Fleiri
Neikvætt fyrir lögregluna 21.9.2005 00:01 Ásakanir án innistæðu "Mér finnst þetta mjög alvarleg tíðindi fyrir íslenskt réttarkerfi vegna þess að ákæra hefur í för með sér slíka röskun á högum fólks að það verður að gera kröfu til ákæruvaldsins um að skýrt komi fram í hverju brot er falið og gegn hverju og hverjum," segir Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar. 21.9.2005 00:01 Áfall fyrir ákæranda Steingrímur J. Sigfússon, þingmaður og formaður vinstri grænna segir það áfall eftir víðtæka og harkalega aðgerð af hálfu lögreglu og ákæranda að uppskeran skuli ekki vera meiri en raun ber vitni í Baugsmálinu. "Það er ekki hægt annað en að líta á þetta sem stóráfall fyrir ákæruvaldið." 21.9.2005 00:01 Bæjarstjórn harmar andstöðu Bæjarstjórn Reykjanesbæjar er sammála niðurstöðu nýrrar skýrslu um að skynsamlegt sé að sameina sveitarfélögin Garð, Sandgerði og Reykjanesbæ í eina heild. Bókun þessa efnis var samþykkt einróma á fundi bæjarstjórnar á þriðjudag. 21.9.2005 00:01 Sjá næstu 50 fréttir
Varað við hálku og snjóþekju Vegagerðin varar við hálkublettum á fjallvegum á Vestfjörðum og á Hólssandi og þá er snjóþekja á Öxafjarðarheiði. 21.9.2005 00:01
Segir gott að fá efnislegan dóm Hannes Hómsteinn Gissurarson háskólaprófessor segist ekkert hafa við úrskurð Hæstaréttar í máli Auðar Laxenss á hendur honum að athuga og segir gott að fá efnilegan dóm í málinu. Hæstirrétur felldi í gær úr gildi frávísun héraðsdóms á málinu, en Auður stefndi Hannesi fyrir meintan ritstuld úr verkum Halldórs Laxness í bók hans <em>Halldór</em>. 21.9.2005 00:01
Miklar breytingar á sjávarhita Loftslagssérfræðingar frá Vestur-Norðurlöndum hafa sýnt fram á umfangsmiklar breytingar á hitastigi sjávar. Í nýju tölublaði hins virta bandaríska vísindatímarits <em>Science</em> eru birtar niðurstöður úr rannsóknum þeirra. Í greininni sýna vísindamenn frá Færeyjum, Noregi og Íslandi fram á miklar og ófyrirséðar breytingar á hitastigi sjávar í Norður-Atlantshafi og norðurhöfum á undanförnum árum. 21.9.2005 00:01
Portus Group með vinningstillögu Portus Group, sem er í eigu Landsafls hf., Nýsis hf. og Íslenskra aðalverktaka hf., er með vænlegasta tilboðið í hönnun, byggingu og rekstur tónlistarhúss, ráðstefnumiðstöðvar og hótels við Austurhöfnina í Reykjavík samkvæmt niðurstöðu matsnefndar og sérfræðinga Austurhafnar-TR. Þetta var kynnt við hátíðlega athöfn í Þjóðmenningarhúsinu í dag sem og sú ákvörðun stjórnar Austurhafnar-TR að ganga til samninga um verkefnið við Portus Group. 21.9.2005 00:01
Vilja samkomulag um flutninga Stjórn Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna hvetur Samband íslenskra sveitarfélaga og heilbrigðisráðuneytið til að gera með sér samkomulag um framkvæmd sjúkraflutninga á landsvísu og leggur til frekari sameiningu á sjúkraflutningaþjónustu við slökkvilið landsins. 21.9.2005 00:01
Mótmæla stefnu í auðlindamálum Náttúruvaktin hyggst efna til mótmælastöðu fyrir utan Ráðhús Reykjavíkur í dag kl. 17.45, en þá koma þátttakendur á alþjóðlegri rafskautaráðstefnu til móttöku í Ráðhúsinu. Í tilkynningu frá Náttúruvaktinni kemur fram að enn sé verið að auglýsa Ísland sem ódýrt orkuver og málmbræðsluland. 21.9.2005 00:01
