Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Mannbjörg á Þistilfirði Mannbjörg varð þegar nítján tonna bátur frá Raufarhöfn, Hildur ÞH, sökk á Þistilfirði um hádegi í dag. Tveir menn voru um borð í bátnum en þeim var bjargað af áhöfn Gunnbjargar, björgunarskipi björgunarsveitarinnar Pólstjörnunnar á Raufarhöfn. 20.5.2005 00:01
Segjast hafa drepið gíslinn Mannræningjarnir sem rændu ítölskum hjálparstarfsmanni í Afganistan vikunni segjast hafa drepið hann. Talsmaður ítölsku ríkisstjórnarinnar segir það hins vegar ekki rétt. 20.5.2005 00:01
Landbúnaðarráðherra til Noregs Guðni Ágústsson landbúnaðarráðherra verður í opinberri heimsókn í boði norska landbúnaðarráðherrans, Lars Sponheims, dagana 22.-24. maí í Hörðalandi í Noregi. Í ferðinni verður lögð áhersla á að kynna nýsköpun í landbúnaði en norska ríkisstjórnin hefur nú um nokkurt skeið verið með sérstakt átaksverkefni til að efla atvinnu og byggð í sveitahéruðum. 20.5.2005 00:01
Gáfu báta til hamfarasvæðanna Rótarýklúbburinn Reykjavík-Austurbær hefur gefið fjóra báta ásamt veiðarfærum til fiskimannafjölskyldna í Andra Pradesh héraði á Indlandi. Á þeim slóðum misstu þúsundir aleigu sína í flóðbylgjunni sem reið yfir Indlandshaf annan dag jóla. 20.5.2005 00:01
Ákærður fyrir árás á lögreglumenn Ríkissaksóknari hefur gefið út ákæru á hendur tæplega fertugum manni fyrir eignaspjöll, hótanir, brot gegn valdstjórninni og sérstaklega hættulega líkamsárás á heimili sínu 6. júní í fyrra. Þegar lögregla hafði afskipti af hinum ákærða í kjölfar atvika þann dag lagði hann einu sinni með hnífi til eins lögreglumanns og tvívegis til annars lögreglumanns. 20.5.2005 00:01
Rannsókn stendur enn yfir Rannsókn stendur enn yfir á máli þriggja ungra kínverskra stúlkna sem voru stöðvaðar við komu til landsins ásamt kínverskum manni og fylgdarmanni frá Singapúr. Að sögn Jóhanns R. Benediktssonar, sýslumannsins á Keflavíkurflugvelli, eru öll skref í málinu tekin í samráði við barnaverndaryfirvöld en í ljós kom við yfirheyrslur að stúlkurnar væru undir lögaldri. 20.5.2005 00:01
Eldur í húsi við Rauðarárstíg Allt tiltækt lið slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins hefur verið kallað út vegna elds í húsi á horni Rauðarárstígs og Njálsgötu. Ekki er vitað hvort fólk sé í húsinu. Að sögn varðstjóra hjá slökkviliðinu logar eldur út um þakglugga hússins. 20.5.2005 00:01
Fíkniefnalöggjöfin hert í Hollandi Hollensk yfirvöld hafa löngum verið þekkt fyrir umburðarlyndi sitt gagnvart neyslu kannabisefna en breyting virðist ætla að verða þar á. Hingað til hafa lög landsins leyft fólki að neyta og hafa á sér allt upp í fimm grömm af kannabisefnum og veitingastaðir hafa mátt eiga hálft kíló af efninu til sölu. 20.5.2005 00:01
Stemma stigu við pýramídastarfsemi Norska ríkisstjórnin hefur lagt fram frumvarp gegn allri pýramídastarfsemi sem fær meira en fimmtíu prósent af tekjum sínum með því lokka hópa fólks til starfseminnar, en ekki af vörum og eða þjónustu. Samkvæmt nýju lögunum getur þátttaka í slíku varðað sektum og allt að þriggja ára fangelsi. 20.5.2005 00:01
Enginn sagður í húsinu Allt tiltækt lið slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu var kallað út fyrir stundu eftir að tilkynnt var um eld í þakíbúð skammt frá gatnamótum Rauðarárstígs og Njálsgötu. Að sögn slökkviliðsins logar töluverður eldur út um glugga íbúðarinnar. Enginn er sagður vera í húsinu. 20.5.2005 00:01
