Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Eystrasaltslandamenn þroskist Vladimír Pútín Rússlandsforseti sagði í gær að engar líkur væru á því að rússnesk stjórnvöld myndu senda frá sér nýja yfirlýsingu um iðrun vegna leynisamnings Hitlers og Stalíns frá árinu 1939, sem leiddi til innlimunar Eystrasaltslandanna í Sovétríkin. 10.5.2005 00:01
Ekki slakað á áritanareglum Ekki náðist samkomulag um að Evrópusambandið slakaði á reglum um vegabréfsáritanir fyrir rússneska ríkisborgara á leiðtogafundi Rússlands og ESB í Moskvu í gær. En endurnýjuðum samstarfs- og viðskiptasamningi Rússa og sambandsins var þó fagnað sem stórum áfanga að bættum tengslum. 10.5.2005 00:01
Helfararminnismerki vígt í Berlín Nýtt minnismerki um helför nasista gegn gyðingum var vígt í Berlín í gær. Tilkoma þessa risastóra minnismerkis, sem er samsett úr yfir 2.700 misstórum steypublokkum, hefur átt sér langan aðdraganda en það var nú loks opnað almenningi við hátíðlega athöfn. 10.5.2005 00:01
Bush fagnað í Georgíu Fagnað af tugþúsundum heimamanna hvatti George W. Bush Bandaríkjaforseti í ræðu í Tíflis, höfuðborg fyrrverandi Sovétlýðveldisins Georgíu, í gær til útbreiðslu lýðræðis um öll þau lönd sem á dögum kalda stríðsins lutu stjórn kommúnista. Lýsti hann því yfir að kúgaðar þjóðir krefðust frelsis, og það skyldu þær fá. 10.5.2005 00:01
Struku saman af Litla Hrauni Jón Ólafsson, öryggisvörður sem særðist í bílsprengingu í Írak á laugardaginn var, og yfirmaður hans Donald Feeney sátu saman á Litla-Hrauni árið 1993. Jón afplánaði þá dóm fyrir nauðgun og auðgunarbrot og átti þá að baki nokkra refsidóma fyrir ofbeldisbrot. 10.5.2005 00:01
Tekinn með nammi Ferðalangur sem kom með Norrænu til Seyðisfjarðar bíður nú dóms eftir að hann kom til landsins með 30 kíló af sælgæti sem hann keypti um borð. Aðeins er leyfilegt að hafa með sér þrjú kíló. 10.5.2005 00:01
53% meðlagsgreiðenda í vanskilum 53 prósent meðlagsgreiðenda eru í vanskilum við Innheimtustofnun sveitarfélaga og skulda samtals yfir 13 milljarða króna í meðlög og dráttarvexti. Þetta kom fram í svari félagsmálaráðherra á Alþingi í dag. 10.5.2005 00:01
Arnarvarp truflað í Breiðafirði Gasbyssu var stillt upp við arnarhreiður í hólma á Breiðafirði og fældu hvellirnir ernina og aðra fugla frá varpi í hólmanum. Vitað er hver var að verki, en samkvæmt lögum er stranglega bannað að hrófla við arnarhreiðrum. 10.5.2005 00:01
Annað en fyrningarafnám mögulegt Bjarni Benediktsson alþingismaður sem ekki hefur viljað samþykkja frumvarp um afnám fyrningar kynferðisbrota óbreytt, segir aðra leið mögulega, það er að breyta refsiramma þannig að alvarlegustu brotin varði lífstíðarfangelsi. 10.5.2005 00:01
Síðasta dreifing fyrir Landgræðslu Landgræðsluflugvélin Páll Sveinsson hóf í gær sína síðustu áburðardreifingu á vegum Landgræðslunnar og lýkur fluginu í næstu viku. Í næsta mánuði verður þessi fornfræga flugvél afhent Þristavinafélaginu sem vonast til geta haldið henni áfram flughæfri. 10.5.2005 00:01
Geta útskrifast án samræmds prófs Menntamálaráðherra hefur breytt reglugerð tímabundið um samræmd stúdentspróf þannig að nemendur geti útskrifast stúdentar í vor án þess að hafa þreytt samræmd próf. Nemendur sem tóku samræmdu prófin eru ekki ánægðir með lausn ráðherrans. 10.5.2005 00:01
Reyna að sleppa við veggjald Dæmi eru um að ökumenn sem fara í gegnum Hvalfjarðargöngin taki númeraplöturnar af bílum sínum svo þeir sleppi við að borga veggjaldið. 10.5.2005 00:01
Barðist við 100 kílóa stórlúðu Hundrað kílóa stórlúða kom á land í Bolungarvík í dag. Viðureign sjómanns og fisks stóð í á aðra klukkustund áður en lúðan varð að játa sig sigraða. 10.5.2005 00:01
Skuldum þjóðartekjur þriggja ára Ögmundur Jónasson, þingmaður Vinstri grænna, sagði í eldhúsdagsumræðum á Alþingi í gærkvöldi að viðskiptahalli þjóðarinnar næmi nú um tíu prósentum af þjóðartekjum. Slíkt gæti ekki gengið til eilífðarnóns. Skuldir hefðu vaxið verulega og næmu nú tvöfaldri til þrefaldri vergri þjóðarframleiðslu. 10.5.2005 00:01