Segist eiga inni sjö vikna hvíld Unglæknir telur sig eiga inni yfir 300 klukkustundir í hvíldartíma hjá Landspítala háskólasjúkarhúsi. Málaferli eru nú í gangi vegna ágreinings um hvíldartíma á annað hundrað unglækna, sem vinna eða hafa unnið hjá spítalanum.</font /></b /> 21.9.2005 00:01
Fimm hafa veikst af hermannaveiki Fimm hafa veikst af hermannaveiki það sem af er þessu ári, að sögn Haralds Briem sóttvarnalæknis. Af þeim lést einn úr veikinni. Síðasta tilfellið kom upp í ágúst. Bakterían er lúmsk og getur leynst hvar sem er. </font /></b /> 21.9.2005 00:01
Baugsmál sé byggt á sandi Jóhannes Jónsson stjórnarmaður í Baugi segir að frávísun Héraðsdóms Reykjavíkur á ákærum gegn Baugi, sýni að málið hafi allt verið byggt á sandi af hálfu ákæruvaldsins, að þeirri niðurstöðu komist þrír valinkunnir dómarar Héraðsdóms. Nú þegar ákæruvaldið vísi málinu væntanlega til Hæstaréttar, segist Jóhannes treysta því að þeir dómarar sem tengist Davíð Oddssyni, formanni Sjálfstæðisflokksins, verði ekki látnir koma nálægt meðferð Hæstaréttar á málinu. 21.9.2005 00:01
Íbúar í Houston þurfa að fara Borgarstjórinn í Houston í Texas, Bill White, tilkynnti í dag að allir íbúar sem byggju á svæðum sem lægju lágt og hætta væri á að flæddi yfir skyldu yfirgefa borgina á morgun vegna komu fellibylsins Rítu. Almannavarnir á svæðinu segja að allt að ein milljón manna í borginni verði að fara en búist er við Ríta taki land við Galveston, suðaustur af Houston, á föstudag eða laugardag. 21.9.2005 00:01
Steinbítur friðaður við hrygningar Sjávarútvegsráðuneytið hefur gefið út reglugerð um friðun steinbíts á hrygningartíma á Látragrunni, þ.e. frá og með 24. september næstkomandi til loka marsmánaðar 2006. Í tilkynningu frá ráðuneytinu kemur fram að reglugerðin sé gefin út að tillögu Hafrannsóknastofnunarinnar og í samráði við Landssamband íslenskra útvegsmanna. 21.9.2005 00:01
Segja Issac framseldan á morgun Ítalir munu á morgun framselja einn mannanna, sem grunaðir eru misheppnuð sprengjutilræði í Lundúnum 21. júlí, til Bretlands. Þetta hefur Reuters-fréttastofan eftir heimildarmönnum innan dómskerfis Ítalíu. Hamdi Issac var handtekinn í Róm viku eftir sprengingarnar og fóru Bretar þegar fram á framsal hans. Málið fór fyrir dóm á Ítalíu sem úrskurðaði fyrr í mánuðinum að Issac, sem einnig gengur undir nafninu Osman Hussein, skyldi framseldur. 21.9.2005 00:01
Fálka sleppt úr Húsdýragarði Fyrr í dag var grænlandsfálka, sem dvalið hafði í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum frá því sumar, sleppt við Hengil. Í tilkynningu frá garðinum segir að fálkinn, sem er kvenfugl, hafi komið í garðinn eftir að hafa fundist grútarblautur á Snæfellsnesi. Grúturinn var þveginn af henni en til þess þurfti tvo þvotta. 21.9.2005 00:01
Styður framboð til öryggisráðs Stjórn Kjördæmasambands Framsóknarflokksins í Reykjavíkurkjördæmi suður leggur áherslu á að Ísland standi við framboð sitt til öryggisráðs Sameinuðu Þjóðanna í tilkynningu sem sambandið sendi frá sér í dag. Er það mat stjórnar sambandsins að Ísland eigi fullt erindi í öryggisráð Sameinuðu Þjóðanna og hafnar hún málflutningi þess efnis að Ísland hafi ekki burði til að sitja í ráðinu. 21.9.2005 00:01
