Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Snarpur skjálfti á Súmötru Snarpur skjálfti upp á 6,8 á Richter varð á eyjunni Súmötru í Indónesíu í morgun. Mikil hræðsla greip um sig á eyjunni Nias, sem er skammt frá, og þyrptist fólk út á götur af hræðslu við að jarðskjálftinn ylli flóðbylgju, en skjálfti upp á 8,7 á Richter varð við eyjuna í mars síðastliðnum og biðu þá hundruð bana. Engar fréttir hafa borist af mannfalli eða skemmdum að þessu sinni. 19.5.2005 00:01
Gunnar hvattur til að segja af sér Frambjóðendur og stuðningsmenn Frjálslynda flokksins í Suðvesturkjördæmi, kjördæmi Gunnars Arnar Örlygssonar, hvetja hann til að segja af sér þingmennsku. Þetta kemur fram í ályktun frambjóðenda og stuðningsmanna flokksins fyrir síðustu kosningar í kjördæminu. Þar er harmað að Gunnar hafi snúið baki við félögum sínum og gengið í Sjálfstæðisflokkinn en með þeirri gjörð hafi hann fyrirgert því trausti sem til hans hafi verið borið. 19.5.2005 00:01
Styðja baráttu fyrir stjórnarskrá Þrjátíu og fimm háttsettir stjórnmálamenn víða að úr Evrópu eru komnir til Parísar til þess að styðja franska sósíalista í baráttunni fyrir samþykki stjórnarskrá Evrópusambandsins. Nú eru aðeins tíu dagar þar til kosið verður um stjórnarskrána í Frakklandi og sem stendur virðast ívið fleiri ætla að hafna henni en samþykkja. 19.5.2005 00:01
Hugsanlega ákærður fyrir manndráp Lögreglumaður sem skaut Víetnama til bana í Larvik í Noregi í gær gæti átt yfir höfði sér ákæru fyrir manndráp af gáleysi. Víetnaminn, sem var liðlega þrítugur, var vopnaður hnífi og kjötöxi og var samkvæmt vitnum ógnandi og neitaði að láta vopnin af hendi. Þegar hann síðan gekk í átt að lögreglumönnunum var hann skotinn og sagði lögreglumaðurinn sem skaut hann að það hefði verið gert í nauðvörn. 19.5.2005 00:01
Hálftóm tíu þúsund manna höll? Keppnishaldarar segja að uppselt sé á undanúrslitakvöld Eurovision, en það sögðu þeir einnig fyrir generalprufuna í gærkvöldi, en þá var höllin tóm. Það var afar slæmt fyrir Svíana sem sjá um útsendinguna, því upptaka af rennslinu í gærkvöld verður látin rúlla með undanúrslitum í kvöld og gripið til hennar í öllum evrópulöndunum ef bein útsending rofnar. 19.5.2005 00:01
Vilja lausnargjald fyrir Cantoni Ræningjar ítalska hjálparstarfsmannsins Clementinu Cantoni sem rænt var í Kabúl í Afganistan á dögunum, hóta nú að myrða hana fái þeir ekki uppsett lausnargjald greitt nú þegar. Þeir hafa fjórum sinnum gefið frest sem ekki hefur verið virtur og vona þeir sem vinna að lausn hennar að það gildi einnig um frestinn sem rann út klukkan hálfsjö í morgun. Ekki hefur verið gefið upp hversu mikils fjár þeir krefjast. 19.5.2005 00:01
Viðvörunarkerfi á Súmötru 2007 Yfirvöld í Indónesíu vonast til að viðvörunarkerfi sem myndi vara við yfirvofandi flóðbylgjum á Súmötru innan fimm mínútna frá jarðskjálfta á hafsbotni verði komið í gagnið í lok næsta árs og kerfi fyrir allt landið ætti að vera orðið virkt eftir fimm ár. Allt að 160 þúsund manns létust í Aceh-héraði á norðanverðri Súmötru í flóðbylgjunni á annan í jólum. 19.5.2005 00:01
Hjálparstarfsmenn myrtir við Kabúl Sex afganskir hjálparstarfsmenn létust í árás uppreisnarmanna nærri höfuðborginni Kabúl. Uppreisnarmennirnir hófu skothríð á bifreið hjálparstarfsmannana, sem var merkt Sameinuðu þjóðunum, en það hefur ekki fengist staðfest að mennirnir hafi starfað á þeirra vegum. 19.5.2005 00:01
