Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Olíuverð rauk upp Heimsmarkaðsverð á hráolíutunnu rauk upp í gær vegna ótta spákaupmanna við að tíðindi frá fundi OPEC-ríkjanna síðar í dag verði óhliðholl olíumarkaðnum. Verðið hækkaði um heil sjö prósent í gær, úr 63 Bandaríkjadölum upp í rúma 67 Bandaríkjadali, og er þetta mesta hækkun á einum degi síðan í desember 2001. 20.9.2005 00:01
Tekinn á 155 km hraða Lögreglan á Hvolsvelli stöðvaði í gær þýskan ferðamann eftir að hann hafði mælst á 155 kílómetra hraða á þjóðveginum. Hann taldi sig vera á hraðbraut og því eiga frítt spil, líkt og á þýsku „átóbönunum“ svokölluðu. 20.9.2005 00:01
Hálka á Hellisheiði Það er snjókoma og hálka á Hellisheiði að sögn vegfarenda þar og Vegagerðin segir að hálka sé á Klettshálsi, krapi á Holtavörðuheiði og snjóþekja eða hálka víða á Norðausturlandi. 20.9.2005 00:01
Öllum ákæruliðum vísað frá Öllum ákæruliðunum 40 í Baugsmálinu svokallaða var vísað frá fyrir Héraðsdómi í morgun. Jón H. Snorrason, yfirmaður efnahagsbrotadeildar Ríkislögreglustjóra, segir að úrskurðurinn verði kærður til Hæstaréttar. Hann sagði þetta ekki vera áfall fyrir stofnunina. 20.9.2005 00:01
Óbreyttir borgarar létust Tveir óbreyttir borgarar létust þegar skotbardagar brutust út á milli breskra hermanna og mótmælenda í borginni Basra í Írak í gærkvöldi. Fyrr um daginn voru tveir breskir leyniþjónustumenn í dulargervi handteknir fyrir að skjóta að írökskum lögreglumönnum sem gerðu sig líklega til að handsama þá. 20.9.2005 00:01
Fyrsta andlitsígræðsla sögunnar Læknar í Bandaríkjunum undirbúa nú fyrstu andlitsígræðslu sögunnar. Hópur lækna í Cleveland mun á næstunni taka viðtöl við tólf einstaklinga, sem eru afmyndaðir í andliti, með það fyrir augum að velja einn til að græða á nýtt andlit. 20.9.2005 00:01
Baugsmál: Kom ekki á óvart Öllum ákærum í Baugsmálinu var vísað frá í heild sinni í Héraðsdómi Reykjavíkur nú fyrir stundu. Gestur Jónsson, verjandi Jóns Ásgeirs Jóhannessonar, var að vonum ánægður eins og aðrir verjendur í málinu. Hann sagði þetta ekki alveg hafa komið á óvart eftir það sem á undan hafi gengið. 20.9.2005 00:01
Verulega áfátt Í úrskurði Héraðsdóms í Baugsmálinu í morgun segir m.a. að samkvæmt íslenskri dómaframkvæmd verði að lýsa því hvernig ákærði er talinn hafa með athæfi sínu gerst sekur um það brot sem um ræðir. Í ákæru ríkisvaldsins gegn forsvarsmönnum Baugs sé því verulega áfátt. 20.9.2005 00:01
Mannbjörg fyrir utan Garðskaga Einum manni var bjargað í morgun þegar mikill leki kom skyndilega að bát hans þar sem hann var staddur um þrettán sjómílur norðvestur af Garðskaga. Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út en áður en hún kom á vettvang var manninum bjargað um borð í bát. 20.9.2005 00:01
Sharon notaði ólöglegar aðferðir Ísraelsk sjónvarpsstöð greindi frá því í gærkvöldi að Ariel Sharon, forsætisráðherra landsins, hefði notað ólöglegar aðferðir við að fjármagna kosningabaráttu sína í nýlegri heimsókn til New York. Á boðsmiða á samkomuna með Sharon sagði að gert væri ráð fyrir að þeir sem á hana kæmu gæfu minnst tíu þúsund dollara í kosningasjóði Sharons. 20.9.2005 00:01
Lentu utan vegar vegna hálku Tveir bílar lentu utan vegar á Hellisheiði í morgun vegna snjókomu og hálku en engan sem í þeim var sakaði. Einnig greinir Vegagerðin frá hálku á Klettshálsi, krapa á Holtavörðuheiði og snjóþekju eða hálku víða á Norðausturlandi. 20.9.2005 00:01
