Fleiri fréttir Máli Hannesar vísað frá Máli fjölskyldu Halldórs Laxness gegn Hannesi Hólmsteini Gissurarsyni prófessor var í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag vísað frá vegna annmarka á málatilbúnaði stefnanda. Ekkja Halldórs, Auður Sveinsdóttir, höfðaði mál gegn Hannesi vegna meints ritstuldar í bók hans um Nóbelsskáldið. 9.6.2005 00:01 Keyrði á ofsahraða undir flugvélar Ökumaður fólksbifreiðar setti allt á annan enda á Alþjóðaflugvellinum á Kýpur í dag þegar hann ók bifreiðinni inn á flugbraut vallarins. Starfsmenn í flugturninum komu auga á bifreiðina sem var ekið undir kyrrstæðar farþegaflugvélar á ofsahraða og síðan inn á flugbrautina. Við yfirheyrslu kom í ljós að ökumaðurinn, sem er þrítugur Grikki, var á flótta. 9.6.2005 00:01 Nýtt svið fyrir Þjóðleikhúsið Þjóðleikhúsið og Landsbankinn hafa gert með sér samstarfssamning um uppbyggingu á nýju sviði Þjóðleikhússins. Sviðið á að heita „Kassinn“ og verður til húsa á jarðhæð íþróttahúss Jóns Þorsteinssonar að Lindargötu 7. Landsbankinn mun standa straum af kostnaði við uppbyggingu Kassans, svo sem kaupum á nýjum hljóð- og ljósabúnaði. 9.6.2005 00:01 Dæmdur fyrir skattsvik Maður á fimmtugsaldri var í dag dæmdur í Héraðsdómi Reykjavíkur í fjögurra mánaða skilorðsbundið fangelsi og til greiðslu 14,7 milljóna króna fyrir skattsvik og bókhaldsbrot á árunum 1998 til 2000. 9.6.2005 00:01 Kýr handtekin fyrir manndráp Lögreglan í Ojo-héraði í Nígeríu, skammt frá borginni Lagos, handtók kú eftir að hún hafði drepið rútubílstjóra sem var að létta á sér í vegarkanti og sært nokkra vegfarendur til viðbótar. Kýrin er fagurlega hyrnd og beitti hornunum fyrir sig í einhverri brjálsemi sem kom yfir hana. 9.6.2005 00:01 3 milljóna bótakröfu vísað frá Skaðabótakröfu konu sem rann í hálku á göngustíg við Fannborg í Kópavogi veturinn 1999 var í dag hafnað í Héraðsdómi Reykjavíkur. Konan fór fram á tæpar þrjár milljónir króna auk vaxta. 9.6.2005 00:01 Úrbætur gegn heimilisofbeldi Verkefnisstjórn um heilsufar kvenna hefur verið falið að athuga sérstaklega nokkra þætti er varða heilbrigðisþjónustu við konur sem eru fórnarlömb heimilisofbeldis, og vinna að úrbótum. 9.6.2005 00:01 Fölsun lyfseðla í hverjum mánuði Tilkynningar um falsaða lyfseðla berast til Lyfjastofnunar í hverjum mánuði. Þar eru á ferðinni einstaklingar sem eru að reyna að svíkja út morfínlyf og önnur ávanabindandi efni. Fíklar beita öllum brögðum til að komast yfir þau. 9.6.2005 00:01 Veikindi oftast ástæða vanskila Veikindi eru oftast nefnd sem ástæða fyrir greiðsluerfiðleikum þeirra sem leita til Ráðgjafarstofu um fjármál heimilanna árið 2004, að því er fram kemur í ársskýrslu stofunnar. 9.6.2005 00:01 Árs fangelsi fyrir kókaínsmygl Maður á þrítugsaldri var í dag dæmdur í Héraðsdómi í árs fangelsi fyrir að hafa reynt að smygla 226 grömmum af kókaíni til landsins innvortis þann 19. desember síðastliðinn. Kókaínið var í 59 pakkningum og var fjarlægt úr líkama mannsins með aðgerð á sjúkrahúsi. Þetta er þriðji dómurinn sem maðurinn fær og því þótti hann hæfilegur tólf mánuðir. 9.6.2005 00:01 Fræðslusjóður um einhverfu Stofnaður hefur verið Fræðslusjóður um einhverfu.
