Fleiri fréttir Um hundrað og þrjátíu skjálftar við Kistufell Um hundrað og þrjátíu jarðskjálftar hafa fundist við Kistufell, norðaustan í Bárðarbungu, frá því á sunnudagskvöld. Virknin virðist hins vegar vera í rénun. Stærstu skjálftarnir urðu á sunnudagskvöld 3,8 á richter og í nótt fylgdu margir skjálftar á stærðarbilinu einn til þrír. 26.9.2006 20:16 Úrvalsvísitalan hækkar Úrvalsvísitala Kauphallar Íslands hefur hækkað um 14,6% á þriðja fjórðungi ársins. Úrvalsvístalan er nú 6.275,3 stig en aðeins eru þrír dagar eftir af þessum þriðja fjórðungi. 26.9.2006 19:41 Stjórnmálasamband milli Íslands og Svartfjallalands Valgerður Sverrisdóttir, utanríkisráðherra, og Miodrag Vlahovic, utanríkisráðherra Svartfjallalands, undirrituðu í dag yfirlýsingu um stofnun stjórnmálasambands milli ríkjanna tveggja. 26.9.2006 19:19 Vill sannleiksnefnd til að rannsaka njósnir Steingrímur J. Sigfússon, formaður vinstri grænna, vill að sett verði á laggirnar sérstök sannleiksnefnd til að rannsaka símhleranir og leyniþjónustustarfsemi á Íslandi. 26.9.2006 19:07 Fagna brottför hersins Stjórnarandstaðan fagnar því heilshugar að herinn sé á förum. Formenn Samfylkingar og Vinstri grænna telja hins vegar alvarlega ágalla á samningum við Bandaríkjamenn. 26.9.2006 19:04 Gengið til styrktar hugmyndum Ómars Boðað hefur verið til fjöldagöngu í kvöld klukkan átta í Reykjavík, Ísafirði og á Akureyri. Gangan í Reykjavík leggur af stað frá Hlemmi og endar á Austurvelli en gengið er til stuðnings hugmyndum Ómars Ragnarssonar um að fresta fyllingu Hálslóns. 26.9.2006 18:54 Íbúðalánasjóður ekki lagður niður Íbúðalánasjóður verður ekki lagður niður en ríkisábyrgð á húsnæðislánum verður víkjandi á næstu árum, ef tillögur stýrihóps ná fram að ganga. 26.9.2006 18:36 Aukin framlög Íslendinga til þróunarsamvinnu Valgerður Sverrisdóttir, utanríkisráðherra, sagði í ræðu sinni á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna í dag að Íslendingar öxluðu ábyrgð með auknum framlögum til þróunarsamvinnu. Hún lagði einnig áherslu á stöðu kvenna og barna. 26.9.2006 18:20 Taka bíla af ökuníðingum? Sigurður Helgason hjá Umferðarstofu vill skoða þann möguleika að dæma bíla af mönnum sem verða uppvísir að ofsaakstri. 26.9.2006 18:02 Telur enga þörf á áframhaldandi varnarsamstarfi Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri-grænna, telur enga þörf á áframhaldandi varnarsamstarfi og er á móti því að Bandaríkjamönnum sé heitið aðstöðu hér á landi til heræfinga eða annarra umsvifa á næstu árum. 26.9.2006 17:51 SBV gagnrýnir niðurstöðu stýrihóps félagsmálaráðherra Samtök banka og verðbréfafyrirtækja (SBV) harma niðurstöðu stýrihóps félagsmálaráðherra sem skilaði af sér tillögum um aðkomu ríkisins að húsnæðislánamarkaði. Hópurinn leggur til að komið verði á fót heildsölubanaka sem sinni fjármögnun íbúðarlaána sem síðan yrðu veitt í gengum banka og sparisjóði. 