Fleiri fréttir

Tekinn af lífi fyrir fíkniefnabrot

Tamílskur karlmaður verður tekinn af lífi í Singapúr fyrir að hafa eitt kíló af hassi í fórum sínum. Börn hans, fjórtán ára tvíburar, hafa barist ötullega gegn aftökunni en án árangurs. Maðurinn var handtekinn við landamæri Singapúrs og Malasíu í ágúst 2003 og lýsti forseti Singapúrs því yfir í síðasta mánuði að engin miskunn yrði sýnd.

Ölvun helsta ástæða endurkrafna

Ölvunarakstur var ástæða endurkröfu þremur af hverjum fjórum málum tryggingafélaga á hendur tjónvöldum í umferðinni á síðasta ári. Tryggingafélögin geta átt endurkröfurétt ef ásetningur eða stórkostlegt gáleysi olli tjóninu. Á síðasta ári bárust endurkröfunefnd 158 mál til úrskurðar og samþykkti nefndin endurkröfu að öllu leyti eða hluta í 140 málum, en þetta eru nokkru fleiri mál en árið á undan.

Takmörk hjá Símanum og Vodafone

Auglýsingar Og Vodafone og Símans um ótakmarkað niðurhal á internetinu með sérstökum áskriftarleiðum eru orðin tóm og bæði fyrirtæki setja takmörk á það gagnamagn sem hægt er að fá með þeim hætti í mánuði hverjum.

Tekinn með nektarmyndir af piltum

Lögregla í Taílandi greindi frá því í dag að hún hefði handtekið bandarískan kennara á sextugsaldri eftir að fimm hundruð myndir af nöktum unglingspiltum fundust við leit í íbúð hans í höfuðborginni Bangkok. Lögregla segir manninn hafa kennt og búið í Taílandi í sex ár en í áhlaupi sínu á íbúðina fann hún einnig tvo unglingspilta sem sögðust hafa haft munnmök við kennarann.

Bush lofar stjórnvöld í Georgíu

George Bush Bandaríkjaforseti tók dansspor af gleði og hældi stjórnvöldum í Georgíu á hvert reipi í opinberri heimsókn sinni þangað. Bush var þó varkár og tók ekki afstöðu í hatrammri deilu georgískra stjórnvalda við rússnesk um framtíð tveggja rússneskra herstöðva í Georgíu. Bush sagði þó að Georgíumenn ættu sér sterkan bakhjarl í Bandaríkjunum og lét í það skína að Bandaríkjastjórn myndi styðja dyggilega við bakið á þeim.

Safna undirskriftum gegn lögum

Undirskriftasöfnun gegn fjarskiptalögunum er hafin á Netinu á síðunni hagsmuna.net. Þeir sem að henni standa segja að breytingar sem kveða á um að skráning netumferðar og símanotkun verði lögbundin og opin lögreglu skerði persónufresli allra undir því yfirskyni að hafa hendur í hári fárra. Aðstandendur undirskriftasöfnunarinnar segja þetta grófa aðför að lýðræðinu í landinu.

Hreyfing vinni gegn krabbameini

Gildi þess að hreyfa sig reglulega verður víst seint ofmetið. Enn ein rannsóknin hefur nú leitt í ljós að hressilegar og reglulegar líkamsæfingar hægja á og draga úr hættunni á blöðruhálskrabbameini í körlum. Þetta eru niðurstöður úr mjög viðamikilli rannsókn á tæplega 50 þúsund karlmönnum yfir fjórtán ára tímabíl.

Farið eftir vinnureglum

"Það var farið eftir öllum vinnureglum hér í öllu tilliti," sagði Halldóra Ólafsdóttir yfirlæknir á bráðamóttöku geðdeildar Landspítala háskólasjúkrahúss vegna máls mannsins sem tók tvo bíla ófrjálsri hendi eftir að hafa verið útskrifaður af geðdeild og stofnaði eigin lífi og annarra í hættu.