Sjá næstu 50 fréttir
Máli Hannesar vísað frá Máli fjölskyldu Halldórs Laxness gegn Hannesi Hólmsteini Gissurarsyni prófessor var í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag vísað frá vegna annmarka á málatilbúnaði stefnanda. Ekkja Halldórs, Auður Sveinsdóttir, höfðaði mál gegn Hannesi vegna meints ritstuldar í bók hans um Nóbelsskáldið. 9.6.2005 00:01
Keyrði á ofsahraða undir flugvélar Ökumaður fólksbifreiðar setti allt á annan enda á Alþjóðaflugvellinum á Kýpur í dag þegar hann ók bifreiðinni inn á flugbraut vallarins. Starfsmenn í flugturninum komu auga á bifreiðina sem var ekið undir kyrrstæðar farþegaflugvélar á ofsahraða og síðan inn á flugbrautina. Við yfirheyrslu kom í ljós að ökumaðurinn, sem er þrítugur Grikki, var á flótta. 9.6.2005 00:01
Nýtt svið fyrir Þjóðleikhúsið Þjóðleikhúsið og Landsbankinn hafa gert með sér samstarfssamning um uppbyggingu á nýju sviði Þjóðleikhússins. Sviðið á að heita „Kassinn“ og verður til húsa á jarðhæð íþróttahúss Jóns Þorsteinssonar að Lindargötu 7. Landsbankinn mun standa straum af kostnaði við uppbyggingu Kassans, svo sem kaupum á nýjum hljóð- og ljósabúnaði. 9.6.2005 00:01
Dæmdur fyrir skattsvik Maður á fimmtugsaldri var í dag dæmdur í Héraðsdómi Reykjavíkur í fjögurra mánaða skilorðsbundið fangelsi og til greiðslu 14,7 milljóna króna fyrir skattsvik og bókhaldsbrot á árunum 1998 til 2000. 9.6.2005 00:01
Kýr handtekin fyrir manndráp Lögreglan í Ojo-héraði í Nígeríu, skammt frá borginni Lagos, handtók kú eftir að hún hafði drepið rútubílstjóra sem var að létta á sér í vegarkanti og sært nokkra vegfarendur til viðbótar. Kýrin er fagurlega hyrnd og beitti hornunum fyrir sig í einhverri brjálsemi sem kom yfir hana. 9.6.2005 00:01
3 milljóna bótakröfu vísað frá Skaðabótakröfu konu sem rann í hálku á göngustíg við Fannborg í Kópavogi veturinn 1999 var í dag hafnað í Héraðsdómi Reykjavíkur. Konan fór fram á tæpar þrjár milljónir króna auk vaxta. 9.6.2005 00:01
Úrbætur gegn heimilisofbeldi Verkefnisstjórn um heilsufar kvenna hefur verið falið að athuga sérstaklega nokkra þætti er varða heilbrigðisþjónustu við konur sem eru fórnarlömb heimilisofbeldis, og vinna að úrbótum. 9.6.2005 00:01
Fölsun lyfseðla í hverjum mánuði Tilkynningar um falsaða lyfseðla berast til Lyfjastofnunar í hverjum mánuði. Þar eru á ferðinni einstaklingar sem eru að reyna að svíkja út morfínlyf og önnur ávanabindandi efni. Fíklar beita öllum brögðum til að komast yfir þau. 9.6.2005 00:01
Veikindi oftast ástæða vanskila Veikindi eru oftast nefnd sem ástæða fyrir greiðsluerfiðleikum þeirra sem leita til Ráðgjafarstofu um fjármál heimilanna árið 2004, að því er fram kemur í ársskýrslu stofunnar. 9.6.2005 00:01
Árs fangelsi fyrir kókaínsmygl Maður á þrítugsaldri var í dag dæmdur í Héraðsdómi í árs fangelsi fyrir að hafa reynt að smygla 226 grömmum af kókaíni til landsins innvortis þann 19. desember síðastliðinn. Kókaínið var í 59 pakkningum og var fjarlægt úr líkama mannsins með aðgerð á sjúkrahúsi. Þetta er þriðji dómurinn sem maðurinn fær og því þótti hann hæfilegur tólf mánuðir. 9.6.2005 00:01