30 drepnir í Darfúr Uppreisnarmenn á bandi ríkisstjórnar Súdans hafa undanfarna daga drepið þrjátíu manns í Darfúr-héraði. Átök hafa staðið síðan á laugardaginn og nú eru friðarviðræður í uppnámi. Til stóð að halda fundi í Nígeríu til að reyna að ráða bót á ástandinu en nú er alls óvíst að af þeim verði. 20.9.2005 00:01
Íbúar Tal Afar snúa heim Íbúar Tal Afar í Írak snúa nú heim til sín hver af öðrum eftir að hafa flúið vegna skotbardaga undanfarnar tvær vikur. Bandarískar og írakskar hersveitir hófu áhlaup á vígi uppreisnarmanna í borginni fyrir tíu dögum og síðan þá hefur byssugelt heyrst frá morgni til kvölds og skriðdrekar keyrt um í miðbænum. 20.9.2005 00:01
Ágallarnir of miklir Ágallarnir á þeim átján ákæruliðum í Baugsmálinu, sem dómarar í málinu höfðu tiltekið með bréfi í lok ágúst, þykja vera svo miklir að vísa þurfi málinu frá dómi. Í niðurstöðu úrskurðarins segir að þar sem ágallar eru á verulegum hluta ákærunnar sé ekki hjá því komist að vísa málinu frá í heild. 20.9.2005 00:01
Skerpt á heimildum Íbúðalánasjóðs Skerpt hefur verið á heimild Íbúðalánasjóðs til áhættustýringar og ávöxtunar lausafjár með sérstökum viðauka við reglugerð um fjárhag og áhættustýringu Íbúðalánasjóðs. 20.9.2005 00:01
Samþykktu kjarasamning Félagar í Starfsmannafélagi Suðurnesja samþykktu kjarasamning við launanefnd sveitarfélaga á fundi sínum í gær. Sjötíu og sex prósent félagsmanna greiddu atkvæði með samningnum en tuttugu og tvö prósent greiddu atkvæði á móti samningnum. Tvö prósent fundarmanna skiluðu auðu. 20.9.2005 00:01
Varla möguleiki á nýrri ákæru Aðspurður hvort hann telji möguleika fyrir ákæruvaldið að leggja fram nýja ákæru segir Gestur Jónsson, verjandi Jóns Ásgeirs Jóhannessonar, að það geti ekki verið ætlunin að ákæruvaldið komi fram með ákæru sem ekki standist og fái síðan leiðbeiningu dómstóla hvernig gera eigi ákærurnar úr garði. 20.9.2005 00:01
Baugsmálið á pólitískum forsendum? Davíð Oddsson utanríkisráðherra sagði í viðtali við fréttastofu Stöðvar 2 í júlí síðastliðnum að ef rannsókn Baugsmálsins væri á pólitískum forsendum, eins og forsvarsmenn Baugs hafa haldið fram, þá hljóti dómstólar að henda málinu út. 20.9.2005 00:01
Íbúar New Orleans snúa ekki aftur Borgarstjórinn í New Orleans hefur hætt við að leyfa íbúum að snúa aftur af ótta við frekari flóð í borginni. Tugþúsundir manna hafa yfirgefið heimili sín í nágrenni Flórída vegna hitabeltisstormsins Rítu sem gengur líklega þar yfir síðar í dag. 20.9.2005 00:01
Höfða mál gegn olíufélögunum Ljóst er að nokkrar útgerðir hyggjast höfða mál á hendur olíufélögunum og krefjast bóta vegna samráðs. Friðrik J. Arngrímsson, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna, segir óljóst hversu margar útgerðir höfði mál en segir ljóst að þær verði allnokkrar. 20.9.2005 00:01
Jarðgöng myndu kosta milljarð Kostnaður við að gera jarðgöng fram hjá mesta hættusvæðinu á Óshlíðarvegi til Bolungarvíkur er áætlaður um einn milljarður króna en gerð vegskála yfir núverandi veg á sama svæði myndi kosta helmingi minna, eða um 500 milljónir. 20.9.2005 00:01
Reykjavík fallandi stjarna Reykjavík er fallandi stjarna meðal lesenda bresku blaðanna <em>Guardian</em> og <em>Observer</em>, fellur úr tólfta sæti yfir vinsælustu borgirnar í fyrra niður í þrítugasta og fjórða sæti núna.<em> </em>Forstöðumaður Ferðamálaráðs Íslands segir að niðurstaðan sé auðvitað visst áhyggjuefni. 20.9.2005 00:01