Flugskeytum skotið á landnemabyggð Palestínskir uppreisnarmenn skutu í morgun þremur flugskeytum að íbúabyggð Ísraelsmanna við Gaza-ströndina. Ekki er vitað til þess að neinn hafi slasast í árásunum. Í gær var einn Palestínumaður drepinn við Gaza og í kjölfarið skutu palestínskir uppreisnarmenn nokkrum sprengjum að byggðum gyðinga. 19.5.2005 00:01
Sprenging í kolanámu í Kína Um fimmtíu verkamenn eru innilokaðir eftir að gassprenging varð í kolanámu um 200 kílómetra frá Peking, höfuðborg Kína, í morgun. Ekki er vitað um orsakir slyssins eða hvernig mennirnir eru á sig komnir en unnið er að björgunaraðgerðum. 19.5.2005 00:01
Embættismaður skotinn til bana Háttsettur embættismaður í olíumálráðuneyti Íraks var skotinn til bana í Bagdad í morgun. Atburðurinn átti sér stað þegar maðurinn var að ganga út af heimili sínu og á leið í vinnuna. Engin samtök hafa lýst verknaðinum á hendur sér en unnið er að rannsókn málsins. 19.5.2005 00:01
Regnskógar við Amason hverfa hratt Regnskógarnir við Amasonfljótið minnka nú hraðar en nokkru sinni fyrr. Frá ágúst 2003 til sama mánaðar árið 2004 voru alls 26 þúsund ferkílómetrar af skóglendi höggnir niður. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu frá ríkisstjórn Brasilíu. Alls er nú búið að höggva fimmtung af öllu skóglendi við fljótið. 19.5.2005 00:01
Vill aðgerðir gegn herskáum mönnum Shaul Mofaz, varnarmálaráðherra Ísraels, hefur fyrirskipað hernum að gera allt sem þarf til þess að taka úr umferð Palestínumenn sem hafa skotið eldflaugum á landnemabyggðir gyðinga á Gaza-svæðinu. Átök á svæðinu undanfarna daga hafa stefnt þriggja mánaða gömlu vopnahléi Ísraels og Palestínumanna í hættu. 19.5.2005 00:01
Hættir að niðurgreiða umskurð Norska ríkið hefur hætt þáttöku í kostnaði við umskurð á múslímadrengjum. Umboðsmaður sjúklinga þar í landi óttast að það kunni að leiða til óvandaðra vinnubragða. Fram til þessa hafa múslímar aðeins þurft að greiða sem svarar 750 krónum fyrir að láta umskera syni sína. Nú þegar ríkið hefur hætt þátttöku í kostnaðinum þurfa þeir að greiða 100 þúsund krónur. 19.5.2005 00:01
Smáey frá veiðum í viku Smáey VE sem strandaði í nótt skammt frá Heimaey verður frá veiðum í viku vegna skemmda. Betur fór þó en á horfðist. 19.5.2005 00:01
Fáar konur í stjórnum innan ASÍ Konur skipa aðeins níu af 66 stjórnarsætum í þeim landssamböndum sem aðild eiga að Alþýðusambandi Íslands. Þetta kemur fram í niðurstöðum rannsóknar nema í stjórnmála- og viðskiptafræði við Háskóla Íslands. 19.5.2005 00:01
Fuglaflensuveira sé að breytast Tíðni fuglaflensutilfella í Víetnam á þessu ári bendir til að veiran sé að breytast þannig hún geti smitast á milli manna. Við það eykst hætta á alheimsfaraldri sem getur kostað milljónir manna lífið. 19.5.2005 00:01
Selma fellur í veðbönkum Samkvæmt enskum veðbönkum fellur íslenska lagið á listanum yfir líklegustu sigurvegara í úrslitakeppninni á laugardag. Það fer úr fjórða sæti niður í það sjötta. Ísland er þó enn í þriðja sæti á lista yfir liðin í forkeppninni í kvöld á eftir Noregi og Ungverjalandi. 19.5.2005 00:01