26.9.2006 17:28 Jökulsárganga Ómars Ragnarssonar kl. 20:20 Bein útsending verður frá Jökulsárgöngu Ómars Ragnarssonar á Vísi.is. Gangan fer frá Hlemmi að Austurvelli klukkan 20:00 en útsending hefst um tuttugu mínútum síðar. Göngur fara einnig fram á Akureyri, Ísafirði og á Héraði. 26.9.2006 17:12 Sekt og svipting skotvopnaleyfis fyrir veiðilagabrot Karlmaður var í Héraðsdómi Austurlands í dag dæmdur til að greiða 70 þúsund króna sekt og var sviptur skotvopnaleyfi í eitt ár vegna ólöglegra veiða. Maðurinn var ákærður fyrir að hafa brotið veiðilög með því að hafa skotið sex grágæsir og eina heiðagæsir innan sveitarfélagsins Hornafjarðar þrátt fyrir að fuglarnir væru friðaðir. 26.9.2006 17:12 14 ára tekinn á mótorkrosshjóli Nokkuð er kvartað yfir akstri mótorkrosshjóla og ein slík barst lögreglunni í Reykjavík í gær. Hún kannaði málið og skömmu síðar birtust tvö þannig ökutæki en ökumenn þeirra reyndu að aka á brott. Lögreglan náði öðrum þeirra og reyndist ökumaðurinn vera réttindalaus en hann er 14 ára. 26.9.2006 16:47 Þora ekki að setja upp Mozart af ótta við múslima 26.9.2006 16:44 Lagt til að stofnaður verði heildsölubanki Stýrihópur um framtíðarstefnumótun um hlutverk og aðkomu stjórnvalda að íbúðalánamarkaðnum leggur til að stofnaður verði nýr Íbúðabanki sem sinni fjármögnun íbúðarlána sem síðan yrðu veitt í gengum banka og sparisjóði. Þetta kemur fram í lokaáliti stýrihópsins sem félagsmálaráðherra kynnti á blaðamannafundi í dag. 26.9.2006 15:58 Barnaþing á Breiðholtsdegi 26.9.2006 15:36 ÍE stefnir fyrrv. starfsmönnum og keppinaut fyrir upplýsingastuld Íslensk erfðagreining hefur höfðað mál í Bandaríkjunum gegn fimm fyrrverandi starfsmönnum fyrirtækisins og bandarískum samkeppnisaðila fyrir stuld og misnotkun á eigum félagsins og margvísleg brot á ráðningarsamningum. 26.9.2006 15:25 Atli Gíslason fer fram í Suðurkjördæmi Atli Gíslason, hæstaréttarlögmaður og varaþingmaður Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs, hefur ákveðið að taka áskorun kjördæmisráðs VG í Suðurkjördæmi og gefa kost á sér í fyrsta sæti framboðslistans. Þetta kemur fram í tilkynningu sem hann sendi frá sér fyrir stundu. 26.9.2006 15:20 Upphlaup vegna orða Cherie Blair 26.9.2006 15:19 Vill að Akureyrarflugvöllur verði lengdur Aðalfundur Eyþings, Sambands sveitarfélaga í Eyjafirði og í Þingyejarsýslum, leggur áherslu á að lenging Akureyrarflugvallar verði forgangsmál við næstu endurskoðun samgönguáætlunar. Ályktun þessa efnis var samþykkt á aðalfundi sambandsins um helgina. 26.9.2006 15:15 Mótmælir harðlega uppsögn Hilmars Arnar Félagsfundur Organistadeildar FÍH lýsir yfir fullum stuðningi við Hilmar Örn Agnarsson dómorganista í Skálholti og störf hans í þágu Skálholtsstaðar og Þjóðkirkjunnar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu. 26.9.2006 15:00 Forsætisráðherra fundar með utanríkismálanefnd Geir H. Haarde forsætisráðherra situr nú á fundi með utanríkismálanefnd og gerir henni grein fyrir niðurstöðum samningaviðræðna Íslendinga og Bandaríkjamanna um brottflutning Varnarliðsins. Geir fundaði í hádeginu með fulltrúum stjórnarandstöðuflokkanna en greint verður frá niðurstöðunum opinberlega á blaðamannafundi klukkan 4 síðdegis. 