Fleiri fréttir Gay Marriage in Iceland 28.6.2006 12:00 Paroubek víkur úr forsætisráðherraembættinu Jiri Paroubek, forsætisráðherra Tékklands og leiðtogi vinstrimanna þar í landi, tilkynnti í dag að hann hefði ákveðið að víkja úr embætti í næstu viku. Þar með getur Vaclav Klaus, forseti, útnefnt Mirek Topolanke, leiðtoga hægrimanna, í embætti forsætisráðherra. Flokkur Topolanke vann sigur í þingkosningum í byrjun mánaðarins. Bandalag þriggja hægri flokka hefur þó ekki hreinan meirihluta heldur hundrað þingsæti af tvö hundruð og þarf því að treysta á stuðnings minnst eins þingmanns úr öðrum flokki. 28.6.2006 12:00 Samruni Dagsbrúnar og Senu ólögmætur Samkeppniseftirlitið tilkynnti Dagsbrún í gærkvöld að samruni þess fyrirtækis og Senu væri ólögmætur og yrði ógiltur. Virðist helst vísað til markaðsráðandi stöðu Dagsbrúnar á áskriftarsjónvarpsmarkaði. Stjórn Dagsbrúnar ætlar ekki að una þessum úrskurði og mun, samkvæmt tilkynningu til Kauphallarinnar nú laust fyrir hádegi, skjóta málinu til Áfrýjunarnefndar samkeppnismála. Sena var áður afþreyingarsvið Skífunnar og rekur meðal annars verslanir með tónlistarefni og tölvuleiki ásamt kvikmyndahúsum. Dagsbrún rekur meðal annars sjónvarpsstöðina NFS. 28.6.2006 11:59 Bilaður bátur í togi Bátur bilaði suðvestur af Stafnnesi í morgun. Bátur svipaður að stærð var rétt hjá en til að flýta fyrir þar sem farið var að kula náðist í stærri bát sem nú er kominn með þann bilaða í tog á leið til Sandgerðis. Þeir eru líklega rétt ókomnir. 28.6.2006 11:56 Lík beggja stúlknanna fundin Belgíska lögreglan hefur staðfest að lík beggja stúlknanna sem rænt var fyrr í mánuðinum hafi fundist. Stúlkurnar voru stjúpsystur, 7 og 10 ára, en þær hurfu frá borginni Liege 10. júní síðastliðinn. Karlmaður, sem grunaður er um að hafa átt þátt í hvarfi stúlknanna, gaf sig fram við lögreglu fyrir hálfum mánuði. Sá hefur tvívegis verið dæmdur fyrir að misnota börn. Lögregla fann stúlkurnar án upplýsinga frá manninum en hann heldur fram sakleysi sínu. 28.6.2006 11:45 Tamíl-tígrar réðust á tvö skip Skæruliðar Tamíl-tígra réðust í morgun á tvö skip stjórnarhersins á Sri Lanka. Kveikt var í öðru þeirra. Um sjö hundruð manns hafa fallið í átökum í landinu frá áramótum en vopnahléssamkomulag er enn í gildi. Óttast er að átök síðustu vikna eigi eftir að valda borgarastyrjöld enn á ný. 28.6.2006 11:45 Nick Cave Concert in Iceland 28.6.2006 11:22 Þrír handteknir í tengslum við slys í sýningarhöll í Póllandi Þrír menn hafa verið handteknir vegna mannskæðs slyss í sýningarhöll í Póllandi í janúar. Sextíu og fimm létust og hundrað og fjörutíu slösuðust þegar þak hallarinnar, sem er í bænum Katowice, hrundi undan snjóþunga. Fimm hundruð manns voru í höllinni þegar slysið varð. 28.6.2006 11:15 Starfsmenn svæðisskrifstofa um málefni fatlaðra ósáttir við kjör sín Háskólamenntaðir starfsmenn hjá svæðisskrifstofum um málefni fatlaðra íhuga nú uppsagnir þar sem ekkert hefur þokast í kjaraviðræðum þeirra við ríkið. Þeir vilja sambærileg kjör og fólk í sambærilegum störfum hjá borginni og afhentu yfirvöldum áskorun vegna deilunnar nú klukkan níu. 28.6.2006 11:15 Konan sveik út úr tryggingum með hjálp sonar síns, tengdadóttur og 20 annarra Konan sem er sökuð um að hafa svikið 75 milljónir út úr Tryggingastofnun er á fimmtugsaldri og hafði unnið sem þjónustufulltrúi í Þjónustumiðstöð stofnunarinnar í yfir 20 ár. Sonur konunnar og tengdadóttir sitja einnig í gæsluvarðhaldi. Alls tengjast um 20 manns málinu sem gæti verið eitt stærsta tryggingasvindl Íslandssögunnar. 