Lítið lyktarskyn vísar á elliglöp Rannsóknir sænskra lækna við Karólínska sjúkrahúsið benda til þess að hægt verði að uppgötva ýmsa sjúkdóma tengda elliglöpum með því að kanna lyktarskyn fólks. Með elliglöpum er til dæmis átt við sjúkdóma á borð við Alzheimers. 20.5.2005 00:01
93 milljónir úr Pokasjóði Níutíu og þremur milljónum króna var úthlutað til einstaklinga og félaga úr Pokasjóði við athöfn á Reykjavíkurflugvelli í dag. Peningunum verður varið til margvíslegra verkefna á sviði umhverfismála, mannúðar- og heilbrigðismála, menningar og lista og íþrótta og útivistar. 20.5.2005 00:01
Hraðskreiðasti rússíbani heims Það er ekki á hverjum degi sem menn komast á meira en tvö hundruð kílómetra hraða undir berum himni. Jafnvel allra hörðustu adrenalínfíklar ættu ekki að verða fyrir vonbrigðum með nýja rússíbanann sem opnaður var í New Jersey í gær. Hann er sá stærsti og hraðskreiðasti í heiminum, meira en140 metra hár og fer mest á u.þ.b. 206 kílómetra hraða. 20.5.2005 00:01
Sótt að tígrisdýrunum Efnahagsundrið í Kína hefur gert það að verkum að tígrisdýrum á Indlandi hefur fækkað umtalsvert á síðustu árum, en tígrisfeldur þykir til marks um ríkidæmi og völd. Klær og tennur dýranna eru eftir sem áður vinsælar í náttúrulyf. 20.5.2005 00:01
Merkum áfanga náð Suðurkóreskum vísindamönnum hefur tekist að rækta stofnfrumur sem passa fullkomlega við erfðaefni nokkurra sjúklinga. Uppgötvunin eykur vonir um að hægt verði að þróa lækningar á grunni stofnfrumuvísinda en henni fylgja þó alvarleg siðferðileg álitamál. 20.5.2005 00:01
Veikt umboð Verkamannaflokksins Umboð breska Verkamannaflokksins til að stýra Bretlandi er eitt hið veikasta á Vesturlöndum, samkvæmt niðurstöðum nýrrar þarlendrar rannsóknar. 20.5.2005 00:01
Tekinn í sturtu og rekinn heim Ríkisstjórnir Þýskalands og Tékklands eru æfar eftir að tveimur þingmönnum frá þessum löndum var vísað frá Kúbu í fyrradag fyrirvaralaust. Andstæðingar Kúbustjórnar stilltu saman strengi sína í gær, í fyrsta sinn í 46 ár. 20.5.2005 00:01
Sögð hafa verið myrt Óvissa ríkir um hvort ítalski hjálparstarfsmaðurinn Clementina Cantoni sé lífs eða liðinn. 20.5.2005 00:01
Grafið undan vopnahléinu Gamalkunnug keðjuverkun ofbeldis virðist hafin fyrir botni Miðjarðarhafs. Í gær skarst í odda á milli ísraelskra hermanna og herskárra Palestínumanna þriðja daginn og beið einn úr röðum þeirra síðarnefndu bana í átökunum. 20.5.2005 00:01
Dró sér fé af kirkjureikningum Fyrrverandi afleysingastarfsmaður íslensku kirkjunnar í Ósló hefur viðurkennt að hafa dregið sér umtalsvert fé af reikningum safnaðarins. Hann segir ástæðuna vera spilafíkn. Tveir starfsmenn safnaðarins hafa sagt af sér vegna málsins. 20.5.2005 00:01
Afsögn verði stjórnarskrá felld Forseti Evrópusambandsins segir að hafni Frakkar stjórnarskrá Evrópusambandsins þýði það endalok hennar. Andstæðingar ríkisstjórnarinnar í Frakklandi krefjast þess að hún segi af sér ef almenningur hafnar stjórnarskránni. 20.5.2005 00:01
Búist við sigri Ingibjargar Búist er við því að Ingibjörg Sólrún Gísladóttir beri sigurorð af sitjandi formanni, Össuri Skarphéðinssyni, í formannskosningu Samfylkingarinnar. Úrslit verða kynnt á hádegi í dag á landsfundi flokksins. Talið er að þrír muni gefa kost á sér í varaformanninn, Ágúst Ólafur Ágústsson, Lúðvík Bergvinsson og Björgvin G. Sigurðsson. </font /></b /> 20.5.2005 00:01
Samfylkingin vanbúin síðast Ingibjörg Sólrún Gísladóttir segir að Samfylkingin hafi farið vanbúin í kosningabaráttuna fyrir síðustu kosningar, stefnuvinnu hafi ekki verið gefinn nægur gaumur. Samfylkinguna hafi því skort trúverðugleika. Hún leggur til stofnun skuggaráðuneyta. </font /></b /> 20.5.2005 00:01