Fyrstu síldinni landað Fyrstu síldinni á þessari haustvertíð var landað á Höfn í Hornafirði í morgun þegar síldveiðiskipið Jóna Eðvalds kom þangað með fjörutíu tonn. Skipverjar höfðu leitað fyrir sér austur af landinu síðan á laugardag þegar þeir fengu þennan slatta og er talið að síldin sé almennt ekki gengin inn á hefðbundið veiðisvæði. 20.9.2005 00:01
Höfnuðu ráðherraefni Júsjenkó Úkraínskir þingmenn höfnuðu í dag manninum sem Viktor Júsjenkó, forseti Úkraínu, vill fá sem næsta forsætisráðherra landsins. Niðurstaða þingsins þykir mikið áfall fyrir Júsjenkó. 20.9.2005 00:01
Stefna ÖÍ að verða tilbúin Lögfræðingar Öryrkjabandalags Íslands leggja nú lokahönd á stefnu á hendur íslenskum stjórnvöldum vegna vanefnda á samningi sem Öryrkjabandalagið gerði við heilbrigðisráðherra fyrir hönd ríkisstjórnarinnar í aðdraganda kosninga árið 2003. 20.9.2005 00:01
Tyrkir hefja viðræður við ESB Tyrkir hefja aðildarviðræður við Evrópusambandið þriðja október næstkomandi. Þetta varð ljóst eftir að Tassos Papadopoulos, forseti Kýpur, lýsti því að ekkert hinna tuttugu og fimm aðildarríkja sambandsins legðist á móti aðildarviðræðum við Tyrki. 20.9.2005 00:01
Mikill skortur á leikskólakennurum Stjórnarmenn í stjórn Félags leikskólakennara harma það að varla sé minnst á skort á faglærðum leikskólakennurum í umræðu um starfsmannaskort á leikskólum. Þeir segja einblínt á að ófaglærða starfsmenn vanti þrátt fyrir að nú þegar sé alltof hátt hlutfall ófaglærðra starfsmanna við störf á leikskólum. 20.9.2005 00:01
Könnuðu aðstæður 2 vikum áður Breska lögreglan birti í morgun myndir úr eftirlitsmyndavélum sem sýna þrjá þeirra sem grunaðir eru um hryðjuverkaárásirnar mannskæðu í Lundúnum sjöunda júlí vera að kanna aðstæður í neðanjarðarlestakerfi borgarinnar. 20.9.2005 00:01
Frétt DV röng segir rektor Rektor Viðskiptaháskólans á Bifröst segir forsíðufrétt DV í dag, að Sveinbjörn Kristjánsson, fangi á Litla Hrauni, stundi bókhaldsnám á Bifröst, vera ranga. 20.9.2005 00:01
Sex látnir eftir flóð í Eþíópíu Sex létust þegar á flæddi yfir bakka sína í austurhuta Eþíópíu fyrir helgi, að því er Reuters-fréttastofan greindi frá síðdegis. Um 4000 manns neyddust til að yfirgefa heimili sín í kjölfar flóðsins. 20.9.2005 00:01
Dómsmálaráðherra tjáir sig ekki Björn Bjarnason dómsmálaráðherra tjáir sig ekki um niðurstöðu Héraðsdóms í Baugsmálinu. Þetta tilkynnti starfsmaður dómsmálaráðuneytisins fréttastofunni þegar hún reyndi að ná tali af ráðherra í dag. 20.9.2005 00:01
Bóndi varð fyrir gaseitrun Bóndi var hætt kominn þegar hann varð fyrir gaseitrun þar sem hann var að vinna í fjósi sínu á bóndabæ í Hrútafirði. Maðurinn fannst meðvitundarlaus um ellefuleytið í morgun. Þyrla Landhelgisgæslunnar flutti hann á Landspítalann í Fossvogi þar sem hann liggur nú þungt haldinn. 20.9.2005 00:01
Joschka Fischer hættir Joschka Fischer, utanríkisráðherra Þýskalands og leiðtogi Græningja, lýsti því yfir síðdegis að hann ætlaði sér að draga sig í hlé í framlínu þýskra stjórnmála. „Stórum hluta af lífi mínu síðustu tuttugu árin er nú að ljúka,“ sagði Fischer á blaðamannafundi. 20.9.2005 00:01
Báturinn kominn til hafnar Þjóðbjörg, bátur sem tók inn á sig vatn norðvestur af Garðskaga í morgun, er komin til hafnar í Sandgerði og er skipstjórinn, sem var einn um borð, heill á húfi. Báturinn Gunnþór, sem var að veiðum í nágrenninu, tók bátinn í tog. 20.9.2005 00:01
