Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjartan Kjartansson skrifar 27. október 2026 09:02 Kapphlaup tæknifyrirtækja til að þróa gervigreind hefur leitt til enn meiri eftirspurnar efttir jarðefnaeldsneyti til þess að knýja aragrúa gagnavera eins og þetta í Virginíu í Bandaríkjunum sem gengur fyrir jarðgasi og dísilolíu. Vísir/Getty Styrkur gróðurhúsalofttegunda í lofthjúpi hefur aldrei verið hærri en í fyrra frá því að mælingar hófust og líklegast ekki í milljónir ára. Aðeins hægði á vaxandi styrk þeirra borið saman við metárið 2024 en hann er engu að síður vel yfir meðaltali áratugarins. Árið 2024 lögðust stórfelld losun manna á gróðurhúsalofttegundum og ákafir gróðureldar, sem hnattræn hlýnun hefur bein áhrif á, á eitt um að valda mestu aukningu í styrk þeirra á milli ára sem sögur fara af. Veðurfyrirbrigðið El niño magnaði þá upp áhrif hnattrænnar hlýnunar. Aukningin í fyrra var nokkuð minni, 2,8 hlutar af milljón (ppm) borið saman við 3,5 hluta á milli á milli 2023 og 2024 samkvæmt nýjum tölum Alþjóðaveðurfræðistofnunarinnar (WMO). Meðalstyrkur koltvísýrings nam 426,8 hlutum af milljón í fyrra sem er 53 prósent meira en áður en menn byrjuðu að brenna jarðefnaeldsneyti í iðnbyltingunni. Að meðaltali hefur styrkur koltvísýrings í lofthjúpnum aukist um 2,4 ppm á ári á síðasta áratuginn. Það er þrefalt hraðar en árið 1960. Á sama tíma hefur styrkur metans aukist um 167 prósent og niturdíoxíðs um 26 prósent frá iðnbyltingu. Þó að báðar lofttegundir séu enn öflugri gróðurhúsalofttegundir en koltvísýringur hefur síðastnefnda lofttegundni mest áhrif á hlýnunarmátt lofthjúps jarðar. Lofttegundir eins og koltvísýringur, metan og vatnsgufa eru nefndar gróðurhúsalofttegundir vegna hlýnunaráhrifa sem þær hafa. Þær hleypa sólargeislum greiðlega í gegnum sig en drekka í sig varmageislun frá jörðinni. Ef ekki væri fyrir gróðurhúsaáhrifin væri meðalhitinn við yfirborð jarðar meira en þrjátíu gráðum lægri. Mannkynið hefur magnað upp gróðurhúsaáhrifin og valdið hlýnun með því að dæla gríðarlegu magni af kolefni út í lofthjúpinn frá upphafi iðnbyltingarinnar. Koltvísýringur er langlífur í lofthjúpnum og safnast upp þar. Styrkur koltvísýrings í lofthjúpnum nú er talinn sá mesti í um fjórar milljónir ára. Vegna þessarar uppsöfnuðu losunar lækkaði meðalhiti jarðar ekki aftur til fyrra horfs jafnvel þó að menn hættu allri losun gróðurhúsalofttegunda strax. Nýjasta metið yfir styrk gróðurhúsalofttegunda mun aðeins endast í eitt ár. Mannkynið losar nú ríflega fjörutíu milljarða tonna af koltvísýringsígildum á hverju ári. Ólíkt svifryksmengun yfir umferðarþungum götum sem þynnist og dreifist safnast gróðurhúsalofttegundir upp í lofthjúpnum til lengri tíma. Koltvísýringssameindir geta þannig verið í lofthjúpnum í aldar og allt að árþúsund. Þar auka þær hlýnunarmátt lofthjúpsins með svonefndum gróðurhúsaáhrifum sem fanga hita við yfirborð jarðar. Líkur eru jafnframt á að aukningin eigi eftir að taka enn meiri kipp í ár og á næsta ári vegna sögulega öflugs El niño sem gerjast nú í Kyrrahafi. Reiknað er með því að hann magni upp loftslagshamfarir eins og þurrka og gróðurelda sem draga úr getu jarðar til þess að binda kolefni vel fram á næsta ár. Undanfarin ellefu ár eru nú öll á meðal ellefu hlýjustu ára í mælingarsögunni. Eina þekkta leiðin til þess að stöðva frekari hnattræna hlýnun er að hætta alfarið losun gróðurhúsalofttegunda, sem menn losa fyrst og fremst með bruna á jarðefnaeldsneyti. Til þess að vinda ofan af þeirra hlýnun sem þegar hefur átt sér stað og mun fyrirsjáanlega verða vegna áframhaldandi losunar mun mannkynið jafnframt þurfa að þróa tækni til þess að fanga kolefni úr lofthjúpnum og farga því í stórum stíl. Slík tækni er afar skammt á veg komin og langt frá því að farga slíku magni að það grynnkaði merkjanlega á því kolefni sem menn hafa bætt við lofthjúpinn síðustu rúmu tvö hundruð árin. Loftslagsmál Vísindi Jarðefnaeldsneyti Bensín og olía Mest lesið Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent Gefur meirihlutanum falleinkunn Innlent „Von okkar er að lík Lúlla finnist og við getum jarðað hann“ Innlent Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Innlent „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent „Ljóst að þetta snýst um rekstur borgarinnar“ Innlent Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Erlent Fjörutíu föngum fylgt úr landi fyrstu níu mánuði ársins Innlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent Fleiri fréttir Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Sjá meira
