að svo stöddu. 8.1.2007 17:20
Spilakassana í Örfirisey Spilakössum í borginni hefur fjölgað um meira en helming á tveimur árum. Borgarstjóri vill að fólk spyrji sig hvar eðlilegt sé að slík tæki séu staðsett og stingur sjálfur upp á því að þeim verði fundinn staður í Örfirisey. 8.1.2007 17:08
Hjartavernd tekur í notkun nýjan hjartarita Hjartavernd hefur tekið í notkun nýjan og fullkominn hjartarita sem keyptur var fyrir áheitafé sem safnaðist í Reykjavíkurmaraþoni Glitnis í ágúst síðastliðnum. 8.1.2007 17:04
Einstakt afrek Bandarísk kona synti tæpa tvo kílómetra í jökulköldu hafinu við Suðurheimskautið. Þetta þykir einstakt afrek og er aðeins vitað um einn annan mann þolir slíkan kulda. Það er Guðlaugur Friðþórsson sem synti um fimm kílómetra að landi eftir skipskaða austur af Heimaey fyrir meira en tuttugu og tveimur árum. Og enn standa vísindamenn á gati yfir þessu afreki. 8.1.2007 17:01
Bush kynnir Íraksáætlun sína á miðvikudag George Bush Bandaríkjaforseti ávarpar bandarísku þjóðina klukkan níu að austurstrandartíma á miðvikudag, eða klukkan tvö að nóttu að íslenskum tíma, þar sem hann kynnir nýja áætlun sína í Írak og í baráttunni gegn hryðjuverkum. 8.1.2007 16:54
Miðborg Austin í Texas lokað vegna mikils fugladauða Miðborg Austin í Texas var lokað í morgun vegna þess að þar hafa fundist tugir dauðra fugla. Þúsundir manna komust ekki til vinnu sinnar af þessum sökum. Embættismenn segja að þetta sé gert í varúðarskyni, en enginn hefur hugmynd um hversvegna fuglarnir drápust. 8.1.2007 16:49
Bilun í aðveitustreng olli rafmagnsleysi á Akranesi Skömmu eftir hádegi í gær varð bilun í aðveitustreng að dreifistöð Orkuveitu Reykjavíkur við Smiðjuvelli á Akranesi. Við það sló út rafmagni á öllu Akranesi um skamma stund. Á meðan starfsmenn Orkuveitunnar unnu við að komast fyrir bilunina, eða í um eina klukkustund, var hins vegar rafmagnslaust á neðri hluta Skagans. Skessuhorn skýrði frá þessu í dag. 8.1.2007 16:36
Innfluttir þriðjungur Hollendinga 2050 Um það bil þriðjungur hollensku þjóðarinnar verður af erlendu bergi brotinn árið 2050, en í dag er einn af hverjum fimm íbúum innflytjandi eða af innflytjendum kominn. Hollenska hagstofan býst við því að á þessu tímabili fjölgi landsmönnum um 400 þúsund, upp í 16,8 milljónir, mest vegna innflytjenda frá löndum eins og Tyrklandi, Marokkó og Surinam. 8.1.2007 16:25
Nær 80 tonn af jólatrjám falla til í ár Framkvæmdasvið Reykjavíkurborgar áætlar að um 80 tonn af jólatrjám falli til á þessu ári en starfsmenn sviðsins hófu yfirreið sína yfir Reykjavík í dag. 8.1.2007 16:21
Styttist í að kalkþörungaverksmiðja hefji starfsemi Stefnt er að því að þurrkarar í kalkþörungaverksmiðjunni á Bíldudal verði prufukeyrðir í fyrri hluta febrúarmánaðar og því styttist í að hún hefji starfsemi. 8.1.2007 16:10
Skrifað undir samkomulag vegna fatlaðra og geðfatlaðra Magnús Stefánsson félagsmálaráðherra og Kristján Þór Júlíusson, bæjarstjóri á Akureyri, undirrituðu í dag þriggja ára samning um málefni fatlaðra á Eyjafjarðarsvæðinu. Samningsfjárhæð er rúmir 2,2 milljarðar króna. Ennfremur var skrifað undir samkomulag til eflingar búsetu, dagþjónustu og dagvist geðfatlaðra á Akureyri. 8.1.2007 16:00