RÚV sýknað af 30 milljóna kröfu Ríkisútvarpið var í dag sýknað af rúmlega þrjátíu milljón króna kröfu fyrirtækisins Teftra Film vegna sýningar á fræðsluþáttunum „Viltu læra íslensku?“. Tuttugu og einn þáttur sem fyrirtækið framleiddi undir þessu nafni var sendur út í Ríkissjónvarpinu, án þess að greiðsla kæmi fyrir. 20.9.2005 00:01
Sprenging á hóteli í Ísrael Sprenging varð á hóteli í borginni Bat Yam í Ísrael fyrir stundu. Ekki er vitað á þessari stundu hvort manntjón hafi orðið í sprengingunni. Samkvæmt fyrstu upplýsingum frá sjúkraliðsmönnum á vettvangi logar eldur á níundu hæð hótelsins. 20.9.2005 00:01
Tveir vilja fyrsta sætið Jóhannes Valdemarsson framkvæmdastjóri hefur ákveðið að bjóða sig fram til 1. sætis í prófkjöri framsóknarmanna í Kópavogi, sem fram fer laugardaginn 12. nóvember. Áður hefur Ómar Stefánsson bæjarfulltrúi boðið sig fram í 1. sætið. 20.9.2005 00:01
Keypti Vatnsveitu Grundarfjarðar Orkuveita Reykjavíkur hefur keypt Vatnsveitu Grundarfjarðar og tekur við rekstri hennar um næstu áramót. Orkuveitan tekur strax við verkefnum er snúa að byggingu hitaveitu og verður hitaveita lögð á næsta ári. 20.9.2005 00:01
Óskað eftir viðræðum um boltann OgFjarskipti og 365 ljósvakamiðlar sendu inn bréf til Símans og Íslenska sjónvarpsfélagsins fyrir helgi þar sem óskað var eftir viðræðum um með hvaða hætti Íslenska sjónvarpsfélagið muni afhenda OgFjarskiptum og 365 ljósvakamiðlum sjónvarpsmerki sitt. 20.9.2005 00:01
Nóg komið af körlum Tillaga Kjartans Magnússonar, borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokks um að gerð verði stytta af Tómasi Guðmundssyni skáldi og henni verði komið fyrir á áberandi stað í borginni var vísað til menningar- og ferðamálaráðs. 20.9.2005 00:01
Áhyggjur af hátæknigreinum Framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins segir ekkert hafa verið rannsakað hvað mörg störf hafi flust úr landi vegna gengisþróuninnar, né heldur hvaða áhrif það hafi. Taka þurfi upp Evruna til að losna við gengissveiflur. 20.9.2005 00:01
Fimmtán hafa boðið sig fram Sjálfstæðisflokkurinn hefur ákveðið að halda prófkjör vegna borgarstjórnarkosninganna 4. og 5. nóvember. Framboðsfrestur er ekki runninn út, en fimmtán hafa tilkynnt framboð í eitthvert tólf efstu sætanna. 20.9.2005 00:01
MH fær nýtt hús Menntamálaráðherra og borgarstjórinn í Reykjavík tóku í dag fyrstu skóflustunguna að nýbyggingu Menntaskólans við Hamrahlíð. Húsið verður rúmlega þrjú þúsund fermetrar að stærð og í því verða meðal annars þrír íþróttasalir, bókasafn, átta raungreinastofur og þrjár til fjórar kennslustofur. 20.9.2005 00:01
Bretar verja aðgerðir í Basra Það var "algjörlega rétt" af breska herliðinu í Írak að brjótast með brynvagni inn í fangelsi í Basra til að frelsa tvo breska hermenn, að því er talsmenn breskra stjórnvalda lýstu yfir í gær. Atvikið átti sér stað í fyrradag og olli mikilli reiði meðal Basrabúa. Írösk yfirvöld sögðu það "afar óheppilegt". 20.9.2005 00:01
Frávísun vekur athygli erlendis Ákvörðun Héraðsdóms Reykjavíkur um að vísa ákærum í Baugsmálinu frá vakti athygli ýmissa erlendra fjölmiðla í gær, þar á meðal fréttastofanna Associated Press, Reuters og Bloomberg. 20.9.2005 00:01
Býður oddvitunum þremur í hádegismat: „Svona hótanir eru ekki góður grundvöllur fyrir samstarf“ Innlent