Sýknaður af ákæru um háskaakstur Breskur lögreglumaður hefur verið sýknaður af ákæru um að aka á 256 kílómetra hraða á þjóðvegi M-54. Lögreglumaðurinn viðurkenndi greiðlega að hann hefði ekið svo hratt enda höfðu starfsbræður hans radarmælt hann á þeirri ferð. Hann viðurkenndi einnig að hafa ekið á 192 kílómetra hraða á vegarkafla þar sem hámarkshraðinn var 100 kílómetrar. 19.5.2005 00:01
Atkvæðagreiðslu lýkur í dag Frestur til að skila inn atkvæðum í formannskjöri Samfylkingarinnar rennur út klukkan sex í kvöld. Þeir seðlar sem berast eftir þann tíma verða ekki taldir með. 19.5.2005 00:01
Segja söng Selmu ábótavant Það eru margir vefir sem fjalla einungis um Eurovision og er haldið úti, oft á tíðum af sjúklegum aðdáendum þessarar keppni. Einn þeirra heitir doteurovision.com. Í umfjöllun þeirra um Selmu á æfingum í gær kemur fram að þar fari greinilega atvinnumaður í greininni, en það vanti aðeins uppá í söngnum. 19.5.2005 00:01
Samið um víðtækt samstarf háskóla Runólfur Ágústsson, rektor háskólans að Bifröst, og Fang Ming Lun, starfandi rektor háskólans í Shanghai, undirrituðu nú fyrir hádegi samning um víðtækt samstarf háskólanna tveggja. Sjö nemendur að Bifröst eru við nám við Háskólann í Shanghai. 19.5.2005 00:01
Karlkennarar launahærri innan KHÍ Karlkennarar við Kennaraháskóla Íslands eru að jafnaði með fjórum prósentum hærri laun en kvenkennarar í sambærilegum stöðum, á samsvarandi aldri, með sambærilegt rannsóknarálag og menntun. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu um samanburð á launum starfsfólks við Kennaraháskóla Íslands sem unnin var af Félagsvísindastofnun. 19.5.2005 00:01
Halonen sækist eftir endurkjöri Tarja Halonen, forseti Finnlands, lýsti því yfir í dag að hún ætli að bjóða sig fram til endurkjörs í næstu forsetakosningum sem verða í janúar. Halonen, sem er 61 árs, hefur gegnt forsetaembættinu undanfarin fimm og hálft ár en kjörtímabilið er sex ár. Hún hefur verið afar vinsæl í skoðanakönnunum og þótt fylgi hennar hafi dalað aðeins, úr 61 prósenti í 53, þá er það engu að síður miklu meira en þeirra tveggja sem næstir koma, en þeir mælast báðir með um tuttugu prósenta fylgi. 19.5.2005 00:01
Hafnar fullyrðingum um umframmjólk Forsvarsmenn Mjólku, sem ætlar að framleiða osta utan styrkjakerfis landbúnaðarins, segja að fullyrðing Bændasamtakanna um að Mjólka megi ekki kaupa mjólk sem sé framleidd umfram greiðslumark fáist ekki staðist. Í yfirlýsingu sem lögmaður fyrirtækisins, Hróbjartur Jónatansson, sendi frá sér í dag fyrir hönd Mjólku, segir að engin rök séu fyrir því að takmarka framleiðslu og sölu mjólkurafurða enda sé ekki um að ræða takmarkaða auðlind sem þurfi að vernda og stjórna af hinu opinbera. 19.5.2005 00:01
Reynt að myrða súnnítaleiðtoga Árásum á stjórnmála- og embættismenn í Írak linnir ekki, en í dag réðust uppreisnarmenn á heimili stjórnmálaleiðtoga súnníta í Mósúl í norðurhluta landsins og skutu bílstjóra hans og þrjá öryggisverði. Maðurinn, Fawaz al-Jarba, slapp hins vegar lifandi og náði að kalla til bandarískar hersveitir sem hröktu árásarmennina á brott, en alls létust sjö manns í þessum átökum. 19.5.2005 00:01