Enn er allt á huldu með gaslekann á Manhattan Engar skýringar hafa enn fengist á dularfullri og megnri gaslykt sem hefur funist víða á Manhattan í New York.. Fram kom á FOXNews-sjónvarpsstöðinni að ekki væri grunur um hryðjuverkaárás í borginni og New York lögreglan segir enga hættu á ferðum. 8.1.2007 15:07
Hagar mega ekki heita Hagar Neytendastofa hefur bannað Högum hf., sem reka bæði Bónus, Hagkaup og 10-11 ásamt fjölda fataverslana, að nota nafnið Hagar. Það var heildsalan Hagi ehf. sem kvartaði til stofnunarinnar og vísaði meðal annars til þess að Hagi hefði verið stofnað og skráð hjá fyrirtækjaskrá 1993 en Baugur Ísland hf. hefði breytt nafni sínu í Hagar hf. árið 2003 8.1.2007 14:56
Rafmagn aftur komið á í Sala- og Kórahverfi Rafmagn er aftur komið á í Sala- og Kórahverfi í Kópavogi en þar varð háspennubilun laust fyrir klukkan tvö með þeim afleiðingum að rafmagn fór af hluta hverfsins. Samkvæmt upplýsingum frá Orkuveitur Reykjavíkur var háspennustrengur grafinn í sundur fyrir slysni. 8.1.2007 14:32
Ég mun drepa þá alla með efnavopnum Saddam Hussein og frændi hans "Efnavopna Ali" heyrðust tala um að drepa þúsundir kúrda með efnavopnum, þegar upptaka frá fundi þeirra var spiluð við réttarhöldin í Bagdad, í dag. Þetta var nokkru áður en efnavopnum var beitt gegn bænum Halabja, þar sem um fimm þúsund manns létu lífið. 8.1.2007 14:24
Samkomulag um samsteypustjórn í Austurríki Tveir stærstu flokkarnir í Austurríki, Sósíaldemókratar og Þjóðarflokkurinn, náðu í dag samkomulagi um myndun samsteypustjórnar í landinu. Alfred Gusenbauer, leiðtogi sósíaldemókrata, verður samkvæmt því kanslari Austurríkis í stað Wolfgangs Schüssels. 8.1.2007 14:10
Rafmagnslaust í hluta af Sala- og Kórahverfi Rafmagnslaust er nú í hluta af Sala- og Kórahverfi í Kópavogi eftir háspennubilun sem varð laust fyrir klukkan tvö. Þær upplýsingar fengust hjá Orkuveitur Reykjavíkur að verið væri að leita að biluninni. 8.1.2007 14:06
Blair ver einkaskólagöngu Tony Blair, hefur varið þá ákvörðun fyrrverandi menntamálaráðherra síns að senda eitt af börnum sínum í einkaskóla. Ruth Kelly er nú ráðherra sveitarstjórnamála. Blair, sem sjálfur sendi sín börn í einkaskóla, sagðist styðja rétt foreldra til þess að ákveða í hvaða skóla þau fari. 8.1.2007 14:02
Sakfelldur fyrir ölvunarakstur á bílaplani Karlmaður var í Héraðsdómi Suðurlands í dag dæmdur til greiðslu 135 þúsund króna í sekt og var sviptur ökuskírteini í eitt ár fyrir að hafa ekið bíl undir áhrifum áfengis fyrir utan skemmtistað á Selfossi. 8.1.2007 13:43
Nýr vegur milli Hafna og Sandgerðis Nýr vegur á milli Hafna og Sandgerðis, svokallaður Ósabotnavegur, verður senn opnaður fyrir umferð, að því er fram kemur í Víkufréttum í dag. Framkvæmdum er að ljúka við þann áfanga sem Vegagerðin bauð út í sumar. Fyrst um sinn verður eingöngu um malarveg að ræða en óvíst er hvort eða hvenær slitlag verður lagt á veginn. 8.1.2007 13:32
Lokað fyrir rússneska olíu til Evrópu Evrópusambandið hefur krafið Rússa og Hvít-Rússa um tafarlausar skýringar á því að í nótt var hætt að dæla olíu frá Rússlandi til Póllands og Þýskalands. Leiðslan liggur um Hvíta-Rússland. 8.1.2007 13:13
