Fleiri
Concert Hall goes to Venice 22.9.2006 17:27 Ragnheiður sækist eftir öðru sætinu í Suðurkjördæmi Ragnheiður Hergeirsdóttir, bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar í Árborg, hefur ákveðið að sækjast eftir 2.-3. sæti á lista flokksins í Suðurkjördæmi fyrir alþingiskosningarnar í vor. 22.9.2006 17:08 Skífan sektuð um 65 milljónir króna Áfrýjunarnefnd samkeppnismála hefur staðfest úrskurð Samkeppniseftirlitsins frá því fyrr í sumar um að Skífan skuli greiða 65 milljónir króna í sekt fyrir að hafa misnotað markaðsráðandi stöðu sínu og brotið þannig gegn bannákvæðum samkeppnislaga. 22.9.2006 17:01 Sjá næstu 50 fréttir
Íslandsmót í atskák í Vestmannaeyjum Íslandsmótið í atskák fer nú fram í Vestmannaeyjum í tilefni af 80 ára afmæli Taflfélags Vestmannaeyja. Þar keppa nokkrir af bestu skákmönnum Íslands af yngri kynslóðinni. Bæjarstjórinn Elliði Vignisson setti mótið í dag og lék fyrsta leikinn í skák yngsta keppandans, sem er sjö ára gamall. 23.9.2006 15:07
Átta á slysadeild eftir árekstur lögreglubíls og fólksbíls Átta manns voru fluttir á slysadeild eftir talsvert harðan árekstur fólksbíls og lögreglubíls á Höfðabakkabrú upp úr hálftvö. Þar af voru fimm börn sem voru farþegar í fólksbílnum. Meiðsl allra voru minniháttar, sem má teljast mikil mildi þar sem börnin voru ekki öll í öryggisbelti og þar að auki var einum of margir farþegar í bílnum. 23.9.2006 15:04
Vilja lækka matarverð um fjórðung Þingmenn Samfylkingarinnar kynntu í dag tillögur til lækkunar matarverðs á Íslandi sem þeir telja að geti lækkað matarreikning íslenskrar fjölskyldu um 200 þúsund á ári. Meðalfjölskylda á Íslandi eyðir um 750.000 krónum á ári í matvæli. Samfylkingin vill meðal annars fella niður vörugjöld og innflutningstolla af matvælum og lækka virðisaukaskatt af matvælum um helming. 23.9.2006 14:30
Dagur heyrnarlausra í dag Dagur heyrnarlausra er í dag og í tilefni af því er meðal annars aðalfundur félags heyrnarlausra og óvissuferð. Messa í Kirkju heyrnarlausra sem hefur verið fastur liður í hátíðarhöldum á degi heyrnarlausra fellur niður vegna þess að presturinn er í námsleyfi. Einnig er sýning á heyrnartækjum og fyrirlestrar í Heyrnar- og talmeinastöðinni. 23.9.2006 14:30
Keisaraskurðir hættulegir fyrir barnið Bandarískir vísindamenn segja keisaraskurði, sem barnshafandi kona óskar sjálf eftir, vera mun hættulegri fyrir barn en venjuleg fæðing. Í nýbirtum rannsóknarniðurstöðum þeirra kemur fram að börn sem tekin eru með keisaraskurði að ósk móðurinnar séu í þrefalt meiri hættu á að deyja í fæðingu eða eftir hana en þau sem fæðast venjulega. 23.9.2006 14:00
Lögreglan í árekstri Tvö umferðaróhöpp urðu fyrir stundu á götum Reykjavíkur. Hið fyrra varð á Borgarvegi í Grafarvogi en hið seinna varð þegar lögreglubíll var á leið á slysstað og lenti í árekstri á Höfðabakkabrúnni. Einhver slys munu vera á fólki en lögregla gat ekki gefið nánari upplýsingar að svo stöddu. 23.9.2006 13:49