Segja margnota bleiur ekki betri 400 þúsund tonn eru notuð af einnota bleium á ári hverju. Rannsókn breskra umhverfissamtaka hefur þó leitt í ljós að það er ekki endilega umhverfisvænna að nota margnota bleiur. Orkan sem fer í að þvo þær og þurrka auk þvottaefnisins sem fer út í náttúruna gerir það að verkum að samtökin telja það hafa álíka slæm áhrif á umhverfið og einnota bleiurnar. 19.5.2005 00:01
Neitar aðild að blóðbaði Nur-Pashi Kulayev, 24 ára gamall tsjetsjenskur smiður, neitaði í dag að eiga sök á blóðbaðinu í barnaskólanum í Beslan í Suður-Rússlandi í fyrra. Kulayev er sá eini árásarmannanna 30 sem hertóku barnaskólann sem náðist á lífi, en 330 manns dóu í skólanum, flestir í sprengingum árásarmannanna. Þar af var helmingurinn skólabörn. 19.5.2005 00:01
Harðari aðgerðir gegn veiðiþjófum Indversk stjórnvöld verða að grípa til harðari aðgerða til þess að stemma stigu við tígrisdýradrápum í landinu. Þetta segir nefnd sem skipuð var til þess að kanna ástand tígrisdýrastofnsins í landinu. Fréttir bárust af því í mars að veiðiþjófar hefðu hugsanlega drepið öll tígrisdýrin, eða 16-18 dýr, á verndarsvæði í vesturhluta landsins og var í kjölfarið skipuð nefnd til að fara yfir málið. 19.5.2005 00:01
Þrjú af fjórum undir lögaldri Stúlkurnar sem stöðvaðar voru í Leifsstöð í gær voru allar undir lögaldri. Karlmaður sem stýrði för þeirra og ungs drengs var í dag úrskurðaður í viku gæsluvarðhald. Hann er frá Singapúr en ungmennin frá Kína. Talstöðin greindi frá þessu. 19.5.2005 00:01
Lægst skattbyrði á Norðurlöndum Skattbyrði á Íslandi er lægri en annars staðar á Norðurlöndum en hærri en í sumum öðrum ríkjum Vestur-Evrópu. Þetta kemur fram í nýútkominni skýrslu OECD um skattbyrði einstaklinga á árinu 2004, sem vefrit fjármálaráðuneytisins fjallar um í dag. Skattar á meðaltekjur einstaklinga á Íslandi, að frádregnum tekjutilfærslum, mældust 25,7 prósent af heildartekjum. 19.5.2005 00:01
Fékk ekki bætur vegna ökklabrots Ríkið var í dag sýknað af skaðabótakröfu konu sem datt og ökklabrotnaði á göngustíg við Fjölbrautaskólann í Breiðholti í janúar árið 2000. Krafðist konan tæplega 2,4 milljóna króna fyrir sjúkrakostnað og þjáninga-, miska-, og örorkubætur, en læknir mat varanlegan miska konunnar 15% og varanlega fjárhagslega örorku hennar 7%. 19.5.2005 00:01
Nefnd áminnir fjárfesta í Símanum Fjárfestar sem bjóða í Símann voru í gær áminntir bréflega um að virða trúnaðarsamning. Brot á honum geti "leitt til þess að hugsanlegir fjárfestar verði útilokaðir frá þátttöku í söluferlinu". </font /></b /> 19.5.2005 00:01
Lögregla skaut mann á götu úti Lögreglumaður í bænum Larvik í Noregi skaut víetnamskan mann til bana í gær. Atburðurinn gerðist á aðalgötu bæjarins. 19.5.2005 00:01
27% þreyttu öll samræmd próf Aðeins 27 prósent tíundu bekkinga þreyttu öll sex samræmdu prófin en rúm 40 prósent þreyttu fimm próf. Aðeins tæp tvö prósent tóku ekkert samræmt próf. Yfir 90 prósent nemenda þreyttu próf í íslensku, ensku og stærðfræði en mun færri ákváðu að takast á við náttúrufræði, samfélagsgreinar og dönsku. Um þrjú hundruð nemar í níunda bekk tóku að minnsta kosti eitt samræmt próf. 19.5.2005 00:01
Mótmælir tilefnislausum uppsögnum Trúnaðarráð verkalýðsfélaga starfsmanna í álveri Alcan í Straumsvík sendi nú áðan frá sér ályktun þar sem það mótmælir harðlega tilefnislausum uppsögnum fimm starfsmanna. Sérstaklega er gagnrýnt að starfsmönnunum var vísað fyrirvaralaust af vinnustað. Þar segir að engar ástæður hafi verið gefnar fyrir uppsögnunum þótt eftir þeim hafi verið leitað. 19.5.2005 00:01
