Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Utanríkismálanefnd má birta gögnin Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra sagði á Alþingi í dag að utanríkismálanefnd mætti sín vegna birta það sem henni sýndist um umræður um aðdraganda stríðsins í Írak. Össur Skarphéðinsson, alþingismaður og formaður Samfylkingarinnar, skoraði á Halldór að hreinsa loftið með því að aflétta trúnaði af eigin ummælum í fundargerðum nefndarinnar. 24.1.2005 00:01
Sendi póstinn sökum þunglyndis Breskur maður sem sendi ættingjum þeirra sem týndust í hamförunum annan í jólum falsaðan tölvupóst var í dag dæmdur í hálfs árs fangelsi. Í tölvupósti sem maðurinn sendi til fjölda manna var sagt staðfest að viðkomandi ættingi sem saknað var hefði látist í hamförunum, þrátt fyrir að maðurinn hefði engar sannanir fyrir því. 24.1.2005 00:01
Húsaleiga hefur margfaldast Gríðarleg aukning á sér stað á húsnæðismarkaði og í byggingu verslunar- og skrifstofuhúsnæðis á Egilsstöðum og hefur verð á húsnæði hækkað gríðarlega. Sama gildir um húsaleigu. </font /></b /> 24.1.2005 00:01
Atvinnuleyfin gefin út í dag Búist er við að í dag liggi fyrir niðurstaða í vinnu ráðuneytisstjóranefndarinnar og í framhaldi af því verði gefin út atvinnuleyfi fyrir hóp erlendra verkamanna til starfa hjá Impregilo. 24.1.2005 00:01
Hlýnunin að verða óumflýjanleg Eftir tíu ár kann að vera orðið of seint að snúa við þeirri þróun sem kennd er við hlýnun jarðar. Afleiðingarnar, ef svo fer, verða gífurlegar og geta meðal annars leitt til bráðnunar Grænlandsjökuls og þess að Golfstraumurinn hætti að ganga en hann gerir Ísland byggilegt. 24.1.2005 00:01
Fyrrum ráðherra í fangelsi Ray Burke, fyrrum dómsmálaráðherra Írlands, var í gær dæmdur í hálfs árs fangelsi fyrir skattsvik. Burke er fyrsti háttsetti stjórnmála- eða embættismaðurinn sem dæmdur er í fangelsi í kjölfar átta ára langrar rannsóknar á spillingu hátt settra stjórnmálamanna. Áður hafa nokkrir þingmenn verið dæmdir í fangelsi. 24.1.2005 00:01
Kráakeðja bannar reykingar Wetherspoons, öldurhúsakeðjan breska, hefur ákveðið að banna reykingar á öllum 650 öldurhúsum sínum frá maí á næsta ári. Reykingabannið tekur þó gildi enn fyrr, eða í maí næstkomandi, á sextíu öldurhúsum Wetherspoons. 24.1.2005 00:01
Kosningarnar þegar tapaðar Helsti ráðgjafi Michaels Howard, leiðtoga íhaldsmanna, vegna komandi þingkosninga í Bretlandi, hefur ráðlagt honum að einbeita sér að því í kosningabaráttunni að minnka forskot Verkamannaflokksins. Ekki þýði að setja markið hærra því kosningarnar séu þegar tapaðar. 24.1.2005 00:01
Júsjenkó heldur til vesturlanda Framtíðarsýn Viktors Júsjenkó fyrir Úkraínu vísar í vesturátt en hann hélt í austur í fyrstu opinberu heimsókn sína eftir að hann tók við embætti forseta Úkraínu. Júsjenkó hélt til fundar við Vladimir Pútín Rússlandsforseta í gær þar sem þeir ræddu samskipti ríkjanna. 24.1.2005 00:01
Hryðjuverkaforingi handtekinn Íraska lögreglan hefur handtekið sprengjugerðarmann sem talinn er hafa staðið að nokkrum mannskæðustu bílsprengjuárásunum í Írak, þeirra á meðal árásinni á höfuðstöðvar Sameinuðu þjóðanna í ágúst 2003 og árás á helgireit í Najaf sem kostaði 85 manns lífið. 24.1.2005 00:01
Spilling í áfengiseinkasölu Norska áfengiseinkasalan hefur ráðið utanaðkomandi lögfræðing til að rannsaka hvort starfsmenn stofnunarinnar hafi þegið mútur af áfengisheildsölum. Fjórtán manns sæta rannsókn á því hvort þeir hafi þegið óeðlilegar gjafir. 24.1.2005 00:01