Brúin yfir Jöklu farin Nú er unnið að því að rífa brúna yfir Jöklu sem stendur niðri í fyrirhuguðu lónsstæði Hálslóns, fyrir ofan Kárahnjúkastíflu. Að sögn Sigurðar Arnaldssonar, talsmanns Landsvirkjunar á Kárahnjúkum, er brúin það síðasta af mannvirkjum og búnaði verktakanna sem er fjarlægt af lónsstæðinu. Áætlað er að loka fyrir rennsli Jöklu og byrja að fylla Hálslón upp úr miðri næstu viku. 23.9.2006 13:07
Gæsaskyttan fundin Maður sem leitað var að á Eyvindarstaðaheiði er kominn í leitirnar. Björgunarfélagið Blanda var kallað út en sú leit var afturkölluð skömmu síðar. Maðurinn fannst heill á húfi. 23.9.2006 13:03
Einungis milljarðamæringar á Forbes listanum Bandaríska viðskiptatímaritið Forbes hefur nú byrt árlegan lista sinn í 400 ríkustu menn og konur Bandaríkjanna og að þessu sinni eru einvörðungu milljarðamæringar á listanum. Höfundur listans segir þetta í fyrsta sinn sem auður hvers og eins á listanum er að lágmarki einn milljarður bandaríkjadala, jafnvirði rúmlega 70 milljarða íslenskra króna. 23.9.2006 12:30
Leita að týndri gæsaskyttu Björgunarfélagið Blanda var kallað út um hádegisbilið til að leita að gæsaskyttu á Eyvindarstaðaheiði. Maðurinn varð viðskila við föður sinn um níuleytið í morgun en er vel búinn og gott veður er á svæðinu. Lögreglan á Blönduósi segir því vonandi ekki mikla hættu á ferðum. 23.9.2006 12:22
Fóstur skorið úr kvið látinnar konu Lögregla í Saint Louis í Bandaríkjunum leitar nú þriggja barna sem hafa verið týnd síðan á mánudaginn. Þau eru eins, tveggja og sjö ára. Móðir þeirra fannst myrt í gær og hafði fóstur verið skorið úr kvið hennar. Lögregla telur sig hafa fundið fóstrið en það hefur ekki verið staðfest. 26 ára kona, sem sást í fylgd barnanna skömmu áður en þau hurfu, er nú í haldi lögreglu. 23.9.2006 12:15
Mannskæð sprengjuárás við upphaf föstumánaðar Írakar í Bagdad flykktust í verslanir og á götumarkaði í borginni í morgun til að kaupa inn fyrir Ramadan föstumánuðinn. Súnníar byrjuðu að fasta í dag en sjíar byrja á morgun eða á mánudaginn. Þrátt fyrir að þessi heilagi tími sé að hefjast var mannskæð sprengjuárás gerð í Sadr-hverfi sjía í Bagdad í morgun. 23.9.2006 12:13
Bin Laden sagður hafa látist úr taugaveiki Yfirvöld í Pakistan segjast ekki hafa fengið fréttir af því að Osama bin Laden, leiðtogi al Kaída hryðjuverkasamtakanna, hafi látist úr taugaveiki þar í landi. Franskt dagblað fullyrðir það í dag og vitnar þar til leyniskýrslu sem var lekið í blaðamann. 23.9.2006 12:06
Helmingur yfir löglegum hraða Hraðamælingar lögreglunnar á Akureyri við grunnskóla og í íbúðahverfum gefa til kynna að rétt um helmingur ökumanna sem eiga leið þar um virða ekki hraðatakmarkanir. Hámarkshraði við skólana er 30 km/klst þar sem mikið er af börnum á gangi í nágrenninu. 23.9.2006 11:40