26.9.2006 14:49 Ríkisstyrkt flug til Vestmannaeyja boðið út Ríkisstjórnin samþykkti í morgun tillögu Sturlu Böðvarssonar um að undirbúa útboð á ríkisstyrktu áætlunarflugi milli Reykjavíkur og Vestmannaeyja í framhaldi af því að Landsflug tilkynnti á föstudaginn var að félagið myndi hætta áætlunarflugi frá og með 25. september. 26.9.2006 14:39 Blair þakkar þjóðinni og flokknum fyrir sig Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, þakkaði bæði bresku þjóðinni og Verkamannaflokknum fyrir það tækifæri að fá að leiða þau undanfarin ár í síðustu ræðu sinni á ársþingi Verkamannaflokksins í dag. 26.9.2006 14:30 Vill vernda au pair stúlkur 26.9.2006 14:28 Verkefni flutt frá dómsmálaráðuneyti til sýslumanna Dómsmálaráðherra kynnti á ríkisstjórnarfundi í morgun frumvarp til laga um flutning verkefna frá dóms- og kirkjumálaráðuneyti til sýslumannsembætta. 26.9.2006 14:06 Russell Crowe endurlífgar skylmingaþrælinn Dauðinn er ekki endanlegur í Hollywood. Kvikmyndin um skylmingaþrælinn, sem færði Russell Crowe Óskarsverðlaunin, naut mikilla vinsælda. Svo mikilla að nú stendur til að gera mynd númer tvö um Maximus Decimus. Leikstjórinn Ridley Scott og Crowe, hafa tekið höndum saman um það. 26.9.2006 13:52 Lagt til að prófkjör verði haldið 11. nóvember í Kraganum Stjórn kjördæmisráðs Sjálfstæðisflokksins í Suðvesturkjördæmi hefur samþykkt að leggja til við aðalfund ráðsins, sem haldinn verður 4. október, að haldið verði prófkjör 18. nóvember til að velja frambjóðendur á framboðslista vegna alþingiskosninga næsta vor. 26.9.2006 13:46 Auknar væntingar í efnahagsmálum samkvæmt vísitölu Tiltrú neytenda á horfum í efnahagsmálum hefur vaxið á ný samkvæmt Væntingavísitölu Gallup sem birt var í morgun. Segir í Morgunkorni Glitnis að vísitalan hafi snarhækkað frá fyrri mánuði og standi nú í 119,6 stigum en hún fór lægst í 88,1 stig í júlímánuði. Vísitölugildi yfir 100 stigum táknar að fleiri neytendur séu bjartsýnir en svartsýnir. 26.9.2006 13:35 Rúmenía og Búlgaría fá inngöngu í ESB um áramót Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins gaf í dag grænt ljós á það að Búlgaría og Rúmeníua gengju í sambandið í janúar næstkomandi fremur en ári. Löndin þurfa þó líklega að uppfylla ýmiss konar sérákvæði áður en þau verða fullgildir meðlimir. 26.9.2006 13:21 Síbrotamenn í umferðinni Lögreglan í Reykjavík hafði afskipti af allmörgum ökumönnum á síðasta sólarhring vegna umferðarlagabrota. Flestir voru teknir fyrir hraðakstur en nær allir þeirra hafa áður verið sektaðir fyrir að keyra of geyst. 26.9.2006 13:08 Eiturefnaskipi haldið í Eistlandi Eiturefnaskipið Probo Koala liggur nú í höfn í Eistlandi. Skipið losaði farm af eiturefnaúrgangi í Abidjan á Fílabeinsströndinni í ágúst og hafa sjö manns þegar látist vegna þessa og tugþúsundir hafa þurft að leita læknisaðstoðar. 