Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Starfsmenn rísa gegn stjórnendum Trúnaðarráð verkalýðsfélaga starfsmanna hjá Alcan mótmæla harðlega tilefnislausum uppsögnum fimm starfsmanna sem unnið höfðu lengi og farsællega fyrir fyrirtækið. 19.5.2005 00:01
Stúlkur líklega ekki kærðar Þrjár kínverskar stúlkur sem voru stöðvaðar ásamt ungum kínverskum manni og fylgdarmanni á fimmtugsaldri frá Singapúr eru 15 til 17 ára. Fylgarmaðurinn hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald. 19.5.2005 00:01
Fjölskylduhundur stökk í hver "Þetta var hræðileg lífsreynsla," segir Berglind Ágústsdóttir en hundur hennar stökk ofan í hver og drapst á Flúðum í síðustu viku. Þegar eiginmaður Berglindar náði svo tíkinni úr hvernum hlaut hann annars stigs bruna á fæti. 19.5.2005 00:01
Strandaði á hættulegu skeri Smáey varð fyrir mun meiri skemmdum en talið var í fyrstu. Kafarar könnuðu ástand skipsins í gær og kom þá í ljós að um það bil metra löng rifa er á kilinum fyrir neðan stafn skipsins. 19.5.2005 00:01
Neitað um ættleiðingu vegna offitu Kona, sem dómsmálaráðuneytið neitaði um að ættleiða barn vegna offitu, hefur höfðað mál gegn íslenska ríkinu. Málið, sem var tekið fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag, er það fyrsta sinnar tegundar hér á landi. 19.5.2005 00:01
Rúmlega 11 þúsund kusu formann Frestur til að kjósa formann Samfylkingarinnar og skila atkvæðinu rann út nú klukkan sex. Alls bárust rúmlega 11 þúsund atkvæði en úrslit verða birt á hádegi á laugardaginn. 19.5.2005 00:01
Reyni að svæla fjölmiðla burt Lögfræðingar rússneska auðjöfursins Míkhaíls Khodorkovskís segja að dómararnir séu að reyna að svæla af sér fjölmiðla með því að draga dómsuppkvaðninguna á langinn. 19.5.2005 00:01
Ákærður fyrir Omagh-tilræði Saksóknari á Norður-Írlandi hefur birt Sean Hoey sem talinn er vera félagi í hinum svonefnda Sanna írska lýðveldisher 61 ákæru fyrir margvísleg afbrot, þar á meðal sprengjutilræði í bænum Omagh árið 1998 sem kostaði 29 mannslíf. 19.5.2005 00:01
Frekari andspyrna barin niður Stjórnarherinn í Úsbekistan hertók síðastliðna nótt smáþorpið Korasuv og barði niður alla andspyrnu þar. Ekki er vitað um mannfall. 19.5.2005 00:01
Heimsfaraldur tímaspursmál Alþjóðaheilbrigðisstofnunin segir að aðeins sé tímaspursmál hvenær fuglaflensan breiðist út um allan heim. Veiran er talin geta smitast á milli manna en þó er hún ekki talin bráðsmitandi ennþá. 19.5.2005 00:01
Chirac fær liðsstyrk Leiðtogar Þýskalands og Póllands hvöttu í gær franska kjósendur að leggja blessun sína yfir stjórnarskrársáttmála Evrópusambandsins. 19.5.2005 00:01
Biður nágrannana um hjálp Ibrahim al-Jaafari, forsætisráðherra Íraks, skoraði á ríkisstjórnir nágrannalandanna að herða landamæragæslu svo að hryðjuverkamönnum tækist ekki að komast inn í landið. Í það minnsta þrettán manns féllu í árásum í Írak í gær. 19.5.2005 00:01
Ökuníðingar hvergi óhultir Reykvískir ökuníðingar verða hvergi óhultir í sumar. Lögreglan í Reykjavík ætlar að beita sér sérstaklega gegn hraðakstri í íbúðahverfum og koma hraðamyndavélum fyrir í ómerktum lögreglubílum. 19.5.2005 00:01
Segja þúsund manns hafa farist Mannréttindasamtök telja að úsbeskir stjórnarhermenn hafi drepið allt að eitt þúsund óbreytta borgara í átökum um helgina. Herinn handtók í gær leiðtoga herskárra múslima sem í fyrradag lýsti yfir íslamskri byltingu í bænum Korasuv. 19.5.2005 00:01
Ólga á Gaza-svæðinu Ísraelsk yfirvöld hafa hótað gagnaðgerðum eftir að herskáir Palestínumenn skutu sprengjum að landnemabyggðum á Gaza-svæðinu annan daginn í röð. 19.5.2005 00:01