Skvettist úr brunahönum Mörg útköll voru hjá lögreglu og slökkvilið í smáíbúðahverfinu í Reykjavík í nótt þar sem einhver skrúfaði frá brunahönum í hverfinu. Alls var skrúfað frá níu brunahönum. Varðstjóri slökkviliðsins segir hvimleitt að þurfa að eyða tíma í svona nokkuð auk þess sem þetta getur skemmt brunahanana ef frost er úti. 23.9.2006 11:30
Unglingum vísað út af skemmtistað Hátt í tuttugu ungmennum var vísað af lögreglu út af einum skemmtistað á Akureyri í nótt. Ungmennin voru á aldrinum sextán til að verða átján ára en aldurstakmark þar eru átján ár. Af öðrum skemmtistað þar í bæ var tveimur ungmennum, undir aldri, vísað út. Lögreglan fór á skemmtistaðina, ásamt fólki frá framhaldsskólunum á Akureyri og forvarnarfulltrúa bæjarins. 23.9.2006 11:15
Foreldrar fá umönnunargreiðslur Reykjanesbær mun frá og með næstu mánaðamótum greiða umönnunargreiðslur til foreldra. Tilgangurinn með greiðslunum er að gefa foreldrum aukinn möguleika á samvistum við ung börn sín. Greiddar verða þrjátíu þúsund krónur til foreldra sem lokið hafa töku fæðingarorlofs. 23.9.2006 10:54
23 létust í lestarslysi 23 týndu lífi og 10 slösuðust þegar hraðlest, sem knúin er áfram af segulafli, fór af sporinu í norð-vestur Þýskalandi í gær. Lestin skall á faratæki viðgerðarmanna á upphækkaðri tilraunabraut og fór útaf sporinu. 23.9.2006 10:30
Leiðtogi íraskra hryðjuverkasamtaka handtekinn Írösk yfirvöld segjast hafa handtekið leiðtoga stærstu andspyrnusamtakanna þar í landi. Um er að ræða Ansar al-Sunna samtök súnnímúslima en liðsmenn þeirra eru sagðir bera ábyrgð á fjölmörgum sjálfsvígsárásum í Írak. Samtökin eru sögð nátengd al-Kaída hryðjuverkasamtökunum. 23.9.2006 10:15
Bin Laden sagður látinn Franska dagblaðið L´Est Republicain greinir frá því í morgun að Osama bin Laden, leiðtogi al Kaída hryðjuverkasamtakanna, sé látinn. Þetta er haft upp úr leyniþjónustuskýrslu sem mun hafa verið lekið í blaðið. Fulltrúi franska varnarmálaráðuneytisins segist ekki geta staðfest að þetta komi fram í skýrslunni. 23.9.2006 10:03
Létust í biðröð eftir eldsneyti Minnst 31 manneskja lést þegar bílsprengja sprakk við eldsneytistank í sjíahverfinu Sadr í Bagdad. Flestir þeirra sem létust voru konur sem stóðu í biðröð til þess að fá hreinsað bensín til að elda á. Sprengjuárásin er með stærstu árásum undanfarnar vikur. 23.9.2006 10:00
Kakkalakkafaraldurshætta Hætta er á að skorkvikindum snarfjölgi á varnarsvæðinu ef því verður lítið sinnt. Kakkalakkar geta breiðst út um land ef eftirlit með svæðinu fellur niður, að mati framkvæmdastjóra umhverfissviðs Reykjanesbæjar. 23.9.2006 08:30
Æfing gegn hryðjuverkum Samæfing yfirstjórna og sérsveita lögreglu á Norðurlöndunum fór fram fyrr í vikunni. 23.9.2006 08:30
Bandaríkin hótuðu árás Pervez Musharraf, forseti Pakistans, hitti George W. Bush að máli í gær í Hvíta húsinu. Heimsóknin komst í hámæli vegna ummæla sem Musharraf lét falla í viðtali í þættinum 60 Minutes á CBS fyrir fundinn; að Bandaríkjamenn hefðu hótað að „sprengja Pakistan aftur á steinöld“ ef ríkið fylkti ekki liði í „stríðinu gegn hryðjuverkum“. 23.9.2006 08:15