26.9.2006 12:45 Ókeypis bókasafnsskírteini út vikuna Borgarbókasafnið býður upp á ókeypis bókasafnsskírteini í tilefni af viku símenntunar, frá 24.-30. september. Skírteinið veitir fólki aðgang að lesmáli safnsins í bókum og tímaritum, tónlist, myndefni og fleiru. Vika símenntunar er ætluð til að vekja athygli fólks á mikilvægi menntunar og því að það er aldrei of seint að fræðast meira. 26.9.2006 12:37 Ekki komið samkomulag um breytingu á matarskatti Matarskattur og aðgerðir til að lækka matarverð voru ekki til umræðu á ríkisstjórnarfundi í morgun. Ráðherrar ríkisstjórnarinnar hafa ekki enn komist að niðurstöðu um til hvaða aðgerða skuli grípa. Reiknað er þó með að niðurstaða liggi fyrir fljótlega. Líklegt má telja að hún verði kynnt í stefnuræðu forsætisráðherra í næstu viku. 26.9.2006 12:30 Álit um aðkomu stjórnvalda að íbúðalánum kynnt í dag Félagsmálaráðherra hefur boðað til blaðamannafundar í dag klukkan 15. Þar verður kynnt lokaálit stýrihóps um framtíðarstefnumótun um hlutverk og aðkomu stjórnvalda að íbúðalánamarkaðnum. 26.9.2006 12:15 Iceland moves up on World Economic Forum list 26.9.2006 12:02 67 teknir á meira en 190 í ágúst Tugir bíla mældust á yfir 190 kílómetra hraða í ágústmánuði. Sigurður Helgason hjá Umferðarstofu segir hraðann aukast í takt við velsæld þjóðfélagsins. 26.9.2006 12:00 Gæti hagnast um 20 milljarða við sölu á Icelandair Eignarhaldsfélagið FL Group gæti hagnast um tuttugu milljarða króna með fyrirhugaðri sölu á Icelandair, eða Flugleiðum, að mati markaðssérfræðinga. Það yrði einhver mesti söluhagnaður á svo skömmum tíma sem um getur hér á landi. 26.9.2006 12:00 Forsætisráðherra kynnir varnarsamkomulag Geir H. Haarde forsætisráðherra er þessa stundina að gera fulltrúum stjórnarandstöðuflokkanna grein fyrir niðurstöðum samningaviðræðna Íslendinga og Bandaríkjamanna um brottflutning Varnarliðsins. Greint er frá þeim opinberlega síðar í dag. 26.9.2006 11:45 Þjóðkirkju ber að virða jafnréttislögin Margrét María Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri Jafnréttisstofu, segir Þjóðkirkjuna ekki geta vikið sér undan jafnréttislögunum með því að velja sóknarpresta með leynilegri kosningu, eins og sagt var frá í fréttum NFS í gær. 26.9.2006 11:45 Fylling Hálslóns að hefjast 26.9.2006 11:40 Ísland færist upp um tvö sæti á lista WEF um samkeppnishæfni Ísland er fjórtánda samkeppnishæfasta land í heimi og færist upp um tvö sæti frá því í fyrra samkvæmt nýrri skýrslu samtakanna Wold Economic Forum. Sviss er samkepnnishæfasta hagkerfi heimsins en þar á eftir koma Finnland, Svíþjóð og Danmörk. 26.9.2006 11:30 Cockroach epidemic 26.9.2006 11:26 Trúir ekki að Steingrímur hafi ekki spurt um leyniþjónustu Björn Bjarnason dómsmálaráðherra segir að það væri með miklum ólíkindum ef embættismenn hefðu ekki upplýst Steingrím Hermannsson, fyrrverandi dóms- og kirkjumálaráðherra og forsætisráðherra um ráðstafanir lögreglunnar til að gæta öryggis ríkisins. Hafi Steingrími ekki verið sagt frá þessum grundvallaratriðum að fyrra bragði trúi hann ekki öðru en jafnathugull maður og Steingrímur hafi spurt. 26.9.2006 11:15 Sjá næstu 50 fréttir