Handteknir vegna barnakláms Lögregla í sex ríkjum Evrópusambandsins handtók hóp manna í áhlaupi á 80 hús í löndunum sex vegna gruns um að fólk þar tengdist dreifingu og vörslu barnakláms á Netinu. Í tilkynningu frá Europol segir að um framhald aðgerða frá því í sumar hafi verið að ræða, en 14. júní var ráðist inn í 140 hús í 13 löndum Evrópu og leiddi það til þess að ríflega 130 manns sættu rannsókn vegna tengsla sinna við barnaklámsefni. 21.9.2005 00:01
Yfir 1000 látnir vegna Katrínar Tala látinna eftir yfirreið fellibylsins Katrínar fyrir um þremur vikum er nú komin yfir 1000. Yfirvöld í Louisiana hafa staðfest að 799 hafi látist í ríkinu af völdum fellibylsins og þá eru 219 sagðir hafa látist í Mississippi-ríki og 19 í Flórída, Alabama, Georgíu og Tennessee. Samtals eru þetta 1037 manns og er óttast að talan kunni enn að hækka. 21.9.2005 00:01
Hermenn drepnir í Taílandi Íbúar í þorpi í suðurhluta Taílands tóku tvo hermenn höndum og myrtu þá í dag vegna gruns um aðild þeirra að skotárás. Eftir því sem <em>BBC</em> greinir frá voru mennirnir gripnir eftir skotárás úr bíl í þorpinu og sökuðu sumir þorpsbúanna þá um að tilheyra dauðasveitum yfirvalda. 21.9.2005 00:01
Konur leggi niður störf 24. okt. Aðstandendur baráttuhátíðar kvenna, sem haldin verður í tilefni að því að 30 ár eru liðin frá kvennafríinu, hvetja konur til leggja niður störf á kvennafrídeginum 24. október. 21.9.2005 00:01
Heimdellingar deila um fulltrúa Deilt er um hvaða félagar Heimdalls, félags ungra sjálfstæðismanna í Reykjavík, fái að sækja þing Sambands ungra sjálfstæðismanna 30. september. Um tuttugu ungir sjálfstæðismenn sem fá að sækja þingið sem aukamenn, auk tíu annarra hafa mótmælt mannavali á þingið og segja 50 nýskráða félaga tekna fram yfir fyrrum stjórnarmenn í Heimdalli. 21.9.2005 00:01
Mikill viðbúnaður vegna Rítu Mikill viðbúnaður er í Texas vegna Rítu. Fólk sem býr við ströndina hefur verið hvatt til að flýja heimili sín. Þúsundir eru þegar farnar að huga að brottflutningi frá Galveston og borgarstjórinn í Houston hefur beint því til borgarbúa að búa sig undir það versta. 21.9.2005 00:01
Tónlistarhús gerbreyti svip borgar Nýtt tónlistarhús í Reykjavík verður áhrifamikið kennileiti og gerbreytir svip borgarinnar. Það er hinn þekkti listamaður Ólafur Elíasson sem á heiðurinn af þeirri tillögu, sem þótti bera af öðrum í samkeppni um útlit hússins. 21.9.2005 00:01
Jarðgöng er eina leiðin "Við förum fram á öruggar samgöngur á svæðinu og ég sé ekki að þær verði tryggðar öðruvísi en með göngum," segir Jónas Guðmundsson, sýslumaður á Bolungarvík og formaður Almannavarnarnefndar bæjarins. Í ályktun sem fundurinn samþykkti segir að um 600 til 700 ökutæki fara um Óshlíð daglega og oft hafi legið við stórslysi vegna grjóthruns og snjófljóða. 21.9.2005 00:01
Les fræðingum pistilinn "Ég ætla sko að láta þá heyra það," segir Sigurður Ragnar Kristjánsson en hann býr á sambýli á vegum Svæðisskrifstofu málefna fatlaðra. Á morgun ætlar hann að halda fyrirlestur á ráðstefnu sem Svæðisskrifstofan stendur fyrir í Gullinhömrum og hefst hún í dag en þar verða fjölmargir fyrirlesarar sem segja frá niðurstöðum rannsókna og miðla af reynslu sinni í málefnum fatlaðra. 21.9.2005 00:01