Veittu 93 milljóna króna styrki Rauði kross Íslands fékk hæsta styrkinn þegar Pokasjóður úthlutaði styrkjum til 109 samtaka. Samtals námu styrkirnir 93 milljónum króna og fékk Rauði krossinn fimm milljónir vegna hamfaranna í Asíu í desember. 20.5.2005 00:01
Leggjum niður allar deilur Össur Skarphéðinsson, formaður Samfylkingarinnar, talaði fyrir sáttum fylkinga innan flokksins að loknum formannsslagnum. Tímabilið fram að næstu kosningum verði hið mikilvægasta í sögu flokksins. Flokkurinn ætli sér að verða stærsti flokkurinn í næstu kosningum. </font /></b /> 20.5.2005 00:01
Kosið um flugvöll á landsfundi Lagt er til við landsfund Samfylkingar að Reykjavíkurflugvöllur hverfi úr Vatnsmýrinni í áföngum og verði farinn þaðan ekki síðar en árið 2010. Jafnframt er lagt til að byggður verði nýr flugvöllur í jaðri höfuðborgarsvæðisins, ekki lengra en tuttugu kílómetra frá Alþingishúsinu í loftlínu. 20.5.2005 00:01
Spurning um reynslu og bakgrunn "Ég tel mig hafa þá reynslu, þekkingu og getu sem þarf til að takast á við þetta verkefni. Ég tel að hún muni nýtast mjög vel," segir Lúðvík Bergvinsson þingmaður, sem hefur gefið kost á sér í embætti varaformanns Samfylkingar. 20.5.2005 00:01
Kviknaði tvisvar í á sama stað Útkall barst til slökkviliðsins í Reykjavík klukkan 16:36 vegna bruna á horni Njálsgötu og Rauðarárstígs.Íbúar að Njálsgötu 112 létu vita af eldinum. Skömmu fyrir klukkan tíu í gærkvöldi var svo aftur tilkynnt um eld á sama stað. 20.5.2005 00:01
Kosningar gætu eflt Samfylkinguna Össur Skarphéðinsson, formaður Samfylkingarinnar, sagði í ræðu sinni á landsfundi flokksins í dag að þúsundir hefðu gengið til liðs við Samfylkinguna vegna formannskosninganna. Kosningarnar gætu því markað tímamót og eflt flokkinn til langframa. 20.5.2005 00:01
Norræni skálinn vinsæll Norræni skálinn á EXPO 2005, heimssýningunni í Japan, hefur verið mjög vinsæll síðan hann var formlega opnaður 25.mars síðastliðinn. Gestur númer 500 þúsund kom í skálann nú fyrir skemmstu, en það voru tvær systur, Ayane Shigemori 9 ára og Yuko Shigemori 7 ára, sem voru verðlaunaðar fyrir það. Þær fengu margvíslegan varning sem var til sölu í skálanum. 20.5.2005 00:01
Tveir samningar undirritaðir Sigríður Anna Þórðardóttir, umhverfisráðherra, hefur undirritað tvo samstarfssamninga á sviði umhverfismála við kínversk yfirvöld. Samningarnir eru á sviði jarðskjálftavár og umhverfisverndar og koma í kjölfar tveggja funda sem Sigríður átti í Kína. 20.5.2005 00:01
Gætu unnið náið saman Baldur Þórhallsson stjórnmálafræðingur segir að pólitísk framtíð þess sem verður undir í formannskjöri Samfylkingarinnar ráðist meðal annars af því hversu afgerandi úrslitin verða. Ef það verður mjótt á mununum gæti orðið um nánari samvinnu að ræða. Hann segir litla þátttöku í kosningunum skýrast af því að fleiri séu skráðir í stjórnmálaflokka en kæri sig um. 20.5.2005 00:01
Tveimur mönnum bjargað Mannbjörg varð þegar Hildur ÞH-38 sökk á Þistilfirði um 7 sjómílur austsuðaustur af Raufarhöfn. Tveir skipverjar höfðu komist í björgunarbát og var síðan bjargað um borð í björgunarskip Slysavarnarfélagsins Landsbjargar, Gunnbjörgu frá Raufarhöfn. Vaktstöð Landhelgisgæslunnar barst tilkynning frá flugstjórn um að flugvél hefði tilkynnt um neyðarsendingar kl: 12:43. 20.5.2005 00:01