Vantalið í svari utanríkisráðherra Eiríkur Bergmann Einarsson sérfræðingur í Evrópusambandsmálum segir að upplýsingar utanríkisráðherra um samþykkt Evrópusambandsgerða hér á landi séu villandi. Í svari ráðherrans við fyrirspurn Sigurðar Kára Kristjánssonar Sjálfstæðisflokki kom fram að undanfarinn áratug hafi 2527 Evrópusambandsgerðir verið teknar upp í EES samninginn eða aðeins um sex og hálft prósent af heildarfjölda ESB gerða á sama tímabili 10.5.2005 00:01
10 milljarða króna vanskil Foreldrar sem greiða meðlög með börnum sínum voru á þrettánda þúsund um síðustu áramót. Meira en helmingur þeirra var þá í vanskilum við Innheimtustofnun sveitarfélaga, liðlega 53 prósent. Þetta kom fram í svari Árna Magnússonar félagsmálaráðherra við fyrirspurn Helga Hjörvar og fleiri Samfylkingarþingmanna á alþingi í gær. 10.5.2005 00:01
Ótímabær gagnrýni á ritgerðarefni Sverrir Þórisson starfsmaður námsmatsstofnunnar telur gagnrýni á ritgerðarefnið á samræmda prófinu í íslensku ótímabæra. Niðurstaða samræmdu prófanna hljóti að vera hinn eini sanni prófsteinn á það hvort efnið sé óviðeigandi eða ekki. 10.5.2005 00:01
Vilja hindra vitnisburð Bandarískur alríkisdómari samþykkti í gær kröfu lögmanna Sameinuðu þjóðanna um tímabundið bann við því að maður sem átti þátt í að rannsaka svonefnda olíu-fyrir-mat-áætlun samtakanna mætti leggja fram trúnaðargögn úr rannsókninni fyrir bandarískar þingnefndir. 10.5.2005 00:01
Hafna nýrri flugstöð Höfuðborgarsamtökin hafna áformum um samgöngumiðstöð í Vatnsmýri. Þau telja augljóst að framkvæmdin sé til þess fallin að festa flugstarfsemina þar í sessi. 10.5.2005 00:01
Ruglað saman af ásettu ráði Vera má að Abu Faraj al-Libbi sem handtekinn var í síðustu viku í Pakistan sé ekki eins hátt settur innan al-Kaída eins og stjórnvöld halda fram. 10.5.2005 00:01
Stjórnin næði ekki meirihluta Samkvæmt nýrri könnun Fréttablaðsins myndu ríkisstjórnarflokkarnir fá 29 þingmenn af 63 ef boðað yrði til kosninga nú. Framsóknarflokkur og Sjálfstæðisflokkur bæta aðeins við sig frá síðustu könnun. 10.5.2005 00:01
Strætó líklega frá Kirkjusandi Starfsemi Strætó bs. mun að öllum líkindum flytja af Kirkjusandslóð á þessu ári og lóðin verða seld. Steinunn Valdís Óskarsdóttir borgarstjóri segir lóðina vera eina þá bestu í bænum og að verðið verði eftir því. Starfsemi Strætó bs. hefur verið fundin ný lóð. 9.5.2005 00:01
Hissa á viðkvæmni barnageðlækna Jón Kristjánsson heilbrigðisráðherra er hissa á því hversu viðkvæmir barnageðlæknar eru fyrir umræðu um þá miklu aukningu sem orðið hefur á notkun barna á ofvirknilyfjum. 9.5.2005 00:01
Mótmæltu háu olíugjaldi Eigendur dísilbíla flautuðu fyrir utan Alþingishúsið nú síðdegis til að mótmæla háu olíugjaldi. FÍB furðar sig hins vegar á mótmælunum. 9.5.2005 00:01
Fasteignasölu lokað Eftirlitsnefnd Félags fasteignasala, sem nýverið tók til starfa, hefur þurft að loka einni fasteignasölu. Þar starfaði enginn löggildur fasteignasali á þeim tíma. Langflestum málum nefndarinnar lýkur án þess að nokkuð þurfi að aðhafast. 9.5.2005 00:01
Ný jarðhitahola Jarðboranir og Hitaveita Egilsstaða og Fella hafa undirritað samning um borun nýrrar jarðhitaholu á virkjunarsvæði hitaveitunnar við Urriðavatn. 9.5.2005 00:01
Kókaínkaupin undu upp á sig Sjö sæta ákæru fyrir innflutning á rúmum 130 grömmum af kókaíni og þúsund e-töflum í ársbyrjun í fyrra. Við sögu koma blómasali, dóttir konu hans og kærastinn hennar, frænka blómasalans, marokkóskur maður hennar og tveir til viðbótar sem áttu pening til kaupanna. 9.5.2005 00:01
Gæsluvarðhald staðfest Hæstiréttur staðfesti í gær gæsluvarðhald yfir manni sem gefin er að sök aðild á smygli á rúmum 7,5 kílóum af amfetamíni með Dettifossi frá Þýskalandi til Íslands síðasta sumar. 9.5.2005 00:01
Frávísun stendur í máli lækna Hæstiréttur staðfesti í gær úrskurð Félagsdóms frá 15. apríl þar sem máli Læknafélags Íslands á hendur íslenska ríkinu var vísað frá dómi. Læknafélagið, sem kærði úrskurðinn 20. apríl, þarf að greiða ríkinu 150 þúsund krónur í kærumálskostnað. 9.5.2005 00:01