Órofa tengsl Samskipti verkalýðshreyfingarinnar og Samfylkingarinnar hafa talsvert verið til umræðu. Slík tengsl eiga sér langa sögu í íslenskum stjórnmálum og hafa velflestir flokkar kappkostað við að hafa ítök í launþegahreyfingunum og þær um leið í flokkunum. 24.1.2005 00:01
Stuðningurinn hófst í febrúar 2003 Íslensk stjórnvöld gáfu leyfi til þess í febrúar árið 2003 að herflugvélar gætu flogið um íslenska lofthelgi og haft hér viðdvöl vegna innrásar í Írak. Listi hinna staðföstu þjóða var ekki birtur fyrr en 18. mars. Í millitíðinni töluðu formenn stjórnarflokkanna í austur og vestur í afstöðunni til Íraksdeilunnar. 24.1.2005 00:01
Stórfelld árásarhrina undirbúin Lykilmaðurinn í flestum sprengjutilræðum sem gerð hafa verið í Írak síðustu vikur er kominn á bak við lás og slá að sögn þarlendra yfirvalda. Svo virðist sem handtakan hafi ekki dregið vígtennurnar úr andspyrnuhópum sem talið er að séu að skipuleggja stórfellda árásarhrinu síðustu dagana fyrir þingkosningarnar. 24.1.2005 00:01
Lögbann á fyrrum starfsmenn SÍF Sýslumaðurinn í Reykjavík hefur sett lögbann á fjóra fyrrverandi starfsmenn SÍF sem sögðu upp störfum og stofnuðu fisksölufyrirtæki í beinni samkeppni við SÍF. Bannið gildir til júníloka. Í millitíðinni verður skorið úr um málið fyrir dómstólum. 24.1.2005 00:01
Lögreglufréttir Innbrot í Fossvogi Brotist var inn í hús í Fossvogi snemma á mánudagsmorgni. Eldhúsgluggi var spenntur upp og lyfjum, skólatösku, áfengi, sundpoka og peningum stolið. 24.1.2005 00:01
Lögreglufréttir Partí á sunnudegi Tvö útköll bárust lögreglunni í Keflavík á næturvaktinni aðfaranótt mánudags vegna hávaða í partíum í heimahúsum, annað í Keflavík og hitt í Sandgerði. 24.1.2005 00:01
Örorka hækkar um 14 milljarða Í fyrsta sinn liggur fyrir örorkulíkan sem byggist á íslenskum raunveruleika. Hingað til hefur verið stuðst við danskt líkan. Samkvæmt íslensku útreikningunum hækka skuldbindingar lífeyrissjóðs VR vegna örorku um tæpa fjórtán milljarða. 24.1.2005 00:01
Flugfært til Bandaríkjanna Flugvél Icelandair lagði af stað frá Keflavíkurflugvelli til Bandaríkjanna síðdegis í gær. Hún flutti og sótti farþega sem áttu pantað flug milli landanna á sunnudag en því hafði verið aflýst vegna óveðurs. 24.1.2005 00:01
Viðbúnaðarstig fyrir vestan Viðbúnaðarstigi vegna hláku sem eykur hættu á snjóflóðum hefur verið lýst yfir í byggðum á norðan- og sunnanverðum Vestfjörðum. Fylgst er með ástandinu. 24.1.2005 00:01
Halldór neitar ásökunum Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra þvertekur fyrir að málflutningur hans um þá ákvörðun að setja Ísland á lista hinna staðföstu þjóða í Íraksstríðinu hafi verið villandi. Hann segir utanríkismálanefnd Alþingis frjálst að birta það sem hún vill varðandi málið. 24.1.2005 00:01
Kostaboð verslana standast ekki Svo virðist sem auglýst kostaboð raftækjaverslana eigi ekki ávallt við rök að styðjast. Í auglýsingabæklingi ELKO, sem datt inn á borð landsmanna í byrjun árs, má finna verðupplýsingar sem hreinlega standast ekki. 24.1.2005 00:01
Gígarnir í Eyjum skemmdir Unnar hafa verið skemmdir á gosgígunum í Vestmannaeyjum með skurðgröfu. Gígarnir mynduðust í gosinu árið 1973 og eru á náttúruminjaskrá. Ráðist var í þessar óvæntu framkvæmdir á 31 árs afmæli gossins. 24.1.2005 00:01
