Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Umræður á villigötum Björn Bjarnason, dómsmálaráðherra, segir á heimasíðu sinni að umræður um innflytjendamál séu á villigötum. Það sé ekki ámælisvert að aðeins einum flóttamanni hafi verið veitt hér pólitískt hæli. 12.12.2004 00:01
Íhuga gæsluvarhald Lögreglan í Reykjavík íhugar að úrskurða karlmann á miðjum aldri, sem slasaði annan mann alvarlega á veitingastað í Mosfellsbæ í nótt, í gæsluvarðhald. Maðurinn sem fyrir árásinni varð slasaðist alvarlega og hefur legið þungt haldinn með höfuðáverka á gjörgæsludeild í dag. 12.12.2004 00:01
10 létust í Ísrael Tíu Ísraelsmenn létust í dag þegar skæruliðar frá Palestínu sprengdu bílsprengju við herstöð Ísraelsmanna við landamæri Egyptalands og hófu síðan skothríð. Hamas samtökin hafa lýst tilræðinu á hendur sér. 12.12.2004 00:01
Harðari skilyrði fyrir Tyrki Forsætisráðherra Tyrklands segir Evrópusambandið ætla að setja strangari skilyrði fyrir inngöngu Tyrkja í sambandið en annarra þjóða. Hann segir ekkert land hafa þurft að bíða í meira en 40 ár eftir aðild og Evrópusmbandið sé enn hikandi þó að Tyrkir hafi gengið að öllum kröfum sambandsins. 12.12.2004 00:01
Lést eftir líkamsárás Maður á sextugsaldri lést í dag, eftir líkamsárás, á veitingastað, í gærkvöldi. Árásarmaðurinn, sem er 25 ára gamall, var handtekinn og verður gæsluvarðhalds krafist yfir honum. 12.12.2004 00:01
Lögreglurannsókn vegna eitrunar Stjórnvöld í Úkraínu hafa ákveðið að hefja lögreglurannsókn á því hvort eitrað hafi verið fyrir Júsjenkó, leiðtoga stjórnarandstöðunnar í Úkraínu, og forsetaframbjóðanda. Kannanir sýna að Júsénkó hefur tíu prósentustiga forskot á keppinaut sinn, en kosningarnar verða endurteknar þann 26. desember næstkomandi. 12.12.2004 00:01
Ný stjórn tryggir brottflutning Takist að mynda nýja stjórn í Ísrael er brottflutningur Ísraela frá Gaza-svæðinu tryggður og friðvænlegra horfir á svæðinu. Viðræður eru hafnar um stjórn sem er sammála um að leggja niður landnemabyggðir Ísraela á Gaza-svæðinu og eftirláta Palestínumönnum svæðið. 12.12.2004 00:01
Stuldur á við kostnað menntakerfis Skattsvikarar stela jafn miklu af samfélaginu á hverju ári og kostar reka allt skólakerfið á Íslandi. Skattsvikin eru talin nema allt að þrjátíu og fimm milljörðum. Jóhanna Sigurðardóttir alþingismaður fagnar tillögum starfshóps fjármálaráðherra sem vill stórefla skatteftirlit og veita eftirlitsmönnum auknar heimildir til að fylgjast með stórfyrirtækjum og afla upplýsinga um bankainnistæður og fjármagnsflutninga. 12.12.2004 00:01
Fólk verslar dýrari vöru Kaupmenn búast við mun meiri jólaverslun í ár en fyrir síðustu jól. Emil B. Karlsson hjá Samtökum verslunar og þjónustu segir áberandi að fólk sé að kaupa dýrari gjafavöru en áður enda séu meiri peningar í umferð. 12.12.2004 00:01
Eldra fólki í auknum mæli sagt upp Ögmundur Jónasson, formaður BSRB, segir æ algengara að roskið fólk sé rekið úr vinnu skömmu áður en það fer á eftirlaun í nafni hagræðingar. Sterk tengsl eru milli ástands á vinnumarkaði og örorku, samkvæmt nýrri rannsókn sem birt er í Læknablaðinu. 12.12.2004 00:01