Skiptast á að taka sér frí Steinunn og Steinar hafa skipst á að taka sér frí undanfarnar vikur þar sem synir þeirra búa við skerta vistun á leikskóla vegna manneklu. Ekki hefur tekist að ráða faglært fólk í lausar stöður. 23.9.2006 08:15
Hundruðum tonna eytt á mánuði Varnarliðið vinnur nú að því að eyða miklu magni af ýmsum vörum og búnaði sem það hefur ekki talið nýtast sér annars staðar. Aron Jóhannsson, umhverfisstjóri sorpeyðingarstöðvarinnar Kölku sem sér um eyðinguna, segir að um töluvert magn sé að ræða. Samkvæmt Aroni er um 350-400 tonnum eytt mánaðarlega og hefur verkefnið staðið yfir í nokkra mánuði. Varningurinn er af öllum toga og nær allt frá matvælum til herbúnaðar. 23.9.2006 08:15
Fjórðungsaukning á einu ári Yfirdráttarlán hafa aukist um fjörutíu milljarða króna síðustu tólf mánuði, eða um 24 prósent, að því er greiningardeild KB banka segir. Í lok síðasta mánaðar námu yfirdráttarlán 191 milljarði króna. 23.9.2006 08:00
Upplýsingaflæði milli landa hefði hindrað hryðjuverk Hefðu upplýsingar sem lágu fyrir hjá ýmsum öryggisdeildum skilað sér í miðlægan gagnagrunn hefði að líkindum verið hægt að hindra hryðjuverk sem framin voru á síðustu árum í Bandaríkjunum og Evrópu. 23.9.2006 08:00
Vissu af hlerunum og eftirliti Upplýsingar Þórs Whitehead um hleranir og eftirlit er gömul saga og ný fyrir Ragnari Stefánssyni, prófessor við Háskólann á Akureyri, sem var í forsvari Fylkingarinnar, samtaka ungra vinstrisinna, frá 1966 og fram á áttunda áratuginn. 23.9.2006 07:45
Íslendingum gefin tæki til njósna allt kalda stríðið Bandaríska alríkislögreglan gaf öryggisþjónustu íslensku lögreglunnar njósnabúnað árið 1950. Tækjagjafir bárust frá bandamönnum allt til loka kalda stríðsins. 23.9.2006 07:45
Fjölmörg ríki heita stuðningi Valgerður Sverrisdóttir utanríkisráðherra hefur kynnt framboð Íslands til setu í Öryggisráði Sameinuðu þjóðanna fyrir fulltrúum fjölmargra ríkja síðustu daga. Valgerður, sem er í New York vegna allsherjarþings Sameinuðu þjóðanna, hefur rætt við forsætisráðherra Andorra, varaforsætisráðherra Búlgaríu, lögmann Færeyja og utanríkisráðherra Ekvador, Laos, Lúxemborgar, Máritaníu, Óman, San Marínó, Slóvakíu og Súdan. 23.9.2006 07:45
Heimild til að túlka Genfarsáttmálann George W. Bush Bandaríkjaforseti náði í gær samkomulagi við hóp repúblikana í öldungadeild Bandaríkjaþings um frumvarp að lögum um sérstaka herdómstóla, sem eiga að fjalla um mál fanga bandaríska hersins við Guantanamo á Kúbu. 23.9.2006 07:30
Skuldar Pólverjunum ekkert Árni Björgvinsson veitingamaður bauð Pólverjunum, sem telja sig svikna um laun og húsnæði, greiðslu upp á 150 þúsund krónur í gær. Hann segir að þeir hafi tekið því og hætt svo við. Fréttablaðið birti frétt um málið í gær. 23.9.2006 07:30
Bentu á fleiri mengaða bletti Íslendingar og Bandaríkjamenn gerðu sína mengunarskýrsluna hvorir þar sem segir nákvæmlega hvar þeir telji mengun vera á varnarsvæðinu og hvert mat manna sé á henni, að sögn Árna Sigfússonar, bæjarstjóra í Reykjanesbæ. 23.9.2006 07:30
