Innlent

Fjórðungur kvótans til Vestfjarða

3200 tonna byggðakvóta var úthlutað í gær. Rúmur fjórðungur alls byggðakvótans fer til Vestfjarða. Eins og oft áður var ný aðferð notuð við úthlutun byggðakvótans í ár. Sá háttur var hafður á að sveitarfélögin óskuðu eftir byggðakvóta og urðu bæði að uppfylla viss skilyrði og færa rök fyrir þörfinni. Tvær meginástæður voru lagðar til grundvallar úthlutuninni: Annars vegar samdráttur í veiðum og vinnslu botnfisks og hins vegar óvænt skerðing, einkum í veiðum og vinnslu á rækju og hörpuskel. Þar sem samdráttar gætti máttu heldur ekki fleiri en fimmtán hundruð manns búa. Þrjátíu og níu umsóknir bárust um byggðakvóta og var kvóta úthlutað til fjörutíu byggðarlaga í 32 sveitarfélögum. Í sjö tilfellum var umsókn hafnað, ýmist vegna þess að viðkomandi byggðarfélag var of stórt eða vegna þess að ekki mátti greina neinn almennan samdrátt þó að veiðar og vinnsla hefðu dregist saman. Má þar nefna Vestmannaeyjar og Fjarðarbyggð. Ísafjarðarbær fékk stærstu úthlutunina, 210 tonn, en samtals koma rúm 848 tonn af byggðakvóta úr úthlutun sjávarútvegsráðuneytisins í hlut Vestfirðinga. Stykkishólmur og Siglufjörður hlutu 205 tonn. Austurbyggð fékk 200 tonn.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×