Hundruða saknað eftir sjóslys Ekkert lát er á sjóslysum í Bangaldess en í gær varð þriðja mannskæða slysið á einni viku. 19.5.2005 00:01
Nötraði eins og kirkjuklukka Jarðskjálftinn mikli á annað dag jóla er sá stærsti sem mælst hefur í rúm fjörutíu ár, allt að 9,3 stig. Jarðvísindamenn segja nýjar mælingar sýna að jarðskorpan hafi hrist eins og hún lagði sig og vikum síðar hafi hún enn nötrað, ekki ósvipað og kirkjuklukka. 19.5.2005 00:01
Helmingsþátttaka í formannskjöri Kosningu í formannskjöri Samfylkingarinnar lauk klukkan sex í gærkvöldi en þá höfðu rúmlega 11.000 atkvæði borist kjörstjórn flokksins. 19.5.2005 00:01
Eurovision draumurinn úti Íslendingar komust ekki áfram í undankeppni söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva. Undanúrslitin fóru fram í Kænugarði í Úkraínu í kvöld og komst Selma Björnsdóttir vel frá flutningi sínum. Allt kom fyrir ekki, evrópskum sjónvarpsáhorfendum þótti önnur lög betri og veittu Selmu og félögum því ekki brautargengi. 19.5.2005 00:01
Viðgerð á ljósleiðara lokið um miðnætti Gert er ráð fyrir að búið verði að tryggja net og símasamband viðskiptavina Og Vodafone í Mosfellsbæ upp úr miðnætti. Um svipað leyti verður búið að koma á DSL sambandi að nýju á Akranesi. Ljósleiðari var grafinn í sundur við tengivirki nærri Iðntæknistofnun um klukkan 20 sem hafði áhrif á net- og símasamband í Mosfellsbæ og DSL samband á Akranesi. Viðgerð hefur staðið yfir í kvöld og miðar vel áfram. 19.5.2005 00:01
Stuðningsfjölskylda tilnefnd strax Lilja Sæmundsdóttir, einhleyp kona sem dómsmálaráðuneytið bannaði að ættleiða barn, kvaðst fyrir dómi í gær hafa tilnefnt stuðningsfjölskyldu við sig og barn sitt í því tilfelli að eitthvað kæmi upp á. Þetta hafi hún gert strax í upphafi umsóknarferlisins, líkt og einhleypu fólki sé skylt að gera. 19.5.2005 00:01
Ragnar átelur dómsmálaráðuneytið "Það viðhorf gagnvart umbjóðanda mínum einkennir málsmeðferð dómsmálaráðuneytisins, að hún sé með einhverjum hætti öðruvísi en annað fólk," sagði Ragnar Aðalsteinsson lögmaður konu sem synjað hefur verið um að ættleiða barn frá Kína. 19.5.2005 00:01
Nýr formaður hundaræktenda Aðalfundur Hundaræktunarfélags Íslands fór fram í gær. Jóna Th. Viðarsdóttir var kjörin formaður félagsins eftir að hafa fengið yfirgnæfandi meirihluta atkvæða, eða 74 prósentum. 19.5.2005 00:01
Skattsvik tengd Lífsstíl Fimm menn, þar af fjórir sem hlotið hafa dóma í svokölluðu Landssímamáli, báru af sér sakir fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. Þeir eru sakaðir um að hafa svikið undan skatti í rekstri fjölda fyrirtækja sem rekin voru undir hatti Lífsstíls ehf. 19.5.2005 00:01
Tilraun til líkamsárásar Hæstiréttur dæmdi í gær mann í 10 mánaða fangelsi, en skilorðsbatt átta mánuði af refsivistinni í þrjú ár. Maðurinn var dæmdur fyrir "tilraun til líkamsárásar með hnífi" á veitingastað í Hafnarstræti í Reykjavík. 19.5.2005 00:01
Þrír mánuðir í fangelsi fyrir árás Dráttur rannsóknar lögreglu á líkamsárás og breytingar til hins betra hjá árásarmanni urðu til þess að 15 mánuðir af 18 mánaða fangelsisdómi voru skilorðsbundnir í dómi Hæstaréttar í gær. Í héraði var maðurinn dæmdur í 15 mánaða fangelsi, þar af 12 skilorðsbundna. 19.5.2005 00:01
Íslensk rannsókn vekur athygli Íslensk rannsókn synir að hófdrykkja dregur úr líkum á skýmyndun á auga en reykingar auka þær og sömuleiðis vinna úti undir beru lofti. Niðurstöður rannsóknarinnar hafa vakið mikla athygli og meðal annars verið kynntar í virtum læknatímaritum austan hafs og vestan. 19.5.2005 00:01
