Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Rannsakar iðnréttindin Sýslumannsembættið á Seyðisfirði rannsakar nú iðnréttindi nokkurra erlendra starfsmanna Impregilo á Kárahnjúkum, m.a. rafiðnaðarmanna og smiða. 10.1.2005 00:01
Páll ráðinn í forsætisráðuneytið Páll Þórhallsson hefur verið ráðinn lögfræðingur á aðalskrifstofu forsætisráðuneytisins samkvæmt auglýsingu sem birt var í byrjun desember. Hann mun m.a. sinna ráðgjöf, skjalagerð og úrlausn lögfræðilegra viðfangsefna á verksviði ráðuneytisins, einkum á sviði stjórnskipunar- og stjórnarfarsréttar. 10.1.2005 00:01
Segir feril Alfreðs senn á enda Það þarf hins vegar engan sérfræðing til að átta sig á því að eftir 35 ára starf að borgarmálum hlýtur að vera farið að styttast eitthvað í annan endann á stjórnmálaferli Alfreðs Þorsteinssonar," segir Guðjón Ólafur Jónsson, varaþingmaður Framsóknarflokksins, á vef framsóknarmanna, hrifla.is. 10.1.2005 00:01
Búnaði við klórvinnslu ábótavant Verkfræðistofa gerði alvarlegar athugasemdir við starfsemi klórverksmiðju Mjallar-Friggjar í haust. Í skýrslum hennar kemur meðal annars fram að búnaði verksmiðjunnar hafi verið ábótavant sem áhættumati. </font /></b /> 10.1.2005 00:01
Ólafur afhenti trúnaðarbréf sitt Ólafur Davíðsson, sendiherra Íslands í Þýskalandi, afhenti forseta Þýskalands, Horst Köhler, trúnaðarbréf sitt í dag. Þýskaland hefur um árabil verið stærsta viðskiptaland Íslands og voru heildarviðskipti landanna á síðastliðnu ári tæplega 60 milljarðar króna. 10.1.2005 00:01
Orkla eignast meirihluta í Elkem Norska fyrirtækjasamsteypan Orkla hefur eignast meirihluta í Elkem sem meðal annars á Íslenska járnblendifélagið. Orkla hafði þar með betur en Alcoa í baráttunni um Elkem. 10.1.2005 00:01
Gallup stendur við könnunina IMG - Gallup á Íslandi segist standa fyllilega við könnun á afstöðu Íslendinga til þátttöku Íslands á lista hinna viljugu þjóða sem studdu hernaðaraðgerðir í Írak. Þrír ráðherrar ríkisstjórnarinnar hafa farið niðrandi orðum um könnunina. 10.1.2005 00:01
Konungur hvetur til samstöðu Karl Gústaf Svíakonungur hvatti landsmenn til að þjappa sér saman eftir hörmungarnar í Asíu í ávarpi sem var útvarpað og sjónvarpað beint í gær. "Okkur verður hugsað til allra þeirra sem standa okkur nærri og okkur þykir vænt um, en er ekki lengur á meðal okkar," sagði konungurinn. 10.1.2005 00:01
Kæru Janúkovitsj vísað frá Hæstiréttur Úkraínu vísaði í gær frá fjórum kærum Viktors Janúkovitsj, fyrrum forsætisráðherra, þar sem hann krafðist þess að seinni umferð forsetakosninganna yrði dæmd ógild. Talsmaður dómstólsins sagði að kærunum hefði verið vísað frá á grundvelli formgalla og að Janúkovitsj myndi leggja fram nýjar kærur. 10.1.2005 00:01
Hundruð þúsunda án rafmagns Nærri helmingur Letta og um nokkur hundruð þúsund Norðurlandabúar bjuggu við rafmagnsleysi í gær í kjölfar óveðursins sem gekk yfir svæðið um helgina og kostaði ellefu manns lífið. 10.1.2005 00:01
Erfið verkefni liggja fyrir Abbas Mahmoud Abbas vann yfirburðasigur í palestínsku forsetakosningunum. Nú liggur fyrir honum að semja frið við Ísraela og fá palestínska vígamenn til að láta af ofbeldi gegn Ísraelum. Kjöri hans var fagnað innanlands og utan. </font /></b /> 10.1.2005 00:01