Nær 1600 utan lífeyrissjóðs

Nær 1600 ellilífeyrisþegar fá engar greiðslur úr lífeyrissjóði, samkvæmt upplýsingum frá Tryggingastofnun. Einn hópurinn fór á ellilaun áður en lífeyrissjóðirnir tóku til starfa, annar er verktakar og sá þriðji hefur alltaf unnið svart. </font /></b />

Í vandræðum vegna gíslamála

Uppreisnarmenn í Írak hafa nú bæði gísla frá Japan og Ástralíu í haldi sínu en það eru þau tvö lönd sem hvað staðfastlegast hafa staðið við bakið á Bandaríkjastjórn í Írak. Ríkisstjórnir beggja landa eiga í töluverðum pólitískum vandræðum heima fyrir vegna þessa.

Gætti þess að styggja ekki Rússa

George Bush, Bandaríkjaforseti, sýndi af sér kæti og dansaði fyrir gestgjafa sína í opinberri heimsókn til Georgíu. Hann hældi þarlendum stjórnvöldum á hvert reipi en passaði sig þó á því, að reita ekki Rússa til reiði.

Ríkið auki skatta með olíugjaldi

Ríkið er að auka skattheimtu með nýju olíugjaldi fyrsta júlí, segir Kristján L. Möller alþingismaður. Hann segir virðisaukaskatt og fleira leggjast ofan á eldsneytisverð, gjöld sem ekki renna til vegamála. Kristján segir allan hvata fyrir fólk að fá sér sparneytna og umhverfisvæna dísilbíla horfinn.

Lífstíðarfangelsi komi til greina

Bjarni Benediktsson alþingismaður, sem ekki hefur viljað samþykkja frumvarp um afnám fyrningar kynferðisbrota óbreytt, segir aðra leið mögulega, það er að breyta refsiramma þannig að alvarlegustu brotin varði lífstíðarfangelsi.

Segir prentarablek fáránlega dýrt

Verð á prentarableki þykir hátt og eru jafnvel upp sögur um að framleiðendur forriti prentara til að eyða mun meira bleki en þörf er á. Tölvusérfræðingur við tekur ekki undir þetta en segir prentarablek vera fáránlega dýrt.

Dæmdur fyri húsbrot og árás

Rúmlega fertugur maður var í Héraðsdómi Reykjaness í dag dæmdur í fimm mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir húsbrot og líkamsárás. Maðurinn fór í heimildarleysi inn um opna svalahurð á heimili fyrrverandi sambýliskonu sinnar og sló hana þannig að hún hlaut áverka í andliti. Með broti sínu braut maðurinn skilorð. Í dómnum segir að hann hafi játað hreinskilningslega og hafi látið iðrun í ljós.

Flugvöllur á Þingeyri bættur

Samningur um endurbætur á Þingeyrarflugvelli verður undirritaður á morgun en framkvæmdir hefjast innan fárra daga. Áætlað er að verkinu verði lokið í byrjun nóvember og eiga þá Fokker-flugvélar að geta lent og tekið á loft með sama flugtaksþunga og á Ísafjarðarflugvelli.

Skilorðsdómur fyrir ýmis brot

Nítján ára piltur var dæmdur í Héraðsdómi Reykjaness í eins árs skilorðsbundið fangelsi fyrir fíkniefnabrot, þjófnaði og eignarspjöll. Pilturinn braut skilorð með brotum sínum. Hann braust inn á heimili, inn í bíla og stal úr verslunum auk þess sem hann var tekinn í tvígang með fíkniefni í fórum sínum. Pilturinn segir brot sín hafa tengst fíkniefnavanda en hann hafi farið í meðferð síðan.

Fjarlægðu gáma af varpsvæði kríu

Fyrirtækið Bechtel, sem vinnur að byggingu Fjarðaráls, hefur flutt til gáma sem komið hafði verið fyrir á kríuvarpsvæði við höfnina á Reyðarfirði. Athugull íbúi Reyðarfjarðar vakti athygli á að geymsla gámanna á þessu svæði hindraði kríurnar í að hefja hreiðurgerð. Brugðist var við athugasemdinni og voru gámarnir færðir hið fyrsta og kríunni gefið eftir landið.