28.6.2006 11:00 Fallhlífastökkvari fótbrotnaði í lendingu Fallhlífastökkvari fótbrotnaði í harkalegri lendingu á Helluflugvelli í gærkvöldi og var fluttur með sjúkrabíl á Slysadeild Landsspítalans. Hann var við æfingar ásamt félögum sínum úr Fallhlífaklúbbi Reykjavíkur, og voru aðstæður góðar, að sögn lögreglunnar á Hvolsvelli. 28.6.2006 10:45 Russian Military Ships 28.6.2006 10:30 Hraðakstur á Reykjanesbraut Ekkert lát er á hraðakstri á Reykjanesbraut, sem hefur færst mjög í vöxt. Tveir ökumenn voru stöðvaðir þar í gærkvöldi eftir að hafa mælst á 150 kílómetra hraða þar sem hámarkshraði er 90. Fimm til viðbótar voru teknir með stuttu millibili, en þeir óku heldur hægar. 28.6.2006 10:15 Boranir í nágrenni Húsavíkur Boraðar verða þrjár háhitaholur á Kröflusvæðinu og þeystareykjasvæðinu fyrir rúmlega hálfan milljarð króna í sumar vegna hugsanlegs álvers við Húsavík. Húsnæðisverð hefur hækkað í Húsavík og Alcoa hefur ráðið kynningarfulltrúa fyrir svæðið. 28.6.2006 10:00 Samtök herstöðvaandstæðinga mótmæla æfingum Rússa Miðnefnd Samtaka herstöðvaandstæðinga gagnrýnir harðlega boðaðar æfingar rússneskra herskipa í grennd við Ísland í haust. Í tilkynningu frá samtökunum segir að æfingar af þessu tagi þjóni engu uppbyggilegu hlutverki og þeim fylgi ýmsar hættur þar sem kjarnorkuknúin skip verði að öllum líkindum með í för. Samtökin ítreka einnig þá kröfu sína að látið verði af svonefndum kurteisisheimsóknum erlendra herskipa í íslenskar hafnir. 28.6.2006 09:45 Brotthvarf japanskra hermanna frá Írak Brotthvarf japanskra hermanna frá Írak heldur áfram. Það hófst á sunnudaginn þegar hluti japanska heraflans fór frá Suður-Írak yfir til Kúvæt. Í morgun mátti sjá nokkra vöruflutningabíla flytja búnað yfir landamærin. Sex hundruð japanskir hermenn hafa einungis sinnt hjálparstarfi í borginni Samawah í Suður-Írak síðan 2004. Þeir sinntu vegagerð, byggingu húsa og tóku þátt í að styrkja heilbrigðisþjónustu og hreinsa vatn í borginni. Óttast var um öryggi hermannanna þó friður væri á svæðinu. Enginn japanskur hermaður hefur fallið í Írak. 28.6.2006 09:45 Óeirðir í Austur-Tímor í nótt Óeirðir í Dili, höfuðborg Austur-Tímor, í nótt benda til þess að hættuástand þar í landi sé ekki liðið hjá þó Mari Alkatiri, forsætisráðherra, hafi sagt af sér fyrr í vikunni. Hópar ungmenna létu grjóthnullungum rigna yfir búðir þar sem flóttamenn halda til og lögðu eld að fjölmörgum húsum víðsvegar um borgina. Ástralskir friðargæsluliðar hröktu um hundrað óeirðaseggi frá flóttamannabúðunum. Ekki er vitað hvort nokkur særðist. 28.6.2006 09:30 Uppsveiflu lokið segir KB banki Uppsveiflunni, sem hófst í ársbyrjun árið 2003 er nú lokið, að mati KB banka, sem styðst þar við væntingavísitölu Gallups, sem mælist nú rétt rúmlega hundrað stig, þriðja mánuðinn í röð. Þegar hún mælist hundrað, eru jafn margir neytendur jákvæðir og neikvæðir á aðstæður í efnahags- og atvinnumálum. Í fyrravetur mældist væntingavísiltalan 130 stig, en er nú fallin niður í hundrað, eða það sama og hún var við upphaf uppsveiflunnar árið 2003. 28.6.2006 09:15 Ísraelsher ræðst inn á Gaza-svæðið Ísraelsher hefur tekið sér stöðu við Rafah á suður hluta Gaza-svæðisins. Herinn réðst inn á Gaza seint í gærkvöldi með það fyrir augum að frelsa ungan, ísraelskan hermann sem hefur verið í haldi herskárra Palestínumanna síðan á sunnudaginn. 28.6.2006 09:00 Jón Sigurðsson í formannsslag í Framsóknarflokknum Jón Sigurðsson viðskipta-og iðnaðarráðherra ætlar að gefa kost á sér til formanns Framsóknarflokksins og vonast eftir heiðarlegri og vinsamlegri baráttu um formannssætið. 