Börn sneru loks aftur í skóla Börn sneru aftur í skóla sína í Acehhéraði á indónesísku eyjunni Súmötru í gær, í fyrsta sinn frá náttúruhamförunum á annan dag jóla. Sums staðar, svo sem í Aceh Besar bættist fjöldi barna frá þeim svæðum sem verst urðu úti í hóp þeirra sem fyrir voru, annars staðar vantaði marga nemendur. 10.1.2005 00:01
Fangabúðirnar í Guantanamo 3 ára Þrátt fyrir að fá verk Bandaríkjastjórnar hafi mætt jafn harðri gagnrýni og fangabúðirnar sem komið var upp í Guantanamo fyrir þremur árum virðist sem þær standi til frambúðar. Uppi eru áform um að byggja þar fangelsi fyrir andvirði 1.600 milljóna króna og geðdeild fyrir rúmar hundrað milljónir króna. 10.1.2005 00:01
Vörðust ásökunum um samráðið Fulltrúar fjögurra olíufélaga vörðust ásökunum um ólögmætt samráð á fundi með áfrýjunarnefnd samkeppnismála í dag. Fulltrúar Samkeppnisstofnunar skýrðu sitt mál einnig. Búast má við niðurstöðu nefndarinnar í mánuðinum. 10.1.2005 00:01
Impregilo skuldar hundruð milljóna Impregilo skuldar hundruð milljóna króna í vangoldna staðgreiðslu launa portúgalskra starfsmanna sinna samkvæmt áætlun íslenskra skattayfirvalda. Impregilo segist ekki bera ábyrgð á skattskyldu starfsmanna frá Portúgal sem hafa starfað við Kárahnjúkavirkjun og vísar á starfsmannaleigur. 10.1.2005 00:01
Dæmdur fyrir hassinnflutning Þrítugur maður var í Héraðsdómi Reykjaness í gær dæmdur í sjö mánaða fangelsi fyrir innflutning á rúmum 190 grömmum af hassi sem hann flutti til landsins í febrúar í fyrra. Fimm mánuðir af refsingunni eru skilorðsbundnir til þriggja ára. 10.1.2005 00:01
Ekki gerð sérstök refsing Tveimur mönnum um tvítugt var í Héraðsdómi Reykjaness í gær ekki gerð sérstök refsing fyrir að hafa stolið bensíni á bíl í tvígang. 10.1.2005 00:01
Mesta hrina snjóflóða í níu ár Veðurstofu Íslands hafa borist upplýsingar um sjötíu snjóflóð frá jólum til sjötta janúar. Langflest flóðanna féllu á Vestfjörðum, nokkur flóð féllu í Ólafsfjarðarmúla en lítið annars staðar. "Önnur eins snjóflóðahrina hefur ekki komið síðan árið 1995," segir Leifur Örn Svavarsson, á snjóflóðavakt Veðurstofunnar. 10.1.2005 00:01
Sektaður fyrir fíkniefnabrot Fertugum manni var, í Héraðsdómi Reykjaness í gær, gert að greiða 35 þúsund krónur í sekt fyrir fíkniefnabrot og þjófnað. Verði sektin ekki greidd innan fjögurra vikna kemur átta daga fangelsi hennar í stað. 10.1.2005 00:01
Með kíló af kókaíni innvortis Tæplega þrítugur Ungverji situr í gæsluvarðhaldi eftir að hann var tekinn í Leifsstöð með tæpt kíló af kókaíni innvortis þegar hann kom til landsins í lok síðasta mánaðar. Er þetta mesta magn sem vitað er til að maður hafi komið með innvortis hingað til lands. Nígeríumaður var handtekinn í Reykjavík síðastliðinn fimmtudag í tengslum við málið. 10.1.2005 00:01
Vill málsókn vegna logins faðernis Jón Eiríksson, 77 ára verslunarmaður, taldi sig eiga þrjár dætur með Heiðbjörtu Guðmundsdóttur. Í ljós kom að engin dætranna var hans, heldur hafði Heiðbjört eignast þær með öðrum mönnum. Jón ól dæturnar upp og borgaði síðan meðlag, en fær það ekki endurgreitt. 10.1.2005 00:01