Grikkir noti aðeins nafnið fetaost

Lögfræðilegur ráðgjafi við Evrópudómstólinn hefur lagt það til að Grikkir fái einir að kalla fetaost því nafni og hvetur dómstólinn til þess að vísa frá málum Dana og Þjóðverja sem einnig vilja nota heitið á sína framleiðslu.

Rafsanjani í forsetaframboð

Akbar Hashemi Rafsanjani, fyrrverandi forseti Írans, mun bjóða sig fram til embættisins aftur. Þetta hefur <em>Reuters-fréttastofan</em> eftir nánum aðstoðarmönnum hans í dag. Þeir segja að von sé á yfirlýsingu frá forsetanum fyrrverandi innan nokkurra stunda. Rafsanjani, sem er sjötugur, var við völd í landinu á árunum 1989-1997 en hann er hófsamur íhaldsmaður sem þykir hallur undir Vesturlönd.

Útlendingar á batavegi

Portúgalinn og Pólverjinn sem slösuðust þegar vinnupallur við Kárahnjúkastíflu gaf sig í gærdag voru útskrifaðir af gjörgæslu í dag. Ástand mannanna hafði verið stöðugt og voru þeir fluttir á almenna deild, en þeir hlutu talsvert mörg beinbrot. Mennirnir féllu niður úr átta til tíu metra hæð. Tveir menn sem einnig voru á vinnupallinum sluppu með minni háttar meiðsl.

Mikil ásókn í sjúkratryggingakort

Rúmlega sex þúsund ný evrópsk sjúkratryggingakort voru gefin út dagana 1.- 7. maí hjá Tryggingastofnun en útgáfa þeirra hófst fyrsta dag mánaðarins. Er þetta fimmtungur af áætluðum fjölda á árinu öllu. Evrópska sjúkratryggingakortið leysir af hólmi E-111 vottorðið og veitir korthafa, sem lendir í slysi eða óvæntum veikindum, rétt til nauðsynlegrar heilbrigðisþjónustu í dvalarlandi á sama verði og heimamenn.

Verjast bráðnun með jöklaábreiðu

Forsvarsmenn skíðasvæðis í Svissnesku-Ölpunum hafa gripið til óhefðbundins ráðs til þess að reyna að koma í veg fyrir mikla bráðnun jöklanna á svæðinu í sumarhitunum. Þeir hafa hulið hluta þeirra með risastórri plastábreiðu sem endurkastar sólargeislunum og kemur þannig í veg fyrir bráðnun.

Sérsveit styrkt á Akureyri

Dómsmálaráðherra hefur ákveðið að styrkja sérsveit lögreglunnar á Norður- og Austurlandi með því að leysa fjóra sérsveitarmenn á Akureyri undan föstum vöktum. Í staðinn verður lögreglumönnum á Akureyri fjölgað um fjóra. Sérsveitarmönnunum er ætlað að sinna almennri löggæslu og sérstökum verkefnum á Norður- og Austurlandi.

Héraðsstjóra rænt í Írak

Byssumenn hafa rænt héraðsstjóranum í hinu róstusama Anbar-héraði í Írak ásamt fjórum lífvörðum hans. Frá þessu greindi bróðir hans í dag. Raja Nawaf hafði nýverið tekið við héraðsstjórn í Anbar en honum var rænt á veginum frá bænum Qaim nærri landamærunum að Sýrlandi og segir bróðir hans, Hamed, í samtali við <em>Reuters-fréttastofuna</em> að farið hafi verið með hann til Ramadi sem uppreisnarmenn hafa á valdi sínu.