Dæmdur fyrir tilraun til manndráps Rúmlega fertugur maður var í dag dæmdur í Héraðsdómi Reykjavíkur í eins og hálfs árs óskilorðsbundið fangelsi fyrir tilraun til manndráps. Hann stakk vin fyrrverandi sambýliskonu sinnar með hnífi fyrir framan hús hennar við Bjargartanga í Mosfellsbæ í byrjun febrúar. 9.6.2005 00:01
Kreppa hjá frönskum sósíalistum Franski Sósíalistaflokkurinn sem áður réði lögum og lofum í frönskum stjórnmálum er nú skyndilega í mikilli kreppu. 9.6.2005 00:01
Allsherjarverkfall í Simbabve Tveggja daga allsherjarverkfall hófst í Simbabve í gær. Til verkfallsins var boðað til að mótmæla aðgerðum ríkisstjórnar Robert Mugabe, sem hefur nú látið handtaka meira en þrjátíu þúsund fátæka íbúa landsins fyrir litlar sem engar sakir. 9.6.2005 00:01
Landtökumenn burt af Gaza Hæstiréttur Ísraels úrskurðaði í gær að fyrirhugaður brottflutningur Ísraelsstjórnar á landtökumönnum frá Gaza-svæðinu væri lögmætur. 9.6.2005 00:01
Öryggisverðir í Írak rannsakaðir Sextán bandarískir einkaöryggisverðir sæta nú rannsókn fyrir að hafa skotið á bandaríska landgönguliða og óbreytta íraska borgara í Fallujah í síðasta mánuði. 9.6.2005 00:01
Nýtt síldarævintýri í uppsiglingu? Síld gengur nú svo gott sem inn á firði fyrir austan en hún hefur ekki sést jafn nærri Íslandsströndum í áratugi. Þetta er talið styrkja samningsstöðu Íslendinga í viðræðum við Norðmenn um veiðar úr norsk-íslenska stofninum. 9.6.2005 00:01
Vafasömum lögum aflétt í Sýrlandi Baath-flokkurinn í Sýrlandi, sem hefur öllu ráðið þar áratugum saman, hefur ákveðið að aflétta neyðarlögum sem hafa verið í gildi í fjörutíu og tvö ár. Þau leyfa yfirvöldum að handtaka borgara og rétta yfir þeim án rökstuðnings eða sjáanlegrar ástæðu. Lögin munu nú aðeins ná yfir brot á lögum sem varða þjóðaröryggi. 9.6.2005 00:01
Fá að nýju fjárhagsaðstoð Serbía og Svartfjallaland fá nú að nýju fjárhagsaðstoð frá Bandaríkjunum. Ástæðan er sú að tólf eftirlýstir stríðsglæpamenn frá Serbíu hafa verið framseldir til alþjóðadómstólsins í Haag á þessu ári. Nú er vonast til þess að Ratko Mladic, sem leiddi serbneska herinn í borgarastríðinu á árunum 1992-1995, verði loksins handtekinn og framseldur. 9.6.2005 00:01
Herafli NATO ófullnægjandi Atlantshafsbandalagið viðurkenndi í dag að alvarlegur fjárskortur kæmi í veg fyrir að hersveitir á vegum bandalagsins gætu brugðist skjótt við ef neyðarástand kæmi upp. Eingöngu þrjár af Evrópusambandsþjóðunum tuttugu og fimm hafa mætt kröfum um að verja tveimur prósentum þjóðartekna sinna til varnarmála. Þetta eru Frakkland, Bretland og Grikkland. 9.6.2005 00:01
Tveir metanflutningabílar á götuna Fyrstu „fullvaxtar“, metanknúnu farartækin á landinu voru tekin í notkun í dag þegar tveir flutningabílar voru afhentir eigendum sínum. Þá eru metanbílar á landinu orðnir fjörutíu og átta og mun þeim fjölga enn frekar í lok sumars. 9.6.2005 00:01
Festust í Hallgrímskirkjuturni Nokkrir ferðamenn festust í lyftunni efst í Hallgrímskirkjuturni á miðvikudag. Of margir ætluðu niður úr turninum í einu og voru tíu manns í lyftunni, sem tekur aðeins átta. 9.6.2005 00:01