Fimm bílar ultu í hálku Fimm bílar ultu á Suðurlandi á tæpum sólarhring í gær og fyrradag. Lögreglan á Selfossi segir að gífurlega mikil hálka hafi verið í uppsveitum Árnessýslu. Lögreglan á Selfossi lýsir eftir ökumanni nýlegrar rauðrar Nissan Patrol jeppabifreiðar sem var líklega valdur að einu slysinu. 12.12.2004 00:01
Ók á fjögur hreindýr Ekið var á fjögur hreindýr á Kárahnjúkavegi á Fljótsdalsheiði um klukkan níu í gærmorgun. Þoka var á svæðinu og hált. Tvö hreindýr drápust í árekstrinum og hin tvö þurfti að aflífa vegna sára. Ökumaðurinn sagðist ekki hafa séð dýrin í myrkrinu. 12.12.2004 00:01
Róttækar aðgerðir gegn skattsvikum Fjárhæðir sem skotið er undan skatti samsvara kostnaði við rekstur alls skólakerfis á landinu. Nefnd sem kannaði umsvif skattsvika leggur til róttækar tillögur til að taka á vandanum. Þingmaður Samfylkingar vill loka strax fyrir smugur fyrir skattsvik. </font /></b /> 12.12.2004 00:01
Hækkun á ábyrgð orkufyrirtækja Valgerður Sverrisdóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, segir að fyrirhugaðar hækkanir Orkuveitu Reykjavíkur og Hitaveitu Suðurnesja á raforkuverði standist ekki skoðun. Forsvarsmenn fyrirtækjanna hafa sagt að ný raforkulög leiði til mikillar hækkunar á raforkuverði á höfuðborgarsvæðinu um áramót. 12.12.2004 00:01
Lést af völdum hnefahöggs Maður á sextugsaldri lést á sjúkrahúsi í gær af völdum höfuðhöggs. Maðurinn hafði verið að skemmta sér með eiginkonu sinni og var komið undir lokun þegar hann var sleginn þungu höggi neðarlega á kjálka á veitingastaðnum Ásláki í Mosfellsbæ. Hálfþrítugur maður hefur játað að hafa lent í átökum á veitingastaðnum. Sá hefur verið úrskurðaður í tveggja vikna gæsluvarðhald. 12.12.2004 00:01
Teikningar Sigmunds á 18 milljónir Ríkið mun greiða Sigmund Jóhannssyni átján milljónir króna fyrir skopteikningar sem birst hafa í Morgunblaðinu síðastliðna hálfa öld. Vefmiðilinn eyjar.net greinir frá þessu. Einnig kemur fram að sett verði á stofn sérstakt Sigmundssafn í Vestmannaeyjum. 12.12.2004 00:01
Hillir undir samstarf Forsætisráðherra Ísrael, Ariel Sharon, hóf í gær viðræður við stjórnmálaflokka strangtrúaðra gyðinga um myndun nýrrar stjórnar. Þær viðræður munu fara fram á sama tíma og Sharon ræðir við Verkamannaflokkinn, sem er helsti stjórnarandstöðuflokkurinn í Ísrael. 12.12.2004 00:01
Hóta sniðgöngu Stærsti stjórnmálaflokkur súnníta í Írak hefur aftur hótað að sniðganga kosningarnar sem fram eiga að fara í janúar, verði þeim ekki frestað. 12.12.2004 00:01
Biður Kúvæta afsökunar Leiðtogi PLO, Mahmud Abbas, bað Kúvæta afsökunar á því að styðja Saddam Hussein í innrás Íraka í Kúvæt 1990, þegar hann heimsótti emírsdæmið í gær. 12.12.2004 00:01
Sprengja á markaði Að minnsta kost 15 létust og 58 slösuðust þegar sprengja sprakk á fjölmennum markaði í suðurhluta Filippseyja í gær. Heimagerð sprengja, eða handsprengja, falin í kassa sprakk á markaðnum í General Santosborg. Öryggisgæslan var þegar hert, því óttast var að árásirnar yrðu fleiri. 12.12.2004 00:01
Vilja sambærileg laun og kennarar Fulltrúar leikskólakennara og launanefndar sveitarfélaganna verða boðaðir til fundar hjá Ríkssáttasemjara í dag, að sögn Ásmundar Stefánssonar. Upp úr viðræðum slitnaði á föstudag. Ásmundur segir að tilkynnt verði um næstu skref í viðræðunum eftir þann fund. 12.12.2004 00:01
