Fótbolti

Vopnaðir ræningjar brutust inn á heimili fyrrum markmanns PSG

Andri Broddason skrifar
Sergio Rico spilaði ellefu leiki fyrir PSG.
Sergio Rico spilaði ellefu leiki fyrir PSG. Antonio Borga/Eurasia Sport Images/Getty Images

Sergio Rico, fyrrum markmaður PSG, lenti í skelfilegu atviki fyrr í vikunni þegar vopnaðir ræningjar brutust inn á heimili hans í Sevilla. Rico faldi sig inni á heimilinu með konu sinni, Alba Silva, og tveimur börnum.

Samkvæmt heimildum The Athletic hótuðu ræningjarnir Rico og fjölskyldu hans áður en þeir tóku mikið magn af verðmætum og hlupu á brott. Málið er komið á borð lögreglunnar í Sevilla en ekki er vitað hverjir ræningjarnir eru að svo stöddu.

Rico og Silva eignuðust nýverið sitt annað barn og því er fjölskyldan enn gríðarlega ung. Rico hefur ferðast víða á sínum ferli en þessa stundina er hann samningslaus eftir að hafa farið frá Al-Gharafa í Katar í sumar.

Þrátt fyrir að vera án félags þessa stundina þá hefur hann komið víða við á sínum ferli. Eftir að hafa alist upp í Sevilla fór hann í gegnum akademíu félagsins en var svo lánaður þaðan til Fulham í ensku úrvalsdeildinni. Eftir eitt ár þar var hann aftur lánaður í eitt ár til PSG en franska félagið endaði á að kaupa leikmanninn.

Hjá PSG var hann lánaður til Mallorca og fór svo frá PSG árið 2024 til Katar. Rico lenti einnig í því óhappi að vera rændur en það var brotist inn til hans á meðan PSG spilaði gegn Montpellier. Þegar hann fór aftur heim eftir leikinn uppgötvaði hann að búið væri að brjótast inn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×