Vill að æðstu menn segi af sér Jóhannes Jónsson í Bónus vill að dómsmálaráðherra, ríkislögreglustjóri og yfirmaður efnahagsbrotadeildar segi af sér eftir að héraðsdómur vísaði Baugsmálinu frá. Össur Skarphéðinsson alþingismaður tekur í sama streng. Dómsmálaráðherra segir að réttarkerfið verði að fá tóm til að vinna sína vinnu. 21.9.2005 00:01
Stór hluti boða úr sendum falskur Stór hluti þeirra boða sem berast úr gömlum neyðarsendum er falskur. Rúmar tíu klukkustundir tók að finna neyðarsendi sem unglingar í Sandgerði settu af stað í gær. 21.9.2005 00:01
Vill verndaða vinnustaði burt Verndaða vinnustaði fyrir fatlaða ætti að leggja niður í núverandi mynd. Þetta segir írskur iðjuþjálfi sem hélt fyrirlestur um atvinnumál fatlaðra hér á landi. Höfuðáherslu á að leggja á að skapa fötluðum tækifæri til að komast út á almennan vinnumarkað. 21.9.2005 00:01
Hafi verið numin á brott Lögreglan í Reykjavík rannsakar hvort átta ára gömul stúlka hafi verið numin á brott skammt frá Laugardalslauginni. 21.9.2005 00:01
Trúði ekki að Ríta væri á leiðinni Ingólfur Bjarni Sigfússon er í Bandaríkjunum þar sem hann fylgist með framvindunni í tengslum við fellibylinn Rítu.. Hann segir að í gærkvöld hafi fólk ekki viljað trúa því að þetta gæti gerst aftur. Það hafi talið að um æsifréttamennsku að ræða og að fréttamenn væru að óska eftir öðrum hamförum. 21.9.2005 00:01
Fellibyljir sumpart af mannavöldum Sigurður Þ. Ragnarsson veðurfréttamaður segir sjóinn í Mexíkóflóa óeðlilega hlýjan þegar hann er inntur eftir því hvers vegna svo margir sterkir fellibyljir ríði yfir á tiltölulega skömmum tíma. Sigurður segir sjóinn óeðilega hlýjan vegna hlýnandi loftslags en það megi aftur m.a. rekja til gróðurhúsaáhrifanna, en Bandaríkjamenn losi allra þjóða mest af gróðurhúsalofttegundum út í loftið. 21.9.2005 00:01
Börn vantar varanlegt fóstur Íslensk börn vantar varanlegt fóstur - en á sama tíma velja barnlaus pör frekar tæknifrjóvgun eða að ættleiða börn að utan. 21.9.2005 00:01
Lög vantar um stofnunina Á komandi þingi ætlar Össur Skarphéðinsson, þingmaður Samfylkingarinnar, að leggja fram fyrirspurn um rekstur Ratsjárstofnunar, en komið hefur fram að stofnunin reynir að stýra ófaglærðu starfsfólki sínu frá stéttarfélagsaðild. 21.9.2005 00:01
Tággrönn áður en hún fékk sér bíl Leikkonan Helga Braga Jónsdóttir hélt sér í formi með því að ferðast fótgangandi og með strætó. Hún segist nú þræll bílsins en fær sér stundum göngutúr - út í sjoppu. </font /></b /> 21.9.2005 00:01
Eldri borgarar á fimleikamót Fjöldi íslenskra eldri borgara hyggur á þátttöku í fimleikasýningunni Gullnu árin 2005 sem Fimleikasamband Evrópu efnir til á Kanaríeyjum í nóvember. Sýningin er nú haldin í fyrsta sinn en stefnt er að því að hún fari fram fjórða hvert ár í framtíðinni. 21.9.2005 00:01
Vilja samning um sjúkraflutninga Landssamband slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna hvetur Samband íslenskra sveitarfélaga og heilbrigðisráðuneytið til að semja um framkvæmd sjúkraflutninga á stöðum þar sem slökkvilið sveitarfélaganna sjá ekki um þá nú þegar. 21.9.2005 00:01