Þögul mótmæli Um þúsund manns komu saman í miðborg Kaíró í Egyptalandi á sunnudag. Margir þeirra voru með gula límmiða límda yfir munn sinn, sem á stóð "Nóg". 12.12.2004 00:01
Áskorun afhent Síðastliðinn föstudag, sem var alþjóðlegi mannréttindadagurinn, lauk 16 daga átaki gegn kynbundnu ofbeldi. Í tilefni þess afhentu aðstandendur átaksins forsætisráðherra, forseta Alþingis og forseta Hæstaréttar áskorun. 12.12.2004 00:01
Eldur í JL húsinu Eldur kom upp í versluninni Nóatúni í JL húsinu við Hringbraut fyrr í kvöld. Slökkvilið er á staðnum og vinnur að reykræstingu. 11.12.2004 00:01
Skip NATO á Íslandi Nokkur skip úr fastaflota Atlantshafsbandalagsins eru komin til Reykjavíkur og liggja í Sundahöfn. Skipin hafa að undanförnu verið að æfingum. Almenningi gefst tækifæri til að skoða skipin í dag og á morgun. 11.12.2004 00:01
Samstarfsmaður Berlusconi dæmdur Ítalskir dómstólar dæmdu í morgun náinn samstarfsmann Berlusconis, forsætisráðherra Ítalíu, og viðskiptafélaga, í níu ára fangelsi fyrir að vinna með mafíunni. Berlusconi sjálfur var í gær sýknaður af ákæru um að hafa þegið mútur. 11.12.2004 00:01
Fíkniefni í íbúðarhúsi á Akranesi Lögreglan á Akranesi lagði í gærkvöldi hald á nokkuð af fíkniefnum við húsleit í íbúðarhúsi í bænum. Tíu grömm af hassi fundust og 13 grömm af amfetamíni. Einn karlmaður var handtekinn vegna málsins og viðurkenndi hann við yfirheyrslur að vera eigandi efnanna og var sleppt að loknum yfirheyrslum. 11.12.2004 00:01
Minnst 5 látnir eftir árásir Andspyrnumenn í Bagdad í Írak réðust í morgun að öryggissveitum og inn á lögreglustöðvar á nokkkrum stöðum í landinu. Að minnsta kosti fimm eru látnir og munn fleiri eru særðir. Þá gerðu þeir árás á starfsmenn menntamálaráðuneytisins, þar sem þeir sátu í rútu. 11.12.2004 00:01
Trillu hjálpað nálægt Garðskaga Björgunarskipið Hannes Þ. Hafstein kom 15 tonna trillu til aðstoðar í nótt. Stýri trillunnar bilaði þegar hún var sjö sjómílur norðvestur af Garðskagavita og var björgunarskipið kallað út klukkan fjögur. Ágætis veður var á þessum slóðum í nótt, hægur vindur og úrkomulaust og því lítil hætta á ferðum. 11.12.2004 00:01
Átök vaxa í aðdraganda kosninga Andspyrnumenn í Írak stóðu fyrir fjölda tilræða síðastliðin sólarhring, og réðust meðal annars inn á lögreglustöðvar víðs vegar um landið. Átök vaxandi í landinu eftir því sem nær dregur kosningum. 11.12.2004 00:01
Skattsvik upp á 35 milljarða Starfshópur sem kannaði umfang skattsvika hérlendis telur að tekjutap ríkis og sveitarfélaga nemi allt að 35 milljörðum á ári. Sú starfsemi sem mest er hætt við undanskotum er byggingastarfsemi og mannvirkjagerð, veitingarekstur og hverskyns persónuleg þjónusta. 11.12.2004 00:01
Bóluefnabanki settur á laggirnar Sjö helstu iðnríki heims hafa ákveðið að koma á laggirnar bóluefnabanka, til að verjast sýkla- og efnavopnaárás hryðjuverkamanna, sem talin er geta orðið hvenær sem er. 11.12.2004 00:01
Leigumarkaðurinn hefur batnað Staðan á leigumarkaði hefur batnað mikið síðustu ár, að mati nefndar sem félagsmálaráðherra skipaði til að fara yfir stöðuna á leigumarkaði og koma með tillögur til úrbóta. Nefndin var skipuð í júlí á síðasta ári og skilaði hún niðurstöðum í síðasta mánuði. 11.12.2004 00:01