Margir vilja ættleiða útburð

Fréttir af nýfæddu stúlkubarni sem fannst á víðavangi í útjaðri Naíróbí í Kenía í gær hafa heldur betur hreyft við Keníabúum því samkvæmt talsmönnum sjúkrahússins sem barnið dvelur á hafa fjölmargir hringt þangað og óskað eftir að ættleiða það. Stúlkan, sem nefnd var Engill, virðist hafa verið borin út en það var flækingstík sem bjargaði henni og kom henni fyrir hjá hvolpunum sínum.

Verðið sagt platverð

Tugir einyrkja flytja inn ameríska bíla fyrir aðra einstaklinga, einkum notaða bíla. Bílarnir eru í mörgum tilfellum fluttir inn í nafni viðskiptavinarins og firrar innflytjandinn sig þar með ábyrgð. Stóru bílainnflytjendurnir telja að verðið sé "fixað" og þess vegna sé það svo lágt. </font /></b />

Skuggagarðar stúdenta

Félagsstofnun stúdenta og Mótás undirrituðu í gær samning um byggingu nýrra stúdentagarða í miðborg Reykjavíkur. Garðarnir, sem hafa hlotið nafnið Skuggagarðar, munu rísa við Lindargötu þar sem Ríkið var áður til húsa. Húsin verða þrjú með samtals 98 einstaklingsíbúðum.

Flest salmonellusmit í útlöndum

103 tilkynningar um salmonellusmit bárust til sóttvarnarlæknis á síðasta ári. Meirihluti smitanna tengdist ferðum Íslendinga til útlanda og höfðu flestir smitast á Spáni og Portúgal. Flest smitanna greinast yfir sumarmánuðina í tengslum við sólarlandaferðir. 31 tilfelli eða 30 prósent voru innlend salmonellusmit.

Vinnuvikan styst í Noregi

Norðmenn vinna manna minnst í Evrópu, samkvæmt nýrri vinnumarkaðskönnun Evrópusambandsins. Lettar vinna hins vegar mest allra. Íslendingar voru ekki með í könnuninni en væru í þriðja sæti miðað við tölu Hagstofunnar fyrir síðasta ár.

Brynja óskar eftir rökum

Tveir umsækjendur um starf framkvæmdastjóra Dvalarheimilisins Höfða hafa óskað skriflega eftir rökstuðningi um ráðningu Guðjóns Guðmundssonar, fyrrverandi alþingismanns.

Leiguskip losar um stífluna

Eimskip hefur kallað inn leiguskipið MS Rebekku til að losa um stíflu sem hefur myndast í innflutningi á amerískum bílum. Skipið hefur farið eina ferð með bíla frá Bandaríkjunum og svo hafa bílar verið sendir með öðrum félögum til Evrópu.

Mikið um lúsasmit í skólum

Mikið hefur verið um lúsasmit í skólum landsins að undanförnu ef marka má fjölda fyrirspurna og frétta af lús hjá Sóttvarnarlækni. Fjöldi smita liggur þó ekki fyrir þrátt fyrir að lúsasmit hafi orðið tilkynningaskyld árið 1999. Allir geta smitast en lúsin greinist helst hjá þriggja til tólf ára börnum. Mikilvægt er að nota kamb og lúsdrepandi efni til að ráð niðurlögum smitsins.

Verstu timburmenn í sögu Danmerkur

Hátíðarhöldin vegna 200 ára fæðingarafmælis H.C. Andersen í Kaupmannahöfn á dögunum, eru á góðri leið með að verða eitt mesta menningarhneyksli Danmerkur fyrr og síðar.

Vill máli vísað frá dómi

Hannes Hólmsteinn Gissurarson fer fram á að máli erfingja Halldórs Laxness gegn honum vegna brota á höfundarrétti, verði vísað frá dómi.

Umdeild lagabreyting í Egyptalandi

Egypska þingið samþykkti í dag að breyta stjórnarskrá landsins á þann veg að fleiri en einn fái að bjóða sig fram í forsetakosningum, en hingað til hefur þingið tilnefnt einn mann sem þjóðin hefur svo greitt atkvæði um. Það var Hosni Mubarak, forseti Egyptalands, sem lagði til breytingarnar eftir að mjög hafði verið þrýst á hann innan lands sem utan að stuðla að meira lýðræði í landinu, en Mubarak hefur setið á forsetastóli í 24 ár.