Óttast árásir á stjórnmálamenn Tifandi tímasprengjur. Þannig lýsir norska lögreglan 40 mönnum sem óttast er að muni gera árásir á stjórnmálamenn í landinu. Yfirmaður öryggisdeildar lögreglunnar segist óttast slíkar árásir meira en hryðjuverk. 20.5.2005 00:01
Lög um stofnfrumurannsóknir vantar Tekist hefur að búa til einstaklingsmiðaðar stofnfrumur sem þýðir að í framtíðinni gætu sjúklingar pantað sérsniða líffærahluta. Hér á landi hefur ekki farið fram stefnumótun um rannsóknir á stofnfrumum og sem stendur væri ólöglegt að fylgja rannsókn sem þessari eftir. 20.5.2005 00:01
Karlar fá margfalt fleiri punkta Karlar fá fleiri refsipunkta og valda fleiri alvarlegum slysum en konur. Þó telja þeir sig mun betri ökumenn.Nýleg rannsókn segir þó engan mun á kynjunum þegar kemur að ökuleikni. 20.5.2005 00:01
Hraðakstur á Suðvesturlandi Lögreglan á Suðvesturlandi hefur orð á því að ökumenn séu farnir að fara fullgeyst nú þegar sumarið er gengið í garð. Lögreglan í Kópavogi stöðvaði 10 ökumenn í gær og í Hafnarfirði stöðvaði lögreglan tvöfalt fleiri í fyrradag 20.5.2005 00:01
Æðra stjórnvald stjórni ekki Yfirvöld eiga ekki að skipta sér af ættleiðingarferli ef barnaverndarnefnd hefur skorið úr um hvort einhver sé hæfur til að ættleiða eða ekki. Þetta segir Þórunn Sveinbjarnardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, um mál Lilju Sæmundsdóttur sem hefur verið hafnað um að fá að ættleiða vegna þess að hún þykir of feit. 20.5.2005 00:01
Aldrei fleiri áskrifendur Áskrifendur Stöðvar tvö komust í um 42 þúsund talsins í nýliðinni viku og hafa aldrei verið fleiri í sögu stöðvarinnar. 20.5.2005 00:01
Afmælis kosningaréttar minnst „Konur viðurkenndar löglegir borgarar þjóðfélagsins.“ Þetta var fyrirsögnin á grein Bríetar Bjarnhéðinsdóttur í <em>Kvennablaðinu</em> um þær gleðifregnir sem bárust frá Kaupmannahöfn sumarið 1915 að konum hefði verið veittur kosningaréttur og kjörgengi til Alþingis. Í ár eru liðin níutíu ár frá þessum tímamótum og því er fagnað með ýmsum hætti. 20.5.2005 00:01
Myndir af Saddam valda fjaðrafoki Bresk og bandarísk dagblöð birtu í gær ljósmyndir af Saddam Hussein í nærfötunum einum klæða, en birting myndanna olli strax miklu fjaðrafoki. Myndirnar kváðu vera teknar fyrir um ári og sýna Íraksleiðtogann fyrrverandi vera að setja plögg af sér í þvottavél þar sem honum er haldið í fangelsi. 20.5.2005 00:01
Þrýstingur eykst á Karimov Atlantshafsbandalagið og Evrópusambandið bættust í gær í lið með Sameinuðu þjóðunum um að þrýsta á ráðamenn Úsbekistans að heimila alþjóðlega rannsókn á því sem gerðist er mikill fjöldi mótmælenda féll fyrir byssukúlum öryggissveita í bænum Andijan í austurhluta landsins fyrir viku. Ríkisstjórnin hvikaði hins vegar hvergi frá andstöðu sinni. 20.5.2005 00:01
Fjárdráttarmál hjá söfnuði í Ósló Tveir starfsmenn íslenska safnaðarins í Ósló hafa sagt af sér vegna fjárdráttar sem afleysingastarfsmaður hans varð uppvís að. Maðurinn segir ástæðu fjádráttarins vera spilafíkn, að því er Stöð tvö greindi frá. 20.5.2005 00:01
Vélarvana við Garðskaga Vélarvana snekkja var dregin til hafnar í Sandgerði í gærkvöldi. Báturinn er hollenskur, um 250 og nefnist Daphne, en hann var að sögn tilkynningaskyldunnar á leið til Grænlands og þaðan til Bandaríkjanna. 20.5.2005 00:01
GT verktakar sýknaðir Héraðsdómur Austurlands sýknaði í gær GT verktaka ehf. af ákæru fyrir brot gegn lögum um atvinnuréttindi útlendinga og lög um útlendinga. Var það niðurstaða dómsins að Lettar sem fyrirtækið réð til að sinna störfum við fólksflutninga á Kárahnjúkasvæðinu hefðu ekki þurft atvinnuleyfi hér á landi. 20.5.2005 00:01