Uppgjörið: Þróttur-Grind/Njarðv. 3-2 | Markaveisla í seinni Gunnar Berg Stefánsson skrifar 23. október 2026 19:55 Þróttur - Breiðablik Besta deild kvenna Haust 2026 vísir/Diego Þróttur lauk tímabilinu með 3-2 sigri á Grindavík/Njarðvík á PEPSI-vellinum í lokaumferð Bestu deildar kvenna í kvöld. Öll fimm mörk leiksins komu í fjörugum síðari hálfleik eftir markalausan fyrri hálfleik. Sierra Marie Lelii skoraði tvö fyrstu mörk Þróttar áður en sjálfsmark Jelenu Tinnu Kujundzic hleypti gestunum aftur inn í leikinn. Bríet Fjóla Bjarnadóttir kom heimakonum aftur tveimur mörkum yfir en Hannah McLaughlin minnkaði muninn úr vítaspyrnu. Nær komust gestirnir þó ekki. Sigurinn dugði Þrótti þó ekki til að ná þriðja sætinu þar sem ÍBV vann Stjörnuna og tryggði sér bronsið. Þróttarar voru hættulegri í upphafi leiks og Taylor Fox í marki Grindavíkur/Njarðvíkur þurfti snemma að verja frá Kaylu Marie Rollins. Kristrún Ýr Holm fékk einnig gott tækifæri þegar boltinn barst til hennar í teignum en skot hennar fór langt fram hjá. Heimakonur héldu áfram að sækja og Björg Gunnlaugsdóttir átti sendingu sem endaði í slánni. Fox varði einnig frá Bríeti Fjólu og Unni Dóru Bergsdóttur. Gestirnir áttu þó sín færi. Tinna Hrönn Einarsdóttir komst í gott færi um miðjan hálfleikinn en skaut fram hjá. Skömmu síðar var hún aftur við það að sleppa í gegn en Mollee Swift kom langt út úr marki Þróttar og náði að hreinsa áður en þær lentu saman. Hvorugu liðinu tókst að brjóta ísinn fyrir hlé en það breyttist heldur betur þegar síðari hálfleikur hófst. Á 47. mínútu lék Björg á Söntu Saniju Vuskane og sendi boltann fyrir markið þar sem Sierra var mætt og kom heimakonum yfir. Aðeins þremur mínútum síðar var Sierra aftur á ferðinni. Sæunn Björnsdóttir tók þá hornspyrnu og Sierra stökk hæst og skallaði boltann í netið. Grindavík/Njarðvík svaraði á 55. mínútu þegar Jelena Tinna varð fyrir því óláni að pota fyrirgjöf í eigið mark. Við það færðist enn meira fjör í leikinn og markverðir beggja liða höfðu nóg að gera. Mollee Swift varði frá Emersen Jennings og Tinnu Hrönn áður en Björg slapp ein í gegn hinum megin. Taylor Fox kom þá vel út á móti henni og varði. Björg átti hins vegar stóran þátt í þriðja marki Þróttar skömmu síðar. Hún fékk boltann á vængnum og renndi honum á Bríeti Fjólu sem fór fram hjá Fox og skoraði úr þröngu færi á 59. mínútu. Gestirnir gáfust ekki upp og minnkuðu muninn á ný á 72. mínútu. Tinna Hrönn átti þá fallega sendingu inn fyrir vörn Þróttar á Sophiu Faith Romine. Hún hugðist fara fram hjá Swift sem braut á henni og Hreinn Magnússon dæmdi vítaspyrnu. Hannah McLaughlin fór á punktinn og skoraði. Þróttur fékk tækifæri til að bæta við fjórða markinu undir lokin þegar boltinn barst til Sigríðar Theód. Guðmundsdóttur í teignum. Skot hennar endaði hins vegar í fangi Taylor Fox. Heimakonur héldu forskotinu út leikinn og fögnuðu sigri í síðasta leik tímabilsins. Atvik leiksins Tvö mörk Sierru á fyrstu fimm mínútum síðari hálfleiks breyttu leiknum. Eftir markalausan fyrri hálfleik voru Þróttarar skyndilega komnir með tveggja marka forskot og gestirnir þurftu að elta það sem eftir lifði leiks. Stjörnur og skúrkar Sierra Marie Lelii setti sterkan svip á leikinn með tveimur mörkum. Björg Gunnlaugsdóttir var einnig áberandi í sóknarleik Þróttar og lagði upp bæði fyrsta og þriðja markið. Bríet Fjóla Bjarnadóttir hélt svo áfram markaskorun sinni og skoraði það sem reyndist sigurmarkið. Taylor Fox átti nokkrar góðar vörslur í marki Grindavíkur/Njarðvíkur, meðal annars þegar Björg slapp ein í gegn í síðari hálfleik. Dómarinn Hreinn Magnússon dæmdi leikinn og honum til aðstoðar voru Óliver Thanh Tung Vú og Ingibjörg Garðarsdóttir Briem. Stærsta ákvörðun leiksins kom þegar Hreinn dæmdi réttilega vítaspyrnu eftir brot Mollee Swift á Sophiu Faith Romine í síðari hálfleik. Stemning og umgjörð Það var kalt í Laugardalnum í kvöld en ágætis mæting þrátt fyrir það. Liðin buðu upp á fjörugan síðari hálfleik. Eftir markalausar fyrstu 45 mínútur komu fimm mörk á innan við hálftíma og spenna hélst í leiknum eftir að gestirnir