Heimsókn á Kínamúrinn Forsetahjónin heimsóttu Kínamúrinn í morgun og gengu nokkurn spöl eftir honum í fallegu veðri. Múrinn er alls um 6700 kílómetrar að lengd og talið eitt mesta mannvirki heims. Múrinn á sér 2000 ára gamla sögu en mestur hluti hans sem enn stendur var reistur á 15. öld á tímum Ming keisaraveldisins. 18.5.2005 00:01
Heimsóknir í fyrirtæki Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands hefur lagt mikið uppúr stuðningi við íslensk fyrirtæki í Kínaferð sinni, eins og í mörgum fyrri ferðum. Hann fagnaði í dag undirritun 15 milljóna dollara samnings um viðhald á 11 Boeing 747 flugvélum Atlanta og Avion Group. 18.5.2005 00:01
Ræddi mannréttindi við Hu Jintao Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands átti viðræður við Hu Jintao, forseta Kína, í Höll alþýðunnar í dag. Ólafur Ragnar sagði í samtali við fréttamenn eftir fundinn að viðræðurnar hefðu verið mjög gagnlegar. Honum hefði komið á óvart hversu vel forseti Kína hefði verið inni í málum þeirra íslensku fyrirtækja sem bar á góma í viðræðunum. 18.5.2005 00:01
Viðskiptasamningar við Kína Björgólfur Thor Björgólfsson undiritaði samstarfssamning Novator símafyrirtækis við kínverska símtækniframleiðandann Huawei, að viðstöddum forsetum Kína og Íslands, þeim Hu Jintao og Ólafi Ragnari Grímssyni, við hátíðlega athöfn í Höll alþýðunnar í Beijing í dag. 18.5.2005 00:01
Hálfs árs fangelsi fyrir pyntingar Bandarískur herdómstóll dæmdi í gær bandarískan hermann í sex mánaða fangelsi fyrir pyntingar á föngum við Abu Ghraib fangelsið. Hin 27 ára gamla Sabrina Harman tengdi meðal annars rafmangssnúrur við fanga og vöktu myndir af því óhug um alla heimsbyggðina. Saksóknarar kröfðust þriggja ára fangelsis en dómstólnum þótti hálft ár nægileg refsing. 18.5.2005 00:01
Hryðjuverkaleiðsögn á heimasíðum Uppreisnarmenn í Írak halda úti heimasíðum þar sem ungum mönnum er leiðbeint hvernig sé auðveldast að fremja hryðjuverk og valda sem mestu manntjóni. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu bandaríska varnarmála ráðuneytisins sem send hefur verið til yfirmanna bandaríska hersins í Írak. 18.5.2005 00:01
Segir kínverska ráðamenn hræsnara Einar K. Guðfinnsson, formaður þingflokks Sjálfstæðisflokksins, er lítt hrifinn af auknum samskiptum íslenskra ráðamanna við Kínastjórn. Hann segir á heimasíðu sinni að það sé óskaplega hræsnisfullt tal þegar kínverskir ráðamenn lofi forseta Íslands öllu fögru í mannréttindamálum. 18.5.2005 00:01
Deilt um fjögur 19. aldar hús Meirihluti borgarstjórnar samþykkti á fundi sínum í gær að vísa tillögu Ólafs M. Magnússonar, borgarfulltrúa F-lista, um að dregnar verði tilbaka heimildir til að rífa niður fjögur 19. aldar hús við Laugaveg til skipulagsráðs Reykjavíkurborgar. Allir fulltrúar R-listans samþykktu þetta gegn mótatkvæði Ólafs, sem telur að með þessu sé í raun verið að vísa málinu frá eins og gert hafi verið í mars síðastliðnum. 18.5.2005 00:01
150 enn saknað eftir ferjuslys Enn er 150 manns saknað eftir að ferja sökk í Bangladess á þriðjudag en alls voru 200 manns á ferjunni. Miklir vindar hafa verið á svæðinu og þykir björgunarmönnum ólíklegt að einhverjir finnist á lífi. Ferjuslys eru tíð í Bangladess og deyja hundruð manna á hverju ári vegna þeirra en fáar ferjur hafa þann björgunarbúnað sem æskilegur er og virða eigendur ferjanna í fæstum tilfellum veðurspár og reglur. 18.5.2005 00:01