28.6.2006 08:30 Mengunarslys á Eskifirði í rannsókn Vinnueftirlitið, lögregla og fleiri vinna enn að rannsókn mengunarslyssins á Eskifriði í gær þegar eitrað gas náði til sundlaugargesta og um 30 veiktust. Eftir því sem Fréttastofan kemst næst er líðan þeirra fjögurra, sem fluttir voru flugleiðis á sjúkrahús í Reykjavík og þeirra tveggja sem fluttir voru til Akureyrar eftir atvikum. Um 10 manns dvöldu á sjúkrahúsinu í Neskaupstað í nótt, þar sem fylgst var með líðan þeirra til öryggis. 28.6.2006 08:15 Friður um Straum Friður skapast væntanlega í stjórn Straums-Burðaráss eftir að FL Group gekk í gærkvöldi frá kaupum á rúmlega 24% hlut þeirra Magnúsar Kristinssonar og Kristins Björnssonar í bankanum fyrir 47 milljarða króna. 28.6.2006 08:01 Lækka lán og fresta framkvæmdum Ríkisstjórnin ætlar að draga úr þenslu og minnka verðbólgu með því að lækka lánshlutfall og hámarkslán Íbúðalánasjóðs, fresta nýjum framkvæmdum og fá sveitarfélögin til að draga úr nýjum fjárfestingum á þessu ári og næsta. 28.6.2006 08:00 Fjárbóndi drap dýrbíta og var laminn Tveir hundar voru skotnir við bæinn Holt í Svínadal, eftir að þeir höfðu drepið fimmtán lömb í æði. Eigandi annars hundsins lagði hendur á búfjáreigandann sem segir sig sáran eftir. Hann hefur kært árásina til lögreglu. 28.6.2006 08:00 Viðskipti fyrir 47 milljarða FL Group festi í gær kaup á 24,2 prósenta hlut í Straumi-Burðarási fjárfestingabanka hf., en seljendur eru að stærstum hluta Magnús Kristinsson og Kristinn Björnsson. 28.6.2006 08:00 Vekja reiði hjá fólki Ögmundi Jónassyni þingmanni finnst afleitt að lánshlutfall Íbúðalánasjóðs verði lækkað, því að það bitni á þeim sem séu að festa kaup á sínu fyrsta húsnæði. "Þetta er fráleit ráðstöfun," segir Ögmundur, "og vekur fyrst og fremst reiði hjá fólki". 28.6.2006 07:45 Flutti edik í stað klórs Rúmlega þrjátíu manns lentu í klórgasmengun í sundlaug Eskifjarðar í gær. Orsök slyssins er að ediksýru var hellt í klórtank laugarinnar fyrir mistök. 28.6.2006 07:45 Óperuhúsinu verður seinkað Gunnar I. Birgisson, bæjarstjóri Kópavogs, segir að Kópavogsbær geti ekkert skorið niður í framkvæmdum á þessu ári, þær séu fastbundnar. "En við munum reyna að sjá til þess að hér verði stöðugleiki og festa í efnahagslífi þjóðarinnar." 28.6.2006 07:30 Þingforsetar ræddu viðskipti 28.6.2006 07:15 Allir sjúklingarnir komu inn í einu Það var í nógu að snúast á Fjórðungssjúkrahúsinu á Neskaupstað í gær, en þangað leituðu tuttugu og fimm sjúklingar vegna mengunarslyssins í sundlauginni á Eskifirði. Björn Magnússon yfirlæknir var í sumarleyfi þegar hann var kallaður til vinnu ásamt fjölda annarra starfsmanna á sjúkrahúsinu. 28.6.2006 07:15 Gasið myndar saltsýru í slímhúð Í sundlauginni á Eskifirði var blandað saman röngum hlutföllum efna með þeim afleiðingum að það myndaðist eiturgas. Elín G. Guðmundsdóttir, fagstjóri hjá Umhverfisstofnun og efnafræðingur, útskýrir að hýpóklórít, sem er efnasamband með klór og notað til að leysa úr læðingi klórgas til að sótthreinsa vatn, hafi lent saman við sýru í röngum hlutföllum. 28.6.2006 07:15 Stefndi í hörð átök Palestínumenn bjuggu sig undir innrás Ísraelsmanna á Gaza-svæðið í gærkvöldi og var vegum við landamærin lokað með jarðhleðslum og gaddavír. 28.6.2006 07:15 Aðgerðir voru samhæfðar Lögregla, slökkviliðsmenn, læknar og hjúkrunarlið auk björgunarsveitarmanna og liðsmanna Rauða kross Íslands tóku þátt í aðgerðum í gær. 28.6.2006 07:00 Tuttugu þúsund skrifa undir Rúmlega 20 þúsund manns hafa nú ritað nafn sitt á undirskriftalista, þar sem alþingismenn eru hvattir til að samþykkja lagafrumvarp Ágústs Ólafs Ágústssonar, um afnám fyrningarfrests á kynferðisbrotum gegn börnum. 