Uppgjörið: Stjarnan – Valur 6-0 | Burstuðu Val og unnu Forsetabikarinn Þorsteinn Hjálmsson skrifar 24. október 2026 15:52 Stjörnumenn unnu upp stórt forskot Valsmanna og tryggðu sér Forsetabikarinn. Vísir/Guðmundur Þórlaugarson Stjarnan hampaði í dag hinum svokallaða Forsetabikar með því að sigra Val 6-0 í Garðabænum. Fyrir leikinn var ljóst að Stjarnan myndi þurfa sex marka sigur til þess að fara upp fyrir Val í töflunni og enda efstir í neðri hlutanum og raun gerðist það. Þetta var hins vegar skammarlegur endir á hræðilegu tímabili hjá Val. Fyrir leik voru þeir Árni Snær Ólafsson markvörður Stjörnunnar, Guðmundur Kristjánsson fyrirliði Stjörnunnar, Sæmundur Friðjónsson fráfarandi yfirmaður knattspyrnudeildar Stjörnunnar og Bjarni Jóhannsson fyrrverandi þjálfari Stjörnunnar heiðraðir fyrir framlag sitt til félagsins. Eru þeir allir að binda enda á ferla sína og kveðja sviðið með einum eða öðrum hætti að þessu tímabili loknu. Leikurinn í dag hefði átt að vera lokaleikur Hólmars Arnar Eyjólfssonar varnarmanns Vals á farsælum ferli en veikindi í vikunni og meiðsli gerðu það að verkum að ekkert varð úr því. Hólmar Örn var því í þjálfarateymi Vals í leiknum í dag þegar hann kvaddi leikmannaferil sinn. Gestirnir í Val hófu leikinn miklu betur og komust heimamenn í Stjörnunni varla yfir miðju fyrsta korterið. Það var þó einmitt þá, á 14. mínútu, sem Stjarnan beit frá sér. Benedikt Warén komst þá á hægri fótinn fyrir utan teig og náði skoti sem Stefán Þór Ágústsson í marki Vals varði beint út í teiginn. Í frákastinu kom Guðmundur Baldvin Nökkvason aðvífandi og vippaði yfir Stefán Þór og í markið. Þetta var snyrtileg afgreiðsla. Sjö mínútum seinna tvöfaldaði Stjarnan forystu sína. Vörn Vals var þá galopin og komst Örvar Eggertsson inn fyrir hana og renndi boltanum fyrir markið á Birni Snæ Ingason sem gat ekki annað en skorað af stuttu færi. Þetta var áhugaverð framvinda á leiknum miðað við yfirburði Vals úti á velli. Næsta mark kom á 35. mínútu og aftur hjá heimamönnum. Valsmenn höfðu þá verið meira og minna með boltann í tíu mínútur við teig Stjörnunnar en fengu svo skyndisókn í bakið. Örvar Eggertsson, Benedikt Warén og Birnir Snær þutu fram völlinn á fáliðaða vörn Vals, sem endaði með því að Birnir Snær skoraði sitt annað mark og það aftur fyrir opnu marki. Stjörnumenn voru þarna komnir í ham og skoruðu strax aftur tveimur mínútum síðar þegar Örvar stangaði boltann inn eftir hornspyrnu. Heimamenn voru alls ekki hættir því tveimur mínútum fyrir hálfleiksflautið negldi Guðmundur Baldvin boltanum í netið af um 25 metra færi og staðan 5-0 í hálfleik. Stuðningsmenn Vals púuðu hressilega á sitt lið þegar það gekk af velli í hálfleik. Síðari hálfleikurinn bauð upp á lítið fyrir augað. Eitt það markverðasta gerðist þegar tíu mínútur voru eftir af leiknum þegar Guðmundi Kristjánssyni var skipt inn á í sínum lokaleik á ferlinum. Stjörnumenn klöppuðu vel fyrir Guðmundi þegar honum var skipt inn á. Með þeirri innkomu fylgdi smá kraftur sem dugði til þess að Stjörnumenn skoruðu sitt sjötta mark. Fín rispa upp vinstri kantinn hjá Stjörnunni endaði með skoti utarlega í teignum frá Guðmundi Baldvini og lá boltinn í netinu. Guðmundur Baldvin með þrennu. Atvik leiksins Sjötta markið kórónaði afhroð Valsmanna. Ekki nóg með að fá sex mörk á sig þá misstu þeir Stjörnuna upp fyrir sig í töflunni, sem átti nánast að vera útilokað. Til þess að rökstyðja það þá var búið að rista nafn Vals á Forsetabikarinn sem afhentur var Stjörnunni að leik loknum. Stjörnur og skúrkar Stjarnan spilaði með tígulmiðju í leiknum í dag með Birni Snæ í holunni og Örvar og Benedikt Warén í fremstu víglínu. Allir þrír voru flugbeittir sóknarlega í dag. Guðmundur Baldvin stóð svo upp úr á miðjunni hjá heimamönnum með sín þrjú mörk. Í þessari upptalningu á stjörnum leiksins verður að nefna eina framtíðarstjörnu. Hinn 15 ára gamli Arnar Breki Björnsson spilaði eins og herforingi í miðri vörn Stjörnunnar í sínum fyrsta byrjunarliðsleik