Mannskaðaveður í V-Evrópu og BNA Mannskaðavetrarveður hefur gengið yfir bæði Vestur-Evrópu og Bandaríkin síðustu daga. Grenjandi stórhríð, hálasvell og snjóflóð hafa teppt samgöngur og gert mörgum gramt í geði. 24.1.2005 00:01
Bandarískir hermenn á nálum Gríðarleg spenna liggur í loftinu í Írak nú þegar aðeins sex dagar eru í þingkosningar. Bandarískir hermenn í landinu eru á nálum því að árásir andspyrnumanna eru eins og rigningin: maður veit aldrei hvar hún lendir. Þetta segir sjónvarpsmaðurinn Jón Ársæll Þórðarson sem er á ferð með bandaríska hernum í Írak. 24.1.2005 00:01
Vilja breyta lögum um eftirlaun Forsætisráðherra vill breyta lögum um eftirlaun æðstu embættismanna ríkisins þannig að ekki verði lengur unnt að starfa á fullum launum og þiggja um leið eftirlaun. Guðmundur Árni Stefánsson, eini stjórnarandstæðingurinn sem studdi eftirlaunafrumvarpið, er sammála þessu. 24.1.2005 00:01
Fresta afhendingu olíuyfirlits Starfsfólk Essó neitaði í liðinni viku viðskiptavinum sínum um yfirlit yfir viðskipti þeirra við félagið undanfarin ár. Töluvert var um að fólk óskaði eftir upplýsingunum eftir að Neytendasamtökin hvöttu almenning til að afhenda samtökunum nótur vegna olíukaupa. Það var gert vegna fyrirhugaðrar skaðabótakröfu sem rekin verður fyrir dómstólum. 24.1.2005 00:01
Vilja selja refaveiðileyfi Hugmyndir eru um það í Skagafirði að selja skotveiðimönnum leyfi til refaveiða í sveitinni. Jón Garðarsson, fulltrúi Framsóknarflokks í atvinnu- og ferðamálanefnd Skagafjarðar, kynnti þessar hugmyndir á fundi nefndarinnar í liðinni viku. 24.1.2005 00:01
Nýbyggingar í undirbúningi Engilbert Runólfsson, eigandi verktakafyrirtækisins Stafna á milli, hefur keypt fjölda húsa frá horni Laugavegs, niður Frakkastíg og niður á Hverfisgötu. Þar ætlar fyrirtækið að reisa fimmtán þúsund fermetra nýbyggingu sem í verða bæði íbúðir og verslunarhúsnæði, en sex þúsund fermetrar fara undir bílageymslu. 24.1.2005 00:01
Eldur í vél Eldur kom upp við húsnæði Ísafoldarprentsmiðjunnar í gær. Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins, sem er með slökkvistöð í grennd við prentsmiðjuna, náði að slökkva eldinn áður en hann breiddist út. 24.1.2005 00:01
Lögbann á starfsmenn Fjórum af fimm fyrrverandi starfsmönnum SÍF sem sögðu upp störfum fyrir áramót og stofnuðu eigið fisksölufyrirtæki hefur verið meinað að starfa fyrir nýja félagið eða taka á nokkurn annan hátt í starfsemi félagsins til 30. júní. 24.1.2005 00:01
Kjarabætur stóðu ekki til Forsætisráðherra segir að mönnum hafi sést yfir þann möguleika að fyrrverandi ráðherrar gætu þegið eftirlaun á sama tíma og þeir gegndu starfi á vegum hins opinbera. Hann segir ástæðu til að taka málið til athugunar. </font /></b /> 24.1.2005 00:01
Hús rýmd Fjögur hús voru rýmd á Bíldudal seint í gærkvöld vegna snjóflóðahættu. Lögreglan á Patreksfirði segir að húsin séu við Gilsbakkagil og gripið hafi verið til þessa af öryggisástæðum. 24.1.2005 00:01
DNA-próf til að sanna skyldleika Hælisleitendum í Danmörku verður gert skylt að undirgangast DNA-próf til að sanna skyldleika við börn sem þeir flytja með sér, verði hugmynd danska þjóðarflokksins að veruleika. Samkvæmt stikkprufum sem eru gerðar í dag eru börn flutt til landsins með öðrum en líffræðilegum foreldrum sínum í þriðja hvert skipti. 24.1.2005 00:01
Krefst 94 milljóna af Arngrími Arngrími Jóhannssyni, stjórnarformanni Atlanta, hefur verið stefnt af eiganda Scandinavian Historic Flight vegna vanefnda á samningi. Stefnufjárhæðin nemur tæplega 94 milljónum króna. 24.1.2005 00:01