Um hundrað og þrjátíu skjálftar við Kistufell Um hundrað og þrjátíu jarðskjálftar hafa fundist við Kistufell, norðaustan í Bárðarbungu, frá því á sunnudagskvöld. Virknin virðist hins vegar vera í rénun. Stærstu skjálftarnir urðu á sunnudagskvöld 3,8 á richter og í nótt fylgdu margir skjálftar á stærðarbilinu einn til þrír. 26.9.2006 20:16
Úrvalsvísitalan hækkar Úrvalsvísitala Kauphallar Íslands hefur hækkað um 14,6% á þriðja fjórðungi ársins. Úrvalsvístalan er nú 6.275,3 stig en aðeins eru þrír dagar eftir af þessum þriðja fjórðungi. 26.9.2006 19:41
Stjórnmálasamband milli Íslands og Svartfjallalands Valgerður Sverrisdóttir, utanríkisráðherra, og Miodrag Vlahovic, utanríkisráðherra Svartfjallalands, undirrituðu í dag yfirlýsingu um stofnun stjórnmálasambands milli ríkjanna tveggja. 26.9.2006 19:19
Vill sannleiksnefnd til að rannsaka njósnir Steingrímur J. Sigfússon, formaður vinstri grænna, vill að sett verði á laggirnar sérstök sannleiksnefnd til að rannsaka símhleranir og leyniþjónustustarfsemi á Íslandi. 26.9.2006 19:07
Fagna brottför hersins Stjórnarandstaðan fagnar því heilshugar að herinn sé á förum. Formenn Samfylkingar og Vinstri grænna telja hins vegar alvarlega ágalla á samningum við Bandaríkjamenn. 26.9.2006 19:04
Gengið til styrktar hugmyndum Ómars Boðað hefur verið til fjöldagöngu í kvöld klukkan átta í Reykjavík, Ísafirði og á Akureyri. Gangan í Reykjavík leggur af stað frá Hlemmi og endar á Austurvelli en gengið er til stuðnings hugmyndum Ómars Ragnarssonar um að fresta fyllingu Hálslóns. 26.9.2006 18:54
Íbúðalánasjóður ekki lagður niður Íbúðalánasjóður verður ekki lagður niður en ríkisábyrgð á húsnæðislánum verður víkjandi á næstu árum, ef tillögur stýrihóps ná fram að ganga. 26.9.2006 18:36
Aukin framlög Íslendinga til þróunarsamvinnu Valgerður Sverrisdóttir, utanríkisráðherra, sagði í ræðu sinni á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna í dag að Íslendingar öxluðu ábyrgð með auknum framlögum til þróunarsamvinnu. Hún lagði einnig áherslu á stöðu kvenna og barna. 26.9.2006 18:20
Taka bíla af ökuníðingum? Sigurður Helgason hjá Umferðarstofu vill skoða þann möguleika að dæma bíla af mönnum sem verða uppvísir að ofsaakstri. 26.9.2006 18:02
Telur enga þörf á áframhaldandi varnarsamstarfi Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri-grænna, telur enga þörf á áframhaldandi varnarsamstarfi og er á móti því að Bandaríkjamönnum sé heitið aðstöðu hér á landi til heræfinga eða annarra umsvifa á næstu árum. 26.9.2006 17:51
SBV gagnrýnir niðurstöðu stýrihóps félagsmálaráðherra Samtök banka og verðbréfafyrirtækja (SBV) harma niðurstöðu stýrihóps félagsmálaráðherra sem skilaði af sér tillögum um aðkomu ríkisins að húsnæðislánamarkaði. Hópurinn leggur til að komið verði á fót heildsölubanaka sem sinni fjármögnun íbúðarlaána sem síðan yrðu veitt í gengum banka og sparisjóði. 26.9.2006 17:28