Metanvörubílar teknir í notkun Tveir nýir vörubílar sem ganga fyrir metangasi voru teknir í notkun í gær. Annar þeirra, af gerðinni Mercedes Benz Econic er í eigu GT verktaka og er fluttur inn af Ræsi hf. Hann mun flytja úrgang fyrir Sorpu frá móttökustöð í Gufunesi til urðunar í Álftanesi. 9.6.2005 00:01
Tíu þúsund vegabréf í júní Ef fram heldur sem horfir verða tíu þúsund vegabréf gefin út í þessum mánuði. Mikill erill hefur verið hjá útlendingastofnun. Hátt gengi krónunnar, einkum gagnvart dollar, og kröfur um vegabréf með segulrönd meginástæðurnar. 9.6.2005 00:01
Andstaða við brottflutning vex Andstaða við brottflutning gyðinga frá Gasasvæðinu fer vaxandi meðal almennings í Ísrael og palestínsk stjórnvöld gagnrýna hvernig að honum er staðið. Það eina sem Ariel Sharon virðist geta huggað sig við er að Hæstiréttur í Ísrael lagði blessun sína yfir fólksflutningana í dag. 9.6.2005 00:01
Hæfi Halldórs rannsakað Ríkisendurskoðun ætlar að kanna hvort forsætisráðherra hafa verið vanhæfur til að fjalla um sölu ríkisbankanna á sínum tíma vegna tengsla við Skinney Þinganes og fyrirtæki S-hópsins sem keypti Búnaðarbankann. Forsætisráðherrann neitaði viðtali en segist fagna rannsókninni. 9.6.2005 00:01
Landsbankinn traustari en Framsókn Björgólfur Guðmundsson svaraði Valgerði Sverrisdóttir, iðnaðarráðherra, fullum hálsi í útvarpsviðtali á Bylgunni um hádegi í gær. Um morguninn hafði Valgerður sagt það óæskilegt að Björgólfsfeðgar eignuðust Íslandsbanka og sagt að þeir ginu yfir öllu kviku á markaði. 9.6.2005 00:01
Boðar að flugvöllurinn skuli fara Borgarfulltrúar R-listans boða að flugvöllurinn skuli fara en borgarstjóri vinnur með samgönguráðherra að undirbúningi nýrrar flugstöðvar. 9.6.2005 00:01
Laun æðstu ráðamanna hækka Laun æðstu ráðamanna landsins hækka um tvö prósent í júlí samkvæmt úrskurði Kjaradóms í dag. Hækkunin kemur til viðbótar þriggja prósenta launahækkun um áramótin sem var í takt við almenna kjarasamninga. 9.6.2005 00:01
Málinu vísað frá Máli sem Auður Sveinsdóttir Laxness höfðaði gegn Hannesi Hólmsteini Gissurarsyni, prófessor, var í gær vísað frá í Héraðsdómi Reykjavíkur. Auði var að auki gert að greiða Hannesi fimmhundruð þúsund krónur í málskostnað. 9.6.2005 00:01
Fellur á formsatriðum Hjörleifur Guttormsson, fyrrverandi alþingsmaður og ráðherra, vann í gær mál sem íslenska ríkið, Alcoa á Íslandi og Fjarðarál höfðu áfrýjað, eftir að Héraðsdómur dæmdi Hjörleifi í vil fyrr á árinu. 9.6.2005 00:01
Sex mánuði fyrir rassskellinguna Sævar Óli Helgason var í gær dæmdur í sex mánaða fangelsi fyrir að rjúfa skilorð með því að rassskella leikskólakennara sem lagði fyrir innkeyrslu hans í fyrrahaust. 9.6.2005 00:01
Tólf mánaða fangelsi fyrir smygl Tuttugu og níu ára gamall maður var í Héraðsdómi Reykjavíkur dæmdur í eins ár fangelsi fyrir smygl á rúmlega 200 grömum af kókaíni frá Þýskalandi til Íslands. 9.6.2005 00:01
Ástþóri dæmdar 400 þúsund krónur Sjóvá-Almennum var í gær gert að greiða Ástþóri Magnússyni 400 þúsund krónur í bætur, fyrir skemmdir á bíl hans sem tekin var ófrjálsri hendi í mars síðast liðnum. 9.6.2005 00:01