fyrir liðið og lék hann allan leikinn. Þrátt fyrir að Valsmenn hafi spilað ágætlega úti á velli í fyrri hálfleik þá er ekkert annað í boði en að skammast sín eftir flengingu sem þessa. Að vera 5-0 undir í hálfleik er óboðlegt í alla staði. Dómarar Ekki reyndi mikið á Svein Arnarsson og hans teymi í þessum leik. Dómararnir geta farið ánægðir inn í veturinn eftir þessa frammistöðu í lokaumferð tímabilsins. Stemning og umgjörð Kalt, bjart og kyrrlátt veður á höfuðborgarsvæðinu í dag og í raun flott fótboltaveður. Fínasta mæting á þennan lokaleik í ljósi þess að lítið sem ekkert var undir, 456 manns á vellinum. Fólk virtist vera mætt á völlinn fyrst og fremst til þess að fá að hylla þá sem voru að kveðja sviðið. Það andrúmsloft breyttist þó eftir fyrri hálfleikinn. Valsarar í stúkunni púuðu vel á sitt lið þegar það gekk af velli í hálfleik og var nokkrum það misboðið að þeir létu sig hverfa í hálfleik og héldu heim. Liðið var einnig púað af velli í leikslok og lenti Samúel Kári Friðjónsson, fyrirliði Vals í leiknum, í orðaskaki við stuðningsmenn eftir leik. Guðmundur/Vísir Brynjar Kristmundsson: „Ungur leiðtogi og bara maður leiksins í dag“ Brynjar Kristmundsson, einn af þjálfurum Stjörnunnar, var afar sáttur eftir leik dagsins í Garðabænum. „Þetta var stórkostleg frammistaða. Við sýndum það að við getum spilað vel. Við vorum kannski öðruvísi en við höfum oft verið. Það komu langir kaflar þar sem við vorum ekki að snerta boltann, en menn voru að verjast, loka svæðum og hjálpa hvor öðrum. Við vitum það að við erum ógeðslega góðir í fótbolta og við sýndum það þegar við vorum með boltann, við nýttum þær stöður ógeðslega vel. Geðveik frammistaða.“ „Menn voru smá lengi að finna fyrir rónni að vera kannski ekki með boltann, þannig að menn voru stundum að æða út úr stöðum af því þeir vildu fara að snerta boltann. Svo náðum við bara fyrsta markinu og þá róaðist þetta allt hjá okkur. Við fórum að vinna boltann þá á betri stöðum, fundum fyrir meira sjálfstrausti og þá fóru hlutirnir að tikka. Frábær mörk, hugrakkt spil og ógeðslega gaman að horfa á það.“ Arnar Breki Björnsson lék sinn fyrsta byrjunarliðsleik fyrir Stjörnuna í dag, en hann er aðeins 15 ára gamall miðvörður. Arnar Breki var frábær í hjarta varnarinnar allar 90 mínúturnar og að mati Brynjars með frammistöðu upp á tíu. „Tíu af tíu frammistaða hjá honum. Stórkostleg frammistaða, steig ekki feilspor varnarlega. Held það hafi verið í marki númer tvö þar sem hann þræðir boltann á milli lína og út frá því fer boltinn út á kant og í mark. Heiður að fá að þjálfa þennan strák. Hann er ekki bara góður í fótbolta heldur er hann með báða fætur á jörðinni, hlustar og er bara leiðtogi. Ungur leiðtogi og bara maður leiksins í dag.“ Brynjar sagðist að lokum ekki vita hvað biði þeirra sem hafa stýrt Stjörnunni undir lok tímabilsins en segir jafnframt liðið vera komið í góðar hendur, en Rúnar Páll Sigmundsson mun taka aftur við liðinu nú í vetur. „Stjarnan fer núna í frábærar hendur Rúnars og það er held ég það sem félagið þarf á að halda.“ Chris Brazell, þjálfari Vals.vísir/anton brink Chris Brazell: „Viðeigandi endir á tímabilinu eins undarlega og það hljómar“ Þrátt fyrir mikil vonbrigði var Chris Brazell, fráfarandi þjálfari Vals, einnig feginn að tímabilinu í Bestu deildinni sé lokið. „Vonbrigði. Á persónulegu nótunum þá er ég bara ánægður með að leiknum sé lokið og tímabilinu einnig. Ég ætla því ekki að vera fýldur á svip og vera miður mín yfir þessum leik. Tímabilinu er nú lokið og félagið í stöðu til þess að líta fram á við. Auðvitað er leikurinn í dag vonbrigði en ég tel það ekki spegla þá vinnu sem leikmenn og þjálfarar hafa lagt á sig undanfarnar vikur og mánuði í erfiðum aðstæðum. Hins vegar tel ég þetta hafa verið kannski mest viðeigandi endir á tímabilinu eins undarlegt og það hljómar.