Taka upp eðlilega lífshætti Íbúar á hamfarasvæðunum í Asíu reyna hvað þeir geta að taka upp eðlilega lífshætti. Mest áhersla hefur verið lögð á það á þeim svæðum sem urðu verst úti að líf barna verði sem fyrst því sem næst eðlilegt á ný. Hjálparstarf er farið að bera sýnilegan árangur. 10.1.2005 00:01
Staða Abbas fallvölt Staða Mahmouds Abbas, nýkjörins forseta Palestínu, þykir fallvölt en hans bíður afar erfitt verkefni að halda aftur af hryðjuverkahópum svo hægt verði að ganga til friðarsamninga við Ísraelsmenn. Abbas er raunsær hófsemdarmaður og telja margir að kosning hans marki þáttaskil í friðarumleitunum fyrir botni Miðjarðarhafs. 10.1.2005 00:01
Stuðla að betra málfari Ekki segja „ókei“, heldur allt í lagi, ekki segja „bæ, bæ“, heldur „veriði bless“. Þetta er meðal þess sem Pétur Pétursson þulur og Eyjólfur Jónsson sundkappi, ásamt fleirum, ræddu við börnin á Barónsborg í dag. 10.1.2005 00:01
Átti fótum fjör að launa Johan Svensson, forstjóri Íslenska járnblendifélagsins, átti fótum sínum fjör að launa þegar hann lenti í flóðbylgjunni í Taílandi. Hann segist breyttur maður eftir þá reynslu. 10.1.2005 00:01
Tólf tíma málflutningur í olíumáli Málflutningur olíufélaganna fyrir áfrýjunarnefnd samkeppnismála vegna úrskurðar samkeppnisráðs um verðsamráðssektir stóð frá klukkan níu í gærmorgun til níu í gærkvöldi. 10.1.2005 00:01
Sigríði sagt upp störfum Sigríði Árnadóttur, fréttastjóra Stöðvar 2 og Bylgjunnar, var sagt upp störfum í gær eftir tæplega eitt ár í starfi. Sigríður segist hafa verið kölluð á fund Páls Magnússonar sjónvarpsstjóra síðdegis í gær þar sem henni var sagt upp án nokkurs formála. 10.1.2005 00:01
Þrjú snjóflóð í gærkvöld Þrjú snjóflóð féllu með stuttu millibili á veginn í Kirkjubotnshlíð á Ísafirði síðdegis í gær. Vegurinn, sem er milli Ísafjarðar og Súðavíkur, lokaðist í nokkurn tíma en starfsmenn Vegagerðarinnar unnu við það í gærkvöldi að ryðja hann. 10.1.2005 00:01
Vill fækka starfsfólki Miðað við fjárhagsáætlun meirihluta bæjarstjórnar Ísafjarðar bendir allt til þess að bæjarsjóðurinn verði tómur árið 2007 að mati Magnúsar Reynis Guðmundssonar, bæjarfulltrúa Frjálslyndra og óháðra. Bæjarins besta greinir frá því að Magnús vilji grípa til róttækra aðgerða. Meðal annars vill hann fækka stöðugildum hjá bænum um þrjátíu. 10.1.2005 00:01
Breytingar á lánasjóði Það er mikilvægt að kanna framtíð Lánasjóðs landbúnaðarins að mati Guðna Ágústssonar, landbúnaðarráðherra nú þegar miklar breytingar eiga sér stað á peningamarkaði. Hann hefur skipað verkefnisstjórn til þess sem á að skila tillögu fyrir lok febrúar. 10.1.2005 00:01
Þyrlur fylgdu flugvél að landinu Flugvél Flugmálastjórnar og þyrlur Landhelgisgæslunnar og Varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli flugu til móts við eins hreyfils flugvél vestur af landinu í gær. Flugmaður vélarinnar, sem var einn um borð, sendi út neyðarkall klukkan tíu mínútur í níu í gærkvöld þegar hann var staddur um 105 sjómílur vestur af Keflavík. 10.1.2005 00:01
Loftfar leysi Herjólf af hólmi Hagkvæmara væri að nota loftfar til að flytja fólk og frakt til og frá Vestmannaeyjum heldur en með Herjólfi, samkvæmt könnun sem sex nemendur við Viðskiptaháskólann á Bifröst unnu í vetur. 10.1.2005 00:01