Brenndist á andliti að kvöldi þrettándans Drengur á sjöunda ári brenndist í andliti að kvöldi þrettánda á Selfossi eftir að eldur kom í flíspeysu sem hann var í. Fram kemur í frétt lögureglunnar á Selfossi að faðir drengsins hafi útbúið lítinn bálköst sem hann hellti bensíni á úr brúsa. 8.1.2007 13:00
200 milljónir fyrir dvergkafbát Íslenska hátæknifyrirtækið Hafmynd hefur samið við tvo kaupendur um sölu á dvergkafbát sem fyrirtækið hefur framleitt. Samanlagt kaupverð er tæpar hundrað milljónir. Annar báturinn fer til Ástralíu en ekki fæst gefið upp að sinni hvert hinn fer. 8.1.2007 12:45
Styrkir veittir til atvinnuleikhúsa fyrir árið 2007 Hafnarfjarðarleikhúsið Hermóður og Háðvör hlaut hæstan verkefnastyrk atvinnuleikhópa fyrir árið 2007 samkvæmt ákvörðun menntamálaráðherra að fenginni umsögn leiklistarráðs. Hafnarfjarðarleikhúsið fær 20 milljónir samkvæmt samstarfssamningi en þar á eftir koma Artbox, Evrópa kvikmyndir, Rakel Garðarsdóttir og fleiri sem fengu sjö milljónir til uppsetningar á leikritinu Faust. 8.1.2007 12:45
Einn frægasti sonur Íslands látinn Magnús Magnússon sjónvarpsmaður BBC, rithöfundur og þýðandi, lést að heimili sínu í Skotlandi í gær, 77 ára að aldri. 8.1.2007 12:30
Safnað fyrir fjölskyldu Nóna Sæs Nóni Sær Ásgeirsson er átta ára drengur sem lamaðist fyrir neðan mitti í alvarlegu bílsslysi þar sem fimm ára systir hans, Svandís Þula, lét lífið. Nóni Sær hefur átt erfitt eftir slysið, meðal annars hefur hann hafnað næringu. Bergvin Oddsson, blindur maður úr Vestmanneyjum, hefur nú hafið söfnun fyrir fjölskyldu Nóna, til að létta af þeim fjárhagsáhyggjum í þeim hörmungum sem þau hafa orðið að þola. 8.1.2007 12:12
Enn óvíst með rekstur þrotabús Ágústs og Flosa Ekkert liggur enn fyrir um framtíð framkvæmda og starfsmanna byggingarfyrirtækisins Ágústs og Flosa á Ísafirði sem úrskurðað var gjaldþrota í Héraðsdómi Vestfjarða á föstudaginn var. 8.1.2007 12:03
Íslendingur lét lífið þegar fallhlífarstökk mistókst Tuttugu og sjö ára íslenskur karlmaður lét lífið í Ástralíu í gær þegar fallhlífarstökk hans úr þyrlu mistókst. 8.1.2007 11:31
Brutust inn í Verkmenntaskólann á Akureyri Lögreglan á Akureyri hafði morgun afskipti af pilti og stúlku sem brotist höfðu inn í Verkmenntaskólann í bænum. Lögregla fékk tilkynningu snemma í morgun um að þjófavarnarkerfi hefði farið í gang í Verkmenntaskólanum og þegar hún kom á vettvang kom í ljós að þar hafði verið brotist inn með þvi að brjóta rúðu en þjófarnir haft sig á brott þegar þjófavarnarkerfið fór í gang. 8.1.2007 11:22
Mannréttindadómstóllinn að kikna undan álagi Mannréttindadómstóllinn í Strasbourg er að kikna undan heilu fjalli af málum sem eru á biðlista. Forseti dómstólsins segir að hann brjóti sjálfur mannréttindi, með því að afgreiða mál ekki tímanlega. Það hefur tekið upp undir ellefu ár að ljúka sumum málum. 7.1.2007 20:51
Sómalir segjast hafa sigrað islamista Foringi í her Sómalíu segir að þeir séu búnir að brjóta islamska uppreisnarmenn á bak aftur, með aðstoð frá eþíópiska hernum. Islamistarnir höfðu verið hraktir frá flestum héruðum landsins í en áttu enn nokkur vígi í suðurhlutanum, rétt við landamærin að Kenya. 7.1.2007 20:15