Fótbolti

Hætta við á­form um Afríkukeppnina í fót­bolta

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Senegalinn Sadio Mane með bikarinn sem senegalska landsliðið vann en missti svo vegna kæru Marokkóbúa.
Senegalinn Sadio Mane með bikarinn sem senegalska landsliðið vann en missti svo vegna kæru Marokkóbúa. EPA/JALAL MORCHIDI

Afríska knattspyrnusambandið vildi halda Afríkukeppnina á fjögurra ára fresti en nú hefur sambandið snúið við blaðinu.

Ástæðan er meðal annars áhyggjur af fjármálum og skipulagningu, skrifar Knattspyrnusamband Afríku í fréttatilkynningu.

CAF ákvað í fyrra að Afríkukeppnin skyldi haldin á fjögurra ára fresti frá og með árinu 2028. Nú verður hún þess í stað áfram haldin annað hvert ár, eins og verið hefur frá árinu 1968.

„Ákvörðunin var tekin til að efla, vernda og gæta hagsmuna afrískrar knattspyrnu, 54 aðildarsambanda CAF og afrískra leikmanna sem leika með félögum utan Afríku,“ sagði Patrice Motsepe, forseti CAF, í yfirlýsingu.

Motsepe hafði þegar fyrr í október tilkynnt að stjórn CAF myndi koma saman til að endurskoða áformin sem samþykkt voru í fyrra.

Það spilar einnig inn í að Afríka hefur stofnað Þjóðadeild sem á að hefjast eftir nokkur ár.

„Við höfðum einnig áhyggjur af því að það tæki nokkur ár áður en fyrirhuguð Þjóðadeild, sem átti að vera eins og núverandi Afcon og haldin annað hvert ár, gæti skapað það fjárhagslega öryggi og þau framlög til knattspyrnuþróunar sem þarf til að afrísk knattspyrna og keppnir CAF verði samkeppnishæfar á heimsvísu og sjálfbærar,“ sagði Motsepe.

Kenía, Tansanía og Úganda eru gestgjafar næstu Afcon-keppni árið 2027. Keppnirnar þar á eftir fara fram 2028, 2031 og 2033.

Engin Afríkukeppni verður haldin árið 2030 til að forðast árekstur við HM.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×