Fékk alvarlegt hjartaáfall Augusto Pinochet, fyrrverandi einræðisherra í Chile, fékk alvarlegt hjartaáfall í dag og var fluttur á sjúkrahús. Þetta hefur Reuters-fréttastofun eftir heimildarmanni sem er nátengdur fjölskyldu Pinochets. Einræðisherrann fyrrverandi hefur sætt ákærum fyrir grimmdarverk í stjórnartíð sinni, 1973-1990, en hann hefur verið heilsuveill undanfarin ár og fengið nokkur minni háttar hjartaáföll. 19.5.2005 00:01
Ræddust við aftur eftir mánaða hlé Bandarísk og norðurkóresk yfirvöld ræddust við á föstudaginn og þar hvöttu Bandaríkjamenn Norður-Kóreumenn til að hefja aftur viðræður við fimm ríki, þar á meðal Bandaríkin, um kjarnorkuvopnaáætlun sína. Frá þessu greindi einn talsmanna Hvíta hússins í dag. Viðræðurnar voru óformlegar og fóru fram í New York en slíkar viðræður hafa ekki farið fram síðan í desember. 19.5.2005 00:01
Barnungar stúlkur seldar mansali Grunur leikur á skipulögðu mansali í máli kínverskra ungmenna sem stöðvuð voru á Keflavíkurflugvelli í vikunni. Ungmennin komu hingað með vegabréf frá Singapúr á leið til Bandaríkjanna. </font /></b /> 19.5.2005 00:01
Launamunur í Kennaraháskólanum Samkvæmt nýrri skýrslu Félagsvísindastofnunnar Háskóla Íslands um samanburð á launum karla og kvenna sem kenna við Kennaraháskóla Íslands þá hallar þar óvenju lítið á konur. Meðallaun karla eru rétt um 407 þúsund krónur á mánuði á meðan laun kvenna eru að meðaltali 349 þúsund krónur á mánuði eða 86% af launum karlanna. Þessi munur skýrist af einhverju leiti af því að karlar eru fleiri í prófessors- og dósentastöðum. 19.5.2005 00:01
Lögreglumaður þurfti hjálp Lögreglumaður á Eskifirði stöðvaði í fyrrakvöld mann við reglubundið eftirlit. Þegar maðurinn steig út úr bílnum stafaði frá honum megn áfengislykt og upphófust átök þegar hann streittist á móti handtöku. 19.5.2005 00:01
Hæstiréttur dæmir Maitslandbræður Hæstiréttur mildaði dóm Héraðsdóms Reykjavíkur yfir tvíburabræðrunum Rúnari Ben og Davíð Ben Maitsland. Þeir höfðu áður verið dæmdir í fimm ára og fjögurra og hálfs árs fangelsi fyrir smygl á 27 kílóum af kannabisefnum frá Þýskalandi hingað til lands í ellefu ferðum. 19.5.2005 00:01
Samstarfssamningur í Kína Viðskiptaháskólinn á Bifröst og Háskólinn í Shanghai undirrituðu í gær samstarfssamning að viðstöddum forseta Íslands og borgarstjóra Shanghai. Í máli borgarstjórans kom meðal annars fram að efnahagur Shanghai hefði áttfaldast á síðustu 11 árum. 19.5.2005 00:01
Aðeins eitt álver vegna mengunar Aðeins er svigrúm fyrir eitt stórt álver í viðbót á Íslandi til ársins 2012 samkvæmt íslenska sérákvæðinu í Kyoto-bókuninni. Þetta er talið ýta undir álverskapphlaupið sem nú er hafið. Valdið til að úthluta mengunarkvótanum er í höndum iðnaðarráðherra. 19.5.2005 00:01
Ákæra gefin út vegna banaslyss Ríkissaksóknari hefur gefið út ákæru vegna banaslyss sem varð við Kárahnjúkastíflu í mars á síðasta ári. Ekki fæst gefið upp hverjir eða hve margir hafa verið ákærðir. Maðurinn sem lést í slysinu var 25 ára. Hann var við störf ofan í Hafrahvammagljúfri um hánótt þegar gríðarstór grjóthnullungur féll á hann. 19.5.2005 00:01