28.6.2006 07:00 Viðurkenna ekki Ísraelsríki Abdel Rahman Zeidan, ráðherra í palestínsku heimastjórninni, leiðrétti fréttaflutning af samkomulagi milli Hamas-samtakanna og Fatah-hreyfingarinnar í gærkvöldi. BBC hefur eftir honum að í samkomulaginu milli Hamas og Fatah væri ekki minnst einu orði á viðurkenningu á Ísraelsríki. Þetta hefur enginn samþykkt. Þetta var aldrei á borðinu. 28.6.2006 07:00 Meint fangaflug CIA rannsakað áfram Evrópuráðsþingið samþykkti í gær að halda skyldi áfram rannsókn á ásökunum um að stjórnvöld í Evrópuríkjum hafi liðsinnt bandarísku leyniþjónustunni við að brjóta mannréttindi á föngum, grunuðum um að tengjast hryðjuverkum. 28.6.2006 07:00 Hörð gagnrýni á Tony Blair Charles Clarke, fyrrverandi innanríkisráðherra Tony Blair, gagnrýndi fyrrverandi samherja sinn harkalega í gær og sagði hann hafa misst sjónar á þeim stefnumálum og markmiðum sem Verkamannaflokkurinn hefði áður staðið fyrir. Gagnrýnin kemur í kjölfar slæmrar útreiðar Verkamannaflokksins í skoðanakönnun í vikunni. 28.6.2006 07:00 Í samstarf við evrópska skóla Í gær var undirritað aðildarsamkomulag Íslands og Noregs að Evrópska lögregluskólasamstarfinu í Þjóðmenningarhúsinu. Með samkomulaginu er opnað fyrir nánara samstarf á milli Lögregluskóla ríkisins og evrópskra lögregluskóla um upplýsingaskipti og þjálfun. 28.6.2006 06:45 Svikin nema 75 milljónum Þrír hafa verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald til sjöunda júlí til viðbótar við þann sem úrskurðaður var í fyrradag vegna gruns um fjársvik og bótasvik í starfi hjá Tryggingastofnun ríkisins. Svikin nema 75 milljónum króna og er talið að þau hafi staðið yfir frá 2002. 28.6.2006 06:45 Börnin voru róleg Í kjölfar atburðanna í gær var ákveðið að rýma leikskólann Dalborg á Eskifirði, sem er staðsettur um tvö hundruð metra frá sundlauginni þar sem slysið átti sér stað. 28.6.2006 06:45 Mestur tími fer í að ræða spillingarmál Mikill órói er nú í Kúveit vegna væntanlegra þingkosninga í landinu. Kosningarnar fara fram þann 29. júní og eru sögulegar að því leyti að nú er konum í fyrsta skipti leyft að kjósa og bjóða sig fram til þings. 28.6.2006 06:30 Áhorf á NFS jókst í maí Fréttastöðin NFS sækir í sig veðrið samkvæmt könnun Gallup á sjónvarpsáhorfi landsmanna í maí. Tæp 34 prósent aðspurðra horfðu eitthvað á NFS á tímabilinu, en það er um tíu prósentustiga aukning frá því í mars. Á sama tíma minnkaði áhorf á Stöð 2 um sjö prósentustig, en Skjár Einn stendur nokkurn veginn í stað. 28.6.2006 06:15 Ráðherrar enn í eldri embættum Innan Framsóknarflokksins hefur verið ákveðið að Jónína Bjartmarz láti af störfum sem annar varaforseti Alþingis og sömuleiðis Magnús Stefánsson sem varaformaður stjórnar þingflokksins, eftir skipun þeirra í ráðherraembætti flokksins. 28.6.2006 06:15 Alls ekki stödd á flæðiskeri Skrifstofa Karls Bretaprins hefur skýrt frá því að tekjur prinsins á síðasta ári hafi numið rúmlega fjórtán milljónum punda, eða jafnvirði um það bil 1.900 milljóna íslenskra króna. 28.6.2006 06:15 Aukið eftirlit með vopnasölu Amnesty International ásamt fleiri mannréttindasamtökum afhentu Kofi Annan, framkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna, myndabanka á mánudag með myndum af einni milljón manna. Þetta gera samtökin til að krefjast þess að eftirlit með vopnasölu verði hert og að alþjóðasamningi um vopnaviðskipti verði komið á. 28.6.2006 05:45 Sjá næstu 50 fréttir