Auglýsir fé til mannréttindamála Dómsmálaráðuneytið auglýsti til umsóknar þær fjórar milljónir króna sem ráðuneytið hefur til ráðstöfunar vegna starfa að mannréttindamálum. Tekið er fram í auglýsingunni að fénu verði úthlutað á grundvelli umsókna, en þær verða að berast ráðuneytinu fyrir næstu mánaðamót. 10.1.2005 00:01
Nefnd heimsækir Kína Opinber heimsókn Halldórs Blöndal, forseta Alþingis, til Kína hefst í dag og stendur fram á þriðjudag í næstu viku. 10.1.2005 00:01
Hálkuvarnir auknar Samgönguráðherra hefur ákveðið að auka vetrarþjónustu og hálkuvarnir á þjóðvegum landsins, að því er fram kemur á vef ráðuneytisins. 10.1.2005 00:01
Nýr sendiherra í Þýskalandi Ólafur Davíðsson afhenti í gær Horst Köhler, forseta Þýskalands, trúnaðarbréf sitt sem sendiherra Íslands í Þýskalandi. 10.1.2005 00:01
Nýr vefur sýslumanna Sýslumannafélag Íslands hefur í samstarfi við dóms- og kirkjumálaráðuneytið opnað nýjan vef, syslumenn.is, sem inniheldur upplýsingar um verkefni sýslumanna og ýmsar leiðbeiningar til þeirra sem til embætta sýslumanna þurfa að leita. 10.1.2005 00:01
Búnaður vari við leka Væntanleg er reglugerð frá samgönguráðuneytinu um búnað til að vara við leka í fiskiskipum, að því er fram kemur á vef Landssambands íslenskra útvegsmanna. 10.1.2005 00:01
Breytingar á Hellisheiði Ákveðið hefur verið að hafa þrjár akreinar frá Litlu kaffistofunni að Hveradalabrekku og mislæg gatnamót við Þrengslaafleggjara á Hellisheiði, að því er sunnlenska vikublaðið Glugginn greinir frá. 10.1.2005 00:01
Vorboðinn snemma á ferðinni "Rauðmaginn er snemma á ferðinni, vorboðinn og við höfum verið að fá mikið af honum ," sagði Óskar Guðmundsson útgerðarmaður, en rauðmagi hefur verið nefndur vorboði. "Við erum farnir að fá rauðmaga í desember." 10.1.2005 00:01
Bíll á varnargarði Hálfþrítugur maður slasaðist alvarlega þegar hann missti stjórn á bifreið sinni og hafnaði á sjóvarnargarði við Faxagötu í Reykjavík skömmu fyrir klukkan átta í gærmorgun. 10.1.2005 00:01
Nefnd kanni stöðu sjávarútvegsins Árni M. Mathiesen sjávarútvegsráðherra kynnti á fundi í Stykkishólmi í morgun að hann hygðist skipa nefnd sem ætlað er að gera úttekt á stöðu sjávarútvegsins í ljósi þeirrar hækkunar sem orðið hefur á gengi íslensku krónunnar og væntinga um að gengið haldist hátt um nokkurn tíma. 9.1.2005 00:01
Kjörfundur framlengdur um tvo tíma Yfirkjörstjórn í Palestínu hefur ákveðið að framlengja kjörfund í forsetakosningunum um tvær klukkustundir, eða til sjö í kvöld að íslenskum tíma. Þetta er gert vegna þess að einhverjir Palestínumenn hafa verið stöðvaðir við eftirlitsstöðvar Ísraelshers á leið sinni á kjörstað. 9.1.2005 00:01
Matar- og vatnsskortur yfirvofandi Löggjafinn á hinum afskekktu Andaman- og Níkóbareyjum í Indlandshafi, sem urðu illa úti í flóðbylgjunni annan dag jóla, segir að eftirlifendur á eyjunum séu verða uppiskroppa með mat og vatn. Hann fer fram á að flutningi á hjálpargögnum verði hraðað eins og kostur er, ella muni enn fleiri falla í valinn á eyjunum. 9.1.2005 00:01
Neita að framfylgja reykingabanni Eigendur veitingahúsa og kráa á Ítalíu neita að framfylgja reykingabanni sem tekur gildi á morgun. Banninu, sem upphaflega átti að taka gildi um áramót, var frestað um nokkra daga svo ítalskir reykingamenn gætu fagnað nýju ári á krám og veitingahúsum. 9.1.2005 00:01