minnkuðu muninn í 3-2. Bríet Fjóla er ein efnilegasta knattspyrnukona landsins.KNATTSPYRNUFÉLAGIÐ ÞRÓTTUR Bríet Fjóla: „Sjálfstraustið er komið til baka“ Bríet Fjóla Bjarnadóttir, leikmaður Þróttar, var ánægð eftir 3-2 sigur liðsins gegn Grindavík/Njarðvík í lokaumferð Bestu deildar kvenna í kvöld. Hún segir mikla baráttu hafa einkennt leikinn en er jafnframt ánægð með eigin frammistöðu að undanförnu. „Mér fannst við mjög góðar. Það var mikil barátta og þetta var mjög jafn leikur langt fram í leik,“ sagði Bríet Fjóla eftir leik. Bríet hefur verið sjóðandi heit fyrir framan markið að undanförnu og segir aukið sjálfstraust eiga stóran þátt í því. „Mér finnst bara sjálfstraustið mitt hafa komið til baka. Ég var ekki alveg að finna mig fyrr á tímabilinu en mér finnst ég passa mjög vel inn í hópinn hérna hjá Þrótti og mér líður mjög vel.“ Bríet staðfesti jafnframt að hún ætlaði að halda áfram hjá Þrótti á næstu leiktíð. „Já, ég ætla að vera áfram hjá Þrótti. Mér líður mjög vel hérna og ég ætla bara að halda áfram að þróast hér. Svo veit ég ekki hvað gerist.“ Jóhann Kristinn Gunnarsson er þjálfari Þróttar.vísir/Anton Jóhann Kristinn: „Ég er gríðarlega þakklátur þeim“ Jóhann Kristinn Gunnarsson, þjálfari Þróttar, var ánægður eftir sigur liðsins á Grindavík/Njarðvík í lokaumferð Bestu deildar kvenna í kvöld. Hann segir liðið hafa tekið miklum framförum eftir erfiða byrjun á tímabilinu. „Það var gott að klára þetta með sigri,“ sagði Jóhann Kristinn eftir leik. Jóhann sagði að þrátt fyrir erfiða byrjun á tímabilinu hefði liðið smám saman fundið taktinn. Honum þætti leikmennirnir nú vera að finna þær leiðir sem lagt hefði verið upp með og að liðið væri orðið betur tengt inni á vellinum. Hann sagði jafnframt bikarmeistaratitilinn standa upp úr ásamt því hvernig leikmenn hefðu unnið sig út úr erfiðum vikum og mánuðum. „Mér finnst þær vera til fyrirmyndar og ég er gríðarlega þakklátur þeim,“ sagði Jóhann Kristinn. Þjálfarinn staðfesti að hann yrði áfram hjá Þrótti á næsta tímabili og sagðist spenntur fyrir framhaldinu. „Ég sé hvað við getum gert og mér finnst ekki vera langt í það. Mér finnst ekki vera stór skref sem eru eftir.“ Gylfi Tryggvason kemur skilaboðum áleiðis í leiknumGuðmundur/Vísir Gylfi: „Við erum ódýrasta liðið í þessari deild“ Gylfi Tryggvason, þjálfari Grindavíkur/Njarðvíkur, var þakklátur fyrir tímabilið þrátt fyrir 3-2 tap gegn Þrótti í lokaumferð Bestu deildar kvenna í kvöld. Hann segir liðið hafa náð frábærum árangri miðað við fjárhagslega stöðu félagsins. „Ég er bara þakklátur fyrir að hafa fengið að upplifa þetta tímabil,“ sagði Gylfi eftir leik og bætti við að tímabilið hefði verið draumatímabil að mörgu leyti. Gylfi hefur farið ítarlega yfir frammistöðu liðsins og segir niðurstöðuna skýra. „Ég er búinn að rannsaka þetta vel og vandlega, ólíkt kannski því sem er stundum í umræðunni, við erum samkvæmt mínum rannsóknum með minnsta budgetið í deildinni,“ sagði Gylfi og bætti við: „Við erum ódýrasta liðið í þessari deild.“ Hann benti á að liðið hefði engu að síður komist í bikarúrslit og verið í hópi bestu liða deildarinnar samkvæmt tölfræðinni. Hann telur því að liðið hafi staðið sig afar vel miðað við þær bjargir sem það hefur. Aðspurður hvort næsta skref væri að berjast um Íslandsmeistaratitilinn sagði Gylfi að það færi eftir því hvernig litið væri á málið. Hann vonaðist til að félagið gæti fengið fleiri styrktaraðila og aukið fjármagn til að halda áfram uppbyggingunni. „Ég væri alveg til í að vera ekki með ódýrasta lið deildarinnar. Það eru tvö lið sem eru með yfirburði þar og við þurfum allavega að reyna að nálgast þessi lið fyrst.” Framtíð Gylfa hjá félaginu er hins vegar óljós. „Þegar stórt er spurt,“ sagði hann þegar hann var spurður hvort hann myndi halda áfram sem þjálfari liðsins. „Ég veit það ekki, ef ég á að vera alveg hreinskilinn, sko.“ Gylfi sagðist vera að renna út á samningi eftir tímabilið og að framhaldið yrði rætt á næstunni. Hann vildi ekki fara nánar út í þær viðræður að svo stöddu. Besta deild kvenna Þróttur Reykjavík UMF Grindavík UMF Njarðvík