Paroubek víkur úr forsætisráðherraembættinu Jiri Paroubek, forsætisráðherra Tékklands og leiðtogi vinstrimanna þar í landi, tilkynnti í dag að hann hefði ákveðið að víkja úr embætti í næstu viku. Þar með getur Vaclav Klaus, forseti, útnefnt Mirek Topolanke, leiðtoga hægrimanna, í embætti forsætisráðherra. Flokkur Topolanke vann sigur í þingkosningum í byrjun mánaðarins. Bandalag þriggja hægri flokka hefur þó ekki hreinan meirihluta heldur hundrað þingsæti af tvö hundruð og þarf því að treysta á stuðnings minnst eins þingmanns úr öðrum flokki. 28.6.2006 12:00
Samruni Dagsbrúnar og Senu ólögmætur Samkeppniseftirlitið tilkynnti Dagsbrún í gærkvöld að samruni þess fyrirtækis og Senu væri ólögmætur og yrði ógiltur. Virðist helst vísað til markaðsráðandi stöðu Dagsbrúnar á áskriftarsjónvarpsmarkaði. Stjórn Dagsbrúnar ætlar ekki að una þessum úrskurði og mun, samkvæmt tilkynningu til Kauphallarinnar nú laust fyrir hádegi, skjóta málinu til Áfrýjunarnefndar samkeppnismála. Sena var áður afþreyingarsvið Skífunnar og rekur meðal annars verslanir með tónlistarefni og tölvuleiki ásamt kvikmyndahúsum. Dagsbrún rekur meðal annars sjónvarpsstöðina NFS. 28.6.2006 11:59
Bilaður bátur í togi Bátur bilaði suðvestur af Stafnnesi í morgun. Bátur svipaður að stærð var rétt hjá en til að flýta fyrir þar sem farið var að kula náðist í stærri bát sem nú er kominn með þann bilaða í tog á leið til Sandgerðis. Þeir eru líklega rétt ókomnir. 28.6.2006 11:56
Lík beggja stúlknanna fundin Belgíska lögreglan hefur staðfest að lík beggja stúlknanna sem rænt var fyrr í mánuðinum hafi fundist. Stúlkurnar voru stjúpsystur, 7 og 10 ára, en þær hurfu frá borginni Liege 10. júní síðastliðinn. Karlmaður, sem grunaður er um að hafa átt þátt í hvarfi stúlknanna, gaf sig fram við lögreglu fyrir hálfum mánuði. Sá hefur tvívegis verið dæmdur fyrir að misnota börn. Lögregla fann stúlkurnar án upplýsinga frá manninum en hann heldur fram sakleysi sínu. 28.6.2006 11:45
Tamíl-tígrar réðust á tvö skip Skæruliðar Tamíl-tígra réðust í morgun á tvö skip stjórnarhersins á Sri Lanka. Kveikt var í öðru þeirra. Um sjö hundruð manns hafa fallið í átökum í landinu frá áramótum en vopnahléssamkomulag er enn í gildi. Óttast er að átök síðustu vikna eigi eftir að valda borgarastyrjöld enn á ný. 28.6.2006 11:45
Þrír handteknir í tengslum við slys í sýningarhöll í Póllandi Þrír menn hafa verið handteknir vegna mannskæðs slyss í sýningarhöll í Póllandi í janúar. Sextíu og fimm létust og hundrað og fjörutíu slösuðust þegar þak hallarinnar, sem er í bænum Katowice, hrundi undan snjóþunga. Fimm hundruð manns voru í höllinni þegar slysið varð. 28.6.2006 11:15
Starfsmenn svæðisskrifstofa um málefni fatlaðra ósáttir við kjör sín Háskólamenntaðir starfsmenn hjá svæðisskrifstofum um málefni fatlaðra íhuga nú uppsagnir þar sem ekkert hefur þokast í kjaraviðræðum þeirra við ríkið. Þeir vilja sambærileg kjör og fólk í sambærilegum störfum hjá borginni og afhentu yfirvöldum áskorun vegna deilunnar nú klukkan níu. 28.6.2006 11:15
Konan sveik út úr tryggingum með hjálp sonar síns, tengdadóttur og 20 annarra Konan sem er sökuð um að hafa svikið 75 milljónir út úr Tryggingastofnun er á fimmtugsaldri og hafði unnið sem þjónustufulltrúi í Þjónustumiðstöð stofnunarinnar í yfir 20 ár. Sonur konunnar og tengdadóttir sitja einnig í gæsluvarðhaldi. Alls tengjast um 20 manns málinu sem gæti verið eitt stærsta tryggingasvindl Íslandssögunnar. 28.6.2006 11:00