Tveir létust í sjálfsmorðsárás Tveir írakskir lögreglumenn féllu í valinn í sjálfsmorðssprengjuárás nærri borginni Baiji í Írak í morgun. Alls hafa um fimm hundruð manns látist í árásum uppreisnarmanna í Írak það sem af er þessum mánuði. 18.5.2005 00:01
Kúbverskur útlagi handtekinn Yfirvöld í Bandaríkjunum hafa handtekið kúbverska útlagann Luis Posada Carriles sem sakaður er um að hafa skipulagt sprengjuárás á flugvél fyrir þremur áratugum, sem varð tæplega áttatíu manns að bana. Ríkisstjórn Fidels Castros hefur undanfarið gagnrýnt stjórnvöld í Bandaríkjunum fyrir tvískinnung í baráttunni gegn hryðjuverkum og krafist framsals Carriles til Kúbu. 18.5.2005 00:01
Fótbrotnaði í göngu á Esjunni Tvær björgunarsveitir voru kallaðar út í gærkvöldi til að aðstoða sjúkraflutningamenn við að bjarga konu úr hlíðum Esju. Konan hafði verið á göngu í fjallinu og fótbrotnað. Sveitirnar voru kallaðar út klukkan rúmlega tíu og fóru tíu menn á staðinn. Búið var að koma konunni niður og í sjúkrabíl liðlega hálftíma síðar og var hún flutt á slysadeild. 18.5.2005 00:01
Mannskætt bílslys á Nýja-Sjálandi Átta manns létust og einn slasaðist alvarlega þegar sendibifreið með alls níu ferðamenn og vörubíll skullu saman á Nýja-Sjálandi í morgun. Ökumaður vörubílsins slasaðist þó ekki og var hann færður á lögreglustöðina þar sem hann var yfirheyrður. Mikil rigning var þegar slysið varð og því hált og segir lögreglan það hafa orsakað slysið. Þetta er alvarlegasta bílslys á Nýja-Sjálandi síðan árið 1995. 18.5.2005 00:01
Enn skjálftar út af Reykjanesi Nokkur skjálftavirkni er enn suður af Reykjanesi, rúmri viku eftir að hún hófst. Síðasta sólarhring hefur verið þar um tugur skjálfta, sá öflugasti 3,2 á Richter. Sem fyrr urðu þeir við Eldeyjarboða á Reykjaneshrygg. Þegar skjálftahrinan hófst af miklum krafti fyrir viku töldu sérfræðingar á Veðurstofu Íslands þá ekki boða eldgos eða aðrar hamfarir. 18.5.2005 00:01
Fyrsta flug til San Francisco Beint flug frá Keflavík til San Francisco hefst í dag og verða farnar fjórar ferðir í viku fram í október. Langdræg breiðþota verður notuð í þetta flug. Meðal farþega í dag verða forsætisráðherra og borgarstjórinn í Reykjavík en þau taka þátt í sérstakri hátíðardagskrá í San Francisco. 18.5.2005 00:01
Erindrekum hleypt inn í Andijan Stjórnvöld í Úsbekistan leyfðu í dag erlendum erindrekum að heimsækja borgina Andijan þar sem mikið mannfall varð í síðustu viku. Erindrekarnir fengu þó ekki að sjá sjálfan vígvöllinn. Islam Karimov, forseti Úsbekistans, segir að íslamskir öfgamenn beri ábyrgð á drápunum. Sjónarvottar segja hins vegar að stjórnarher landsins hafi skotið á óvopnaða óbreytta borgara sem hafi safnast saman til friðsamlegra mótmæla. 18.5.2005 00:01
Ráðherra gangi erinda Norðlendinga Ýmislegt virðist vera að gerast í álmálum þessa dagana. Alcoa hefur lýst yfir áhuga á að reisa álver á Norðurlandi og verið er að stofna félög bæði með og á móti stóriðju í Eyjafirði. Sjálfstæðismenn á Suðurnesjum eru ósáttir við iðnaðarráðherra en þeir telja ráðherrann eingöngu ganga erinda Norðlendinga. 18.5.2005 00:01
Játning liggur ekki enn fyrir Játning mannsins sem stakk annan mann til bana með hnífi í Hlíðarhjalla í Kópavogi á sunnudag liggur enn ekki fyrir. Að sögn Friðriks Smára Björgvinssonar, aðstoðaryfirlögregluþjóns í Kópavogi, hafa engar yfirheyrslur farið fram í dag, nú sé verið að vinna úr þeim gögnum sem hefur verið aflað. Hann gat ekki sagt fyrir um hvenær yfirheyrslur hæfust en maðurinn situr í gæsluvarðhaldi á Litla-Hrauni. 18.5.2005 00:01