Fálkanum slepp úr Húsdýragarðinum Grænlandsfálka, sem dvalið hefur í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum frá því í sumar, var sleppt við Hengil fyrripartinn í gær. 21.9.2005 00:01
Kona fékk felldan niður kostnað Hæstiréttur staðfesti í gær úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur frá því í vor þar sem fellt var úr gildi fjárnám á hendur konu vegna sakarkostnaðar sem hún hafði ekki burði til að greiða. Hún hafði greitt sekt sem henni var gerð í opinberu máli, en ekki sakarkostnað sem hún átti einnig að greiða. 21.9.2005 00:01
Vilja flugið ekki flutt Verkalýðsfélag Húsavíkur varar við umræðu meðal stjórnmálaafla í Reykjavík um flutning innanlandsflugs frá höfuðborginni. Félagið segir völlinn gegna veigamiklu hlutverki er varði öryggishagsmuni landsbyggðarinnar. 21.9.2005 00:01
Lokað á Blönduósi og Siglufirði Öllum starfsmönnum þjónustustöðva Símans á Blönduósi og Siglufirði var sagt upp störfum í gær. Eva Magnúsdóttir, upplýsingafulltrúi fyrirtækisins, segir uppsagnirnar lið í hefðbundinni hagræðingu sem unnið hafi verið að um nokkurt skeið. 21.9.2005 00:01
Dylgjur stjórnmálamanna óþolandi Embætti Ríkislögreglustjóra hafnar því alfarið að lagt hafi verið upp í rannsóknina á Baugi á öðrum forsendum en faglegum. "Lög og reglur gilda um hvernig rannsóknir byrja og eftir þeim hefur verið farið nákvæmlega," segir Arnar Jensson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá Ríkislögreglustjóra. 21.9.2005 00:01
Þrír slasaðir eftir árekstur Laust eftir klukkan sex í gærdag var fólksbifreið ekið aftan á flutningabifreið við hraðahindrun sem nýbúið er að setja upp á Njarðarbraut í Reykjanesbæ. Þrír voru fluttir á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja eftir slysið, ökumaður og farþegi fólksbílsins, auk ökumanns flutningabifreiðarinnar. 21.9.2005 00:01
Vanhæfi hjá Samkeppniseftirliti Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins, hefur lýst yfir vanhæfi til að fjalla um samruna Burðaráss og Straums fjárfestingarbanka. Gylfi Magnússon, formaður stjórnar Samkeppniseftirlitsins, segir það byggja á því að hann sé hluthafi í öðru þessara félaga. Samkvæmt heimildum Markaðarins er Páll Gunnar hluthafi í Burðarási. 21.9.2005 00:01
Ásakanir án innistæðu "Mér finnst þetta mjög alvarleg tíðindi fyrir íslenskt réttarkerfi vegna þess að ákæra hefur í för með sér slíka röskun á högum fólks að það verður að gera kröfu til ákæruvaldsins um að skýrt komi fram í hverju brot er falið og gegn hverju og hverjum," segir Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar. 21.9.2005 00:01
Áfall fyrir ákæranda Steingrímur J. Sigfússon, þingmaður og formaður vinstri grænna segir það áfall eftir víðtæka og harkalega aðgerð af hálfu lögreglu og ákæranda að uppskeran skuli ekki vera meiri en raun ber vitni í Baugsmálinu. "Það er ekki hægt annað en að líta á þetta sem stóráfall fyrir ákæruvaldið." 21.9.2005 00:01
Bæjarstjórn harmar andstöðu Bæjarstjórn Reykjanesbæjar er sammála niðurstöðu nýrrar skýrslu um að skynsamlegt sé að sameina sveitarfélögin Garð, Sandgerði og Reykjanesbæ í eina heild. Bókun þessa efnis var samþykkt einróma á fundi bæjarstjórnar á þriðjudag. 21.9.2005 00:01
Býður oddvitunum þremur í hádegismat: „Svona hótanir eru ekki góður grundvöllur fyrir samstarf“ Innlent