Verða að gera nýtt umhverfismat Alcoa verður að kosta nýtt umhverfismat á álverksmiðju sinni í Fjarðabyggð eftir að Hæstiréttur ógilti úrskuð umhverfisráðherra í dag. Náttúruverndarsinnar fagna en Alcoa-menn segja þetta engin áhrif hafa á framkvæmdir. Umhverfisráðherra tekur í sama streng. 9.6.2005 00:01
Ítalskur gísl látinn laus Clementina Cantoni, ítalski hjálparstarfsmaðurinn sem var rænt í afgönsku höfuðborginni Kabúl fyrir þremur vikum, var í gær látin laus, heil á húfi. 9.6.2005 00:01
Líkur sagðar á framsali Mladic Ratko Mladic, fyrrverandi hershöfðingi Bosníu-Serba, kann að verða framseldur til stríðsglæpadómstólsins í Haag bráðlega, að því er aðstoðarutanríkisráðherra Bandaríkjanna lét hafa eftir sér í gær. Hann boðaði ennfremur að Bandaríkjastjórn hygðist aflétta frystingu tíu milljóna dala greiðslu til uppbyggingar í Serbíu og Svartfjallalandi. 9.6.2005 00:01
Dáin í yfir tvö ár Jarðneskar leifar fjögurra manna af þremur kynslóðum sömu fjölskyldu hafa fundist í íbúð í Moskvu, þar sem líkin lágu í að minnsta kosti í tvö ár uns lögreglu var gert viðvart vegna vangreiddra reikninga. 9.6.2005 00:01
Ræddu hvarf 3000 manna í Kosovo Embættismenn Kosovo Albana og Serba funduðu í Pristina í Kosovo í dag þar sem ætlunin var að ræða hvarf þriggja þúsunda manna í Kosovo á stríðstímum. Þetta er þriðji fundurinn þar sem Sameinuðu þjóðirnar reyna að fá þessar fyrrum stríðandi fylkingar til að ná lendingu um framtíð Kososvo. 9.6.2005 00:01
Þröngt mega flugfarþegar sitja Icelandair og Iceland Express eru í hópi þeirra flugfélaga heims sem þéttast raða fólki í vélarnar sínar samkvæmt úttekt bresks fyrirtækis. Sterling, sem einnig er í eigu Íslendinga, er það flugfélag sem býður farþegum upp á minnsta sætarýmið. 9.6.2005 00:01
Höfuðstöðvar Eimskips að hóteli Þar sem áður var leikið með fjöregg þjóðarinnar, þar sem auðmenn landsins réðu ríkjum, býðst nú þreyttum ferðalöngum að hvíla lúin bein. Höfuðstöðvar Eimskips eru orðnar að hóteli. 9.6.2005 00:01
Framtíð Landakotsskóla í óvissu Ástandið í Landakotsskóla er ekki að skýrast þrátt fyrir fund stjórnar og foreldra í gær. Formaður stjórnar Landakotsskóla sagði á fundinum að spurningin væri hvort skólastarf myndi halda áfram eða bundinn verði endir á það 9.6.2005 00:01
30 milljóna byggingastyrkur Landakotsskóli fékk vilyrði fyrir sextíu milljón króna fjárstyrk frá Reykjavíkurborg til að byggja nýtt íþróttahús. Þrjátíu milljónir hafa þegar fengist til verksins, en af byggingu hefur ekki orðið. 9.6.2005 00:01
Vilja fleiri tillögur Hópur íbúa á Álftanesi hafa safna undirskriftum gegn deiliskipulagi skipulagsyfirvalda í bænum. Á fimmtudag afhentu þeir bæjaryfirvöldum undirskriftirnar. 9.6.2005 00:01
Ólöglegar aðferðir Hópur kennara við Landakotsskóla hefur leitað til lögfræðings vegna bréfs sem stjórn Landakotsskóla sendi þeim á miðvikudag. Í bréfinu var sagt að þeir kennarar sem vilji starfa áfram við skólann þurfi að lýsa yfir stuðningi við nýkjörna stjórn Landakotsskóla til að halda starfi sínu. 9.6.2005 00:01