Jökulsárganga Ómars Ragnarssonar kl. 20:20 Bein útsending verður frá Jökulsárgöngu Ómars Ragnarssonar á Vísi.is. Gangan fer frá Hlemmi að Austurvelli klukkan 20:00 en útsending hefst um tuttugu mínútum síðar. Göngur fara einnig fram á Akureyri, Ísafirði og á Héraði. 26.9.2006 17:12
Sekt og svipting skotvopnaleyfis fyrir veiðilagabrot Karlmaður var í Héraðsdómi Austurlands í dag dæmdur til að greiða 70 þúsund króna sekt og var sviptur skotvopnaleyfi í eitt ár vegna ólöglegra veiða. Maðurinn var ákærður fyrir að hafa brotið veiðilög með því að hafa skotið sex grágæsir og eina heiðagæsir innan sveitarfélagsins Hornafjarðar þrátt fyrir að fuglarnir væru friðaðir. 26.9.2006 17:12
14 ára tekinn á mótorkrosshjóli Nokkuð er kvartað yfir akstri mótorkrosshjóla og ein slík barst lögreglunni í Reykjavík í gær. Hún kannaði málið og skömmu síðar birtust tvö þannig ökutæki en ökumenn þeirra reyndu að aka á brott. Lögreglan náði öðrum þeirra og reyndist ökumaðurinn vera réttindalaus en hann er 14 ára. 26.9.2006 16:47
Lagt til að stofnaður verði heildsölubanki Stýrihópur um framtíðarstefnumótun um hlutverk og aðkomu stjórnvalda að íbúðalánamarkaðnum leggur til að stofnaður verði nýr Íbúðabanki sem sinni fjármögnun íbúðarlána sem síðan yrðu veitt í gengum banka og sparisjóði. Þetta kemur fram í lokaáliti stýrihópsins sem félagsmálaráðherra kynnti á blaðamannafundi í dag. 26.9.2006 15:58
ÍE stefnir fyrrv. starfsmönnum og keppinaut fyrir upplýsingastuld Íslensk erfðagreining hefur höfðað mál í Bandaríkjunum gegn fimm fyrrverandi starfsmönnum fyrirtækisins og bandarískum samkeppnisaðila fyrir stuld og misnotkun á eigum félagsins og margvísleg brot á ráðningarsamningum. 26.9.2006 15:25
Atli Gíslason fer fram í Suðurkjördæmi Atli Gíslason, hæstaréttarlögmaður og varaþingmaður Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs, hefur ákveðið að taka áskorun kjördæmisráðs VG í Suðurkjördæmi og gefa kost á sér í fyrsta sæti framboðslistans. Þetta kemur fram í tilkynningu sem hann sendi frá sér fyrir stundu. 26.9.2006 15:20
Vill að Akureyrarflugvöllur verði lengdur Aðalfundur Eyþings, Sambands sveitarfélaga í Eyjafirði og í Þingyejarsýslum, leggur áherslu á að lenging Akureyrarflugvallar verði forgangsmál við næstu endurskoðun samgönguáætlunar. Ályktun þessa efnis var samþykkt á aðalfundi sambandsins um helgina. 26.9.2006 15:15
Mótmælir harðlega uppsögn Hilmars Arnar Félagsfundur Organistadeildar FÍH lýsir yfir fullum stuðningi við Hilmar Örn Agnarsson dómorganista í Skálholti og störf hans í þágu Skálholtsstaðar og Þjóðkirkjunnar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu. 26.9.2006 15:00
Forsætisráðherra fundar með utanríkismálanefnd Geir H. Haarde forsætisráðherra situr nú á fundi með utanríkismálanefnd og gerir henni grein fyrir niðurstöðum samningaviðræðna Íslendinga og Bandaríkjamanna um brottflutning Varnarliðsins. Geir fundaði í hádeginu með fulltrúum stjórnarandstöðuflokkanna en greint verður frá niðurstöðunum opinberlega á blaðamannafundi klukkan 4 síðdegis. 26.9.2006 14:49