Borgarfulltrúar leiti sér sálfræðihjálpar Formaður bæjarráðs Kópavogs segir að vegna minnimáttarkenndar gagnvart Kópavogi ættu borgarfulltrúar R-listans kannski að leita sér sálfræðihjálpar. Reykjavíkurborg meinar Kópavogi að leggja vatnsleiðslu um land sitt. Iðnaðarráðuneytið er með málið til skoðunar. </font /></b /> 23.1.2005 00:01
Sagður hafa samið við skæruliða Ísraelsk stjórnvöld segja Mahmoud Abbas, forseta Palestínu, hafa náð vopnahléssamkomulagi við skæruliða- og hryðjuverkahreyfingar Palestínumanna. Talsmenn samtakanna harðneita þessu og segjast ekki útiloka neinar aðgerðir fyrr en Ísraelsmenn hætti sjálfir hernaðaraðgerðum sínum. Talsmaður Abbas neitaði að tjá sig um málið. 23.1.2005 00:01
Gripinn við þjófnað á næturklúbb Tæplega fertugur maður var staðinn að verki þegar hann reyndi að hnupla úr peningakassa á næturklúbbnum Casino í Keflavík í nótt. Að sögn lögreglu kom starfsfólk að manninum fyrir innan barborð og var hann þá búinn að opna peningakassa og taka úr honum 4500 krónur. Maðurinn var tekinn til yfirheyrslu hjá lögreglu. 23.1.2005 00:01
Óku fram á sofandi mann Lögreglan í Keflavík ók í nótt fram á mann sem lá steinsofandi úti á götu. Maðurinn lá sofandi á Kirkjuvegi í Keflavík og var orðinn kaldur. Þegar reynt var að vekja hann kom í ljós að hann var ofurölvi og gat vart mælt sökum ölvunar. Lögregla hlúði að honum og flutti hann í hlýja fangageymslu þar sem hans beið mýkri svefnstaður. 23.1.2005 00:01
Herferð gegn þingkosningum í Írak Abu Musab al-Zarqawi lýsti í nótt yfir stríði á hendur íröksku þingkosningunum sem fara fram eftir viku. Hótunin kom fram á hljóðupptöku sem birt var á íslamskri vefsíðu, en upptakan er sögð af ávarpi al-Zarqawis. Þar sagði hann að strítt yrði gegn lýðræði og hverjum þeim sem reyndi að koma því á fót. 23.1.2005 00:01
Segir að árás á Íran væri mistök Árás á Íran væri mikil mistök. Þetta segir utanríkisráðherra Írans. Á fréttamannafundi í Teheran kvaðst hann jafnframt telja líkurnar á slíkri árás afar litlar nema að einhverjum væri mikið í mun að gera hernaðarleg mistök. 23.1.2005 00:01
Jeppi valt í Svínahrauni Ökumaður og farþegar sluppu ómeiddir þegar jeppi valt út af þjóðveginum í Svínahrauni laust fyrir klukkan sex í gærkvöldi. Jeppinn valt skammt ofan Draugahlíðarbrekku austan við Litlu kaffistofuna, ekki fjarri skiltinu þar sem ökumenn eru minntir á fjölda látinna í umferðarslysum. Talið er að hálka hafi átt þátt í því að ökumaður missti stjórn á jeppanum. 23.1.2005 00:01
Féll af flutningabíl og slasaðist Rúmlega fertugur maður slasaðist í vinnuslysi við fiskvinnslufyrirtækið Vísi í Grindavík síðdegis í gær. Maðurinn féll af flutningabíl þegar verið var að færa farm til á bílnum. Hann var fluttur á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja í Keflavík þar sem gert var að sárum hans en hann hafði hlotið skurð í andliti, samkvæmt upplýsingum lögreglunnar í Keflavík. 23.1.2005 00:01
Vopnahléssamkomulag liggur fyrir Vopnahléssamkomulag liggur fyrir milli palestínskra yfirvalda og skæruliðasamtaka á sjálfsstjórnarsvæðunum. Allir hlutaðeigandi neita þó fregnunum en talið er að betur horfi fyrir botni Miðjarðarhafs en í langan tíma. 23.1.2005 00:01
Segjast ekki ráðast á Íran Hyggi Bandaríkjamenn á innrás í Íran gætu þeir þurft að ráðast einir inn í landið. Bretar ætla sér ekki að taka þátt í hernaði gegn landinu en vilja semja við Írana um kjarnorkuvopnáætlun landsins. 23.1.2005 00:01