“ „Þetta var hræðilegur endir og ég held að það gæti verið góð spegilmynd af því hvernig tímabilið heildstætt hefur verið hjá félaginu. Ég held að allir, frá mér sjálfum, leikmönnum, stjórn, fólki í stúkunni og öðrum sem eru í kringum félagið, þurfi að taka ábyrgð á þessu. Eins og ég segi þetta eru vonbrigði en kannski réttur endir.“ Aðspurður út í hvernig tilfinningin hafi verið að vera púaður af velli í hálfleik og eftir leik segist Chris vera orðinn vanur því. „Frá mér séð þá er ég vanur þessu. Ég hef verið í þessu starfi í nokkra mánuði í aðstæðum sem reynt hafa á með nokkuð litlum stuðningi. Ég og leikmennirnir erum því orðnir vanir því að takast á við þessar aðstæður. Fyrir mér var þetta því ekki svo erfitt, því ég hef lent í þessu áður í þessu starfi. Ef eitthvað þá var þetta góð áminning um það að verða ekki of þægilegur á þeim stað sem þú ert. Það er enn mikið verk fyrir höndum og í þessu tilviki var það að lágmarka skaðann í hálfleik.“ Chris veit ekki sjálfur hvað bíður hans í framtíðinni en hann stefnir á að vera áfram á Íslandi. Hann vonar að Valur geti hafið nýtt upphaf í vetur. „Ég er óviss með framtíðina. Ég verð ekki hjá Val á næsta tímabili og ég hef vitað það lengi. Ég hef haldið því leyndu á meðan aðrir hafa hins vegar ekki gert það. Það mikilvægasta fyrir félagið núna er að það er nýtt upphaf. Ég er auðvitað svekktur með hvernig þetta hefur farið frá mér séð, sérstaklega út frá því hvernig þetta endaði með upprunalega þjálfarateyminu sem hóf tímabilið. Ég er vonsvikinn að hafa ekki fengið að halda því starfi áfram með þeim lengur en þessa fyrstu leiki. Á heildina litið er ég nokkuð sáttur með mig seinni hlutann eftir að hafa verið í erfiðu starfi í erfiðum aðstæðum. Hvað gerist næst hjá mér kemur í ljós. Þetta hefur samt ekki snúist um mig heldur félagið og liðið og núna er mikilvægt að það verði nýtt upphaf með nýjum þjálfara. Vonandi er hægt að draga lærdóm af þessu tímabili.“ Árni Snær Ólafsson hefur spilað sinn síðasta leik.@fcstjarnan Árni Snær Ólafsson: „Ég hlakka til þess að vera gamli tuðandi kallinn uppi á Skaga“ „Þetta var helvíti skemmtilegt. Mjög skemmtilegt fyrir alla, bara geggjað,“ sagði Árni Snær Ólafsson, markvörður Stjörnunnar, eftir leik. Var þetta síðasti leikur Árna Snæs á ferlinum og segir hann það búið að vera skrítið að hugsa til þess að þessum kafla sé að ljúka. „Það var skrítið. Búið að vera skrítið að hugsa um þetta. Þetta er samt eitthvað sem maður var búinn að ákveða að gera. Að keyra ofan af Skaga einn að pæla í þessu var skrítið.“ En hvað tekur við hjá Árna Snæ? „Finna einhverja vinnu klukkan átta til fjögur. Fylgjast með fótbolta og tuða yfir því. Bara það sama, nema ekki vera í fótbolta. Vera með fjölskyldunni og vera gamli tuðandi kallinn uppi á Skaga, ég hlakka til þess.“ Hugurinn leitar ekki út í þjálfun. „Til að byrja með ætlar maður bara að vera í því að styðja sitt fólk. Strákurinn minn er í 7. flokki og núna er ég helsti stuðningsmaður þeirra.“ Árni Snær er hvað ánægðastur með ferilinn eftir að hafa alltaf komist sterkur til baka eftir þau meiðsli sem hann hefur lent í og verið heilt yfir ferilinn heill heilsu. „Skemmtilegt. Ég náði að vera heill fyrir utan krossband og hásin. Hérna hjá Stjörnunni hef ég verið til taks í flestalla leiki. Það var einn leikur sem ég gat ekki tekið þátt í og það voru einhverjar fréttir um það í sumar. Geggjað að komast úr þeim meiðslum sem ég hef lent í án þess að það hafi áhrif á mann. Ég er ánægðastur með það eftir á og svo auðvitað alla vinina sem maður kynnist í þessum bolta.“ Besta deild karla Stjarnan Valur
Uppgjörið: FH-Þór 1-2 | Þórsarar fögnuðu innilega eftir dramatískan sigur í Laugardalnum Íslenski boltinn
Siggi Höskulds eftir dramatíska björgun Þórs: „Fótbolti er miklu meira en eitthvað xG og kjaftæði“ Íslenski boltinn
Siggi Höskulds eftir dramatíska björgun Þórs: „Fótbolti er miklu meira en eitthvað xG og kjaftæði“
Uppgjörið: FH-Þór 1-2 | Þórsarar fögnuðu innilega eftir dramatískan sigur í Laugardalnum Íslenski boltinn
Siggi Höskulds eftir dramatíska björgun Þórs: „Fótbolti er miklu meira en eitthvað xG og kjaftæði“ Íslenski boltinn