Pöddurnar vakna til lífsins

Þegar hlýnar í veðri fara pöddurnar á stjá. Kóngulær spinna vefi, mýflugur suða í eyrum og járnsmiðir tölta um blómabeð. En hvar var allur þessi fjöldi í vetur? Hvert fór hann og hvaðan kom hann?

Gervigreindarsetur stofnað

Tölvukerfi sem læra af reynslunni, bregðast við ófyrirséðum uppákomum og taka sjálfstæðar ákvarðanir, eru hluti af því sem nýstofnað Gervigreindarsetur Háskólans í Reykjavík vinnur að. Yngvi Björnsson og Kristinn R. Þórisson, forstöðumenn setursins eru báðir doktorsmenntaðir í gervigreind.

Kvikmyndafræði kennd í HÍ

Til stendur að hefja kennslu í kvikmyndafræði við hugvísindadeild Háskóla Íslands í haust og hefur skólinn samið við Samskip um að styðja námið með því að kosta stöðu kennara. Til að byrja með verður kvikmyndafræðin 30 eininga aukagrein á BA-stigi en stefnt er að því að byggja upp framhaldsnám í greininni á næstu árum, eftir því sem fram kemur í sameiginlegri tilkynningu frá Háskólanum og Samskipum.

Samið um nánara samstarf

Rússland og Evrópusambandið hafa gert samkomulag um nánara samstarf á ýmsum sviðum, þar á meðal í efnahags- og öryggismálum. Samkipti Rússlands og sambandsins hafa verið stirð um nokkurt skeið, m.a. vegna málefna Tsjetsjeníu og stækkunar ESB í austur en auk þess hafa nokkur fyrrverandi lýðveldi Sovétríkjanna viljað nánari samskiptið Vestur-Evrópu.

Lögregla leitar bifreiðar

Lögreglan í Reykjavík lýsir eftir bifreið af gerðinni Subaru Legacy með bílnúmerið Zeta Magnús 912. Hann er ljósgrár, árgerð 1996, og talið að bíllinn sé einhvers staðar í Borgarfirði eða nágrenni. Ef einhver hefur orðið var við þennan bíl er sá hinn sami beðinn að hafa samband við lögregluna í Reykjavík í síma 444-1100.

Sellafield-mengun mælist hér

Óhappið í kjarnorkuendurvinnslustöðinni í Sellafield sem skýrt var frá í vikunni sýnir hversu lítið má út af bera til að hættuástand skapist. Stöðin skaðar ímynd íslenskra sjávarafurða og þá gildir einu hvort geislavirkni frá henni sé mikil eða lítil.

Virðisauki lagður á olíugjald

Ríkissjóður nýtir sér upptöku olíugjalds í stað þungaskatts til nærri 500 milljóna króna skattahækkunar. Það gerist með því að á nýja olíugjaldið verður lagður virðisaukaskattur sem var ekki á þungaskatti.

Þörf á varanlegri lausn

Hjúkrunarfræðingur sem starfaði á geðdeild Landspítalans telur samfélaginu stafa hætta af sjúku fólki sem útskrifað hefur verið af geðdeild. Lögreglan í Reykjavík segir úrbóta þörf því oft lendi lögreglumenn í hættu í samskiptum við veikt fólk sem þurfi varanlegri lausn á sínum vanda en vist í fangaklefa.

Hitti aðalandstæðing Pútíns

Það þykir táknrænt og segja meira en mörg orð um minnkandi velvild í garð Pútíns Rússlandsforseta að Bush Bandaríkjaforseti fór beint frá hátíðarhöldunum á Rauða torginu í gær til Georgíu að heimsækja einn höfuðandstæðing Pútíns.

Sjá næstu 50 fréttir