Hermaður dæmdur í fangelsi í Írak Bandarískur hermaður var í morgun dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir að skjóta á og myrða alvarlega særðan Íraka fyrr á þessu ári. Hermaðurinn játaði sig sekan, en sagðist hafa verið að lina þjáningar mannsins. 11.12.2004 00:01
Júsjenkó varð fyrir eitrun Viktor Júsjenkó, forsetaframbjóðandi í Úkraínu varð fyrir dioxineitrun, en ekki er enn vitað hvort eitrað hafi verið fyrir honum af ásettu ráði. Læknar sem rannsakað hafa Júsjenkó undanfarna daga segja engan vafa leika á því að Júsjenkó hafi orðið fyrir dioxineitrun og líklega hafi hann fengið það í gegnum munninn. 11.12.2004 00:01
2 háttsettir embættismenn skotnir Tveir háttsettir embættismenn innan bráðabirgðastjórnarinnar í Írak voru skotnir niður í suðvesturhluta Baghdad í morgun. Mennirnir voru á leið til vinnu þegar byssumenn létu til skarar skríða og hófu skothríð á bifreið þeirra. 11.12.2004 00:01
54 blaðamenn drepnir á árinu Árið sem nú er senn á enda er hið mannskæðasta í stétt blaðamanna um áratuga skeið. Alls hafa 54 blaðamenn verið myrtir við störf sín í ár, þar af 23 í Írak. Þá eru ótaldir þeir sem látist hafa úr slysum eða árásum þegar þeir hafa ekki verið við störf. Næstflestir hafa verið myrtir á Fillipseyjum, eða átta. 11.12.2004 00:01
Flogið til Vietnam á nýjan leik Bandaríska flugfélagið United Airlines hefur hafið áætlunarflug til Vietnam og þar með komið á fyrstu almennu samgöngunum á millli landanna tveggja síðan Vietnamstríðinu lauk. Flugið tekur tuttugu klukkustundir og er flogið í 347 sæta boing 747 flugvél. 11.12.2004 00:01
Rúmar 6 milljónir fóru í laun Listamönnum sem komu fram á tónleikum sem haldnir voru til styrktar Styrktarfélagi krabbameinssjúkra barna í Hallgrímskirkju, var greitt ríflega 6,2 milljónir fyrir framlag sitt. Ekki hefur verið gefið upp hve mikið hver þeirra fékk fyrir sinn snúð. Alls komu fram fjórir einsöngvarar, 23 tónlistarmenn og yfir 250 kórfélagar á tónleikunum. 11.12.2004 00:01
Enn talað um eitrun Úr hverju dó Arafat? Þessari spurningu hefur ekki verið svarað með fullnægjandi hætti, og enn er því haldið fram að honum hafi verið byrlað eitur. 11.12.2004 00:01
Björgunarskip kallað út Hannes Þ. Hafstein frá Sandgerði, björgunarskip Slysavarnafélagsins Landsbjargar, var kallað út klukkan fjögur í fyrrinótt eftir að fimmtán tonna trilla óskaði aðstoðar. 11.12.2004 00:01
Fíkniefni fundust Húsleit var framkvæmd í íbúðarhúsnæði á Akranesi á föstudagskvöld. Að sögn lögreglunnar á Akranesi lék grunur á að fíkniefni væru þar innandyra. 11.12.2004 00:01
Ákærður fyrir tilraun til manndráp Ríkissaksóknari hefur ákært karlmann sem kærður var fyrir tilraun til manndráps í júlí í sumar. Karlmaðurinn er sakaður um að hafa reynt að skera leigubílstjóra á háls í Vesturbæ Reykjavíkur. 11.12.2004 00:01
Bílvelta við Eyrarhlíð Bifreið valt um hádegisbilið á laugardag við Eyrarhlíð í umdæmi lögreglunnar á Ísafirði. 11.12.2004 00:01
Allt ónýtt í Nóatúni Eldur kviknaði rétt eftir miðnætti í verslun Nóatúns í JL-húsinu í gærnótt. Allt er eyðilagt í versluninni en engin slys voru á fólki. Talið er að eldur hafi kviknað í kringum kjötborð verslunarinnar. Starfsfólk þarf ekki að hafa áhyggjur af starfi sínu. 11.12.2004 00:01