Ríkisstyrkt flug til Vestmannaeyja boðið út Ríkisstjórnin samþykkti í morgun tillögu Sturlu Böðvarssonar um að undirbúa útboð á ríkisstyrktu áætlunarflugi milli Reykjavíkur og Vestmannaeyja í framhaldi af því að Landsflug tilkynnti á föstudaginn var að félagið myndi hætta áætlunarflugi frá og með 25. september. 26.9.2006 14:39
Blair þakkar þjóðinni og flokknum fyrir sig Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, þakkaði bæði bresku þjóðinni og Verkamannaflokknum fyrir það tækifæri að fá að leiða þau undanfarin ár í síðustu ræðu sinni á ársþingi Verkamannaflokksins í dag. 26.9.2006 14:30
Verkefni flutt frá dómsmálaráðuneyti til sýslumanna Dómsmálaráðherra kynnti á ríkisstjórnarfundi í morgun frumvarp til laga um flutning verkefna frá dóms- og kirkjumálaráðuneyti til sýslumannsembætta. 26.9.2006 14:06
Russell Crowe endurlífgar skylmingaþrælinn Dauðinn er ekki endanlegur í Hollywood. Kvikmyndin um skylmingaþrælinn, sem færði Russell Crowe Óskarsverðlaunin, naut mikilla vinsælda. Svo mikilla að nú stendur til að gera mynd númer tvö um Maximus Decimus. Leikstjórinn Ridley Scott og Crowe, hafa tekið höndum saman um það. 26.9.2006 13:52
Lagt til að prófkjör verði haldið 11. nóvember í Kraganum Stjórn kjördæmisráðs Sjálfstæðisflokksins í Suðvesturkjördæmi hefur samþykkt að leggja til við aðalfund ráðsins, sem haldinn verður 4. október, að haldið verði prófkjör 18. nóvember til að velja frambjóðendur á framboðslista vegna alþingiskosninga næsta vor. 26.9.2006 13:46
Auknar væntingar í efnahagsmálum samkvæmt vísitölu Tiltrú neytenda á horfum í efnahagsmálum hefur vaxið á ný samkvæmt Væntingavísitölu Gallup sem birt var í morgun. Segir í Morgunkorni Glitnis að vísitalan hafi snarhækkað frá fyrri mánuði og standi nú í 119,6 stigum en hún fór lægst í 88,1 stig í júlímánuði. Vísitölugildi yfir 100 stigum táknar að fleiri neytendur séu bjartsýnir en svartsýnir. 26.9.2006 13:35
Rúmenía og Búlgaría fá inngöngu í ESB um áramót Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins gaf í dag grænt ljós á það að Búlgaría og Rúmeníua gengju í sambandið í janúar næstkomandi fremur en ári. Löndin þurfa þó líklega að uppfylla ýmiss konar sérákvæði áður en þau verða fullgildir meðlimir. 26.9.2006 13:21
Síbrotamenn í umferðinni Lögreglan í Reykjavík hafði afskipti af allmörgum ökumönnum á síðasta sólarhring vegna umferðarlagabrota. Flestir voru teknir fyrir hraðakstur en nær allir þeirra hafa áður verið sektaðir fyrir að keyra of geyst. 26.9.2006 13:08
Eiturefnaskipi haldið í Eistlandi Eiturefnaskipið Probo Koala liggur nú í höfn í Eistlandi. Skipið losaði farm af eiturefnaúrgangi í Abidjan á Fílabeinsströndinni í ágúst og hafa sjö manns þegar látist vegna þessa og tugþúsundir hafa þurft að leita læknisaðstoðar. 26.9.2006 12:45