Fallhlífastökkvari fótbrotnaði í lendingu Fallhlífastökkvari fótbrotnaði í harkalegri lendingu á Helluflugvelli í gærkvöldi og var fluttur með sjúkrabíl á Slysadeild Landsspítalans. Hann var við æfingar ásamt félögum sínum úr Fallhlífaklúbbi Reykjavíkur, og voru aðstæður góðar, að sögn lögreglunnar á Hvolsvelli. 28.6.2006 10:45
Hraðakstur á Reykjanesbraut Ekkert lát er á hraðakstri á Reykjanesbraut, sem hefur færst mjög í vöxt. Tveir ökumenn voru stöðvaðir þar í gærkvöldi eftir að hafa mælst á 150 kílómetra hraða þar sem hámarkshraði er 90. Fimm til viðbótar voru teknir með stuttu millibili, en þeir óku heldur hægar. 28.6.2006 10:15
Boranir í nágrenni Húsavíkur Boraðar verða þrjár háhitaholur á Kröflusvæðinu og þeystareykjasvæðinu fyrir rúmlega hálfan milljarð króna í sumar vegna hugsanlegs álvers við Húsavík. Húsnæðisverð hefur hækkað í Húsavík og Alcoa hefur ráðið kynningarfulltrúa fyrir svæðið. 28.6.2006 10:00
Samtök herstöðvaandstæðinga mótmæla æfingum Rússa Miðnefnd Samtaka herstöðvaandstæðinga gagnrýnir harðlega boðaðar æfingar rússneskra herskipa í grennd við Ísland í haust. Í tilkynningu frá samtökunum segir að æfingar af þessu tagi þjóni engu uppbyggilegu hlutverki og þeim fylgi ýmsar hættur þar sem kjarnorkuknúin skip verði að öllum líkindum með í för. Samtökin ítreka einnig þá kröfu sína að látið verði af svonefndum kurteisisheimsóknum erlendra herskipa í íslenskar hafnir. 28.6.2006 09:45
Brotthvarf japanskra hermanna frá Írak Brotthvarf japanskra hermanna frá Írak heldur áfram. Það hófst á sunnudaginn þegar hluti japanska heraflans fór frá Suður-Írak yfir til Kúvæt. Í morgun mátti sjá nokkra vöruflutningabíla flytja búnað yfir landamærin. Sex hundruð japanskir hermenn hafa einungis sinnt hjálparstarfi í borginni Samawah í Suður-Írak síðan 2004. Þeir sinntu vegagerð, byggingu húsa og tóku þátt í að styrkja heilbrigðisþjónustu og hreinsa vatn í borginni. Óttast var um öryggi hermannanna þó friður væri á svæðinu. Enginn japanskur hermaður hefur fallið í Írak. 28.6.2006 09:45
Óeirðir í Austur-Tímor í nótt Óeirðir í Dili, höfuðborg Austur-Tímor, í nótt benda til þess að hættuástand þar í landi sé ekki liðið hjá þó Mari Alkatiri, forsætisráðherra, hafi sagt af sér fyrr í vikunni. Hópar ungmenna létu grjóthnullungum rigna yfir búðir þar sem flóttamenn halda til og lögðu eld að fjölmörgum húsum víðsvegar um borgina. Ástralskir friðargæsluliðar hröktu um hundrað óeirðaseggi frá flóttamannabúðunum. Ekki er vitað hvort nokkur særðist. 28.6.2006 09:30
Uppsveiflu lokið segir KB banki Uppsveiflunni, sem hófst í ársbyrjun árið 2003 er nú lokið, að mati KB banka, sem styðst þar við væntingavísitölu Gallups, sem mælist nú rétt rúmlega hundrað stig, þriðja mánuðinn í röð. Þegar hún mælist hundrað, eru jafn margir neytendur jákvæðir og neikvæðir á aðstæður í efnahags- og atvinnumálum. Í fyrravetur mældist væntingavísiltalan 130 stig, en er nú fallin niður í hundrað, eða það sama og hún var við upphaf uppsveiflunnar árið 2003. 28.6.2006 09:15
Ísraelsher ræðst inn á Gaza-svæðið Ísraelsher hefur tekið sér stöðu við Rafah á suður hluta Gaza-svæðisins. Herinn réðst inn á Gaza seint í gærkvöldi með það fyrir augum að frelsa ungan, ísraelskan hermann sem hefur verið í haldi herskárra Palestínumanna síðan á sunnudaginn. 28.6.2006 09:00
Jón Sigurðsson í formannsslag í Framsóknarflokknum Jón Sigurðsson viðskipta-og iðnaðarráðherra ætlar að gefa kost á sér til formanns Framsóknarflokksins og vonast eftir heiðarlegri og vinsamlegri baráttu um formannssætið. 28.6.2006 08:30