Norskir fjárfestar veðja á Geysi Hópur norskra fagfjárfesta veðjar á olíu- og gasleit við Ísland og Færeyjar og hefur fjárfest í Geysi Petroleum sem stofnað var hér á landi árið 2004. 23.9.2006 07:15
Landsflug hættir að fljúga til Eyja Landsflug hefur ákveðið að hætta öllu áætlunarflugi á flugleiðinni frá Reykjavík til Vestmannaeyja. Ákvörðunin tekur gildi á mánudag en arðsemin var ófullnægjandi að mati stjórnenda Landsflugs. 22.9.2006 21:30
Fagnar þátttöku Ómars í stjórnmálum Jón Sigurðsson, formaður Framsóknarflokksins og iðnaðarráðherra, segist fagna hugsanlegri komu Ómars Ragnarssonar í stjórnmál. Jón telur samt hugmyndir Ómars um að hætta við að taka Kárahnjúkavirkjun og álverið á Reyðarfirði í notkun flokkast undir gamansemi. 22.9.2006 20:45
Allt gengur sinn vanagang í Tælandi Valdaránið í Taílandi virðist varla hafa haft nokkur áhrif á daglegt líf í landinu. Allar stofnanir eru opnar og skriðdrekarnir á götum Bangkok virðast fremur draga ferðamenn að en hrekja þá frá. 22.9.2006 20:30
Útsendingar NFS heyra sögunni til Tuttugu starfsmönnum NFS var sagt upp í dag, þar af sjö fréttamönnum. Forstjóri fyrirtækisins segir ekki um uppgjöf að ræða, heldur verði áherslum breytt. Samfelldum fréttaútsendingum allan daginn verður hætt í kvöld, en meiri þungi lagður í kvöldfréttir og fréttir á netinu. 22.9.2006 20:00
Hlutverk Íslendinga á Sri Lanka Íslendingar gegna veigamiklu hlutverki á Srí Lanka, þar sem átökum virðist ekkert vera að linna. Þeir Jóhannes Kr. Kristjánsson og Ingi R. Ingason myndatökumaður eru nýkomnir heim frá Srí Lanka og afraksturinn má sjá í fréttaskýringaþættinum Kompási á sunnudaginn. 22.9.2006 19:45
Nýr varnarsamningur kynntur á þriðjudag Búist er við að nýr varnarsamningur Íslands og Bandaríkjanna verði kynntur í Þjóðmenningarhúsinu á þriðjudag. Utaníkismálanefnd Alþingis hefur verið boðuð til fundar í Þjóðmenningarhúsinu þann dag. 22.9.2006 18:50
Stunduðu njósnir áratugum saman Íslensk stjórnvöld hafa njósnað áratugum saman um íslenska borgara og útlendinga sem taldir eru ógna öryggi landsins. Sérstök strangleynileg öryggisþjónustudeild var stofnuð árið 1950 en jafnframt var Útlendingaeftirlitið notað að hluta sem yfirvarp fyrir njósnastarfsemi stjórnvalda. Þór Whitehead sagnfræðingur, sem rannsakað hefur starfsemina, telur hana enn í gangi. 22.9.2006 18:46
Ragnheiður sækist eftir öðru sætinu í Suðurkjördæmi Ragnheiður Hergeirsdóttir, bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar í Árborg, hefur ákveðið að sækjast eftir 2.-3. sæti á lista flokksins í Suðurkjördæmi fyrir alþingiskosningarnar í vor. 22.9.2006 17:08
Skífan sektuð um 65 milljónir króna Áfrýjunarnefnd samkeppnismála hefur staðfest úrskurð Samkeppniseftirlitsins frá því fyrr í sumar um að Skífan skuli greiða 65 milljónir króna í sekt fyrir að hafa misnotað markaðsráðandi stöðu sínu og brotið þannig gegn bannákvæðum samkeppnislaga. 22.9.2006 17:01