Ókeypis bókasafnsskírteini út vikuna Borgarbókasafnið býður upp á ókeypis bókasafnsskírteini í tilefni af viku símenntunar, frá 24.-30. september. Skírteinið veitir fólki aðgang að lesmáli safnsins í bókum og tímaritum, tónlist, myndefni og fleiru. Vika símenntunar er ætluð til að vekja athygli fólks á mikilvægi menntunar og því að það er aldrei of seint að fræðast meira. 26.9.2006 12:37
Ekki komið samkomulag um breytingu á matarskatti Matarskattur og aðgerðir til að lækka matarverð voru ekki til umræðu á ríkisstjórnarfundi í morgun. Ráðherrar ríkisstjórnarinnar hafa ekki enn komist að niðurstöðu um til hvaða aðgerða skuli grípa. Reiknað er þó með að niðurstaða liggi fyrir fljótlega. Líklegt má telja að hún verði kynnt í stefnuræðu forsætisráðherra í næstu viku. 26.9.2006 12:30
Álit um aðkomu stjórnvalda að íbúðalánum kynnt í dag Félagsmálaráðherra hefur boðað til blaðamannafundar í dag klukkan 15. Þar verður kynnt lokaálit stýrihóps um framtíðarstefnumótun um hlutverk og aðkomu stjórnvalda að íbúðalánamarkaðnum. 26.9.2006 12:15
67 teknir á meira en 190 í ágúst Tugir bíla mældust á yfir 190 kílómetra hraða í ágústmánuði. Sigurður Helgason hjá Umferðarstofu segir hraðann aukast í takt við velsæld þjóðfélagsins. 26.9.2006 12:00
Gæti hagnast um 20 milljarða við sölu á Icelandair Eignarhaldsfélagið FL Group gæti hagnast um tuttugu milljarða króna með fyrirhugaðri sölu á Icelandair, eða Flugleiðum, að mati markaðssérfræðinga. Það yrði einhver mesti söluhagnaður á svo skömmum tíma sem um getur hér á landi. 26.9.2006 12:00
Forsætisráðherra kynnir varnarsamkomulag Geir H. Haarde forsætisráðherra er þessa stundina að gera fulltrúum stjórnarandstöðuflokkanna grein fyrir niðurstöðum samningaviðræðna Íslendinga og Bandaríkjamanna um brottflutning Varnarliðsins. Greint er frá þeim opinberlega síðar í dag. 26.9.2006 11:45
Þjóðkirkju ber að virða jafnréttislögin Margrét María Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri Jafnréttisstofu, segir Þjóðkirkjuna ekki geta vikið sér undan jafnréttislögunum með því að velja sóknarpresta með leynilegri kosningu, eins og sagt var frá í fréttum NFS í gær. 26.9.2006 11:45
Ísland færist upp um tvö sæti á lista WEF um samkeppnishæfni Ísland er fjórtánda samkeppnishæfasta land í heimi og færist upp um tvö sæti frá því í fyrra samkvæmt nýrri skýrslu samtakanna Wold Economic Forum. Sviss er samkepnnishæfasta hagkerfi heimsins en þar á eftir koma Finnland, Svíþjóð og Danmörk. 26.9.2006 11:30
Trúir ekki að Steingrímur hafi ekki spurt um leyniþjónustu Björn Bjarnason dómsmálaráðherra segir að það væri með miklum ólíkindum ef embættismenn hefðu ekki upplýst Steingrím Hermannsson, fyrrverandi dóms- og kirkjumálaráðherra og forsætisráðherra um ráðstafanir lögreglunnar til að gæta öryggis ríkisins. Hafi Steingrími ekki verið sagt frá þessum grundvallaratriðum að fyrra bragði trúi hann ekki öðru en jafnathugull maður og Steingrímur hafi spurt. 26.9.2006 11:15