Mengunarslys á Eskifirði í rannsókn Vinnueftirlitið, lögregla og fleiri vinna enn að rannsókn mengunarslyssins á Eskifriði í gær þegar eitrað gas náði til sundlaugargesta og um 30 veiktust. Eftir því sem Fréttastofan kemst næst er líðan þeirra fjögurra, sem fluttir voru flugleiðis á sjúkrahús í Reykjavík og þeirra tveggja sem fluttir voru til Akureyrar eftir atvikum. Um 10 manns dvöldu á sjúkrahúsinu í Neskaupstað í nótt, þar sem fylgst var með líðan þeirra til öryggis. 28.6.2006 08:15
Friður um Straum Friður skapast væntanlega í stjórn Straums-Burðaráss eftir að FL Group gekk í gærkvöldi frá kaupum á rúmlega 24% hlut þeirra Magnúsar Kristinssonar og Kristins Björnssonar í bankanum fyrir 47 milljarða króna. 28.6.2006 08:01
Lækka lán og fresta framkvæmdum Ríkisstjórnin ætlar að draga úr þenslu og minnka verðbólgu með því að lækka lánshlutfall og hámarkslán Íbúðalánasjóðs, fresta nýjum framkvæmdum og fá sveitarfélögin til að draga úr nýjum fjárfestingum á þessu ári og næsta. 28.6.2006 08:00
Fjárbóndi drap dýrbíta og var laminn Tveir hundar voru skotnir við bæinn Holt í Svínadal, eftir að þeir höfðu drepið fimmtán lömb í æði. Eigandi annars hundsins lagði hendur á búfjáreigandann sem segir sig sáran eftir. Hann hefur kært árásina til lögreglu. 28.6.2006 08:00
Viðskipti fyrir 47 milljarða FL Group festi í gær kaup á 24,2 prósenta hlut í Straumi-Burðarási fjárfestingabanka hf., en seljendur eru að stærstum hluta Magnús Kristinsson og Kristinn Björnsson. 28.6.2006 08:00
Vekja reiði hjá fólki Ögmundi Jónassyni þingmanni finnst afleitt að lánshlutfall Íbúðalánasjóðs verði lækkað, því að það bitni á þeim sem séu að festa kaup á sínu fyrsta húsnæði. "Þetta er fráleit ráðstöfun," segir Ögmundur, "og vekur fyrst og fremst reiði hjá fólki". 28.6.2006 07:45
Flutti edik í stað klórs Rúmlega þrjátíu manns lentu í klórgasmengun í sundlaug Eskifjarðar í gær. Orsök slyssins er að ediksýru var hellt í klórtank laugarinnar fyrir mistök. 28.6.2006 07:45
Óperuhúsinu verður seinkað Gunnar I. Birgisson, bæjarstjóri Kópavogs, segir að Kópavogsbær geti ekkert skorið niður í framkvæmdum á þessu ári, þær séu fastbundnar. "En við munum reyna að sjá til þess að hér verði stöðugleiki og festa í efnahagslífi þjóðarinnar." 28.6.2006 07:30
Allir sjúklingarnir komu inn í einu Það var í nógu að snúast á Fjórðungssjúkrahúsinu á Neskaupstað í gær, en þangað leituðu tuttugu og fimm sjúklingar vegna mengunarslyssins í sundlauginni á Eskifirði. Björn Magnússon yfirlæknir var í sumarleyfi þegar hann var kallaður til vinnu ásamt fjölda annarra starfsmanna á sjúkrahúsinu. 28.6.2006 07:15
Gasið myndar saltsýru í slímhúð Í sundlauginni á Eskifirði var blandað saman röngum hlutföllum efna með þeim afleiðingum að það myndaðist eiturgas. Elín G. Guðmundsdóttir, fagstjóri hjá Umhverfisstofnun og efnafræðingur, útskýrir að hýpóklórít, sem er efnasamband með klór og notað til að leysa úr læðingi klórgas til að sótthreinsa vatn, hafi lent saman við sýru í röngum hlutföllum. 28.6.2006 07:15
Stefndi í hörð átök Palestínumenn bjuggu sig undir innrás Ísraelsmanna á Gaza-svæðið í gærkvöldi og var vegum við landamærin lokað með jarðhleðslum og gaddavír. 28.6.2006 07:15
Aðgerðir voru samhæfðar Lögregla, slökkviliðsmenn, læknar og hjúkrunarlið auk björgunarsveitarmanna og liðsmanna Rauða kross Íslands tóku þátt í aðgerðum í gær. 28.6.2006 07:00