Árið 2024 lögðust stórfelld losun manna á gróðurhúsalofttegundum og ákafir gróðureldar, sem hnattræn hlýnun hefur bein áhrif á, á eitt um að valda mestu aukningu í styrk þeirra á milli ára sem sögur fara af. Veðurfyrirbrigðið El niño magnaði þá upp áhrif hnattrænnar hlýnunar. Aukningin í fyrra var nokkuð minni, 2,8 hlutar af milljón (ppm) borið saman við 3,5 hluta á milli á milli 2023 og 2024 samkvæmt nýjum tölum Alþjóðaveðurfræðistofnunarinnar (WMO). Meðalstyrkur koltvísýrings nam 426,8 hlutum af milljón í fyrra sem er 53 prósent meira en áður en menn byrjuðu að brenna jarðefnaeldsneyti í iðnbyltingunni. Að meðaltali hefur styrkur koltvísýrings í lofthjúpnum aukist um 2,4 ppm á ári á síðasta áratuginn. Það er þrefalt hraðar en árið 1960. Á sama tíma hefur styrkur metans aukist um 167 prósent og niturdíoxíðs um 26 prósent frá iðnbyltingu. Þó að báðar lofttegundir séu enn öflugri gróðurhúsalofttegundir en koltvísýringur hefur síðastnefnda lofttegundni mest áhrif á hlýnunarmátt lofthjúps jarðar. Lofttegundir eins og koltvísýringur, metan og vatnsgufa eru nefndar gróðurhúsalofttegundir vegna hlýnunaráhrifa sem þær hafa. Þær hleypa sólargeislum greiðlega í gegnum sig en drekka í sig varmageislun frá jörðinni. Ef ekki væri fyrir gróðurhúsaáhrifin væri meðalhitinn við yfirborð jarðar meira en þrjátíu gráðum lægri. Mannkynið hefur magnað upp gróðurhúsaáhrifin og valdið hlýnun með því að dæla gríðarlegu magni af kolefni út í lofthjúpinn frá upphafi iðnbyltingarinnar. Koltvísýringur er langlífur í lofthjúpnum og safnast upp þar. Styrkur koltvísýrings í lofthjúpnum nú er talinn sá mesti í um fjórar milljónir ára. Vegna þessarar uppsöfnuðu losunar lækkaði meðalhiti jarðar ekki aftur til fyrra horfs jafnvel þó að menn hættu allri losun gróðurhúsalofttegunda strax. Nýjasta metið yfir styrk gróðurhúsalofttegunda mun aðeins endast í eitt ár. Mannkynið losar nú ríflega fjörutíu milljarða tonna af koltvísýringsígildum á hverju ári. Ólíkt svifryksmengun yfir umferðarþungum götum sem þynnist og dreifist safnast gróðurhúsalofttegundir upp í lofthjúpnum til lengri tíma. Koltvísýringssameindir geta þannig verið í lofthjúpnum í aldar og allt að árþúsund. Þar auka þær hlýnunarmátt lofthjúpsins með svonefndum gróðurhúsaáhrifum sem fanga hita við yfirborð jarðar. Líkur eru jafnframt á að aukningin eigi eftir að taka enn meiri kipp í ár og á næsta ári vegna sögulega öflugs El niño sem gerjast nú í Kyrrahafi. Reiknað er með því að hann magni upp loftslagshamfarir eins og þurrka og gróðurelda sem draga úr getu jarðar til þess að binda kolefni vel fram á næsta ár. Undanfarin ellefu ár eru nú öll á meðal ellefu hlýjustu ára í mælingarsögunni. Eina þekkta leiðin til þess að stöðva frekari hnattræna hlýnun er að hætta alfarið losun gróðurhúsalofttegunda, sem menn losa fyrst og fremst með bruna á jarðefnaeldsneyti. Til þess að vinda ofan af þeirra hlýnun sem þegar hefur átt sér stað og mun fyrirsjáanlega verða vegna áframhaldandi losunar mun mannkynið jafnframt þurfa að þróa tækni til þess að fanga kolefni úr lofthjúpnum og farga því í stórum stíl. Slík tækni er afar skammt á veg komin og langt frá því að farga slíku magni að það grynnkaði merkjanlega á því kolefni sem menn hafa bætt við lofthjúpinn síðustu rúmu tvö hundruð árin.
Lofttegundir eins og koltvísýringur, metan og vatnsgufa eru nefndar gróðurhúsalofttegundir vegna hlýnunaráhrifa sem þær hafa. Þær hleypa sólargeislum greiðlega í gegnum sig en drekka í sig varmageislun frá jörðinni. Ef ekki væri fyrir gróðurhúsaáhrifin væri meðalhitinn við yfirborð jarðar meira en þrjátíu gráðum lægri. Mannkynið hefur magnað upp gróðurhúsaáhrifin og valdið hlýnun með því að dæla gríðarlegu magni af kolefni út í lofthjúpinn frá upphafi iðnbyltingarinnar. Koltvísýringur er langlífur í lofthjúpnum og safnast upp þar. Styrkur koltvísýrings í lofthjúpnum nú er talinn sá mesti í um fjórar milljónir ára. Vegna þessarar uppsöfnuðu losunar lækkaði meðalhiti jarðar ekki aftur til fyrra horfs jafnvel þó að menn hættu allri losun gróðurhúsalofttegunda strax.
Loftslagsmál Vísindi Jarðefnaeldsneyti Bensín og olía Mest lesið Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent Gefur meirihlutanum falleinkunn Innlent „Von okkar er að lík Lúlla finnist og við getum jarðað hann“ Innlent Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Innlent „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent „Ljóst að þetta snýst um rekstur borgarinnar“ Innlent Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Erlent Fjörutíu föngum fylgt úr landi fyrstu níu mánuði ársins Innlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent Fleiri fréttir Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Sjá meira