Tuttugu þúsund skrifa undir Rúmlega 20 þúsund manns hafa nú ritað nafn sitt á undirskriftalista, þar sem alþingismenn eru hvattir til að samþykkja lagafrumvarp Ágústs Ólafs Ágústssonar, um afnám fyrningarfrests á kynferðisbrotum gegn börnum. 28.6.2006 07:00
Viðurkenna ekki Ísraelsríki Abdel Rahman Zeidan, ráðherra í palestínsku heimastjórninni, leiðrétti fréttaflutning af samkomulagi milli Hamas-samtakanna og Fatah-hreyfingarinnar í gærkvöldi. BBC hefur eftir honum að í samkomulaginu milli Hamas og Fatah væri ekki minnst einu orði á viðurkenningu á Ísraelsríki. Þetta hefur enginn samþykkt. Þetta var aldrei á borðinu. 28.6.2006 07:00
Meint fangaflug CIA rannsakað áfram Evrópuráðsþingið samþykkti í gær að halda skyldi áfram rannsókn á ásökunum um að stjórnvöld í Evrópuríkjum hafi liðsinnt bandarísku leyniþjónustunni við að brjóta mannréttindi á föngum, grunuðum um að tengjast hryðjuverkum. 28.6.2006 07:00
Hörð gagnrýni á Tony Blair Charles Clarke, fyrrverandi innanríkisráðherra Tony Blair, gagnrýndi fyrrverandi samherja sinn harkalega í gær og sagði hann hafa misst sjónar á þeim stefnumálum og markmiðum sem Verkamannaflokkurinn hefði áður staðið fyrir. Gagnrýnin kemur í kjölfar slæmrar útreiðar Verkamannaflokksins í skoðanakönnun í vikunni. 28.6.2006 07:00
Í samstarf við evrópska skóla Í gær var undirritað aðildarsamkomulag Íslands og Noregs að Evrópska lögregluskólasamstarfinu í Þjóðmenningarhúsinu. Með samkomulaginu er opnað fyrir nánara samstarf á milli Lögregluskóla ríkisins og evrópskra lögregluskóla um upplýsingaskipti og þjálfun. 28.6.2006 06:45
Svikin nema 75 milljónum Þrír hafa verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald til sjöunda júlí til viðbótar við þann sem úrskurðaður var í fyrradag vegna gruns um fjársvik og bótasvik í starfi hjá Tryggingastofnun ríkisins. Svikin nema 75 milljónum króna og er talið að þau hafi staðið yfir frá 2002. 28.6.2006 06:45
Börnin voru róleg Í kjölfar atburðanna í gær var ákveðið að rýma leikskólann Dalborg á Eskifirði, sem er staðsettur um tvö hundruð metra frá sundlauginni þar sem slysið átti sér stað. 28.6.2006 06:45
Mestur tími fer í að ræða spillingarmál Mikill órói er nú í Kúveit vegna væntanlegra þingkosninga í landinu. Kosningarnar fara fram þann 29. júní og eru sögulegar að því leyti að nú er konum í fyrsta skipti leyft að kjósa og bjóða sig fram til þings. 28.6.2006 06:30
Áhorf á NFS jókst í maí Fréttastöðin NFS sækir í sig veðrið samkvæmt könnun Gallup á sjónvarpsáhorfi landsmanna í maí. Tæp 34 prósent aðspurðra horfðu eitthvað á NFS á tímabilinu, en það er um tíu prósentustiga aukning frá því í mars. Á sama tíma minnkaði áhorf á Stöð 2 um sjö prósentustig, en Skjár Einn stendur nokkurn veginn í stað. 28.6.2006 06:15
Ráðherrar enn í eldri embættum Innan Framsóknarflokksins hefur verið ákveðið að Jónína Bjartmarz láti af störfum sem annar varaforseti Alþingis og sömuleiðis Magnús Stefánsson sem varaformaður stjórnar þingflokksins, eftir skipun þeirra í ráðherraembætti flokksins. 28.6.2006 06:15
Alls ekki stödd á flæðiskeri Skrifstofa Karls Bretaprins hefur skýrt frá því að tekjur prinsins á síðasta ári hafi numið rúmlega fjórtán milljónum punda, eða jafnvirði um það bil 1.900 milljóna íslenskra króna. 28.6.2006 06:15
Aukið eftirlit með vopnasölu Amnesty International ásamt fleiri mannréttindasamtökum afhentu Kofi Annan, framkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna, myndabanka á mánudag með myndum af einni milljón manna. Þetta gera samtökin til að krefjast þess að eftirlit með vopnasölu verði hert og að alþjóðasamningi um vopnaviðskipti verði komið á. 28.6.2006 05:45